Morgunblaðið - 04.02.2004, Side 4

Morgunblaðið - 04.02.2004, Side 4
FRÉTTIR 4 MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ NÝR sæstrengur sem tengir Ís- land við Færeyjar og Skotland var tekinn í notkun í gær, og opnaði Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðherra fyrir fyrstu sendinguna um strenginn. Sæstrengurinn kallast FARICE og vísar það til landanna sem hann eiga, Færeyja og Íslands. Með til- komu strengsins segja forsvars- menn Farice hf., sem rekur strenginn, að flutningsgeta tals og gagna til útlanda hafi þús- undfaldast, og segja þeir jafnframt að öryggi í tengingu Íslands við út- lönd hafi stóraukist með tilkomu hans. Hingað til hafa samskipti Ís- lands við umheiminn farið um sæ- strenginn CANTAT-3, og vara- samband verið um gervihnött. Hér eftir verður aðalsamband um FAR- ICE og varasamband um CANT- AT-3, og búast forsvarsmenn Far- ice því við öruggara sambandi um nýja strenginn, enda CANTAT-3 kominn nokkuð til ára sinna. Sturla Böðvarsson tók strenginn formlega í notkun í gær, og opnaði fyrir sendingu frá tónlistarmann- inum KK sem staddur var á Traf- algar-torgi í Lundúnum. Við það tækifæri sagði Sturla að með lagn- ingu strengsins væri verið að byggja brú milli Íslands og ná- grannalandanna, og að strengurinn muni tryggja aukið öryggi í fjar- skiptum. Fjarskiptaumferð Íslendinga við útlönd hefur tvöfaldast á hverju ári undanfarin ár, og er þar einkum um að ræða aukningu í netumferð. Að óbreyttu var því ljóst að CANTAT-3 strengurinn yrði full- nýttur eftir þrjú til fimm ár. Hámarksflutningsgeta FAR- ICE-strengsins verður 720 gíga- bæt á sekúndu, sem myndi duga til að anna 11 milljón símtölum til eða frá landinu samtímis. Í byrjun verður þó aðeins brot af þeirri flutningsgetu virkjað, eða um 10 gígabæt á sekúndu milli Ís- lands og Skotlands og annað eins milli Færeyja og Skotlands, en flutningsgetan verður svo aukin á næstu árum með aukinni þörf. Í eigu Íslendinga og Færeyinga FARICE-strengurinn er í meiri- hlutaeigu Íslendinga, sem eiga 80%, en Færeyingar eiga 20%. Ís- lensku hluthafarnir í strengnum eru íslenska ríkið, Og Vodafone og Síminn. Farice hf. mun sjá um rekstur á sæstrengnum og selja ís- lenskum símafyrirtækjum flutning um strenginn á heildsöluverði. Símafyrirtækin munu svo ákveða lokaverð til neytenda. Strengurinn er samtals 1.407 km á lengd, en hin eiginlega ljósleið- aratenging sem endar í Reykjavík, Þórshöfn og Edinborg er samtals um 3.000 km löng. Munar þar um landleiðina á Ís- landi, í Færeyjum og Skotlandi. Strengurinn liggur frá Dunnet Bay í Skotlandi til Seyðisfjarðar og liggur hliðarlína úr honum til Fær- eyja. FARICE-sæstrengurinn tekinn í notkun Getur annað allt að 11 milljón símtölum samtímis Morgunblaðið/Golli Sturla Böðvarsson samgönguráðherra opnaði fyrir sendingu frá tónlistar- manninum KK í Lundúnum.             !" # $! % &' (   )*    +, &-  )   .  RÍKISSTJÓRN og þingflokkar stjórnarflokkanna samþykktu í gær að leggja fram á Alþingi frum- varp viðskiptaráðherra um breyt- ingar á lögum um fjármálafyrir- tæki þar sem gerð eru skil milli stofnfjáreigenda í sparisjóði annars vegar og stjórnar sjálfseignar- stofnunarinnar hins vegar. Vonast var til að frumvarpinu yrði dreift á Alþingi í gær og gert er ráð fyrir að það fái mjög skjótan framgang innan þingsins. Einar Oddur Krist- jánsson alþingismaður segir að frumvarp hans og Lúðvíks Berg- vinssonar, sem gekk í sömu átt, verði dregið til baka. Valgerður Sverrisdóttir við- skiptaráðherra sagði að samþykkt hefði verið í ríkisstjórninni og þingflokkum stjórnarflokkanna að leggja frumvapið fram í þinginu. Frumvarpið snúist um það að skilja á milli stofnfjáreigenda og sjálfseignarstofnunar. Í frumvarpi sé tekið á því atriði sem hún hafi ávallt gagnrýnt og felist í því að það fari ekki saman að þeir ein- staklingar, sem sitji í stjórn sjálfs- eignarstofnunarinnar, eigi hags- muna að gæta vegna þess að þeir eigi sjálfir stofnbréf eða hlutabréf í sparisjóði. „Í því tilfelli sem aðalllega er nú til umræðu sem eru þessi viðskipti KB-banka og SPRON var um það að ræða að það var allt annað gengi á bréfum og það hef ég gagn- rýnt frá því þetta var kynnt að mér finnist að það gangi ekki,“ sagði Valgerður. Hún sagði að í rauninni mætti segja að stjórnarmenn hefðu mjög mikla persónulega hagsmuni þegar þeir væru að ákveða gengi á bréf- um sjáfseignarstofnunarinnar og það mætti að minnsta kosti velta því fyrir sér hvort þeir væru hæfir. Valgerður sagði að samkvæmt frumvarpinu yrði stjórn sjálfseign- arstofnunar þannig skipuð að við- skiptaráðherra skipaði tvo, sveitar- félag þar sem sparisjóðurinn ætti heimilisfesti skipaði tvo og einn fulltrúi væri skipaður af samtökum sparisjóða. „Þar með er komin sér- stök óháð stjórn yfir þessa sjálfs- eignarstofnun sem málið snýst auð- vitað mikið um, en hins vegar gengur þetta frumvarp ekki það langt að það sé verið að útiloka alla framþróun sparisjóðanna í landinu, enda hef ég ekki viljað bera ábyrgð á því vegna þess að við vitum það að viðskiptalífið er þannig að það þurfa að vera einhverjir mögu- leikar á breytingum og þróun,“ sagði Valgerður. Hún sagðist óttast að það frum- varp sem Einar Oddur Kristjáns- son og Lúðvík Bergvinsson höfðu boðað flutning á hefði hvorki sam- rýmst eignarréttarákvæðum stjórnarskrárinnar né ákvæðum EES-samningsins. Aðspurð hvort hún teldi að frum- varp hennar kæmi í veg fyrir sölu SPRON til KB banka sagði hún að það væri ekki hennar að ákveða það, en það væri að minnsta kosti ljóst að það væri mjög breytt staða í sambandi við þau viðskipti. „Óháðir aðilar fara með stjórn sjálfseignarstofnunarinnar og þar af leiðandi koma stofnfjáreigendur ekkert að þeirri ákvarðanatöku. Ég ætla ekki að ákveða fyrirfram fyrir þá stjórn, en það er að minnsta kosti ljóst að sú stjórn á ekki per- sónulegra hagsmuna að gæta,“ sagði Valgerður. Hún sagðist aðspurð telja að það væri mjög mikill vilji til þess að þetta frumvarp færi hratt í gegn- um þingið. Ánægðir með frumvarp ráðherrans Einar Oddur Kristjánsson, al- þingismaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að þeir reiknuðu ekki með að þurfa að flytja frumvarp sitt sama efnis og myndu draga það til baka. „Við erum ánægðir með frumvarp ráðherrans og við styðjum það. Ég býst við að það fái mjög víðtækan stuðning í þinginu,“ sagði Einar Oddur ennfremur. Frumvarp um breytingar á lögum um fjármálastofnanir lagt fram á Alþingi Skil milli stofnfjáreigenda og sjálfseignarstofnunar BENEDIKT Árnason, skrif- stofustjóri í viðskipta- og iðn- aðarráðuneyti segir ekkert í frum- varpi viðskiptaráðherra um sparisjóðina sem komi beinlínis í veg fyrir kaup KB banka á SPRON eða önnur viðskipti spari- sjóða og viðskiptabanka. Það hafi heldur aldrei verið ætlunin með frumvarpinu heldur að tryggja það að óháðir aðilar kæmu inn í stjórn sjálfseignarstofnunarinnar sem gætu tekið ákvörðun um sölu á hlut stofnunarinnar í sparisjóði án þess að eiga persónulegra hagsmuna að gæta. Hann segir erfitt að segja til um að svo stöddu hvort frumvarpið muni á einhvern hátt hafa áhrif á kaup KB banka á SPRON, verði það að lögum. Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri í viðskipta- og iðnaðarráðuneytinu, tekur í sama streng og segir ýmsa óvissuþætti, t.d. hvenær frumvarpið verði að lögum og hver niðurstaða athug- unar fjármálaeftirlitsins á sölunni verður, hafa áhrif þar á. „Ef þetta nær fram að ganga er búið að breyta því hvernig stjórn þessarar sameignarstofnunar verður skipuð. Það verða þá ekki stofnfjáreigendur sem sitja í stjórninni [...] þannig að þá er komin annars konar stjórn en það er ekki víst að hún taki sömu ákvarðanir og stjórn sem er valin af fulltrúaráðinu og að aðrir hags- munir verði hugsanlega lagðir til grundvallar.“ Verði frumvarpið orðið að lög- um fyrir 10. febrúar, þegar boðað hefur verið til fundar til að velja í stjórn sjálfseignarstofnunarinnar, verði að fara eftir þeim að sögn Kristjáns og skipa í stjórn sjálfs- eignarstofnunarinnar samkvæmt þeim; viðskiptaráðherra myndi þá skipa tvo, sveitarfélag þar sem sparisjóðurinn ætti heimilisfesti skipa tvo og einn fulltrúi væri skipaður af samtökum sparisjóða. Benedikt Árnason Kristján Skarphéðinsson Tímasetn- ing skiptir máli ÁHRIF sameiningar SPRON og KB banka á aðra sparisjóði og ein- stök sveitarfélög var til umræðu á fundi efnahags- og viðskiptanefnd- ar Alþingis í gær. Til fundarins mættu sparisjóðsstjórar, spari- sjóðsstjórnir og sveitarstjórnar- menn, fulltrúar ráðuneytis og fjár- málaeftirlitis til að ræða málin við nefndina. Pétur H. Blöndal, formaður nefndarinnar, segir fundinn hafa verið fróðlegan. „Sjónarmið voru mjög einsleit, það kom fram sterk- ur ótti manna við það að spari- sjóðakerfið væri að hrynja í kjölfar fyrirhugaðrar sameiningar SPRON og KB banka. Sparisjóðs- menn eru uggandi um áhrif þessa gjörnings á aðra sparisjóði.“ Pétur segir að sparisjóðsmenn hafi ekki lagt fram neinar tillögur að lausnum en hins vegar hafi komið fram í máli þeirra ákall til löggjafans um að aðhafast í mál- inu. „Menn sjá það helst að stöðva þessa sameiningu SPRON og KB banka sem búið er að gera samn- ing um á grundvelli gildandi laga,“ segir Pétur. Hann segir ákalli sparisjóðsmanna í raun þegar hafa verið svarað með frumvarpi Val- gerðar Sverrisdóttur viðskiptaráð- herra sem tryggja á stöðu spari- sjóðanna í þessum skilningi. „Ég tel að sú hugmynd sé afturvirk lagasetning og stangist á við hug- myndir manna um réttarríkið þar sem henni er beint gegn ákveðnum samningi milli fyrirtækja og mið- ast meira að segja við ákveðinn fund,“ segir Pétur um frumvarpið. Fulltrúar sparisjóða og sveitarfélaga funduðu með efnahags- og viðskiptanefnd Ótti um að sparisjóðakerfið sé að hrynja Morgunblaðið/Sverrir Sparisjóðsstjórar og aðrir sem láta sig málefni sparisjóðanna varða ræddu við efnahags- og viðskiptanefnd í gær um stöðu sparisjóðanna í landinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.