Morgunblaðið - 18.01.2004, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 69
DAGBÓK
Námskeið á vorönn hefjast
26. og 28. janúar
BRIDSSKÓLINN
Byrjendur: Hefst 28. janúar
og stendur yfir í 10 miðvikudagskvöld,
þrjár klst. í senn, frá kl. 20—23.
Þú þarft ekkert að kunna, en ekki sakar að þekkja ás frá kóng.
Þú mátt koma ein eða einn, með öðrum eða í hóp, og það er
sama hvort þú ert 18 ára eða 90. Eða einhvers staðar þar á milli.
Allir geta lært að spila brids og skemmt sér konunglega um leið.
Framhald: Hefst 26. janúar og stendur yfir í 10
mánudagskvöld, þrjár klst. í senn, frá kl. 20—23.
Tími endurmenntunar er runninn upp. Þú þarft að læra kerfið almenni-
lega, ná sambandi við makker í vörninni og hætta að spila niður
borðleggjandi samningum. Sem sagt, taka hlutina föstum tökum.
Bæði námskeiðin eru haldin í húsnæði
Bridssambands Íslands, Síðumúla 37.
Nánari upplýsingar og innritun í síma 564 4247
milli kl. 13 og 18 virka daga.
Ath.: Mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði!
TRÉSKURÐUR
Námskeið í myndskurði og öskjugerð hefst 27. janúar.
Kennt verður á gamalgrónu verkstæði á Laugavegi 100.
Örn Sigurðsson myndskeri og húsgagnasmíðameistari.
Skráning og nánari upplýsingar í síma 848 8659.
Auðbrekka 2 • 200 Kópavogi • Sími 517 5556
Netfang: syngjum@syngjumsaman.is
Veffang: syngjumsaman.is
Söngnámskeið fyrir unga og aldna,
laglausa sem lagvísa!
4 vikna hópnámskeið fyrir byrjendur.
Kennsla hefst 27. janúar.
Regnbogakórinn framhald
Dægurkórinn/Lengra komnir
Kórarnir fara í tónleikaferðalag
til Íslendingabyggða í Kanada í vor.
Söngstjóri: Esther Helga Guðmundsdóttir.
Meðleikari: Katalin Lörinz.
Innritun í síma 517 5556 á skrifstofutíma
Atli Einarsson
sérfræðingur í lyflækningum og hjartasjúkdómum
opnar hinn 5. febrúar stofu í Læknasetrinu,
Þönglabakka 1, 109 Reykjavík.
Tímapantanir í síma 535 7700
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert hugmyndarík/ur og
skapandi en lætur yfirleitt
lítið á því bera. Þú ert
frábært foreldri því þú
ert ung/ur í anda og skilur
því hvernig ungviðið hugsar.
Þú munt læra eitthvað
mikilvægt á þessu ári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert ekki jafnsjálfhverf/ur
og þú hefur verið að und-
anförnu og munt því hugs-
anlega taka þátt í einhvers
konar sjálfboðaliðastarfi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þetta er góður tími til að njóta
lífsins með vinum þínum.
Stjörnurnar eru sérstaklega
hagstæðar hvað félagslífið
varðar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Næstu vikurnar munu senni-
lega verða þér hagstæðar í
starfi og á vinnustaðnum.
Valdamiklir einstaklingar
vilja hjálpa þér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú hefðir bæði gagn og gaman
af því að fara í langt ferðalag.
Þig langar til að kanna heim-
inn á skemmtilegan hátt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónin verða óvenju ástríðu-
full næstu vikurnar. Ný ást-
arsambönd sem þau stofna til
munu því að öllum líkindum
verða ástríðufull og hafa mikil
áhrif á líf þeirra.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Öll sambönd þín ættu að
breytast til batnaðar á næst-
unni.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Hlutirnir munu fara að breyt-
ast til batnaðar í vinnunni inn-
an tíðar. Vandamálin munu
gufa upp og sambönd þín við
yfirmenn þína og samstarfs-
fólk batna. Þú gætir jafnvel
fengið launahækkun.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú getur látið þig hlakka til
skemmtilegra tíma. Ást-
armálin, listsköpun og sam-
skipti við börn munu blómstra
á næstunni.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Hrintu hugmyndum þínum
um endurbætur á heimilinu í
framkvæmd. Þig langar til að
gera heimili þitt glæsilegra og
meira aðlaðandi. Láttu verða
af því.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú sérð nánasta umhverfi þitt
í jákvæðara ljósi en þú hefur
gert að undanförnu. Þú kannt
einfaldlega að meta það sem
þú átt.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Samningaviðræður sem tengj-
ast fjármálum munu sennilega
snúist þér í hag. Gerðu ráð
fyrir velgengni en hafðu samt
vaðið fyrir neðan þig.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Vinasambönd þín munu
blómstra á næstunni og því
ættirðu að gefa þér sem mest-
an tíma til að njóta samvista
við vini þína. Þetta er einnig
góður tími til að leita sátta.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÁRNAÐ HEILLA
Lengi býr að fyrstu gerð.
Þessi speki á einkar vel við
um vörnina. Setjum okkur í
spor austurs, sem er í vörn
gegn fjórum spöðum:
Suður gefur; AV á hættu.
Norður
♠43
♥Á8752
♦D83
♣D98
Austur
♠76
♥106
♦ÁK7642
♣Á63
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 spaði
Pass 1 grand 2 tíglar 4 spaðar
Pass Pass Pass
Makker spilar út tígultíu,
lítið úr blindum, þú setur
kónginn og sagnhafi gosann.
Hvernig viltu verjast?
Ef makker á 109x í tígli
virðist skást að spila hjarta-
tíu og reyna að brjóta þar
slag. En ef útspilið er frá tí-
unni annarri (og suður að
blekkja með Gx) horfir málið
öðruvísi við. Vandinn er að
sjá ekki lengd makkers í
tígli.
Spilið er frá 13. umferð
Reykjavíkurmótsins á
fimmtudaginn og viðkom-
andi austur valdi að spila
hjarta með slæmum árangri:
Norður
♠43
♥Á8752
♦D83
♣D98
Vestur Austur
♠985 ♠76
♥943 ♥106
♦105 ♦ÁK7642
♣K10542 ♣Á63
Suður
♠ÁKDG102
♥KDG
♦G9
♣G7
„Höfðum við ekki talað
um að spila þriðja hæsta frá
109x í lit makkers?“ Vestur
var skiljanlega ekki ánægð-
ur með vörnina og rifjaði
upp fyrra samkomulag, sem
austur hafði greinilega
gleymt. En reglan er góð og
hreinsar stöðu sem þessa al-
gerlega. Ef austur veit að
makker á tvíspil í tígli, tekur
hann næst á tígulás, svo
laufás og hlýðir kalli vesturs
þar. Einfalt, ef grunnreglan
er til staðar.
BRIDS
Guðmundur Páll Arn-
arson
50 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 18. jan-
úar, er fimmtug Ragnheið-
ur Jóhanna Eyjólfsdóttir,
Holtsgötu 6. Hún tekur á
móti skyldfólki og vinum á
heimili sínu frá kl. 16–19.
90 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag-
inn 19. janúar, er níræður
Árni Jónsson, fyrrv. land-
námsstjóri frá Sandfells-
haga í Öxarfirði. Árni er að
heiman á afmælisdaginn en
sendir vinum og sam-
ferðafólki hugheilar kveðjur
í tilefni dagsins.
RÍKUR OG FÁTÆKUR
Ríkur búri ef einhver er,
illa máske þveginn,
höfðingjar við síðu sér
setja hann hægra megin.
Fátækur með föla kinn
fær það eftirlæti,
á hlið við einhvern hlandkoppinn
honum er ætlað sæti.
Hjálmar Jónsson í Bólu.
LJÓÐABROT
Ég vil byrja á því að þakka
þau viðbrögð, sem ýmsir
lesendur þessara pistla
hafa sýnt þeim, eftir að ég
fór að gefa bæði upp síma-
númer mitt og netfang.
Þannig hafa þeir veitt mér
ýmis umræðuefni, sem ég
vona, að geti komið ein-
hverjum að gagni. Sann-
leikurinn er jú sá, að í öllu
því orðaflóði, sem streymir
um blöð og ljósvaka, hlýtur
margt að fara fram hjá
mér. Þetta bið ég menn
gjarnan að hafa í huga. Þá
tek ég fegins hendi, þegar
lesendur hafa rekizt á eitt-
hvert orð eða orðasamband
í mæltu máli, sem þeir
kannast ekki við úr máli
sínu. Eftir síðasta pistil
ræddi lesandi við mig um
orð þau, sem eru í fyrirsögn
pistilsins og honum finnst
ekki alveg rétt notuð. Mað-
ur hafði orðið fyrir slysi og
var á eftir haldið sofandi
fyrst um sinn. Þá var ko-
mizt svo að orði í frétt
nokkru síðar, að ástand
hans væri stöðugt. Þetta
fannst viðmælanda mínum
tæplega rétt orðalag. Hér
hefði farið betur að segja,
að líðan hans væri óbreytt.
Ekki veit ég, hvort lesend-
ur geti talið þessi orð eins
konar samheiti. Hvort sem
heldur er, hygg ég erfitt að
synja fyrir fyrrgreinda
orðalagið. Samt er ég sam-
mála lesandanum um það,
að no. líðan eigi að jafnaði
betur við í slíkri frásögn.
Reyndar er það orð ekki
tekið sem samheiti við no.
ástand í Íslenskri sam-
heitaorðabók, en þar eru
mörg önnur nafnorð tekin
sem samheiti. Það segir
auðvitað ekki, að önnur no.
geti ekki einnig átt þar
heima. Fróðlegt er að fá
skoðanir lesenda um þetta.
Sími 557 4977 og tölvufang
jaj@simnet.is - J.A.J.
ORÐABÓKIN
Ástand – líðan
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. g3 d5 4.
Bg2 Bb4+ 5. Bd2 Be7 6.
Rf3 O-O 7. O-O c6 8. Db3
Rbd7 9. Bf4 a5 10. a4 Rb6
11. Rbd2 Rh5 12. Be3 Bb4
13. Dc2 Rf6 14. Bf4 Rh5 15.
Bg5 f6 16. Be3 g5 17. b3
Rg7 18. h4 h6 19. Bh3 De8
20. Rh2 Rf5 21. Rdf3 Dg6
22. hxg5 hxg5 23. Bd2 Bxd2
24. Dxd2 Hf7 25. Dd3 Hh7
26. Bg4 Rd7 27. cxd5 cxd5
28. Hac1 Rf8 29.
Hc5 Re7 30.
Dxg6+ Rexg6 31.
Hfc1 Bd7 32. Re1
Bc6 33. Rd3 Re7
34. e3 Kf7 35. Bf3
Rd7 36. H5c2 e5
37. dxe5 fxe5 38.
Rg4 e4 39.
Rde5+ Rxe5 40.
Rxe5+ Ke6 41.
Rxc6 Rxc6 42.
Bg2 g4 43. Hc5
Hah8 44. Hb5
Hd7 45. Hd1 Hc8
46. Hc1 Hh8 47.
Hd1 Hc8 48. Hc1
Hdc7 49. Bf1 Re5
50. Hxc7 Rf3+ 51. Kg2
Hxc7 52. Hb6+ Ke5 53.
Hh6 Hc2 54. Hg6 Kf5 55.
Hd6 Hd2 56. Bb5 Hd1 57.
Bf1
Staðan kom upp í Meist-
araflokki Hastingsmótsins
sem lauk fyrir skömmu.
Abhijit Kunte (2535) hafði
svart gegn Peter Heine
Nielsen (2626). 57... d4! 58.
exd4 e3 59. Hd5+ 59. fxe3
gekk ekki upp vegna
59...Hd2+ 60. Kh1 Hh2#.
59... Ke6 60. Hd8 Ke7 og
hvítur gafst upp enda fátt
til varna eftir 61. Hd5 e2.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Nú erum við komin til
svörtustu Afríku!
LANDSPÍTALI - HÁSKÓLASJÚKRAHÚS
SLYSA- OG BRÁÐADEILD, Fossvogi sími 543 2000.
BRÁÐAMÓTTAKA, Hringbraut sími 543 2050.
BRÁÐAMÓTTAKA BARNA, Barnaspítala Hringsins sími
543 1000.
BRÁÐAMÓTTAKA GEÐDEILDA, Hringbraut sími
543 4050.
NEYÐARMÓTTAKA v/nauðgunarmála, Fossvogi sími
543 2085.
EITRUNARMIÐSTÖÐ sími 543 2222.
ÁFALLAHJÁLP sími 543 2085.
LÆKNAVAKTIR
BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á
kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15. Upp-
lýsingar í s. 563 1010.
LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í
Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn-
arfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30
v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni og
símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um helg-
ar og frídaga. Nánari upplýsingar í s. 1770.
TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá-
tíðir. Símsvari 575 0505.
APÓTEK
LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8–
24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101.
LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–24. S. 533 2300.
LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími
564 5600.
NEYÐARÞJÓNUSTA
BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf-
rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra
daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493.
HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep-
urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum trún-
aði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum.
TRÚNAÐARSÍMI RAUÐAKROSSHÚSSINS. Ráðgjafar-
og upplýsingasími ætlaður börnum, unglingum og að-
standendum þeirra. Nafnleynd. Opið allan sólarhr. Gjald-
frjálst númer: 1717 – Netfang: husid@redcross.is
VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer
800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til að
tala við. Svarað kl. 20–23.
BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430 tek-
ur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan skrif-
stofutíma.
NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sólar-
hringinn. Vímulaus æska- Foreldrahús.
Neyðarnúmer fyrir
allt landið - 112
ÞJÓNUSTA