Morgunblaðið - 04.02.2004, Side 20
AKUREYRI
20 MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Parket
Flísar
Furugólfborð
Kamínur
Njarðarnesi 1, Akureyri,
sími 462 2244.
Styrkbeiðni | Á fundi íþrótta- og
tómstundaráðs Akureyrar í vikunni
var lagt fram erindi frá Skák-
sambandi Íslands, þar sem kynnt er
Norðurlandamótið í skólaskák sem
fram fer í Svíþjóð dagana 18.– 21.
febrúar nk. Jafnframt er óskað eftir
að Akureyrarbær taki þátt í að
greiða ferðakostnað þeirra nemenda
sem sendir verða á mótið frá Ak-
ureyri en þeir eru þrír að þessu
sinni. Íþrótta- og tómstundaráð hef-
ur ekki tekið þátt í kostnaði í æfinga-
eða keppnisferðum á vegum sér-
sambanda og getur því ekki orðið við
erindinu. Ráðið harmar það jafn-
framt að gefið sé í skyn að skák-
mönnum frá Akureyri verði ekki
gefinn kostur á að taka þátt í verk-
efnum sambandsins nema með fjár-
stuðningi sveitarfélagsins.
Nýtt met | Nýliðinn janúar var met-
mánuður hvað varðar heimsóknir á
vef Akureyrarbæjar. Aldrei hafa
fleiri komið inn á vefinn og flettingar
eru í hámarki. Gestir voru 7.929 en
6.017 í janúar 2003 og 2.985 í janúar
2002. Flestir höfuð gestirnir áður
verið 7.589 í apríl 2003. Flettingar á
síðunni voru 87.377 í síðasta mánuði
en höfðu áður mest farið í 73.851 í
september 2003. Endurbættur vefur
Akureyrarbæjar er hluti af markaðs-
setningu á einstaklingsmarkaði undir
kjörorðinu „Öll lífsins gæði“ og miðað
við tölurnar hér að ofan má ljóst vera
að á þessu sviði hefur vel til tekist
eins og segir í frétt á vef bæjarins.
HEILDARÁLAGNING fasteigna-
gjalda á Akureyri er ríflega 970
milljónir króna á árinu 2004. Álagn-
ingu er lokið og verið er að senda út
álagningarseðlana þessa dagana.
Fasteignagjöld skiptast í 5 mismun-
andi gjöld: Fasteignaskatt upp á 470
milljónir króna, lóðarleigu upp á
122,5 milljónir króna, fráveitugjald
upp á 185 milljónir króna, vatnsgjald
upp á 151 milljón króna og sorp-
hirðugjald upp á 40 milljónir króna.
Fjöldi fasteigna sem lagt er á er
10.340 og fjölgaði um 178 frá fyrra
ári. Álagningarprósentur eru
óbreyttar á milli ára. Fasteignamat-
ið hækkaði frá fyrra ári um 15% á
íbúðarhúsnæði en var óbreytt á at-
vinnuhúsnæði. Eins og áður er
tekjulágum elli- og örorklífeyrisþeg-
um veittur allt að 25.000 króna af-
sláttur af fasteignaskatti. Þau ný-
mæli eru nú í reglunum að
afslátturinn er tekjutengdur og
sæka þarf um afsláttinn. Þetta kem-
ur fram á vefsíðu Akureyrarbæjar.
Fasteigna-
gjöld
tæpur
milljarður
króna
Fléttufjölskyldur | Fléttufjöl-
skyldan er heiti á námskeiði sem
haldið verður 18. febrúar næstkom-
andi á vegum Reynis ráðgjafastofu,
en kennari verður Guðbjörg Ingi-
mundardóttir, félagsráðgjafi.
Fram kemur í kynningu á nám-
skeiðinu að sífellt fleiri fjölskyldur
búa við flókið fjölskyldumynstur, en
á námskeiðinu verður m.a. fjallað
um að hverju þurfi að huga við upp-
eldi barna í fléttufjölskyldum. Einn-
ig um hlutverk foreldra sem ala upp
börn maka síns úr fyrri samböndum
og þær kröfur sem þetta gerir til
beggja aðila. „Nærri helmingur
ungs fólks sem fer í sambúð á barn
fyrir. Minnsta kosti annar aðilinn
tekur þannig frá upphafi sambúðar
að sér uppeldi fósturbarns. Við bæt-
ast síðan þær fjölskyldur sem mynd-
aðar eru eftir skilnað, þar sem annar
eða báðir aðilar taka með sér börn
úr fyrra sambandi,“ segir í frétt um
námskeiðið. Markmið þess er að
styrkja foreldra í fléttufjölskyldum í
foreldrahlutverki sínu og aðstoða þá
við að ná samstöðu um uppeldis-
aðferðir við flóknar aðstæður.
Skráning á námskeiðið er hjá Sí-
menntunarmiðstöð Eyjafjarðar.
Í GÖMLU húsi við Gránufélagsgötuna, því sem er
númer 49, starfar Listamiðstöð Akureyrar. Þar
vinnur Aaron Mitchell, kanadískur listamaður
búesettur á Akureyri, að list sinni á daginn en síð-
degis eykst straumurinn þegar nemendur á nám-
skeiðum Listamiðstöðvarinnar taka að streyma
inn. Listamiðstöðin var opnuð í fyrrasumar, í júní
en að henni standa Aaron og eiginkona hans,
Helga S. Valdemarsdóttir, og Björgvin Guðnason,
grafískur hönnuður. Aaron hefur búið á Íslandi í
nær þrjú ár, en hann er frá Toronto í Kanada. Þar
hafði hann haslað sér völl sem listamaður og kenn-
ari. Nú vinnur hann hörðum höndum að næsta
verki, innsetningu sem sett verður upp í New
York næsta haust.
Fullbókað á öll námskeið og áhugi mikill
Nú standa yfir þrjú námskeið hjá Listamiðstöð-
inni, fullbókað er á þau öll en nemendur eru 45
talsins. Andlitsteiknun er námskeið sem Aaron
kennir og hófst það fyrir skömmu, en nú í vikunni
hófust tvö ný námskeið. Ingólfur Guðmundsson
iðnhönnuður kennir á námskeiði í hönnunarteikn-
ingu og Jónas Viðar myndlistarmaður segir nem-
endum sínum til varðandi akrýlmálun. „Við höfum
mikinn metnað og viljum bjóða okkar nemendum
upp á góða kennara,“ sagði Aaron. Vitanlega við
nokkurn fögnuð þeirra Ingós og Jónasar. „Ég
legg áherslu á notkun og meðferð akrýllita, ég
ætla mér að reyna að kenna fólki hvernig á að
mála með akrýllitum,“ sagði Jónas. Ingólfur er til
þess að gera nýkominn á heimaslóðir aftur, kom
heim eftir fimm ára dvöl í Bandaríkjunum nú á
síðastliðnu sumri. „Ég reyni að fara í gegnum
helstu aðferðir við að teikna hluti, aðstoða fólk við
að koma þeim hugmyndum sem það gengur með í
kollinum niður á blað. Og jafnvel að þróa þær
lengra. Það er mjög algengt að fólk hafi fullt af
hugmyndum, en skorti reynslu eða þekkingu til að
koma þeim frá sér og gera að áþreifanlegum hlut-
um,“ sagði Ingólfur.
Kennarar úr röðum virtra listamanna
Á vegum Listamiðstöðvarinnar verður boðið
upp á fjölbreytt námskeið og ávallt kappkostað að
sögn Aarons að bjóða nemendum upp á bestu
kennara sem völ er á. Þannig munu margir af
listamönnum bæjarins taka að sér kennslu á ein-
stökum námskeiðum í miðstöðinni á næstu miss-
erum og eins mun hann nýta sér sambönd sín
vestur í Kanada og fá til liðs við sig þarlenda lista-
menn. „Það verður aldrei slakað á kröfunum, við
ætlum að bjóða upp á góð námskeið, gæðin eru
ávallt í fyrirrúmi,“ sagði Aaron. Auk námskeið-
anna verða vinnustofur í gangi í miðstöðinni, „ og
svo er auðvitað markmiðið að fá fólk í heimsókn,
hafa líf á svæðinu þannig að menn geti komið og
spjallað, skipst á skoðunum og lært hver af öðr-
um.“ Síðar er ætlunin að þróa starfsemina og jafn-
vel bjóða upp á lengri námskeið en nú og þá stefna
eigendur miðstöðvarinnar að því að bjóða upp á
námskeið allan ársins hring, að hafa alltaf eitthvað
spennandi í gangi, vetur, sumar, vor og haust.
Opna dyr að nýjum tækifærum
Listamiðstöðin er opin öllu áhugafólki um
myndlist og hönnun og þar á fólki að gefast færi á
að hitta listamenn sem standa framarlega á sínu
sviði. „Við opnum dyrnar fyrir nýjum tækifærum í
listsköpun fyrir fólk sem er að taka sín fyrstu
skref í myndlistarnámi og einnig þá sem vilja
bæta sig. Fjölbreytileiki, val og gæði eru einkunn-
arorð Listamiðstöðvarinnar á Akureyri,“ segir í
kynningu á starfseminni á vefsíðu hennar. „Helst
ætti miðstöðin að vera opin allan sólarhringinn,
þannig að þegar fólk vaknar upp um miðja nótt
með góða hugmynd gæti það komið hingað og
rætt málin,“ sagði Jónas og kvaðst mundu stefna
að því að svo yrði einn góðan veðurdag.
„Fólk hefur sýnt þessum námskeiðum sem í
boði eru hér mikinn áhuga, það virðist sem áhugi
fyrir myndlist sé mikill á Akureyri. Það leynist
víða í bænum fólk sem dundar með pensil og vill
læra meira og er tilbúið að koma á námskeið. Það
er mjög ánæjulegt,“ sagði Ingólfur. Hann benti
einnig á að mikið væri um ungt fólk sem ýmist
hefði áhuga á að læra myndlist, hönnun eða annað
slíkt síðar og vildi gjarnan kanna getu sínu áður.
Það tæki því námskeiðum miðstöðvarinnar með
þökkum. „Hér er nægur áhugi og efniviður fyrir
hendi. Og gullmolarnir leynast víða í bænum.“
Listamiðstöðin á Akureyri er rekin án opin–
berra styrkja. Sótt var um styrk til Akureyr-
arbæjar en nýlega barst svar um að bærinn teldi
sér ekki fært að styrkja starfsemina. Sama svar
fékkst frá KEA og fleiri aðilum sem leitað var til.
„Við látum það ekki hafa áhrif á okkar starfsemi
og munum í engu láta af kröfum okkur um að
bjóða vandað og fjölbreytt nám hér,“ sagði Aaron.
Þá töldu þeir félagarnir þrír ekki ólíklegt að þeir
myndu slá saman í sýningu með vorinu og reynt
yrði að halda upp á eins árs starfsafmæli mið-
stöðvarinnar í sumar með skemmtilegum hætti.
Listamiðstöðin á Akureyri kappkostar að bjóða fjölbreytt og vandað nám
Það leynast gull-
molar víða í bænum
Morgunblaðið/Kristján
Frá konu til konu. Verk eftir Helgu S. Valde-
marsdóttur í anddyri Listamiðstöðvarinnar.
Morgunblaðið/Kristján
Kennararnir við Listamiðstöðina á Akureyri, Ingólfur Guðmundsson, Aaron Mitchell og Jónas Viðar,
eru áhugasamir og hafa mikinn metnað fyrir hönd Listamiðstöðvarinnar.
Iðkun íþrótta | Á fundi skóla-
nefndar Akureyrarbæjar var lagt
fram til kynningar erindi frá Þor-
gerði Katrínu Gunnarsdóttur
menntamálaráðherra, þar sem vakin
er athygli á að á grundvelli ákvörð-
unar Evrópuþingsins og ráðs Evr-
ópusambandsins er ákveðið að árið
2004 skuli vera „Evrópuár mennt-
unar með iðkun íþrótta“. Slagorð
verkefnisins hér á landi er „Hreyf-
ing eflir hugann.“
UNDIRBÚNINGUR fyrir Andrésar
Andar leikana á skíðum er kominn í
fullan gang en leikarnir fara fram í
Hlíðarfjalli ofan Akureyrar seinni
partinn í apríl nk. Eins og flestum er
kunnugt varð að fresta leikunum í
fyrra vegna snjóleysis í Hlíðarfjalli en
þá voru um 650 keppendur skráðir til
leiks. Þetta er stærsta skíðamót
landsins ár hvert, þar sem keppt er í
bæði alpagreinum og norrænum
greinum og flestir hafa keppendur á
leikunum verið 850 talsins.
„Við látum þetta síðasta ár ekki slá
okkur út af laginu og erum hvergi
bangnir. Vegna ástandsins í fyrra
bætum við einum flokki við og verða
keppendur að þessu sinni á aldrinum
6–13 ára,“ sagði Gísli Kristinn Lór-
enzson, einn forsvarsmanna leikanna.
Skráning keppenda er ekki hafin
en Gísli Kristinn sagðist gera ráð fyr-
ir einhverri fækkun keppenda. Hann
sagði að snjóleysið í fyrra hefði m.a.
þær afleiðingar að keppendum frá
Akureyri mynda trúlega fækka nokk-
uð á milli leika. „Hins vegar eru hlut-
irnir fljótir að breytast ef aðstæður
verða góðar á næstu vikum og mán-
uðum.“
Andrésar Andar leikarnir á skíðum seinni partinn í apríl
Undirbúningur í fullum gangi
Morgunblaðið/Kristján
Það verður líf og fjör í Hlíðarfjalli í apríl þegar fleiri hundruð börn reyna með sér á Andrésar Andar leikunum á skíðum.