Morgunblaðið - 04.02.2004, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 2004 27
Ahmed Abo Ali segir að fulltrúaríraska hersins hafi hringt í sigskömmu áður en Bandaríkja-menn og Bretar gerðu árás á Írak
í mars í fyrra og beðið sig „sem fyrrverandi
hermann“ um að koma og berjast með Fed-
ayeen-sveitum Saddams Husseins, þáver-
andi forseta Íraks, í stríðinu sem var yfirvof-
andi. „En ég sagði þeim að ég gæti það ekki,
ég ætti fjölskyldu núna og að ég þyrfti að
vernda konu mína og börn,“ segir Ahmed.
Ahmed Abo Ali er kvæntur Lomu og sam-
an eiga þau þrjú börn, soninn Ali, sem er níu
ára, dótturina Nebed, sem er átta ára, og svo
Iyaa, en hún er aðeins sex ára gömul. Þetta
er venjuleg írösk fjölskylda, býr sunnan við
Tígris-ána í einu úthverfa Bagdad, og þau
hafa samþykkt að taka á móti mér þennan
sólríka þriðjudag.
Og þau taka vel á móti aðkomumanninum,
ég fæ að spyrja þau spjörunum úr og síðan er
færð fyrir mig vegleg máltíð. Börnin hafa
sérstakan áhuga á gestinum og það er eig-
inlega svolítið uppörvandi, hafandi hörmung-
arsögu írösku þjóðarinnar þessi síðustu ár í
huga, hversu glaðlynd þau eru og brosmild.
Viðskiptaþvinganir höfðu slæm áhrif
Ahmed er kraftalega vaxinn, farinn að
nálgast fertugt. Kona hans, Loma, er 35 ára.
Hann var tólf ár í íraska hernum en þjónaði
þó ekki samfleytt. Barðist í Írak-Íran-stríð-
inu, sem stóð 1980–1988, og síðar í Persaflóa-
stríðinu. Nú starfar hann sem hárskeri og
rekur einnig verslun. Loma hugðist fá starf
sem barnaskólakennari en var hafnað, þau
öfl sem nú ráða ríkjum vildu ekki ráða hana
vegna tengsla sem móðir hennar hafði á sín-
um tíma við embættismenn Baath-flokksins.
Ahmed og Loma hafa þurft að ganga í
gegnum erfiðleika og raunir. „Við áttum
dóttur sem veiktist af heilasjúkdómi. Ég
reyndi að afla henni lyfja og koma henni und-
ir læknishendur en allt kom fyrir ekki,“ segir
Ahmed.
Þetta var árið 1996 og dóttirin var sjö ára
gömul. Ég spyr Ahmed hverju hann kenni
um, Bandaríkjamönnum, Saddam? „Við-
skiptaþvinganir alþjóðasamfélagsins ollu
dauða hennar. Þetta hafði mikil áhrif á okk-
ur, kostaði okkur miklar fórnir. Lyfin sem
við keyptum frá Jórdaníu kostuðu mikla pen-
inga,“ segir hann. Ég inni hann frekar eftir
þessu og þá kemur í ljós að Ahmed kennir
ekki Sameinuðu þjóðunum eða Bandaríkja-
mönnum um viðskiptaþvinganirnar, Saddam
beri þar sjálfur alla ábyrgð.
Það er samt svolítið erfitt að átta sig fylli-
lega á tilfinningum Abo Ali-fjölskyldunnar
gagnvart þeirri stöðu sem komin er upp.
Ahmed og Loma segjast ekki sakna Sadd-
ams, nema síður sé, en þau hafa samt vissa
samúð með uppreisnarmönnum sem berjast
gegn hersetu Bandaríkjamanna. Útlendu ísl-
amistarnir, sem flykkst hafa til Íraks í því
skyni að heyja heilagt stríð, eru hins vegar í
litlu uppáhaldi hjá þeim. Rafmagnsleysið,
verðbólgan, öryggisleysið á götum úti; allt
hefur þetta áhrif á álit þeirra á frammistöðu
Bandaríkjamanna. Í tíð Saddams var þó að
minnsta kosti ekki hættulegt að fara út á
götu á kvöldin. Núna leiki ribbaldar lausum
hala, fari rænandi og ruplandi um götur
Bagdad eftir að skyggja tekur.
„Chalabi er Ali Baba“
Ahmed og fjölskylda hans höfðust við í
húsi sínu í loftárásum Bandaríkjamanna síð-
asta vor. Og það er ljóst að þau eru alvön
sprengingum, það má ráða af viðbrögðum
þeirra þegar hús þeirra hristist skyndilega
og skelfur; sprengja hefur sprungið einhvers
staðar ekki alltof langt í burtu. Börnin hlæja
raunar að áhyggjusvipnum sem kemur yfir
blaðamann Morgunblaðsins. „Þetta er dag-
legur viðburður,“ segir Ahmed.
Loma bætir því þó við að börnin séu
hrædd við að ganga í skólann, skothríð heyr-
ist gjarnan í fjarska og það skelfi þau. Einu
sinni ruddist Bandaríkjaher inn á heimili
þeirra, snemma morguns, í leit að vopnum.
„Börnin eru hrædd við bandarísku hermenn-
ina,“ segir Loma.
Á valdaárum Saddams var sjía-múslímum,
sem eru 60% þjóðarinnar, haldið niðri, enda
Saddam og hans menn flestir súnnítar. Ahm-
ed og Loma segja það hins vegar vitleysu að
hætta sé á vandamálum í samskiptum sjíta
og súnníta; það sjáist best á heimili þeirra, en
Ahmed er súnní-múslími en Loma er sjíti.
Aðspurð um hvern þau sjái sem hugsan-
legan framtíðarleiðtoga Íraks segjast þau
kjósa að hann komi úr hópi útlaga. „Ahmed
Chalabi?“ spyr ég en Chalabi, sem hefur ver-
ið í útlegð frá Írak í um fjóra áratugi, er einn
mest áberandi liðsmanna Íraska fram-
kvæmdaráðsins. „Nei, nei,“ hrópar þá öll
fjölskyldan í kór. „Chalabi er Ali Baba,“ seg-
ir elsti sonurinn, Ali, og Ahmed kinkar kolli,
segir Chalabi skúrk.
Þau nefna Brahimi Jaffari og Adnan
Pachaci til sögunnar sem hugsanlega leið-
toga en segja erkiklerkinn Ali Sistani, sem
áberandi hefur verið vegna kröfu sinnar um
að haldnar verði kosningar í Írak hið fyrsta,
ekki áhrifamann. „Hann er útlendingur,
fæddur í Íran,“ segir Ahmed. „Ég hafði
aldrei heyrt á hann minnst fyrr en eftir
stríð.“
Heimsóknir útlendinga illa liðnar
Þegar ég kveð Ahmed Abo Ali og fjöl-
skyldu hans nefnir hann að í tíð Saddams
hefði hann nú varla getað tekið á móti mér
með þessum hætti. „Það hefðu verið skrif-
aðar um mig margar skýrslur,“ segir hann
og er þar að vísa til þess eftirlits sem emb-
ættismenn Baath-stjórnarflokksins höfðu
með samneyti fólks við útlendinga. Slíkar
skýrslur hefðu getað kallað á yfirheyrslur,
vandræði.
Ég hugsa með mér er ég ek á brott að
kannski sé þetta ástæða þess að börnin hans
Abos Ali tóku mér svo vel; kannski höfðu þau
bara aldrei séð útlending áður.
Morgunblaðið/Davíð Logi Sigurðsson
Ahmed Abo Ali ásamt börnum sínum. Frá hægri eru dóttirin Nebed, þá sonurinn Ali og
Iyad, yngsta dóttirin. Lengst til vinstri er ónefnd frænka.
Fagna falli
Saddams en óttast
Bandaríkjaher
Frá Davíð Loga
Sigurðssyni, blaðamanni
Morgunblaðsins í Írak.
’ Ég reyndi að aflahenni lyfja og koma
henni undir læknis-
hendur en allt kom
fyrir ekki. ‘
ssa forseta og annarra
druðum skiptir. Þetta
gurinn, þannig að það
forsetann heim í hvert
kkur hundruð sinnum,
taka þátt í því. Hvers
æri þá á forsetanum ef
? Þetta er bara ekki
hlýtur einhvern veg-
hugsað sitt ráð áður en
um þetta í fjölmiðlum.“
era hans á afmælinu
„Ég læt hann alveg um það, hann
ræddi það ekkert við mig. Fékk bara
bréfið um að hann væri farinn og kæmi
til baka eftir ótilgreindan tíma. Síðar
höfum við heyrt að hann yrði til 18. eða
jafnvel 20. febrúar.“
– Nú hefur forseti Íslands haft uppi
hörð viðbrögð í fjölmiðlum og talað
m.a. um að nota mætti sterkari orð en
móðgun við forsetaembættið vegna
ríkisráðsfundarins. Varstu undrandi á
þessum ummælum?
„Menn eiga ekki að tala við fjölmiðla
í reiðikasti, ég tala nú ekki um ef það
er allt á misskilningi byggt. Ég er viss
um að hann vilji ekki að eina framlag
hans til þessara hátíðarhalda sé að
vera í hnút erlendis, móðgaður útaf
engu.“
– Þannig að þessi viðbrögð komu þér
á óvart?
„Ég skil ekkert í þeim og ég hef
reyndar ekki hitt marga sem skilja
þau.“
– Hvaða áhrif telurðu að þetta mál
komi til með að hafa á samskipti þess-
ara tveggja æðstu embætta landsins í
framtíðinni?
„Ekki nokkur áhrif.“
„Uppákoma sem
kom mér á óvart“
– Komið þið til með að ræða þetta
þegar forsetinn kemur heim?
„Ég er tilbúinn til þess, ef hann vill
það, það er alveg sjálfsagt. Ég tel
reyndar að ekkert sé til að ræða um.
Mér þykir líklegt að þegar hann hugs-
ar sitt ráð þá telji hann einnig að hér sé
ekkert sem þarf að ræða.“
– Það hefur engan skugga borið á
samstarf ykkar til þessa?
„Það hefur alveg verið snurðulaust
og ég vona að svona uppákoma verði
ekki aftur. Hún kom mér á óvart.“
– Telurðu að þessi atburður komi til
með að skyggja á hátíðarhöldin vegna
heimastjórnarafmælisins?
„Nei, það held ég ekki. Þau hafa far-
ið afskaplega vel fram, að þessu und-
arlega inngripi forsetans undanskildu.
Það er eini bletturinn sem á hátíðar-
höldin hefur fallið.“
brögð forseta Íslands við ríkisráðsfundinum
urinn sem á
n hefur fallið
Morgunblaðið/Sverrir
sunnudaginn 1. febrúar í Ráðherrabústaðnum.
á baugi á hverjum
að má segja að það
a að forsætisráð-
n, sem oddviti rík-
nar, haldi forseta
tum,“ segir hann.
ryggisventill á
njulegum tímum
ekki er talið nauð-
t að handhafar for-
ds haldi forseta upp-
á meðan hann er
andi, hvers virði er
nefndur „öryggis-
“ sem gjarnan hefur
agður fylgja stjórn-
gri stöðu þjóðkjörins
?
o á að forsetinn geti
gisventill, fyrst og
enjulegum tímum,
ófriður eða nátt-
rfitt verður að
Þá getur komið upp
erk forsetans verði
ð annars er, þá vegna
em sameiningartákns
er líka svo að forset-
agafrumvarpi stað-
þingi hefur sam-
etur hann ekki
arpið verði að lögum,
kotið undir atkvæði
sker þá úr um fram-
a. Forseti getur líka
að einstakri stjórn-
formlega ber að
r hans og þar með
un ekki gild. Segja
áttum felist einhvers
till en samkvæmt
an hefur forsetinn
aldi sínu og ekki er
hann geri það nema
gar aðstæður,“ segir
s
að
Davíð Þór Björg-vinsson,lagaprófessor
við Háskólann í
Reykjavík, segir að
handhafar forseta-
valds, þ.e. forsætisráð-
herra, forseti Alþingis
og forseti Hæstaréttar,
fari með öll embætt-
isverk forseta Íslands
þegar hann er erlendis.
Áttunda grein stjórn-
arskrárinnar kveði á
um þetta hlutverk
handhafa forsetavalds-
ins.
„Það verður að skilja
þessa grein þannig að
handhafarnir fari með forsetavald
þegar sú heimild er nýtt. Þetta getur
átt sér stað við ýmsar aðstæður, m.a.
þegar forseti fer utan, en handhafar
forsetavalds taka þá við störfum hans
á meðan hann er í burtu og fara með
forsetavald,“ segir Davíð Þór.
Lögfræðilega ekki athugavert að
handhafar stýri ríkisráðsfundi
– Er eitthvað athugavert við að efna
til ríkisráðsfundar undir stjórn hand-
hafa forsetavalds?
„Nei, lögfræðilega séð er ekkert at-
hugavert við það. Það er auðvitað gert
ráð fyrir því að forseti sitji ríkisráðs-
fundi en ef hann er fjarverandi koma
handhafar forsetavalds hans í stað og
lögformlega er ekkert að því,“ segir
hann.
Davíð Þór var spurður hvort verið
væri að skapa hættulegt fordæmi með
því að efna til ríkisráðsfundar undir
stjórn handhafa forsetavalds eins og
forsetinn hefur látið að liggja í við-
tölum. „Nei, þarna er lögfræðilega rétt
að málum staðið og það gerir því í
sjálfu sér ekkert til þótt þetta verði
endurtekið. Þetta byggist
ekki á rangri eða vafasamri
lagatúlkun, heldur einfald-
lega á þessu ákvæði stjórn-
arskrárinnar um að hand-
hafar forsetavalds gegna
störfum forsetans á meðan
hann er í burtu.“
Hugsanlega gagnrýn-
isvert ef venjur hafa
verið brotnar
– Er eitthvað kveðið á
um það í lögum að hand-
hafar forsetavalds skuli
halda forseta upplýstum
um hvers kyns stjórnvalds-
aðgerðir og embættisverk
þeirra er varða forseta-
embættið á meðan hann er fjarver-
andi?
„Ég held að þetta mótist fyrst og
fremst af samskiptareglum sem þróast
í tímans rás. Það eru ekki bein fyr-
irmæli í lögum um þetta. Þetta helgast
af venjum sem kunna að hafa mótast í
samskiptum þeirra og ef þær venjur
hafa með einhverjum hætti verið
brotnar í þessu máli má kannski halda
því fram að það sé gagnrýnisvert, en
það hefur í sjálfu sér ekkert komið
fram að um neitt slíkt sé að ræða.“
Hann var að lokum spurður hvers
virði svonefndur öryggisventill, sem
gjarnan hefur verið sagður fylgja
stjórnskipulegri stöðu forseta, væri ef
ekki er talið nauðsynlegt að handhafar
forsetavalds haldi forseta upplýstum
um embættisverk í fjarveru hans.
Davíð Þór segir það ekki beinlínis lög-
fræðilegt atriði að ræða um forseta Ís-
lands sem einhvers konar öryggisven-
til í stjórnskipuninni. „Í öllu falli er
gert ráð fyrir því í stjórnarskránni að
handhafar forsetavalds taki við hans
störfum, þannig að handhafi forseta-
valds er ávallt til staðar.“
Davíð Þór Björgvinsson lagaprófessor
Lögfræðilega rétt
að málum staðið
Davíð Þór
Björgvinsson