Morgunblaðið - 13.03.2004, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 13. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FJÖLDAFUNDIR Á SPÁNI
Rúmar átta milljónir manna söfn-
uðust saman á götum spænskra
borga og bæja í gærkvöldi til að
mótmæla sprengjutilræðunum í
Madríd í fyrradag og sýna samstöðu
í baráttunni gegn hryðjuverkum. Að
sögn lögreglunnar voru þetta lang-
fjölmennustu útifundir í sögu lands-
ins. Um 2,3 milljónir manna söfn-
uðust saman í miðborg Madrídar og
1,2 milljónir í Barcelona.
ETA neitar aðild að ódæðinu
Aðskilnaðarsamtök Baska, ETA,
neituðu því formlega í gær að þau
hefðu staðið fyrir hryðjuverkunum í
Madríd sem kostuðu að minnsta
kosti 199 manns lífið. Spænsk
stjórnvöld töldu þó enn líklegt að
liðsmenn ETA hefðu verið að verki.
Reynir björgun
Þyrla Landhelgisgæslunnar mun
freista þess í dag að fljúga með 1,8
tonna þunga dráttartaug á milli
Baldvins Þorsteinssonar og norska
dráttarskipsins Normand Mariner
sem kom til landsins í gær. Um tveir
kílómetrar eru á milli skipanna og
þarf þyrlan að fljúga með taugina
afturábak úr norska skipinu í Bald-
vin áður en björgun verður reynd.
Gagnrýnir bankana
Árni Magnússon félagsmálaráð-
herra var gagnrýninn í garð við-
skiptabankanna og stórra versl-
unarfyrirtækja á Iðnþingi í gær og
sagði að umsvif einstakra aðila í at-
vinnulífinu væru að hans mati á
mörkum þess að standast siðferði-
lega mælikvarða.
Óviðunandi afkoma
Afkoma dótturfyrirtækis Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna í
Bandaríkjunum undanfarin ár er
óviðunandi að mati fráfarandi for-
manns stjórnar SH og fram-
kvæmdastjóra félagsins. Gunnlaugi
Sævari Gunnlaugssyni, nýjum for-
manni stjórnar, líst illa á viðræður
um sameiningu við SÍF.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 40
Úr verinu 12 Umræðan 40/41
Viðskipti 14 Kirkjustarf 42/43
Erlent 18/20 Minningar 43/50
Minn staður 22 Skák 55
Höfuðborgin 23 Myndasögur 56
Akureyri 24/25 Bréf 56
Suðurnes 26 Dagbók 58/59
Árborg 27 Staksteinar 58
Landið 28 Íþróttir 60/63
Listir 29/30 Leikhús 64
Daglegt líf 31/33 Fólk 65/69
Ferðalög 34/35 Bíó 66/69
Forystugrein 36 Ljósvakamiðlar 70
Þjónusta 39 Veður 71
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
FERMINGAR
| 2004
SIGURÐUR Einarsson, stjórnar-
formaður KB banka, hefur ákveðið
að flytjast búferlum til Lundúna í
vor, þar sem hann mun beita sér
fyrir útrás bankans í Bretlandi og á
Norðurlöndunum. Sigurður segir að
helstu sóknarfærin fyrir bankann
liggi á erlendri grundu. Hann til-
kynnti starfsfólki KB banka þessar
breytingar í gærkvöld.
Sigurður segir í samtali við
Morgunblaðið að hann hafi velt
þessu fyrir sér í nokkurn tíma. „Ég
er búinn að vera miklu meira er-
lendis en nokkurn tíma hérna
heima undanfarin 2–3 ár. Það var
útfrá skipulagningu miklu auðveld-
ara fyrir mig að vera þar en hér.
Við erum með mjög öfluga stjórn-
endur hér heima sem sjá að megn-
inu til um starfsemina hér. Vöxt-
urinn er annars staðar og það þarf
að sinna því,“ segir
Sigurður, sem segir að
undanfarin tvö ár hafi
hann verið um 200
vinnudaga á ári er-
lendis.
Helmingur tekna
kemur að utan
Sigurður segir að
sóknarfæri bankans
liggi einkum á hinum
Norðurlöndunum og í
Bretlandi. Í dag starf-
rækir bankinn alls tíu
útibú erlendis í átta
löndum. „Við erum að
sækja fram á því sem
má kalla heildsölubankasviði, sem
er þrí- eða jafnvel fjórþætt; á sviði
eignastýringar, fyrirtækjaráðgjafar,
almennrar bankastarfsemi og þá
fyrst og fremst í formi
fjárfestinga og út-
lána,“ segir hann.
Í bréfi sem Sigurður
sendi starfsfólki bank-
ans til að skýra þessa
ákvörðun sína segir
hann að meginhlut-
verk hans í daglegum
störfum fyrir bankann
sé þróunarvinnan er-
lendis og að í dag komi
meira en helmingur
tekna KB banka frá
starfsemi utan land-
steinanna. „Á næstu
misserum og árum má
gera ráð fyrir því að
sérstök áhersla verði lögð á útrás í
Bretlandi og á Norðurlöndum, sem
bankinn skilgreinir sem núverandi
heimamarkað sinn. Til þess að geta
sinnt áframhaldandi sókn bankans
á þessum stöðum hef ég tekið
ákvörðun um að flytjast búferlum
til London í vor. Með búsetu þar
get ég dregið verulega úr ferðalög-
um og nýtt tímann betur fyrir
bankann um leið og aukinn tími
gefst til samvista með fjölskyld-
unni,“ segir í bréfinu.
Aðspurður hvort ferðalög til Ís-
lands muni ekki koma í staðinn,
segir Sigurður að hann geri ráð fyr-
ir að starfa ákveðna daga í mánuði
hér á landi og því muni hann fylgj-
ast vel með því sem er að gerast
hér á landi einnig. „Við ætlum okk-
ur jafnframt að standa vörð um
sterka stöðu okkur sem stærsti
bankinn á Íslandi og mun ég taka
þátt í þeim þætti rekstrarins með
óbreyttum hætti,“ segir Sigurður
jafnframt í bréfinu.
Sigurður Einarsson, stjórnarformaður KB banka, flyst búferlum til Lundúna
Mun beita sér fyrir útrás
bankans á erlendri grund
Sigurður Einarsson
FLAGGAÐ var í hálfa stöng við
opinberar byggingar í gær vegna
sprengjutilræðanna hörmulegu í
Madríd í fyrradag. Þá ákvað for-
seti Íslands, Ólafur Ragnar Gríms-
son, að aflýsa hinni árlegu veislu
sem halda átti á Bessastöðum í
gærkvöldi til heiðurs ríkisstjórn,
erlendum sendiherrum á Íslandi
og æðstu embættismönnum ís-
lenska ríkisins.
Hjá utanríkisráðuneytinu feng-
ust þær upplýsingar í gær að Sig-
ríður Snævarr, sendiherra Íslands
á Spáni með aðsetur í Frakklandi,
hefði farið til Madrídar í gær til að
leita upplýsinga og vera Íslend-
ingum innan handar. Kornelíus
Sigmundsson, skrifstofustjóri í ut-
anríkisráðuneytinu, segir að vel
hafi verið fylgst með málinu frá
upphafi, þ.m.t. listum yfir hina
látnu en þar er ekkert íslenskt
nafn að finna eða á listum yfir
slasaða. Kornelíus bendir hins veg-
ar á að ekki sé búið að nafngreina
alla slasaða og að ráðuneytið sé
því við öllu búið.
Vitað er um tólf Íslendinga sem
fasta búsetu hafa í Madríd. Þar við
bætist hins vegar fólk sem þarna
er til skemmri tíma, au pair-
stúlkur, fræðimenn og námsmenn.
Er erfitt að áætla hversu marga er
þar um að ræða en þó eru það án
efa nokkrir tugir Íslendinga.
Geta ritað nafn í minningabók
Biskup Íslands, Karl Sig-
urbjörnsson, hefur sent prestum í
landinu hvatningu til að biðja fyrir
þeim sem líða vegna hryðjuverk-
anna í Madríd.
Íslendingum gefst kostur á því á
mánudag að rita nafn sitt í minn-
ingarbók um fórnarlömb árásanna
og verður minningarbókin á skrif-
stofu ræðismanns Spánar, Þor-
geirs Baldurssonar, hjá prent-
smiðjunni Odda, Höfðabakka 3–7.
Morgunblaðið/Sverrir
Flaggað í hálfa stöng
Ríkisstjórnin ákvað að flaggað yrði í hálfa stöng við opinberar byggingar í
gær í ljósi hörmunganna sem hryðjuverkin í Madríd hafa valdið.
TOGARANN Ingimund SH-332
tók niðri á grynningum í mynni
Grundarfjarðar á sjöunda tím-
anum í gær, en losnaði af sjálfs-
dáðum rúmri klukkustund síðar
og hélt för sinni áfram. Ekki
kom leki að skipinu og engin
hætta talin á ferðum, að sögn
Ásgeirs Inga Jónssonar, skip-
stjóra á Ingimundi. Fjórir voru
um borð þegar óhappið varð.
Ingimundur, sem er 458
brúttótonna ísfisktogari, er
gerður út frá Grundarfirði, en
búið er að selja hann og var ver-
ið að sigla honum í slipp í
Njarðvík þegar óhappið varð, að
sögn Runólfs Guðmundssonar,
eins af eigendum Guðmundar
Runólfssonar hf, sem gerir skip-
ið út. Skipið tók niðri á grynn-
ingum í mynni Grundarfjarðar,
svokölluðum Vesturboða við
Melrakkaey, um 5 sjómílur frá
höfninni, að sögn björgunar-
sveitarmanna frá Björgunar-
sveitinni Klakki.
Mikill viðbúnaður var á
Grundarfirði, og voru allar
björgunarsveitir á norðanverðu
Snæfellsnesi kallaðar út. Þegar í
ljós kom að ekki var hætta á
ferðum voru aðrar sveitir en
Klakkur frá Grundarfirði aftur-
kallaðar.
Siglt áfram
til Njarðvíkur
Þegar Ingimundur losnaði af
grynningunum og ljóst var að
ekki hafði komið leki að skipinu
var því siglt áfram til Njarðvík-
ur þar sem meta á skemmdir á
því frekar. Togarinn Hringur
SH 535 sem er í eigu Guðmund-
ar Runólfssonar og farið hafði
áleiðis til veiða skömmu áður
sneri við er kall kom frá Ingi-
mundi um að hann væri strand-
aður. Helgi SH 135 sem einnig
er í eigu Guðmundar Runólfs-
sonar hf var í höfn í Grund-
arfirði og hélt hann þegar á
strandstað.
Þegar hann kom þangað hafði
Ingimundur losnað af sjálfsdáð-
um og að sögn Arnars Krist-
jánssonar, skipstjóra á Helga,
var ákveðið að Ingimundur
héldi áfram för sinni suður þar
sem enginn leki reyndist hafa
komið að skipinu. Arnar sagði
Hring myndi fylgja honum suð-
ur fyrir Snæfellsnes.
Strandaði í mynni
Grundarfjarðar