Morgunblaðið - 04.02.2004, Síða 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
SKÝRSLA um mat á umhverfis-
áhrifum hefur verið lögð inn til
Skipulagsstofnunar um kísilgúr-
vinnslu úr Ytriflóa Mývatns. Hönn-
un hf. gerði skýrsluna fyrir Kísiliðj-
una og þar er fjallað um þrjú ný
námusvæði, alls 0,7 ferkílómetra að
flatarmáli, en stærð Mývatns er um
37 ferkílómetrar.
Nýjum svæðum er ætlað að
koma í veg fyrir lokun verksmiðj-
unnar þar sem kísilgúr er á þrotum
innan núverandi námusvæðis. Með
þessu er talið að líftími Kísiliðj-
unnar lengist um tvö til þrjú ár,
sem er forsenda þess að verksmiðj-
an nái að uppfylla gildandi samn-
inga áður en áform um lokun henn-
ar koma til framkvæmda. Á næstu
árum er í stað Kísiliðjunnar fyr-
irhugað að reisa nýja verksmiðju til
framleiðslu á kísildufti sem mun
nota aðflutt hráefni. Í matsskýrsl-
unni segir að það verði gert til að
ná sátt um starfsemina, bæði við
náttúruverndarsinna og heima-
menn. „Þetta er meginástæða þess
að sótt er um útvíkkun námusvæð-
isins í Ytriflóa svo að tryggja megi
Kísiliðjunni hráefni þar til henni
verður lokað og framleiðsla á kís-
ildufti tekur við,“ segir m.a. í
skýrslunni.
Á móti nýjum námusvæðum
verður um 0,55 ferkílómetrum af
núverandi námusvæði skilað óunn-
um. Svæðin sem Kísiliðjan er nú að
óska eftir eru í fyrsta lagi í Voga-
flóa, í öðru lagi milli Slútness og
Dauðaness og í þriðja lagi milli
Slútness og Grímsstaða. Setþykktin
er mest í Vogaflóa og vinnslugetan
þar með mest af þessum svæðum.
Erfiðleikar ef
leyfi fæst ekki
Í skýrslunni kemur fram að ef
ekki fáist vinnsluleyfi fyrir frekari
kísilgúrvinnslu við Mývatn megi
gera ráð fyrir erfiðu millibils-
ástandi sem muni einkennast af
fólksfækkun í sveitarfélaginu og
ýmis þjónustufyrirtæki muni eiga
erfitt uppdráttar. Erfitt sé að spá
hve langan tíma samfélagið sé að
jafna sig á „slíku áfalli“ þar sem
óljóst sé hve lengi slíkt millibils-
ástand geti varað.
Bein áhrif kísilgúrvinnslu á fyr-
irhuguðum námusvæðum eru þau
að vatnið er dýpkað og næring-
arríku salti dælt upp með þeim
botngróðri og dýralífi sem þar er
að finna. Fram kemur í matsskýrsl-
unni að umhverfisáhrifin verði að
öllum líkindum minni háttar þar
sem sýnt hafi verið fram á að botn-
dýraframleiðsla og gróðursamfélög
séu fljót að ná sér í kjölfar dæl-
ingar. Kísiliðjan telur erfitt að
segja til um forgangsröð á vinnslu
svæðanna en skynsamlegast sé að
raða þeim eftir mikilvægi þeirra
gagnvart fuglalífi. Því eigi að byrja
fyrst í Vogaflóa, síðan milli Slút-
ness og Grímsstaða og loks á svæð-
inu milli Slútness og Dauðaness.
Matsskýrslan liggur frammi til
kynningar frá 28. janúar til 10.
mars næstkomandi en úrskurðar
Skipulagsstofnunar er svo að vænta
í byrjun apríl. Athugasemdir við
framkvæmdina þurfa að hafa borist
fyrir 10. mars en skýrslan liggur
frammi á skrifstofu og í íþróttahúsi
Skútustaðahrepps, í versluninni
Seli á Skútustöðum, í Þjóðarbók-
hlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.
Einnig má nálgast skýrsluna á vef
Hönnunar. Þá er stefnt að því að
hafa opið hús í Kísiliðjunni 19. febr-
úar þar sem fólki gefst kostur á að
kynna sér framkvæmdina.
Matsskýrsla lögð fram um kísilgúrvinnslu úr Ytriflóa Mývatns
Ný námusvæði lengja
líftíma Kísiliðjunnar
!
"#$!
%
&
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Til að Kísiliðjan í Mývatnssveit nái
að starfa í 2–3 ár til viðbótar, áður
en tekin verður upp framleiðsla á
kísildufti, þarf að fá vinnsluleyfi
fyrir nýjum námusvæðum í vatninu.
SUMARÁÆTLUN
Icelandair er um 20%
umfangsmeiri en í
fyrrasumar, en félagið
hefur bætt við ferðum
frá sjö borgum og flytur
ferðamenn til landsins í
beinu áætlunarflugi frá
samtals 21 stórborg í
Evrópu og Bandaríkj-
unum næsta sumar.
Guðjón Arngrímsson,
upplýsingafulltrúi Ice-
landair, segir að mikill
kraftur sé í markaðs- og
kynningarstarfi Ice-
landair erlendis og
margskonar kynning-
arleiðir séu notaðar til þess að hafa
áhrif á ferðahug íbúa margra er-
lendra stórborga. Um 180 starfs-
menn Icelandair starfi við sölu og
markaðsstarf erlendis og félagið beiti
margvíslegum aðferðum við að ná til
almennings, en í sumar verði bætt við
ferðum frá Helsinki, Hamborg, Berl-
ín, München, Zürich, Madríd og Or-
lando í beinu áætlunarflugi.
Í þessu sambandi nefnir Guðjón að
um Glasgow í Skotlandi aki nú stræt-
isvagnar málaðir í bláum litum og
með áletrunum þar sem Skotar séu
hvattir til Íslandsferða. Í París séu
um 1.600 risastór veggspjöld frá Ice-
landair í öllum lestarstöðvum
Metro-neðanjarðarlestanna og í
neðanjarðarlestarstöðvum í London
standi einnig yfir veggspjaldaherferð
til að vekja áhuga Lundúnabúa á
ferðum hingað til lands í samkeppni
við París, Róm og aðra áfangastaði
stórborgarbúanna. Á öllum sölu-
svæðum félagsins sé unnið með þess-
um hætti eða öðrum og Icelandair
taki þátt í alþjóðlegum ferðakaup-
stefnum víða um heim til að kynna
landið.
Á fimmtudagskvöld hefst Mid-
Atlantic, stór ferðakaupstefna sem
Icelandair heldur hér á Íslandi í 12
sinn. Um fimm hundruð þátttak-
endur koma til kaupstefnunnar víða
að úr heiminum, en henni lýkur á
laugardag.
Í París eru um 1.600 ristastór veggspjöld frá Icelandair í öllum lest-
arstöðvum Metro-neðanjarðarlestanna.
Icelandair eykur
framboðið um 20%
Strætisvagnar í Glasgow í Skotlandi eru málaðir
í bláum litum og með áletrunum þar sem Skotar
eru hvattir til Íslandsferða.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráð-
herra,opnaði sýningu í tilefni ald-
arafmælis heimastjórnar á Íslandi
í Þjóðmenningarhúsinu í gær.
Sagði hann viðeigandi að húsið,
sem væri einkennismerki heima-
stjórnarinnar steypt í stein, hýsti
slíka sýningu.
Davíð sagði gleðilegt að sá tími
væri kominn að einhugur væri um
að líta á Hannes Hafstein sem
sameiningartákn heimastjórn-
artímabilsins og það sem hófst
upp úr því. Vitnaði hann í ummæli
Helga Skúla Kjartanssonar dós-
ents í þá veru sem dæmi. Sagði
hann að mörgum finnist kannski
skrítið að nú eftir hundrað ár
væri hægt að líta Hannes þessum
augum en rifjaði upp deilur sem
risu í kjölfar útgáfu bókar Krist-
jáns Albertssonar um Hannes, sem
komu út í þremur bindum1961–
1964. Voru ekki allir sammála
túlkun Kristjáns á sögunni og
hlutskipti Hannesar.
Forsætisráðherra þakkaði
stjórn, undirbúningsnefnd og
starfsfólki Þjóðmenningarhússins
sérstaklega fyrir þeirra mynd-
arlegu aðkomu að hátíðarhöld-
unum, eins og hann orðaði það, í
tilefni aldarafmælis heimastjórn-
arinnar.
Ljósmynd/Gunnar G. Vigfússon
Guðríður Sigurðardóttir, Vígdís Finnbogadóttir, Ástríður Thorarensen, Davíð Oddsson og Helgi Skúli Kjart-
ansson skoða sýninguna í Þjóðmenningarhúsinu í gær.
Sýning um heimastjórnartímabilið opnuð
ÞINGMENN Samfylkingarinnar
hafa lagt fram á Alþingi tillögu til
þingsályktunar um að ríkisstjórnin
skipi byggingarnefnd sem hafi það
hlutverk að undirbúa nýbyggingu við
Landspítala – háskólasjúkrahús
(LSH) á lóð sjúkrahússins við Hring-
braut. „Nefndin skili einnig tillögum
um hagnýtingu núverandi húsnæðis
Landspítalans í Fossvogi,“ segir í til-
lögunni.
Ennfremur er lagt til að verði af
frekari sölu ríkiseigna verði hluta af
söluverðmætinu varið til verkefnisins.
Er lagt til að nefndin skili áfangaáliti
eigi síðar en 1. janúar 2006. „Flutn-
ingsmenn telja nauðsynlegt að hefja
byggingu við spítalann sem allra
fyrst, m.a. til að ná fram fullri hag-
ræðingu af sameiningu spítalanna
með því að starfsemi hans verði nær
öll á sama stað í borginni,“ segir í
greinargerð. „Starfsemi LSH er nú,
eins og kunnugt er, á tveimur stöðum,
þ.e. við Hringbraut og í Fossvogi.
Ennfremur eru rekstrardeildir í
Kópavogi, á Grensási, Kleppi, Vífils-
stöðum og á Landakoti.“ Í greinar-
gerð kemur fram að undirbúningur
taki langan tíma. Fyrsti flutnings-
maður er Kristján L. Möller.
Nýbygging
við LSH verði
undirbúin