Morgunblaðið - 04.02.2004, Síða 44
ÍÞRÓTTIR
44 MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
STUÐNINGSMAÐUR enska úrvals-
deildarliðsins Middlesbrough, Adr-
ian Carr, er ekki sáttur við þá með-
ferð sem hann hefur fengið hjá
félaginu undanfarna mánuði. Carr
hafði keypt sér ársmiða á leiki liðs-
ins í vetur en nú hefur honum verið
meinað að sjá fleiri leiki með liðinu
þar sem starfsmaður kom að hon-
um sofandi í sæti sínu á leik liðsins
gegn Arsenal í ágúst sl. Starfsmað-
urinn taldi að Carr hefði verið ölv-
aður á leiknum og sofið af þeim sök-
um. Ársmiðinn var gerður ógildur á
þeim grundvelli og sögðu talsmenn
liðsins að ekkert yrði gert í málinu
nema það færi fyrir dómstóla.
Carr, sem er 28 ára gamall vél-
virki, leitaði réttar síns, en viður-
kennir að hafa fengið sér nokkra
bjóra fyrir leikinn og að auki hafi
hann verið þreyttur eftir vinnutörn
á leikdegi.
Í gær var Carr dæmdur fyrir að
hafa verið ölvaður á íþrótta-
leikvanginum en hann hefur áfrýj-
að málinu. „Þetta mál lyktar illa,“
segir Carr en hann hefur verið
stuðningsmaður liðsins frá árinu
1986. „Ég hef stutt liðið í gegnum
súrt og sætt frá því að ég var 11 ára
gamall. Þá voru fáir sem studdu
Middlesbrough en í dag er þeim al-
veg sama um stuðningsmenn liðs-
ins.“
Lögfræðingur Carrs segir að
leikurinn gegn Arsenal hafi ekki
verið áhugaverður. Af þeim sökum
hafi Carr sofnað og hann hafi ekki
gert neitt af sér í raun og veru.
Dýrkeypt að sofna á leik
með Middlesbrough
YNGRI landslið karla í knatt-
spyrnu fara til Þýskalands og
Noregs í haust til þátttöku í
riðlakeppni Evrópumótsins.
Drengjalandsliðið, U17, keppir
í Þýskalandi 30. sept. til 4. okt.
ásamt heimamönnum, Írum og
Litháum. Unglingalandsliðið,
U19, fer til Noregs og leikur
við heimamenn, Austurrík-
ismenn og Búlgara dagana 2.
til 6. október.
Drengjalandslið síðasta árs
æfir hins vegar af krafti um
þessar mundir fyrir milliriðil
EM sem leikinn verður í Eng-
landi í lok mars. Ísland vann
sinn undanriðil sem leikinn var
í Litháen í haust og mætir Eng-
landi, Armeníu og Noregi 24.
til 28. mars.
Yngri liðin til
Þýskalands
og Noregs
VALA Flosadóttir, stangarstökkv-
ari í Breiðabliki, náði sér ekki á
strik á móti í Gautaborg í gær-
kvöldi. Hún felldi upphafshæð sína
á mótinu 4,15 metra í þrígang og
var þar með úr leik. Aðeins fjórir
keppendur voru skráðir til leiks í
stangarstökki kvenna á mótinu og
lánaðist aðeins einum þeirra að
komast yfir byrjunarhæð sína, það
var Linda Persson, Svíþjóð. Hún
stökk 4,15, en Vala, Fanny Berg-
lund og sænski methafinn, Hanna-
Mia Persson, féllu allar úr leik
þegar þær komust ekki yfir byrj-
unarhæð sína.
Þetta var annað mót Völu á
árinu en hún stökk yfir 4,25 metra
í Zweibrücken á laugardaginn.
Hún þarf að stökkva yfir 4,35 til
þess að komast á HM í Búdapest í
byrjun mars. Vala hefur enn nokk-
urn tíma til þess að ná þeim ár-
angri.
Vala felldi byrjunar-
hæðina í Gautaborg
úar. Leikmenn Middlesbrough fóru
sér hægt í upphafi leiks og ætluðu sér
að verja stöðu sína eftir 1:0 sigur á
Highbury í fyrri leiknum. Traust vörn
og skyndisóknir, einkenni nútíma
knattspyrnu. Eftir eina slíka skyndi-
sókn missti varnarmaður Arsenal,
Martin Keown, af Massimo Macc-
arone, sóknarmanni Middlesbrough,
og sá hinn reyndi varnarmaður þann
eina kost í stöðunni að snúa Macc-
arone niður og var Keown vísað af
Boudewijn Zenden kom heima-mönnum yfir á 69. mínútu, Edu
jafnaði fyrir gestina frá London sem
léku einum færri í síðari hálfleik.
Spánverjinn Jose Antonio Reyes sem
keyptur var fyrir metfé frá Sevilla á
dögunum lék sinn fyrsta leik með
Arsenal og eflaust á máltækið fall er
fararheill ágætlega við fyrir Reyes
sem skoraði sjálfsmark á 85. mínútu.
Úrslitaleikurinn fer fram á Þús-
aldarleikvanginum í Cardiff 29. febr-
leikvelli í kjölfarið, á 45. mínútu. Ein-
um færri áttu leikmenn Arsenal við
ramman reip að draga en Zenden
braut ísinn, Edu jafnaði og síðan kom
að þætti dýrasta leikmanns Arsenal,
Reyes sem skoraði í eigið mark og
gerði út um vonir gestanna um ferð á
Þúsaldarleikvanginn í lok mánaðar-
ins. Ólafur Ingi Skúlason var í leik-
mannahóp Arsenal en kom ekki við
sögu í leiknum.
Middlesbrough lék til úrslita í
deildabikarnum tvö ár í röð, 1997 og
1998, en fór með silfrið heim í bæði
skiptin.
Bjarni Guðjónsson var í byrjunar-
liði 1. deildarliðsins Coventry sem féll
úr leik í ensku bikarkeppninni en liðið
tapaði, 3:1, fyrir Colchester sem leik-
ur í 2. deild.
Reuters
Martin Keown gengur niðurlútur af velli. Hann hefur þrettán
sinnum fengið að sjá rauða spjaldið á knattspyrnuferli sínum.
Spánverjinn Reyes
skoraði í rangt mark
MIDDLESBROUGH og Bolton leika til úrslita um enska deildabik-
arinn í knattspyrnu en Middlesbrough lagði Arsenal að velli í gær,
2:1, í síðari leik liðanna og samanlagt, 3:1. Leikurinn var lítið fyrir
augað en það sem vakti mesta athygli var mark Spánverjans Jose
Antonio Reyes sem lék sinn fyrsta leik með Arsenal, en skoraði í
rangt mark að þessu sinni. Steve McClaren knattspyrnustjóri
„Boro“ eygir nú möguleika á að landa fyrsta titli félagsins.
FÓLK
Í GÆRKVÖLD var tilkynnt hvaða
leikmenn verða á varamannabekkn-
um í hinum árlega Stjörnuleik NBA-
deildarinnar sem fram fer í Los Ang-
eles 15. febrúar .k. og vekur það at-
hygli að þjálfararnir 29 sem standa
að kjörinu á varamönnnunum völdu
ekki LeBron James, nýliða Cleve-
land, né Carmelo Anthony, nýliða
Denver Nuggets. Þeir verða hins
vegar báðir í nýliðaleiknum á laug-
ardeginum 14. febrúar.
LIÐIN eru þannig skipuð: Austur-
deildin:
Vince Carter, Raptors, Jermaine
O’Neal, Pacers, Ben Wallace, Pist-
ons, Allen Iverson, 76ers, Tracy
McGrady, Magic. Varamenn: Ron
Artest, Pacers, Baron Davis, Horn-
ets, Jason Kidd, Nets, Jamaal Mag-
loire, Hornets, Kenyon Martin, Nets,
Paul Pierce, Celtics, Michael Redd,
Bucks. Þjálfari er Rick Carlisle, Pac-
ers.
VESTURDEILDIN: Kevin Garn-
ett, Wolves, Tim Duncan, Spurs, Yao
Ming, Rockets, Steve Francis, Rock-
ets, Kobe Bryant, Lakers. Vara-
menn: Ray Allen, Sonics, Sam Cass-
ell, Wolves, Andrei Kirilenko, Jazz,
Brad Miller, Kings, Dirk Nowitzki,
Mavericks, Shaquille O’Neal, Lak-
ers, Peja Stojakovic, Kings, þjálfari
Flip Saunders, Wolves.
DÓMSTÓLL KKÍ kvað í fyrradag
upp úrskurð í máli Keflvíkinga gegn
KR vegna bikarleiks í unglingaflokki
kvenna. Keflvíkingar kærðu fram-
kvæmd leiksins þar sem leiktími var
ekki réttur. Niðurstaða dómstólsins
er sú að gallar hafi verið á fram-
kvæmd leiksins og hann skuli því
endurtekinn. Það var Gísli Gíslason
sem kvað upp dóminn.
KNATTSPYRNA
England
Deildabikar, undanúrslit, síðari leikur:
Middlesbrough – Arsenal ....................... 2:1
Boudewijn Zenden 69., Jose Antonio Reyes
sjálfsmark 85. – Edu 77. Rautt spjald:
Martin Keown, Arsenal, 43. mín. – 28.781.
Middlesbrough vann 3:1 samanlagt og
mætir Bolton í úrslitum í Cardiff 29. febr.
Bikarkeppnin, 4. umferð:
Colchester – Coventry ............................. 3:1
Colchester mætir Sheffield United í 5.
umferð.
Þýskaland
Bikarkeppnin, 8 liða úrslit:
Greuter Fürth – Werder Bremen........... 2:3
Hoffenheim – Lübeck .............................. 0:1
Mönchengladbach – Duisburg ................ 2:2
Gladbach sigraði í vítakeppni, 3:2.
Frakkland
Deildabikarinn, undanúrslit:
Nantes – Auxerre ..................................... 0:0
Nantes sigraði, 5:4, í vítakeppni.
Holland
Bikarkeppnin, 8 liða úrslit:
Sparta Rotterdam – Nijmegen ............... 0:0
Sparta vann í vítakeppni, 3:2.
Belgía
Bikarkeppnin, 8 liða úrslit, síðari leikur:
Club Brugge – La Louviere .................... 2:0
Club Brugge áfram, 3:2 samanlagt.
Skotland
Deildabikarinn, undanúrslit:
Dundee – Livingston................................ 0:1
Afríkukeppnin
Alsír – Zimbabve ...................................... 1:2
Kamerún – Egyptaland ........................... 0:0
Kamerún og Alsír komast áfram.
3. deild karla
Riðlaskipting á Íslandsmótinu 2004:
A-riðill: Afríka, Árborg, Deiglan, Freyr,
Grótta, Númi, Skallagrímur, GG.
B-riðill: BÍ, Bolungarvík, Drangur, Hamar,
ÍH, Reynir S., Ægir.
C-riðill: Hvöt, Magni, Neisti Hofsósi,
Reynir Árskógsströnd, Golfklúbbur Siglu-
fjarðar, Snörtur, Völsi.
D-riðill: Einherji, Fjarðabyggð, Huginn,
Höttur, Leiknir F., Neisti D., Sindri.
1. deild kvenna
Riðlaskipting á Íslandsmótinu 2004:
A-riðill: Haukar, UMF Bessastaðahrepps,
Ægir, HK/Víkingur, Keflavík.
B-riðill: ÍA, Hvöt, Tindastóll, Afturelding,
Þróttur R., ÍR, Fylkir.
C-riðill: Einherji, Fjarðabyggð, Höttur,
Sindri.
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla
ÍS – Selfoss............................................ 95:86
Staðan:
Skallagrímur 14 13 1 1314:1131 26
Fjölnir 14 12 2 1293:1023 24
Valur 13 11 2 1137:1038 22
Ármann/Þróttur 13 7 6 1097:1021 14
Stjarnan 14 6 8 1124:1107 12
ÍS 14 6 8 1114:1200 12
Þór A. 14 6 8 1181:1243 12
ÍG 13 3 10 1023:1175 6
Höttur 13 2 11 950:1134 4
Selfoss 14 2 12 1121:1282 4
ÚRSLIT
HANDKNATTLEIKUR
Bikarkeppni kvenna, undanúrslit:
Vestmannaeyjar: ÍBV - FH................. 19.15
Seltj.nes.: Grótta/KR - Haukar........... 19.15
Í KVÖLD