Morgunblaðið - 18.01.2004, Page 73

Morgunblaðið - 18.01.2004, Page 73
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 73 Fyrir nokkrum árum drókunningi minn mig með sérá tónleika í New York. Égvissi ekkert um hljómsveit- ina sem átti að spila annað en að hún var frá Mexíkó, en eftir tónleikana var ég með það á hreinu að þar var komin ein skemmtilegasta hljómsveit sem ég hafði séð á sviði, tónlistin frumleg blanda af rokki. fram- úrstefnu, poppi, tilraunatónlist og mexíkanskri þjóðlagatónlist. Hljóm- sveitin var Café Tacuba og hún var að kynna plötuna Re. Seint á síðasta ári kom út ný plata Café Tacuba, Quatre Caminos, sem hlotið hefur mikið lof. Á níunda og tíunda áratugnum varð mikil vakning í rokki á spænsku um allan hinn spænskumælandi heim, á Spáni og í Suður-Ameríku. Sú hreyfing kallaðist Rock en español, en hreyfiaflið var að sungið var á spænsku. Þjóðleg tónlist og létt dæg- urtónlist hafði jafnan verið með spænskum söngtextum, en fram að Rock en español-hreyfingunni var al- siða að spænskar og suður-amerískar rokksveitir flyttu lög sín á ensku. Þessi hreyfing skilaði grúa skemmti- legra hljómsveita, þar á meðal mexí- kósku sveitinni Café Tacuba sem líkt hefur verið við Pogues, Bítlana („Re er eins og hvíta albúmið“), Radiohead („Quatre Caminos er Kid A fyrir spænskumælandi“) og svo má telja. Kaffihúsið við Tacuba götu Stofnendur Café Tacuba voru þeir Rubén Albarrán og Joselo Rangel sem kynntust í háskóla í Mexíkóborg 1989 þar sem þeir voru báðir að læra grafíska hönnun. Áhugi á síðpönki sameinaði þá og þeir ákváðu að stofna hljómsveit. Þeir voru báðir gítarleik- arar og fengu bróður Rangels, Qui- que, í lið með sér sem bassaleikara, en hann var einnig við nám í skól- anum. Fjórði maður í sveitinni var svo hljómborðsleikarinn og verk- fræðineminn Emmanuel Del Real, kallaður Meme. Þeir sem þekkja skíf- ur sveitarinnar hafa eflaust tekið eftir því að Albarrán er ekki nefndur svo á umslögum þeirra, enda hefur hann ævinlega komið fram undir öðru nafni og öðrum nöfnum reyndar, skipt um nafn fyrir hverja plötu, á Quatre Caminos heitir hann Elfego Buendía, en hefur áður notað nöfnin Pinche Juan, Cosme, Anónimo, Nrü (borið fram tsíú), Amparo Tonto Medardo In Lak’ech og Gallo Gasss. Nafn hljómsveitarinnar er svo komið af veitingahúsi í Mexíkóborg, Café Tacuba, kaffihúsið við Tacuba götu. Framan af var sveitin undir sterk- um áhrifum af bresku síðpönki sem vonlegt er, vildu stæla The Smiths, Cure og Pixies en aðrir áhrifavaldar voru mexíkóskir eftir því sem þeir hafa sjálfir rakið, pönksveitin Ritmo Peligroso, sem fræg varð meðal ann- ars fyrir að skreyta pönkið kúb- versku slagverki, galsarokksveitinni Botellita de Jerez og Jaime López, sem menn nefna hinn mexíkóska Leonard Cohen fyrir pælda texta. Með tímanum ákváðu þeir félagar að rafrokk væri ekki nóg til að skila því sem þeir vildu segja, tóku upp kassa- gítara og kontrabassa, en Meme sá um takt með ódýrum trommuheila sem innbyggður var í hljómborð, en aðalhljóðfæri hans varð melódíka (munnorgel). Frekar svið en hljóðver Með þessa hljóðfæraskipan og Al- barrán sem söngvara byrjaði sveitin að spila allstaðar þar sem því varð við komið, en á einum af fyrstu tón- leikum Café Tacuba var argentínskur tónlistarmaður og upptökustjóri, Gustavo Santaolalla, sem hreifst svo af að hann hvatti þá félaga til að fara í hljóðver. Þeir voru þó ekki á því, sag- an segir að þeir hafi frekar viljað spila á sviði en brasa í hljóðveri. Það var ekki fyrr en þeim bauðst almennileg- ur útgáfusamningur að þeir voru til í upptökur og fyrsta platan kom svo út 1992 á vegum Warner útgáfurisans og bar einfaldlega nafn sveitarinnar. Tónlistin á þessari fyrstu skífu er mun pönkaðri en það sem síðan hefur komið, greinilegt að þeir félagar eru enn að glíma við dálæti sitt á þeim hljómsveitum sem gáfu fyrsta inn- blásturinn, en lyftir plötunni til muna að á henni eru þeir þegar byrjaðir á tilraunamennskunni sem gera hana svo eftirminnilega, beita mexíkóskum töktum, ska og óhljóðum. Platan seldist í meiri mæli í heima- landinu en nokkur átti von á, setti reyndar sölumet, og í kjölfarið fór sveitin í langa tónleikaferð um Mexíkó og hélt sína fyrstu tónleika í Bandaríkjunum. „Hvíta albúmið“ Næsta skífa kom svo 1994 og kall- aðist einfaldlega Re. Henni var gríð- arlega vel tekið, hefur iðulega verið líkt við hvíta albúm Bítlanna eins og getið er, þá helst fyrir það hve fjöl- breytt hún er og margslungið verk; tuttugu laga safn með ótrúlegum út- úrdúrum og tilvísunum í allt frá frum- stæðri indíánatónlist í nútímalega raftónlist, aðallega rokk en líka popp, pönk, ska, r&b, óhljóð, salsa, desc- arga, ragtime, danzón og svo má telja – afbragðs plata. Tónleikaferðin til að fylgja Re eftir var umfangsmeiri en áður og nú lék sveitin á þónokkrum tónleikum í Bandaríkjunum. Þegar heim var komið hraus þeir Café Tacuba- félögum hugur við að fara strax í hljóðver að búa til nýja plötu, en voru þó með í farteskinu nokkuð af laga- hugmyndum og bútum sem orðið höfðu til á tónleikaförinni löngu. Í stað þess að vinna frekar í þeim lög- um að svo stöddu ákváðu þeir að lyfta sér aðeins upp og tóku upp nokkur uppáhaldslög eftir aðra á mettíma og gáfu út undir nafninu Avalancha de Éxitos. Sú plata kom út 1996, en á henni eru meðal annars gamlar lummur („Perfidia“ eftir Alberto Dominguez) og vinsæl lög frá öðrum löndum Suð- ur-Ameríku, þar á meðal „Chilanga Banda“ eftir áðurnefndan Jaime Ló- pez sem sungið var á mexíkósku götuslangri sem enginn skildi utan Mexíkóborgar en varð þó gríðarlega vinsælt um alla Suður-Ameríku í flutningi Café Tacuba. Chéverecachaimachochidoché Í kjölfar Avalancha de Éxitos fylgdi mikil tónleikaför undir nafninu Chéverecachaimachochidoché, sem er samsteypa af fimm Suður- Amerískum slanguryrðum yfir „fínt / frábært“. Alls lék sveitin á 59 tón- leikum í 13 löndum Suður- og Norð- ur-Ameríku, allt frá Santiago de Chile til Central Park í New York. Eftir þá miklu ferð ákváðu þeir að breyta til þegar næsta skífa væri unnin. Fram að því höfðu þeir haft þann háttinn á að menn komu með lög eða hugmyndir hver fyrir sig og unnu svo í sameiningu. Nú vildu þeir breyta til, hófu upptökur án þess að vera með nokkuð undirbúið fyr- irfram, skiptust á hljóðfærum og ákváðu að hafa lögin án söngs. Til við- bótar við þau hljóðfæri sem þeir höfðu stuðst við fram að þessu, komu svo ýmisleg hljóð og óhljóð sem þeir höfðu safnað á götu úti í Mexíkóborg og víðar aukinheldur sem lögin á plöt- unni hétu ekki eiginlegu nöfnum heldur númerum sem valin voru af handahófi, t.d. „5.1“ og „13“. Quique lýsti því sem svo að þeir hafi eiginlega aldrei ætlað að gefa tónlistina út, þetta hafi verið eins konar meðferð fyrir þá félaga, en upptökustjóranum fannst platan svo vel heppnuð að hann hvatti þá til að gefa hana út. Plötuna kölluðu þeir svo Revés, afturábak / öfugt. Frammámönnum hjá Warner leist ekki á blikuna þegar þeir heyrðu plötuna og vildu ekki gefa hana út við svo búið, töldu að hún myndi spilla fyrir hljómsveitinni og ekki seljast upp í kostnað. Eftir nokkurt stapp létu Café Tacuba- félagar undan þrýstingnum og féllust á að bæta við lögum með söng, eða réttarar sagt að bæta við annarri plötu svo úr yrði tvöföld plata / disk- ur. Þeir grófu upp lögin sem urðu til á Re tónleikaferðinni og legið höfðu í salti síðan og tóku upp plötuna YoSoy. Grammy-verðlaun Reves/YoSoy kom út 1999 og var einkar vel tekið af gagnrýnendum og gott betur því hún fékk Grammy- verðlaun sem besta suður-ameríska plata ársins. Þrátt fyrir það og þó Warner, útgefandi Reves/Yosoy, hafi lagt mikið á sig til að selja plötuna seldist hún ekki nema miðlungi vel. Hljómleikaferð til að fylgja skífunni eftir var löng og að henni lokinni ákváðu liðsmenn sveitarinnar að taka sér frí. Þeir hættu þó ekki að vinna tónlist, lögðu til músík í mexíkósku kvikmyndirnar Y tu mama tambien og Amores perros, unnu verk með Kronos-kvartettinum sem er að finna á þeirri ágætu plötu Nuevo, sendu frá sér sólóskífur og tóku þátt í ýmisleg- um uppákomum. Fríið var líka notað til að gera nýj- an útgáfusamning, við MCA, og á þarsíðasta ári sneru þeir sig í gang með stuttskífunni Vale Callampa, en á henni voru fjögur lög eftir chilesku rokksveitina Los Tres sem þá var ný- hætt, að því þeir segja eins konar virðingarvottur við þá prýðilegu hljómsveit sem var í miklum metum manna á meðal í Suður-Ameríku þó fáir þekki hana utan álfunnar. Upptökur á nýrri breiðskífu hófust svo sama ár og nú var tekið upp í Los Angeles, Buffalo og Mexíkóborg. Upptökustjórar voru þeirra gamli fé- lagi Gustavo Santaolalla, sem komið hefur að öllum plötum sveitarinnar, Dave Fridmann, sem frægur er fyrir samstarf sitt við Flaming Lips, Merc- ury Rev og Andrew Weiss, sem vann meðal annars með Ween. Platan Cuatro Caminos, fjórar leið- ir, ber nafn neðanjarðastöðvar og mikilla gatnamóta í Mexíkóborg. Hún er fjölbreytt eins og Café Tacuba er siður, en um leið aðgengilegri en margt það sem sveitin hefur áður gert, greinilegt að fríið hefur gert sveitarmönnum gott. Á plötunni fá rafgítarar að njóta sín í fyrsta sinn í sögu Café Tacuba frá því þeir lögðu slík tól á hilluna á sínum tíma. Þeir fá einnig til liðs við sig trommuleikara í fyrsta sinn, Victor Indrizzo, sem leik- ið hefur með Beck, Macy Gray og Chris Cornell og Joey Waronker, sem spilað hefur með Beck, R.E.M. og Smashing Pumpkins. Ýmsir urðu til þess að velja Quatre Caminos plötu ársins eða eina af plötum ársins, en hún á þó enn eftir að fá þá dreif- ingu og kynningu sem vert er um svo ágætt verk. Fjórar leiðir Café Tacuba. Þó að hugsanlega þekki fáir hana hér á landi eru menn víða um heim á því að mexíkanska hljómsveitin Café Tacuba sé með fremstu rokksveitum heims og nýjasta plata hennar, Quatre Caminos, mikið meistaraverk. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433 Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15 Útsala Staður Nafn Sími 1 Sími 2 Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542 Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600 Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672 Bifröst Ólafur Snorri Ottósson 435 0098 694 7372 Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243 Blönduós Björn Svanur Þórisson 452 4019/864 4820/690 7361 Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965 Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474 Breiðdalsvík María Jane Duff 475 6662 Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381 Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039 Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 662 1373 Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350 Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123 Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315 Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370 Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885 Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 846 8123 Grenivík Hörður Hermannsson 463 3222 Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608 Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148 Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758 Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 895 0222 Hellissandur/Rif Aron Jóhannes Leví Kristjáns. 436 6925 Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478 Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140 Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823 Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683 Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 894 5591 Hveragerði Erna Þórðardóttir 483 4421 862 7525 Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711 Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416 Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 821 3475 Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463 Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024 Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8378 895 7818 Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112 Laugarás Jakop Antonsson 486 8983 Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679 Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173 Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2347 866 7958 Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305 Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230 Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344 Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574 Reykholt Bisk. Oddur Bjarni Bjarnason 486 8900 Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783 Reykjahlíð v/Mýv. Margrét Hróarsdóttir 464 4464 Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674 Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 862 2888 Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700 Seyðisfjörður Hanna Lísa Vilhelmsdóttir 472 1102 690 2415 Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067 Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815 Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141 Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864 Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244 Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 456 4936 Tálknafjörður Rakel Guðbjörnsdóttir 456 2595 696 2663 Varmahlíð Ragnar Helgason 453 8134 867 9649 Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131 Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 698 7521 Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750 Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135 Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 848 6475 Þingeyri Arnþór Ingi Hlynsson 456 8285 Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627 Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249 Dreifing Morgunblaðsins Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni loftk stalinn@simnet.is Fim. 22. janúar kl. 20 laus sæti Lau. 31. janúar kl. 20 laus sæti Lau. 7. febrúar kl. 20 laus sæti „Frábært-drepfyndin-átakanlegt“ Opið virka daga kl. 13-18

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.