Morgunblaðið - 18.01.2004, Page 74

Morgunblaðið - 18.01.2004, Page 74
74 SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ  EPÓ kvikmyndir.com „Besta ævintýramynd allra tíma.“  ÞÞ FBL „VÁ. Stórfengleg mynd.“ „Besta mynd ársins.“ SV MBL Sýnd kl. 5.50 og 8. Yfir 75.000 gestir HJ MBL VG. DV Sýnd kl. 2, 4 og 8. B.i. 12. Sýnd kl. 2. Með íslensku tali.  Kvikmyndir.com Sýnd kl. 10.10. Stranglega bönnuð yngri en 16 ára. Frábær rómantísk gamanmynd með ótrúlegum eikkonum HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 13.30 Sýnd kl. 2 og 3.30. Íslenskt tal.  Kvikmyndir.com EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Sýnd kl. 1.40, 3.45, 5.50, 8 og 10.15. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Frábær rómantísk gamanmynd með ótrúlegum leikkonum Frumsýning Stórskemmtileg gamanmynd með Brittany Murphy (8 Mile og Just Married) sem fer að passa ríka litla stelpu eftir að hún stendur uppi peningalaus. Með hinni frábæru Dakotu Fanning. Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. B.i. 12 ára. kl. 2, 6 og 10.  EPÓ kvikmyndir.com „Besta ævintýramynd allra tíma.“ HJ MBL  ÞÞ FBL „VÁ. Stórfengleg mynd.“ „Besta mynd ársins.“ SV MBL Yfir 75.000 gestir VG. DV ÞEIR Sveppi og Auddi hafanú keyrt 70 mínútur semtvíeyki í um eitt ár. Ámorgun verða hins vegar vatnaskil þegar Pétur Jóhann Sig- fússon, betur þekktur sem Pétur Ding Dong, slæst í hópinn. Hann hefur verið annar umsjónarmanna morgunþáttarins Ding Dong á FM957 til þessa og var síðasti þátturinn hans þar á föstudaginn. Hvað kom til að Pétur var ráð- inn? Var það vegna Svínasúp- unnar þar sem þið lékuð saman? Sveppi: „Þetta var fyrir ótrú- lega slysni sem hann var ráðinn.“ Auddi: „Mjög mikla. Við hittum hann á ganginum og báðum hann um að vera í einum þættinum okkar. Þetta var á föstudegi og við vorum illa undirbúnir.“ Sveppi: „Um kvöldið fékk ég svo SMS frá yfirmanninum okkar þar sem hann lýsti yfir mikilli ánægju með Pétur.“ Pétur: „Það var að nást mjög afslappað andrúmsloft. Við tókum eiginlega ekki eftir því að það væri myndavél á okkur. Ég held nefnilega að ein af ástæðunum fyrir vinsældum þáttarins sé sú að það er engin tilgerð í gangi.“ Þriðji maðurinn Af hverju þriðja manninn? Auddi: „Það þarf þrjá menn til að gera þáttinn almennilega ef svo má segja. Það er ansi stíft að klára klukkutíma þátt, fimm daga vikunnar. Við erum því búnir að vera með augun opin en vildum ekki rasa að neinu. Þetta er alveg búið að ganga hjá okkur tveimur en það verður mjög gott að fá nýtt innlegg; nýjar hugmyndir frá Pétri.“ Pétur: „Maður er skíthræddur við að verða maðurinn sem eyði- lagði 70 mínútur! En án gríns þá líst mér mjög vel á þetta og ég er búinn að segja starfi mínu lausu í Ding Dong.“ Sveppi: „Hann sagði upp og hann fór „upp“! (Í aðalstöðvum Norðurljósa er útvarpssviðið á neðri hæðinni en sjónvarpsstöðv- arnar á þeirri efri).“ Pétur: „Ég hlakka rosalega mikið til. Það er gaman að breyta til en ég er búinn að vera í Ding Dong í fjögur ár. Þetta er orðið eins og að vinna í byggingarvöruverslun.“ Verða gerðar gagngerar breyt- ingar á þættinum? Sveppi: „Nei, það get ég nú ekki sagt. Þátturinn gengur vel og við höfum fínt áhorf. Þetta er ekki sökkvandi skip sem við erum að reyna að bjarga. Við erum bara að bæta í – fá aukamótor í bátinn og mála hann upp á nýtt. Pétur: „Auk þess sem boðið verður upp á veitingar um borð (allir hlæja).“ Er pressan mikil? Auddi: „Það er mjög skrýtin keyrslan í þessum þætti. Það er ekki erfitt að framkvæma hlutina en það getur verið flókið að fá hugmyndirnar.“ Sveppi: „Þær verða að vera þannig að þær séu auðveldar í framkvæmd. Við erum t.d. ekki með tökumann, þetta eru bara ég og Auddi.“ Af þvottaskap Nú seldist mynddiskurinn ykkar í 14.000 eintökum, áttuð þið von á því? Sveppi: „Nei. En við stefndum að gulli, það var markmiðið. Það voru veðmál í gangi og einn sagði 8.500 eintök. Hann var talinn vera bilaður.“ Og tríóið tekur svo til óspilltra málanna á mánudaginn kemur … Auddi: „Fyrsti þátturinn verður suddalegur. Pétur tekur þá þeirri áskorun að fara í gegnum bíla- þvottastöð á sundbol. Við höfum allir gert þetta!“ Talandi um þvott … segðu mér Sveppi, þegar þú skvettir vatninu á Audda (eins og sjá má á mynd- diskinum) og settir hann í ærleg- an morgunþvott, þurftir þú að nota svona mikið vatn? Var ekki óþarfi að hálfylla risa bala? Sveppi: „Ha ha. Já, þennan dag vorum við búnir að ákveða að mæta fyrr í vinnuna og taka dag- inn snemma. En sáum þá gott færi til að taka upp eitt atriði áð- ur …“ Auddi: „Ég er ekki að grínast, það var allt á floti. Rúmið mitt stóð úti á svölum í þrjá daga. Ég Hin heilaga þrenning? Pétur Jóhann Sigfússon (Pétur Ding Dong) mun frá og með morgundeginum slást í lið með þeim Audda og Sveppa í 70 mínútum. Arnar Eggert Thoroddsen ræddi við piltana, bæði í gamni og alvöru. Sveppasamloka. Strákarnir í 70 mínútum er strax orðnir algjörar samlokur. 70 mínútur fá liðsauka

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.