Morgunblaðið - 04.02.2004, Qupperneq 16
!"#$# !%&#!' (%)
!
"
!""#
#
!
$
%
&
"
#
$"
$#
!"
%
&#
$
!
"#$
%
( !)
*+ &
!
,-.+
!""#!""'!""(!""!!""$)
( !)
/,+"""
FRUMVARP George W. Bush for-
seta til fjárlaga næsta árs hefur
sætt gagnrýni í báðum stóru flokk-
unum í Bandaríkjunum. Repúblik-
anar og hreyfingar sem berjast
gegn fjárlagahalla gagnrýna hann
fyrir að eyða of miklu fé og demó-
kratar segja að hann hafi ekki for-
gangsraðað málaflokkunum rétt.
Bush vill auka útgjöldin til varn-
armála um 7% og heimavarna um
10% en auk þess er búist við að for-
setinn óski eftir aukafjárveitingu
að andvirði 50 milljarða dollara,
3.500 milljarða króna, á næsta ári
vegna hersveitanna í Írak og Afg-
anistan.
Repúblikanar á þinginu lýstu
frumvarpinu sem „góðri byrjun“
eða „skrefi í rétta átt“ en gáfu til
kynna að þeir vildu breyta því og
minnka útgjöldin.
„Fjárlagafrumvarp forsetans er
góð byrjun á því að fjármagna for-
gangsmál okkar og gott svar til
demókrata sem leggja til meiri út-
gjöld og aukinn fjárlagahalla,“
sagði Tom DeLay, leiðtogi repú-
blikana í fulltrúadeild þingsins.
Segja frumvarpið
„efnahagslegt brjálæði“
Demókratar gagnrýndu forset-
ann fyrir að lækka skatta auðugra
Bandaríkjamanna þrátt fyrir gríð-
arlegan fjárlagahalla og leggja of
lítið fé í mikilvæga málaflokka, svo
sem menntamál.
Joseph Lieberman, frambjóð-
andi í forkosningum demókrata
vegna forsetakosninganna í nóvem-
ber, lýsti stefnu Bush í skattamál-
um sem „efnahagslegu brjálæði“.
Bush spáir því að fjárlagahallinn
minnki um helming á næstu fimm
árum, en hreyfingar sem berjast
gegn fjárlagahalla sögðu þá spá
óraunhæfa, m.a. vegna líklegra
aukaútgjalda til hersins, auk þess
sem ekki væri tekið nógu mikið til-
lit til fjölgunar aldraðra á næstu
árum. Wesley Clark annar fram-
bjóðandi demókrata í forkosning-
unum sagði að takmark Bush væri
að koma á skattalækkunum fyrir
hina ríku en allir aðrir mættu eiga
sig.
Frumvarp Bush gagn-
rýnt í báðum flokkum
Washington. AP.
ERLENT
16 MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
70 íbúðir - 2ja, 3ja og 4ra herbergja
Óskast
Erum að leita fyrir opinberan aðila að 70 íbúðum, 2ja, 3ja og
4ra herbergja, á höfuðborgarsvæðinu. Staðgreiðsla í boði
fyrir réttar eignir. Skoðun og kaup ganga mjög hratt fyrir sig.
Hafið samband við sölumenn Foldar
í síma 552 1400 eða 694 1401!
Laugavegi 170, 2. hæð.
Opið virka daga kl. 8-17.
Sími 562 1400 Fax 552 1405
www.fold.is fold@fold.is
NORÐUR-Kóreumenn hafa
samþykkt að taka þátt í viðræð-
um sex þjóða um kjarnavopna-
áætlanir sínar. Viðræðurnar
hefjast 25. þessa mánaðar og
fara fram í Peking í Kína. Þetta
vekur vonir um að stjórnvöld í
Norður-Kóreu séu hugsanlega
tilbúin að taka til greina að
leggja kjarnorkuáætlanir sínar
á hilluna. Bandaríkin staðfestu
þátttöku sína í viðræðunum í
gær en önnur ríki sem taka þátt
eru Kína, Rússland, Japan og
Norður- og Suður-Kórea.
Morð á götu
í Ósló
25 ÁRA gamall karlmaður var
myrtur og annar særðist lífs-
hættulega í skotbardaga í mið-
borg Ósló í Noregi í gærmorg-
un. Norska lögreglan telur að
um skipulagt morð hafi verið að
ræða og segir hugsanlegt að
uppgjör glæpagengja hafi þarna
farið fram. Mennirnir, sem eru
af erlendu bergi brotnir, voru
skotnir í brjóstið. Þeir voru báð-
ir fluttir á sjúkrahús, annar
þeirra lést af sárum sínum þeg-
ar þangað var komið. Árásar-
mennirnir voru að minnsta kosti
tveir og flúðu af vettvangi á
brúnum Chevrolet, sem fannst
síðar brunninn til kaldra kola.
Rísín á þing-
skrifstofu
EITUREFNIÐ rísín fannst í
fyrradag í bréfi á skrifstofu Bills
Frists, leiðtoga meirihlutans í
öldungadeild Bandaríkjaþings.
Virðist engum hafa orðið meint
af því en efnið er 6.000 sinnum
öflugra en blásýra. Þetta er í
annað skiptið sem eiturefni
finnst á skrifstofu leiðtoga
meirihlutans í öldungadeildinni
en 2001 fundust miltisbrands-
gerlar í bréfi, sem stílað var á
tvo öldungardeildarþingmenn.
Frist sagði í gær að hér væri um
glæpsamlegan verknað að ræða
og yrði hann rannsakaður sem
slíkur. Auðvelt er að framleiða
rísín en það er unnið úr fræjum
kristpálmans og er ákaflega
eitrað eins og fyrr segir.
Vilja herlaust
svæði
TAÍVANAR leggja til að skil-
greint verði herlaust svæði á
milli Kína og Taívan og tengslin
á milli þjóð-
anna verði
bætt, m.a. að
skipaðir
verði sendi-
fulltrúar í
löndunum
og tengsla-
skrifstofur
opnaðar.
Forseti
landsins, Chen Shui-bian, til-
kynnti þetta í gær, en talið er að
hann vilji slá á þær gagnrýnis-
raddir sem segja að hann hafi
ögrað kínverskum stjórnvöldum
undanfarið. Þjóðaratkvæða-
greiðsla um samskiptin við Kína
á að fara fram 20. mars en
Bandaríkjamenn og Frakkar
hafa gagnrýnt atkvæðagreiðsl-
una þar sem þau telja að hún
geti storkað Kínverjum og kom-
ið hinum viðkvæmu samskiptum
á milli þjóðanna í uppnám. Eng-
in svör höfðu borist frá Kínverj-
um í gær enda er vinsamlegra
viðbragða ekki vænst.
STUTT
Tilbúnir í
viðræður
Chen Shui-bian
Eidesgaard
kjörinn
lögmaður
JÓANNES Eidesgaard var í gær
kjörinn lögmaður Færeyja. Lög-
þingið samþykkti Eidesgaard í at-
kvæðagreiðslu og er stjórnar-
myndun þar með lokið í
Færeyjum.
Eidesgaard, sem tilheyrir Jafn-
aðarflokknum, tekur við af Anfinn
Kallsberg sem hefur verið lögmað-
ur síðustu sex árin. Eidesgaard er
ellefti lögmaður Færeyja frá því
heimastjórn var sett á fót árið
1948.
Þá var formlega tilkynnt um sex
ráðherra í nýrri samsteypustjórn
Sambandsflokksins, Jafnaðar-
flokksins og Fólkaflokksins.
Ráðherrarnir eru:
Jógvan á Lakjuni sem fer með
menntamál, Jógvan við Keldu sem
verður heimastjórnarráðherra,
Bjarni Djurholm fer með atvinnu-
mál, Hans Pauli Strøm, fer með
heilbrigðismál, Johan Dahl verður
sjávarútvegsráðherra og Bárður
Nielsen fjármálaráðherra.
LEITAÐ var í allan gærdag að lifandi fólki í
rústum íbúðablokkar, sem hrundi til grunna í
borginni Konya í Tyrklandi í fyrrakvöld. Í gær-
kvöld var búið að finna lík 15 manna en 29 menn
höfðu verið dregnir lifandi úr rústunum. Var þá
meira en 100 manna saknað.
Ahmet Kayhan, borgarstjóri í Konya, sagði í
gær, að heyrst hefði til fólks undir rústunum og
var allt kapp lagt á að ná því út. Er byggingin,
sem var 11 hæðir, nú aðeins fimm metra hár
grjóthaugur.
Talið er, að slysið megi rekja til sviksamlegra
vinnubragða en þeim er oftar en ekki um að
kenna stórslys af þessu tagi. Nesibe Tosun, kona,
sem bjó í blokkinni og lifði af, sagði, að hún hefði
verið alsett rifum og sprungum. Þá sagði einn
björgunarmannanna, að það væri eins og sem-
entið hefði vantað í steypuna. „Það er eins og
húsið hafi verið byggt úr möl og sandi,“ sagði
hann.
Fréttir voru um, að sprenging hefði orðið í
hitakerfi hússins en embættismenn vildu ekki
staðfesta það. Sögðu þeir, að fólk í grennd hefði
ekki orðið vart við neina sprengingu.
Um 100 manna saknað eftir húshrun
Reuters
Ankara. AFP.