Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 46
MINNINGAR 46 LAUGARDAGUR 13. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Jón Jónassonfæddist á Ytri- Kotum í Skagafirði 13. júlí 1909. Hann lést á Heilbrigðis- stofnun Sauðárkróks fimmtudaginn 4. mars síðastliðinn. Foreldrar hans voru Stefanía Sigurðar- dóttir, f. 27.5. 1877, d. 30.7. 1965, frá Skagafirði og Jónas Kristjánsson, f. 15.3. 1880, d. 9.8. 1964, frá Skagafirði. Jón átti fimm systkini, þau eru: Egill, f. 1902, látinn, Ágústa, f. 1904, Snorri, f. 1905, d. 1987, Brynhildur, f. 1911, Magnús Þór- ir, f. 1921, d. 2002. Hinn 22 .júní 1941 kvæntist Jón Oddnýju Bergsdóttur frá Kols- stöðum í Hvítársíðu, f. 5.10. 1915, d. 17.1. 2004. Foreldrar hennar voru Kristín Þorkelsdóttir, f. 20.6. 1894, d. 25.11. 1981, frá Reykjavík og Bergur Sæmundsson, f. 14.12. 1888, d. 27.12. 1915, frá Heiði á Langanesi, fósturfaðir Sigurður Guðmundsson, f. 8.4. 1888, d. 14.7. 1982, bóndi á Kolsstöðum í Hvít- ársíðu. Jón og Oddný eignuðust fimm börn. Þau eru: 1) Sigurður, f. 1944, d. 1944. 2) Margrét, f. 1946, d. 1946. 3)Stefanía Kristín, f. 1947, maki Gylfi Eiríksson, f. 1945, þau eiga þrjú börn, þau eru: a) Sigríður, maki Hannes Hauksson, þau eiga þrjú börn; b) Sverrir Jón; c) Eiríkur Óli, sambýliskona Jó- hanna Dögg Olgeirs- dóttir. 4) Ágústa Sig- rún, f. 1950, hún á þrjú börn, þau eru: a) Jón Oddur; b) Þorgerður Eva, á hún eitt barn; c) Þóra Björk, sambýlis- maður Orri Hreins- son. 5) Þorbjörg, f. 1956, maki Gísli Jón Sigurðsson, f. 1954, þau eiga þrjú börn, þau eru: a) Orri Sigurður, sambýlis- kona Guðrún Halldórsdóttir, þau eiga tvö börn; b) Arnar Þór, sam- býliskona Silja Ósk Birgisdóttir; c) Erna Oddný. Jón ólst upp í Skagafirði, sem ungur maður var hann lengi vinnu- maður á Víðivöllum í Blönduhlíð, fluttist síðan á Sauðárkrók og bjuggu þau Oddný á Freyjugötu 44 þar til þau fóru á Heilbrigðisstofn- un Sauðárkróks árið 2002. Jón starfaði lengst af í Mjólkursamlag- inu á Sauðárkróki, síðan sem um- sjónarmaður við Heilbrigðisstofn- unina á Sauðárkróki. Jafnframt störfum sínum var hann alla tíð með búskap og lengst af með hesta. Útför Jóns fer fram frá Sauðár- krókskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Þó sorgin sé sár, og erfitt við hana að una. Við verðum að skilja, og alltaf við verðum að muna að Guð hann er góður, og veit hvað er best fyrir sína. Því treysti ég nú, að hann geymi vel sálina þína. Þótt farinn þú sért, og horfinn ert burt þessum heimi. Ég minningu þína, þá ávallt í hjarta mér geymi. Ástvini þína, ég bið síðan Guð minn að styðja , og þerra burt tárin, Ég ætíð skal fyrir þeim biðja. (Bryndís Jónsdóttir.) Elsku pabbi minn, þakka þér fyr- ir allt sem þú gerðir fyrir mig, allt- af svo ljúfur og góður. Þú varst einstakur afi og er það góð minning fyrir börnin mín hvað þú varst viljugur og vildir allt fyrir þau gera. Þakka þér fyrir allar góðu stundirnar og hvað við vorum alltaf velkomin til ykkar. Ég kveð þig með söknuði. Þín Þorbjörg. Á Sauðárkróki er látinn tengda- faðir minn Jón Jónasson. Góður og traustur vinur hefur yfirgefið þessa jarðvist. Hann var búinn að skila sínu ævistarfi, þreyttur en sáttur við allt og alla. Þegar Oddný eig- inkona hans lést í janúar síðast- liðnum, sáum við sem til þekktum að stutt yrði á milli þeirra heið- urshjóna. Á tímamótun sem þessum leita margar góðar minningar á hugann. Ég kynntist Jóni fyrir tæpum þrjá- tíu árum. Ég var þá að hefja sam- búð með Þorbjörgu, dóttur hans. Jón tók mér með hlýju handtaki, ungum og óreyndum manni. Við tókum tal saman, ræddum landsins gagn og nauðsynjar og fengum okkur í nefið. Þegar afabörnin komu til sögunnar þótti honum gaman að þau fengju í nefið og fylgdu því alltaf smá skemmtileg- heit og sagði hann við þau að það væri hraustleikamerki að taka í nefið. Ég fann fljótt að Jón var vel lesinn, hafði ákveðnar skoðanir og var fastur fyrir. Hann var prúður maður og snyrtilegur, vildi hafa allt í röð og reglu. Bjó konu sinni og dætrum gott og hlýlegt heimili, reyndist dætrum sínum mildur og góður faðir. Á heimili þeirra var ætíð gestkvæmt og höfðinglegar móttökur biðu allra sem þangað komu jafnt í mat og gistingu. Jón hafði gaman af búskap og var með kindur og hesta á húsi. En síðari ár átti hann einungis hesta og hafði mikla ánægju af þeim. Þessu fylgdi heyskapur sem okkur þótti sjálfsagt og gaman að taka þátt í. Margar ferðir voru farnar upp á Heiði þar sem hestarnir voru í sumarhaga. Var með ólíkindum hvað hrossin þekktu Jón úr mikilli fjarlægð, það var nóg að flauta og láta skrjáfa í brauðpoka, hann kall- aði til þeirra og nánast á sama and- artaki voru þau komin til hans. Þessi minning er mér ógleymanleg. Jón var mikill og góður spilamað- ur. Hann spilaði bridge til margra ára, bæði í keppni og leik. Á seinni árum var það mikil dægrastytting hjá þeim hjónum að spila við sína nánustu og við hvort annað. Genginn er góður vinur, góður tengdafaðir, góður afi og þakka ég honum samfylgdina og hlýju til fjölskyldu minnar alla tíð. Ég vil votta fjölskyldunni mína dýpstu samúð. Lifið í Guðs friði. Gísli Jón Sigurðsson. Elsku afi minn, nú er komið að kveðjustundinni. Þú kveður aðeins einum og hálfum mánuði á eftir ömmu. Það var svo gott að koma til ykkar, þið voru svo hlý og góð. Ég ólst upp að hluta hjá ykkur og mér þótti svo vænt um þegar þú sagðir kvöldið sem amma var jörðuð að þið ættuð svo mikið í mér og ykkur þætti svo vænt um mig. Þið vilduð allt fyrir mig gera og hjá ykkur átti ég herbergi sem var alltaf tilbúið á vorin. Þú varst mér meira en bara afi, þú varst mér faðir þegar ég dvaldi hjá ykkur. Stundum kom ég í rútu til ykkar og þá sóttir þú mig í Varmahlíð. Það fór aldrei á milli mála að þú varst kominn því þú keyrðir Löduna þína alltaf í fyrsta eða öðrum gír. Oft fór ég með þér upp í Heiði þar sem þú geymdir hestana þína og þá kom Ljóska alltaf hlaupandi því hún þekkti hljóðið og flautið í bílnum þínum. Hún vissi að þú komst með brauð og rúgbrauð að gefa þeim. Hest- arnir þínir voru vel aldir og þú varst stoltur af þeim. Þú varst stoltur þegar sögð var sagan um hestinn Stjörnu en hún var valin sem brúðargjöf til Danadrottningar frá íslensku þjóðinni á sínum tíma. Þú áttir líka kindur og fór ég oft með þér út á tún að gefa þeim og heyja. Þér fannst gaman að spila og snemma kennduð þið amma okkur að spila vist. Eftir að ég eignaðist mína fjölskyldu fór ég reglulega til ykkar og eiga Guðlaug Edda og Stefanía Ýr góðar minningar um þig og ömmu. Þú sást Ívar Andra, litla strákinn minn, í fyrsta skipti nú í janúar. Hann tók í puttana á þér og lék sér í þeim og þú brostir og talaðir um að hann væri mynd- arstrákur. Elsku afi, ég vil þakka þér fyrir allar stundirnar sem við áttum saman og ég mun varðveita minn- ingar mínar um þig í hjarta mínu. Hvíldu í friði, elsku afi minn. Þín Sigríður. Elsku afi, ég vil þakka þér hvað þú varst alltaf góður við mig og hafðir alltaf tíma fyrir mig. Alltaf þegar ég kom fórum við saman í hesthúsin að gefa hestunum og í Kaupfélagið að kaupa ýmislegt fyr- ir ömmu. Ég hlakkaði alltaf til að koma til ykkar og vera hjá ykkur. Takk fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Guð geymi þig, elsku afi minn. Þín afastelpa, Erna Oddný. Elsku afi, mig langar að minnast góðu stundanna sem við áttum þeg- ar ég kom norður, þú tókst alltaf rosalega vel á móti mér. Við fórum upp í hesthús eða upp á heiði að kíkja á hestana. Við fengum alltaf brauð hjá ömmu til að gefa hest- unum en við stálumst líka til að taka nýtt rúgbrauð með okkur og svo var keyrt upp á heiði á Lödunni þinni. Þegar þangað var komið þá flautuðum við bara og hestarnir þekktu hljóðið í bílnum og komu hlaupandi til þín. Ég man líka eftir því þegar ég fékk að fara með hest- ana frá gamla sýslumannshesthús- inu og út á tún hjá þér, hvað mér þótti það gaman að fá að teyma hestana þína í gegnum bæinn. Ég heyjaði svo með þér spítalabrekk- una og ekki þótti mér það leiðinlegt en erfitt var það því hún var mjög brött. Svo voru nú mörg kvöldin sem fóru í spilamennsku, við spil- uðum oftast vist og þá spiluðum við tveir saman og svo spiluðum við líka marías. Guð geymi þig, afi, og megið þið amma hvíla í friði saman. Sverrir Jón Gylfason. Elsku langafi. Ó, hvað ég sakna þín sárt. Nú eruð þið langamma bæði dáin. Það var alltaf svo gaman þegar ég sat á hnjánum á þér og þú sagðir: Þú ert Tralli, en þá sagði ég nei, þú ert Tralli. Ég man þegar ég kom á Sauðárkrók á Freyjugötuna og fór í róluna og ég hló og hló. Hvíldu í friði. Hér er bæn til þín frá mér. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson.) Hittumst uppi á himnum. Þín Guðlaug Edda. JÓN JÓNASSON Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma, og langalangamma, LAUFEY JAKOBSDÓTTIR Hrafnistu, Reykjavík, áður Grjótagötu 12, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju í Hafnar- firði mánudaginn 15. mars kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á líknarstofnanir. Edda Magnúsdóttir, Páll Jónsson, Inga Magnúsdóttir, Birgir Björnsson, Erlendur Finnbogi Magnússon, Elín Björg Magnúsdóttir, Finnur Torfi Hjörleifsson, Sigurbjörg Kristín Magnúsdóttir, Helga Hafdís Magnúsdóttir, Hinrik Einarsson, Jakob Skafti Magnússon, Þorleifur Magnús Magnússon, Guðlaug Steinsdóttir, barnabörnin og fjölskyldur þeirra. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, JÓNASÍNU BJARNADÓTTUR, Þyrli. Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilis- ins Höfða á Akranesi. Kristján Þorsteinsson, Guðríður Sveinsdóttir, Böðvar Þorsteinsson, Ásrún Jóhannesdóttir, Bjarni Þorsteinsson, Sigríður Þorsteinsdóttir, Örn Hauksson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, dóttir okkar, systir, mágkona, frænka, barnabarn og tengdadóttir, ÁSTA SYLVÍA BJÖRNSDÓTTIR, Eskihlíð 35, Reykjavík, sem lést á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki miðvikudaginn 3. mars, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 20. mars kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélgið. Kristján Örn Jóhannesson, Oddný Finnbogadóttir, Björn Friðrik Björnsson, Emma Sigríður Björnsdóttir, Iain D. Richardson, Alma Emilía Björnsdóttir og systrabörn, Emma Hansen, Friðrik J. Friðriksson, Þóra Kristjánsdóttir. Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur vináttu og hlýju við andlát og útför okkar ást- kæra, BJARNA M. SIGMUNDSSONAR, Þastarima 7, Selfossi. Guðný M. Bergsteinsdóttir, Bergrún Bjarnadóttir, Guðmundur Guðmundsson, Magnea Bjarnadóttir, Sigurbjörn T. Gunnarsson, María E. Bjarnadóttir, Guðmundur Magnússon, barnabörn og barnabarnabarn. Öllum þeim fjölmörgu sem auðsýndu okkur vináttu, hlýhug og samúð vegna fráfalls föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og sambýlis- manns, SIGURFINNS EINARSSONAR, Vestmannaeyjum, sem lést mánudaginn 23. febrúar, færum við bestu þakkir. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hraunbúða svo og Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja fyrir einstaka umönnun. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Sigurfinnur Sigurfinnsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.