Morgunblaðið - 04.02.2004, Page 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 2004 17
Borgartúni 28, símar 520 7901/520 7900
www.ef.is
• Hagstætt verð
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, hefur ákveðið að fram fari
rannsókn á upplýsingum, sem leyni-
þjónusta landsins aflaði um meint
gereyðingarvopn Íraka en þessi
gögn voru síðan notuð til að réttlæta
þátttöku Breta í herför gegn stjórn
Saddams Husseins Íraksforseta.
Nefnd hefur þegar verið skipuð til
að annast rannsóknina. Talsmaður
Frjálsynda demókrataflokksins
kvaðst í gær ekki geta fellt sig við
hvernig verksvið nefndarinnar hefði
verið skilgreint. Flokkurinn hygðist
því ekki taka þátt í störfum hennar.
Þrýstingur á Blair um að útskýra
hvers vegna engin efna- eða sýkla-
vopn hafa fundist í Írak jókst á
mánudag þegar George W. Bush,
Bandaríkjaforseti, skýrði frá því að
hann hygðist skipa nefnd til að
rannsaka m.a. upplýsingar þær sem
leyniþjónustustofnanir lögðu fram
um meinta vopnaeign Íraka.
Upplýsingar metnar
Tony Blair sagði á þingnefndar-
fundi í gærmorgun að hann teldi
þörf á því að bresk, þverpólitísk
nefnd kannaði þau gögn sem fyrir
hefðu legið um meinta gereyðing-
arvopnaeign Íraka. Vísaði breski
forsætisráðherrann sérstaklega til
ummæla Davids Kays, sem nýlega
sagði af sér sem yfirmaður vopna-
leitar Bandaríkjamanna í Írak. Kay
hefur sagt í viðtölum að hann hafi
engin merki greint um gereyðing-
arvopn í Írak og lýst þeirri skoðun
sinni að stjórnvöld þar hafi ekki ráð-
ið yfir slíkum vopnum.
„Ég tel rétt í ljósi þess sem David
Kay hefur sagt og með tilliti til þess
að yfirmenn vopnaleitar í Írak munu
ekki gefa skýrslu á næstunni … að
við lítum nánar á þær upplýsingar
sem við fengum frá leyniþjónustu-
stofnunum og metum hvort þær
voru nákvæmar eður ei,“ sagði
Blair.
Pólitískar ákvarðanir
ekki til rannsóknar
Í liðinni viku komst Hutton lá-
varður, sem falið var að rannsaka
dauða breska vopnasérfræðingsins
Davids Kellys, að þeirri niðurstöðu,
að bresk stjórnvöld hefðu ekki vís-
vitandi hagrætt upplýsingum sem
leyniþjónustan aflaði til að styrkja
málstað sinn.
Blair vísaði í gær til skýrslu Hutt-
ons lávarðar og hvatti landsmenn til
að virða niðurstöður hans. „Að mínu
viti er engin þörf á rannsókn á þeim
pólitísku ákvörðunum sem teknar
voru varðandi stríðið í Írak,“ sagði
Blair. Það væri þings og þjóðar að
taka afstöðu til þeirra en mikilvægt
væri að farið yrði í saumana á leyni-
þjónustugögnunum sem fyrir lágu
þegar bandamenn afréðu að ráðast
inn í Írak.
Breskir fjölmiðlar gafa greint frá
því að Frjálslyndi demókrataflokk-
urinn hafi þrýst á um að rannsóknin
í Bretlandi tæki einnig til þeirra
pólitísku ákvarðana sem lágu her-
förinni til grundvallar. Af þessum
sökum ákváðu hinir frjálsyndu í gær
að taka ekki þátt í störfum rann-
sóknarnefndarinnar. Butler lávarð-
ur, fyrrum ráðuneytisstjóri og að-
stoðarmaður forsætisráðherra, mun
fara fyrir nefndinni. Auk hans verða
í henni Inge lávarður, fyrrum
starfsmannastjóri varnarmálaráðu-
neytisins, Sir John Chilcott, fyrrum
háttsettur, borgaralegur embættis-
maður, Ann Taylor, þingmaður
Verkamannaflokksins og formaður
leyniþjónustu- og öryggismála-
nefndar neðri deildar þingsins, og
Michael Mates, þingmaður Íhalds-
flokksins. Nefndin mun starfa fyrir
luktum dyrum en niðurstöður henn-
ar verða birtar fyrir lok júlímán-
uðar. Viðkvæmar leyniþjónustuupp-
lýsingar verða ekki birtar
opinberlega í tengslum við rann-
sóknina.
Saddam hafði „áætlanir“
Tony Blair ítrekaði í gær þá skoð-
un sína að herförin gegn stjórn
Saddams Husseins hefði verið rétt-
lætanleg. „Ég segi það eitt, að engu
breytir hvað [nýja] rannsóknin leiðir
í ljós. Ég fellst ekki á þá skoðun að
rangt hafi verið að steypa Saddam
Hussein af stóli og að heimurinn sé
hvorki öruggari né betri án hans.“
Blair hélt því og fram að vopna-
leitarteymi bandamanna í Írak hefði
fundið sannanir fyrir því að Saddam
Hussein hefði haft uppi „áætlanir“
um gereyðingarvopn. Ljóst væri að
þær „áætlanir“ hefði Saddam ætlað
að þróa frekar og það hefði hann
gert hefði hann fengið tækifæri til
þess.
Blair fyrirskipar rann-
sókn á upplýsingum
Reuters
Tony Blair svarar spurningum þingnefndar í gær en á fundinum skýrði
breski forsætisráðherrann frá þeirri ákvörðun sinni að láta rannsaka
leyniþjónustugögn varðandi meinta gereyðingarvopnaeign Íraka.
Þverpólitískri nefnd ætlað að kanna leyniþjónustugögn
sem fyrir lágu um meinta gereyðingarvopnaeign Íraka
Lundúnum. AFP.
’ Ég fellst ekki áþá skoðun að rangt
hafi verið að steypa
Saddam Hussein af
stóli og að heimurinn
sé hvorki öruggari
né betri án hans. ‘
ANA Palacio, utanríkisráðherra
Spánar, lýsti yfir því í gær að stjórn-
völd þar hefðu engin áform um að
efna til rannsóknar í tengslum við
innrásina í Írak.
Stjórnvöld í Bretlandi og Banda-
ríkjunum hafa á síðustu dögum
ákveðið að óháðar rannsókn-
arnefndir fari yfir gögn þau sem fyr-
ir lágu um meint gereyðingarvopn
Íraka þegar ákveðið var að koma
stjórn Saddams Hussein frá með
hervaldi.
Ana Palcio sagði að ákvörðun
Spánverja að styðja innrásina í Írak
hefði verið tekin á grundvelli sam-
þykkta Sameinuðu þjóðanna. Þar
hefði ríkt einhugur um nauðsyn þess
að afvopna Saddam Hussein Íraks-
forseta.
Stuðningur Spánarstjórnar við
innrásina hefur verið afar umdeild-
ur þar í landi. Skoðanakannanir
leiddu ljós að mikill meirihluti þjóð-
arinnar var andvígur innrásinni í
Írak og stuðningi stjórnvalda við þá
aðgerð.
Jose Luis Rodriquez Zapatero,
leiðtogi Sósíalistaflokksins, stærsta
stjórnarandstöðuflokks Spánar, hef-
ur ítrekað sakað ráðamenn um að
hafa „logið“ að þjóðinni í því skyni
að réttlæta stuðninginn við innrás-
ina. Á mánudag hvatti hann Mariano
Rajoy, forsætisráðherraefni Þjóð-
arflokksins í þingkosningunum á
Spáni í næsta mánuði, til að gera
þjóðinni opinberlega grein fyrir
„lygunum“. Rajoy sem tekur við
leiðtogaembættinu af José María
Aznar, forsætisráðherra Spánar,
hefur jafnan stutt innrásina.
Spánverjar útiloka rannsókn
Madríd. AFP.
YFIRVÖLD í Þýskalandi tilkynntu í
gær að kona sem grunur lék á að væri
smituð af fuglaflensu væri ekki með
veikina. Var óttast að hér væri um að
ræða fyrsta fórnarlamb veikinnar í
Evrópu en konan var nýkomin frá
Taílandi þar sem veikin er landlæg.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO,
staðfesti hins vegar þrjú ný fugla-
flensutilfelli í fólki í Víetnam í gær,
auk þess sem tilkynnt var að sjö ára
drengur í Taílandi hefði látist úr veik-
inni. Er tala látinna í heiminum þá
komin í þrettán manns, þar af eru níu
í Víetnam og fjórir í Taílandi.
Í einu tilfellanna sem greindust í
Víetnam í gær var um að ræða átján
ára gamlan pilt, hann lést á sjúkra-
húsi í höfuðborginni, Hanoi, á mánu-
dag. Í hinum tilvikunum var um að
ræða 19 ára pilt sem hefur náð sér og
tvítuga konu sem enn er veik.
Nú hefur veikin komið upp í alls tíu
löndum, langflest tilfelli hafa greinst í
Víetnam en um tveir þriðju héraða í
landinu hafa tilkynnt um smit í fið-
urfé. Hefur um níu milljónum alifugla
verið slátrað í þeirri von að hefta
megi útbreiðslu veikinnar.
Neyðarfundur í Róm
Um 25 sérfræðingar á heilbrigðis-,
matvæla- og dýralækningasviði
hvaðanæva úr heiminum komu sam-
an í Róm í gær til þriggja daga neyð-
arfundar um veikina. Hann er hald-
inn á vegum Matvæla- og
landbúnaðarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna. Vonast þeir til að geta
fundið leiðir til að hjálpa þeim þjóð-
um sem orðið hafa fyrir barðinu á
sjúkdómnum.
Á sama tíma reyndu talsmenn Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar í
Genf að slá á hræðslu manna við að
veiran hefði stökkbreyst en fregnir
bárust af því á sunnudag að tvær
konur í Víetnam hefðu hugsanlega
smitast af mönnum. Vísindamenn
óttast mest af öllu að veiran stökk-
breytist þannig að hún geti borist
manna á milli.
Þýska konan reyndist
ekki smituð af fuglaflensu
Þrjú ný tilfelli í
fólki í Víetnam
Hanoi. Bangkok. Róm. AP. AFP.
AP
Landbúnaðarráðherra Filipseyja
bítur í kjúkling til að undirstrika að
fuglaflensan sé ekki landlæg þar.
EF áætlanir ganga eftir má búast
við, að vindmyllur muni kögra
norsku strandlengjuna eftir nokkur
ár, að minnsta kosti í sumum lands-
hlutum. Fyrirhugað er, að þær verði
alls 2.600, þar af 1.800 í Finnmörk.
Rafmagnsframleiðsla þessara
2.600 vindmyllna á að vera 10 tera-
wött en það samsvarar framleiðslu
20 Alta-virkjana eða ársnotkun
400.000 heimila. Kom þetta fram á
fréttavef Aftenposten. Rannsóknir
sýna, að líklega er hvergi betra að
framleiða rafmagn með vindmyllum
en í Finnmörk enda má heita, að þar
blási jafnt og stöðugt alla daga. Yf-
irstjórn norska hersins er hins vegar
ekki mjög hrifin af þessum áætl-
unum því að komið hefur í ljós, að
vindmyllurnar hafa truflandi áhrif á
ratsjárstöðvar.
Áætlanir
um 2.600
vindmyllur