Morgunblaðið - 13.03.2004, Side 23
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARS 2004 23
Reykjavík | Hugmyndir um Sundabraut
hafa undanfarið gengið gegnum langt
umræðu- og matsferli og hafa skipulags-
yfirvöld nú komið sér niður á tvo meg-
inkosti sem standa upp úr. Þar er um að
ræða annars vegar svonefnda innri leið,
eða eyjalausn, sem samanstendur af um
100 metra landfyllingu út frá Gelgju-
tanga, 60–70 metra langri brú yfir á um
500 metra langa manngerða eyju í miðri
Kleppsvíkinni en þar tekur við 170–200
metra löng brú yfir á Gufuneshöfða þar
sem vegurinn fer inn í um 400 metra löng
jarðgöng í gegnum höfðann
Hins vegar er um að ræða svonefnda
ytri leið, sem felur í sér tvo kosti, annars
vegar hábrú, sem líkist helst stórum
brúm erlendis. Það sem ræður mestu um
gerð mannvirkisins er sú krafa að á sigl-
ingarrennunni, sem skal vera 135 metra
breið, sé frí hæð 48 metrar undir brúna.
Miðlína siglingarrennu er 150 m frá
framtíðarhafnarbakka. Hinn kosturinn í
ytri leiðinni eru botngöng.
Í framtíðaráformum Sundabrautar er
síðan hugmyndin að brúa einnig Kolla-
fjörðinn. Með því myndi leiðin inn á Kjal-
arnes styttast töluvert auk þess sem um-
ferð um Mosfellsbæ myndi minnka.
Að sögn Björns Inga Sveinssonar
borgarverkfræðings fór mat á umhverfis-
áhrifum beggja kosta jafngildra inn til
umsagnar hjá Skipulagsstofnun fyrir
þrem vikum. Skipulagsstofnun skilaði
sínum athugasemdum við skýrsluna í
fyrradag. „Þær athugasemdir höfum við
nú undir hendi og munum bregðast við
þeim. Borgin, Vegagerðin og ráðgjafar
okkar munu fara yfir þessar athuga-
semdir og koma inn í skýrsluna þeim
upplýsingum sem taldar eru ónógar og
senda síðan aftur til Skipulagsstofnunar.
Athugasemdirnar voru óverulegar og
snerust mest um frekari gögn frá okkur,“
segir Björn Ingi og bætir við að kostirnir
sem um er rætt séu allir ágætir.
Tuttugu og fjórar vikur í leyfi
Þegar Vegagerðin og Reykjavíkur-
borg hafa brugðist við athugasemdunum
fer skýrslan aftur inn á borð til Skipu-
lagsstofnunar. Þá hefst hið eiginlega mat
á umhverfisáhrifum. Allur sá ferill tekur
um tuttugu og fjórar vikur. Skipulags-
stofnun fer þá í úrskurðarferlið og skilar
sínum úrskurði. Þá hefst kæruferli, kjósi
hagsmunaðilar að kæra niðurstöðu til
ráðherra. „Alls er gert ráð fyrir um tutt-
ugu og fjórum vikum þar til úrskurður
ráðherra við hugsanlegum kærum liggur
fyrir. Að því loknu er hægt að gefa út
framkvæmdaleyfi, að því gefnu að ekkert
í úrskurðinum komi í veg fyrir það að af
framkvæmdinni geti orðið. Vissulega er
síðan heilmikil hönnunarvinna framund-
an,“ segir Björn Ingi.
Þrjár útfærslur á Sundabraut fara bráðlega í umhverfismatsferli hjá Skipulagsstofnun
Eyjalausn,
hábrú eða
botngöng
Myndvinnsla/ONNO í samvinnu við Línuhönnun
Ytri leið Sundabrautar, hábrúarlausn: Hér þarf að gera ráð fyrir umferð skipa að Sundahöfn. Brúin verður
um 48 metra há þar sem hún rís hæst á um 135 metra kafla. Einnig er möguleiki á botngöngum.
Innri leið Sundabrautar, eyjalausn: Með eyjalausninni þarf ekki að gera ráð fyrir aðgangi stórra skipa að
höfninni. Þó krefst hún nokkurrar landmótunar því 500 m löng manngerð eyja verður í miðri Kleppsvík.