Morgunblaðið - 04.02.2004, Blaðsíða 21
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 2004 21
Fundu þrjátíu
kannabisplöntur
Sandgerði | Við húsleit í Sandgerði,
þegar lögreglan í Keflavík var að
rannsaka innbrot í bíla í gærmorg-
un, fundust
þrjátíu kanna-
bisplöntur.
Brotist var
inn í þrjá bíla
í Sandgerði í
fyrrinótt.
Voru rúður
brotnar í
tveimur
bílanna og
meðal annars
teknar úr þeim framhliðar hljóm-
flutningstækja. Tilkynnt var um
skemmdirnar um klukkan sjö í gær-
morgun. Um klukkustund síðar var
lögreglunni tilkynnt um háreysti í
húsi ekki fjarri bílunum. Inni í hús-
inu hafði lögreglan afskipti af þrem-
ur mönnum og var einn þeirra með
áverka á höfði eftir barsmíðar.
Við húsleit fundust þrjátíu og
þrjár kannabisplöntur í risi hússins
og við nánari leit fannst um eitt
gramm af efni sem grunur leikur á
að sé amfetamín og hassmoli á ein-
um mannanna þriggja. Fyrir utan
húsið fannst þýfi úr bílunum, sem
brotist var inn í fyrr um morg-
uninn.
Voru mennirnir allir handteknir
og færðir til yfirheyrslu á lög-
reglustöðinni.
Lyfjum stolið | Brotist var inn í
bát sem lá við bryggju í Sandgerði á
mánudag eða um helgina. Farið var í
lyfjakistu skipsins og morfín tekið.
Hvassahraun | Starfsmenn verktaka við tvöföldun
Reykjanesbrautarinnar eru langt komnir við að
byggja síðustu brúna af fjórum sem eru á þeim
kafla sem nú er unnið að. Í gær voru þeir að byrja
að festa stólpa fyrir vegrið sem kemur á brúna.
Tvenn mislæg gatnamót eru á þeim kafla veg-
arins sem nú er undir og eru tvær brýr á hvorum
gatnamótum. Verktakarnir, sem eru Háfell, Jarð-
vélar og Eykt, eru búnir að byggja og ganga frá
brúm á nýju akreinina. Önnur er á nýjum vega-
mótum við Vatnsleysustrandarveg og hin í
Hvassahrauni. Einnig eru þeir búnir með brú á
gömlu akreinina við Vatnsleysustrandarveg. Síð-
asta brúin er á gömlu akreininni í Hvassahrauni
og er vinna langt komin við hana. Búið er að
steypa plötuna en eftir er að bæta í steypu. Það
hefur hins vegar dregist vegna veðurs. Þurfa að
vera sérstök veðurskilyrði til að það sé hægt.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Síðasta brúin langt komin
Skrúfað frá vatni | Brotist var
inn í hús loðnuverksmiðjunnar við
Garðveg í Sandgerði aðfaranótt
sunnudags og skemmdir unnar.
Stórar dyr á austurhlið hússins
voru opnar þegar komið var á stað-
inn og heitt vatn rann um gólf.
Skrúfað hafði verið frá öllum krön-
um sem fundust í húsinu.
Klakabrynja var innan og utan á
húsinu og dyrastafir höfðu gengið
til vegna hitamismunarins. Húsið
er álklætt stálgrindarhús. Lög-
reglan veit ekki hver eða hverjir
hafa verið þarna að verki.
Reykjanesbær | Bæjarfulltrúar Sam-
fylkingarinnar ítrekuðu gagnrýni
sína á hækkun leikskólagjalda á fundi
bæjarstjórnar í gær. Sjálfstæðismenn
gagnrýndu þá á móti fyrir að hafa
ekki tekið málið upp í tillöguformi
þegar gjaldskráin var ákveðin í
tengslum við gerð fjárhagsáætlunar.
Leikskólagjöldin voru hækkuð um
áramót. Í kjölfar mótmæla foreldra
ákváðu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
að draga úr hækkuninni við vissar
fjölskylduaðstæður, meðal annars
með því að hækka systkinaafslátt.
Guðbrandur Einarsson, bæjarfulltrúi
Samfylkingarinnar, fagnaði þessari
breytingu á fundi bæjarstjórnar í
gær. Jóhann Geirdal ítrekaði gagn-
rýni sem fulltrúar Samfylkingarinnar
settu fram á fundi bæjarráðs. Sagðist
Jóhann harma að meirihlutinn skyldi
hafa tekið húsnæðiskostnað inn í út-
reikninga á greiðsluþátttöku foreldra,
það hefði ekki verið gert áður.
Guðbrandur gerði það að umtals-
efni að viðræður stæðu yfir um nýja
kjarasamninga og farið væri fram á
5% almenna launahækkun. Á sama
tíma væri Reykjanesbær að hækka
leikskólagjöld og fasteignagjöld.
Spurði Guðbrandur hvað yrði eftir af
launahækkuninni þegar Reykjanes-
bær væri búinn að fá sitt.
Seint fram komin gagnrýni
Árni Sigfússon bæjarstjóri og
Böðvar Jónsson, formaður bæjar-
ráðs, svöruðu fyrir hönd meirihlut-
ans. Árni lagði á það áherslu að
Reykjanesbær væri ekki að hækka
álagningu fasteignaskatts, skattpró-
sentan væri óbreytt. Rifjaði hann það
upp að fasteignamat sem Fasteigna-
mat ríkisins ákvæði hefði hækkað um
15% um áramót vegna þess að sölu-
verð fasteigna í bænum hefði hækkað
á síðasta ári. Fasteignagjöld væru þó
enn talsvert lægri í krónutölu en til
dæmis í Reykjavík vegna þess að fast-
eignamat væri lægra.
Árni sagði að meirihlutinn hefði
reynt að koma til móts við helstu
gagnrýnisatriði foreldra við breyting-
ar á gjaldskránni. Hann gagnrýndi
hins vegar fulltrúa Samfylkingarinn-
ar fyrir að koma með þessa gagnrýni
mánuði eftir að fjárhagsáætlun var
afgreidd ásamt gjaldskrá. Fjárhags-
áætlun bæjarins hafi farið í gegn um
tvær umræður í bæjarstjórn án þess
að fulltrúar Samfylkingarinnar kæmu
með tillögur um breytingar. Það
hefðu þeir ekki gert fyrr en nú, að for-
eldrarnir funduðu.
Tekist á um
hækkun leik-
skólagjalda
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Tími í stjórnmálafræði: Óvenju margir fylgdust með umræðum á bæjar-
stjórnarfundi í gær. Þar voru á ferðinni nemendur úr stjórnmálafræði-
áfanga í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Þeir eiga að skila skýrslu til Þór-
unnar Friðriksdóttur kennara um upplifun sína.
Tvær óseldar íbúðir | Enn eru
tvær íbúðir óseldar af þeim tíu sem
Gerðahreppur byggði í nágrenni
hjúkrunarheimilisins Garðvangs á
síðasta ári.
Sex íbúðir seldust strax og þær
voru tilbúnar en stærri íbúðirnar
sem eru fjórar talsins seldust ekki í
fyrstu. Nú hafa tvær þeirra verið
seldar, að því er fram kemur á vef
Gerðahrepps, og eru þá tvær eftir þó
að talsvert hafi verið spurt eftir
þeim.