Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 13. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Einnig eigum við til á súperverði
Dodge Ram 1500 bensínbíl, árg. ‘03
RISATILBOÐ
Cherokee Overland árg. ‘03 og ‘04
Opið í dag, laugardag, frá kl. 11-16
Netsalan ehf. „Alltaf með nýjungar!“
Knarrarvogur 4 104 R. Sími 517 0220 netsalan@itn.is
á nýjum Cherokee jeppum árg. ‘03 og Dodge
Ram 2500 Quad Cab Laramie, leður, árg. ‘04
PETER Christmas-Möller, yfir-
maður nútímalistardeildar Bruun
Rasmussen í Kaupmannahöfn, vildi
ekki tjá sig í gær um það hvernig upp-
boðshúsið hygðist bregðast við grun-
semdum um að mynd sem til stóð að
bjóða upp og eignuð var Jóhannesi
Kjarval væri fölsuð, að öðru leyti en
því að verkið hefði verið dregið af
uppboðinu.
Morgunblaðið greindi frá því á
fimmtudag að grunur léki á að mynd-
in, sem í uppboðsskrá Bruun Rasm-
ussen er nefnd Pige med harpe, eða
Stúlka með hörpu, væri stæling á
málverkinu Landslag leikið á píanó
eftir Kjarval. Haft var eftir Ólafi Inga
Jónssyni, forverði hjá Morkinskinnu,
að falsarar hefðu að öllum líkindum
málað yfir mynd eftir danska lista-
manninn Mogens Hoff, sem boðin var
upp hjá Bruun Rasmussen árið 1985.
Til uppboðsnúmers myndarinnar þá
var vísað í skránni fyrir uppboðið, þar
sem til stóð að selja myndina, en það
verður haldið 31. mars næstkomandi.
Christmas-Möller hefur staðfest við
Morgunblaðið að myndin eftir Hoff
hafi aftur verið boðin upp hjá Bruun
Rasmussen árið 1992, en gefur ekki
upp hver kaupandinn var. Myndin
sem talin er fölsuð kom áður fram á
uppboði hjá Galleríi Borg árið 1994 og
var þá nefnd Vorkoma.
Þrátt fyrir að hætt hafi verið við að
bjóða myndina upp verður hana að
finna í uppboðsskrá Bruun Rasmus-
sen fyrir uppboðið 31. mars, enda var
skráin farin í prentun áður en ákvörð-
un var tekin um að draga myndina til
baka.
Ætluð fölsun
ekki boðin
upp
ÞYRLUÁHAFNIR Landhelgis-
gæslunnar og Varnarliðsins á Kefla-
víkurflugvelli léku stórt hlutverk á
strandstað í Skarðsfjöru í gær þar
sem Baldvin Þorsteinsson EA 10
bíður björgunar. Notast var við her-
þyrlu Varnarliðsins og TF-SIF,
þyrlu Gæslunnar, við að flytja búnað
frá landi út í Baldvin Þorsteinsson
og norska dráttarskipið Normand
Mariner sem kom til landsins í gær.
Dráttarskipið fór í átt að Baldvini
en þegar það átti eftir 1,3 sjómílur
treysti það sér ekki nær og bíður
þess að þyrluáhöfn Gæslunnar dragi
rúmlega 2 km langa taug úr skipinu
yfir í Baldvin. Í gær kom TF-SIF á
strandstað um kl. 14 og flutti 10
skipverja út í Baldvin sem hófu frek-
ari björgunarundirbúning. Næstu
klukkustundunum var varið í að
flytja björgunarbúnað út í Baldvin,
s.s. keðjuhlekki, lykkjur og fleira.
Að sögn Jarle Andersen, verkefn-
isstjóra Normand Mariner, voru að-
stæður þokkalegar í gær með tilliti
til vinda og sjávarstrauma. Einn erf-
iðasti hluti björgunarinnar felst hins
vegar í því að koma tauginni úr
Normand Mariner yfir í Baldvin en
það verður reynt í dag, laugardag.
„Við þurfum að flytja taugina um
2500 metra vegalengd og í því felst
mesta áskorunin,“ sagði Andersen.
1,8 tonna þung dráttartaug
Þegar klukkan var orðin 15.45
lenti þyrla Varnarliðsins í fjörunni
við strandstaðinn og fundaði áhöfn
hennar með björgunarhópnum áður
en fyrsta verkefnið hófst. Í fjöru-
borðinu beið gríðarþungt kefli sem
flytja átti út í Normand Mariner
sem rétt glitti í við sjóndeildarhring-
inn gegnum brimrótið. Á keflinu var
1.900 metra löng taugin sem liðs-
menn Gæslunnar munu fljúga með
yfir í Baldvin í dag en sjálft drátt-
artógið verður dregið inn á tauginni.
Keflið vó rúm 1,8 tonn en burðar-
geta Sikorski-herþyrlunnar er á
fjórða tonn. Þeim sem fylgdust með
af landi fannst nóg um þyngslin og
ekki síst hávaðarokið sem feykti
fjörusandi inn um allar glufur.
Klukkan 17.04 bifaðist keflið upp á
við og þyrlan hélt út á haf í átt til
Normand Mariner með farminn
hangandi neðan í sér. Þegar þyrlan
nálgaðist skipið fór keflið að sveifl-
ast ískyggilega mikið í vindinum svo
mönnum varð ekki um sel. Svo virt-
ist sem slaglengdin ykist með hverri
sveiflu, með ófyrirsjáanlegum afleið-
ingum. Allt gekk þó að óskum og var
keflið komið um borð klukkan 17.11.
Eftir á sagði einn liðsmanna úr
bandarísku sveitinni Morgunblaðinu
að vindurinn hefði vissulega verið
grimmur og ekki væri æskilegt að
láta farminn sveiflast á þennan hátt
en enginn hefði þó skaðast.
Mikið þyrluflug var áfram yfir
strandstað fram til kvölds og um
tíma voru báðar þyrlurnar á lofti
samtímis við að flytja búnað út í
skipin.
Í dag bíður áhafnarinnar á TF-
SIF vandasamt verkefni sem ekki
hefur áður verið framkvæmt. Fljúga
þarf þyrlunni löturhægt afturábak 2
kílómetra með áðurnefnda taug yfir
í Baldvin og sagði Einar Valsson
stýrimaður á TF-SIF það ófyrirséð
hvernig þyrlan réði við verkefnið og
einnig hvernig taugin legðist í sjáv-
arstrauma.
Tveir kílómetrar
milli skipanna
Tveir kílómetrar á milli skipanna
eru gífurleg vegalengd í þessu sam-
hengi og þarf að fara að öllu með
gát. „Það hefur verið álandsvindur
lengi þannig að það liggur talsverð-
ur straumur upp í fjöruna, sem er
hagstætt,“ sagði Einar. „Síðan eru
fallastraumar sem liggja með
ströndinni og aðgæta þarf hvernig
dráttartógið leggst í straumana og
hve drátturinn verður þungur.“
Spurður um 2 km þyrluflug aftur-
ábak, dragandi taug í sjó, segir hann
slíkt ekki þægilegt. „Maður sér lítið
afturfyrir sig en það má segja að
ekki séu miklar hindranir á leiðinni
fyrr en við komum að skipinu. En
þetta er vandaverk og óljóst hvað
þetta tekur langan tíma.“
Ljóst er að mikill áfangi næst í
björgunarferlinu ef tekst að koma
tauginni í Baldvin í dag og þá fyrst
kemur í ljós hvort hið tröllaukna,
nærri 30 þúsund hestafla dráttar-
skip nær að draga Baldvin á flot.
Þyrluáhöfn Gæslunnar flýgur afturábak með 2 km langa taug í Baldvin EA
„Þetta er vandaverk“
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Norska dráttarskipið Normand Mariner, sem kom til landsins í gær, fór 1,3 sjómílu að Baldvini en treysti sér ekki
nær og bíður þess að þyrluáhöfn Gæslunnar dragi rúma 2 km langa taug úr skipinu yfir í Baldvin.
Morgunblaðið/Rax
Á þessu kefli er 1.900 metra löng taug sem verður flogið með frá Normand
Mariner í Baldvin Þorsteinsson í dag. Keflið vegur rúm 1,8 tonn og varð
mönnum ekki um sel í gær þegar það var flutt í norska dráttarskipið og
keflið sveiflaðist til og frá í rokinu.
ÞRETTÁN ára undrabarnið frá
Noregi, Magnus Carlsen, sigraði
Nikola Sedlak, stórmeistara frá
Serbíu, í sjöttu umferð Reykjavík-
urskákmótsins í gærkvöld. Skák-
snillingurinn ungi er nú með fjóra
vinninga.
Rússinn Alexey Dreew sigraði
Svíann Tiger Hillarp Persson og er
þar með einn efstur á mótinu með
fimm vinninga. Þá sigraði Dagur
Arngrímsson breska skákmeist-
arann Miles Ardaman.
Þeir Helgi Ólafsson, Þröstur Þór-
hallsson, Stefán Kristjánsson og
Hannes Hlífar Stefánsson eru efstir
af Íslendingunum með 3,5 vinninga
hver.
Ekki er teflt á mótinu í dag en sjö-
unda umferð fer fram á sunnudag.
Undrabarn-
ið vann stór-
meistara
Sex stórmeistarar/55
ÞYRLA varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli varð fyrir
vélartruflunum á leið á strandstað fjölveiðiskipsins
Baldvins Þorsteinssonar á fjórtánda tímanum í gær og
þurfti að snúa við. Átta manns voru um borð og sakaði
þá ekki.
Flugstjórinn lýsti yfir neyðarástandi þegar þyrlan
var stödd um 25 sjómílur suð-austur af Keflavík. Þyrl-
an sneri þegar við og lenti klakklaust á Keflavík-
urflugvelli 12 mínútum síðar.
Önnur þyrla var þá send frá varnarliðinu til að að-
stoða við björgunarstörfin, en beðið var um aðstoð
varnarliðsins þegar ljóst var að TF-LÍF, þyrla Land-
helgisgæslunnar, væri biluð og gæti ekki tekið frekari
þátt í björgunarstörfunum að svo stöddu. Minni þyrla
Landhelgisgæslunnar, TF-SIF hefur einnig aðstoðað
við björgunarstörfin.
Viðgerð tekur fjóra daga
Að því er fram kemur í tilkynningu frá Landhelg-
isgæslunni hefur gírkassi úr TF-LÍF verið sendur til
Noregs til viðgerðar, og er áætlað að viðgerð taki fjóra
daga. Gírkassinn kostar um 37-38 milljónir króna, en
ekki er ljóst hvað viðgerðin kostar.
Leigð var fraktflugvél af Flugleiðum til að koma
hlutum af tógi sem nota á til að reyna að draga Baldvin
á flot til landsins, segir Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja. Vélin sótti búnaðinn til Noregs og kom
hingað til lands um hádegi í gær. Búnaðurinn var svo
fluttur á strandstað með bílum.
Þyrlur úr leik við björgunarstörf
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Flugvirkjar hófu í gær viðgerð á þyrlunni TF-LÍF.
♦♦♦