Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 65
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARS 2004 65
Vinsælasta sýning leikársins kveður í apríl.
Við þökkum kærlega fyrir frábærar móttökur
ALLRA, ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR:
Mið. 24. mars kl. 19.00 laus sæti
Sun. 28. mars kl. 15.00 Akureyri Uppselt
Sun. 28. mars kl. 19.00 Akureyri aukasýning
Fim. 8. apríl kl. 15.00 Skírdagur
Lau. 17. apríl kl. 14.00
Lau. 24. apríl kl. 14.00
Sun. 25. apríl kl. 18.00 LOKASÝNING
4. sýning sun. 14. mars kl. 19 - UPPSELT • 5. sýning fös. 19. mars kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
6. sýning sun. 21. mars kl. 19 - ÖRFÁ SÆTI LAUS • 7. sýning fös. 26. mars kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
ATH. Aðeins fáar sýningar
Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýning hefst
Brúðkaup Fígarós
eftir Mozart
Miðasalan er opin kl. 14-18 alla daga nema sunnudaga og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga.
ÓPERUVINIR - munið afsláttinn!
Figaro og Susanna á tónleikum í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit
miðvikudagskvöldið 17. mars kl. 20.30
Hulda Björk Garðarsdóttir, Ólafur Kjartan Sigurðarson og Kurt Kopecky flytja atriði úr Brúðkaupi Fígarós og
atriði úr óperum og söngleikjum eftir Gershwin-bræður. Forsala aðgöngumiða í Pennanum-Bókvali á Akureyri
og við innganginn í Laugarborg. Einnig er tekið á móti pöntunum í síma 511 4200 í Íslensku óperunni.
HARMONIKUBALL
Fjörið verður í Ásgarði, Glæsibæ við
Álfheima, í kvöld frá kl. 22:00.
Fjölbreytt dansmúsik. Aðgangseyrir kr. 1.200.
Harmonikufélag Reykjavíkur
LEIKLISTARLÍFIÐ í framhalds-
skólum landsins er með miklum
blóma þessa dagana og fjöldinn allur
af spennandi sýningum í boði, bæði
leikrit og söngleikir. Morgunblaðið
tók púlsinn á leikstjórum og leik-
urum í sýningum fjögurra framhalds-
skóla sem frumsýndar voru á síðustu
dögum.
Súkkulaðitöffarar og sólbrúnar
ljóskur eru í sviðsljósinu í söng-
leiknum Hey þú sem Fjölbrautaskóli
Suðurlands frumsýndi í gær en verk-
ið er byggt á tónlist sunnlensku
hljómsveitarinnar Skítamórals. „Við
ákváðum að gera eitthvað frumlegt
og erum að gera grín að ímynd okkar
Selfyssinga. Fólk sér fyrir sér ljósa-
bekkjabrúna súkkulaðigæja á sport-
bílum og þannig eru flestar persón-
urnar í sýningunni,“ segir Margrét
Guðrúnardóttir en hún leikur Báru
Bessadóttur í sýningunni, sólbrúna
ljósku.
Söngleikurinn gerist í söngva-
keppninni „Hey þú“ og fáum við að
fylgjast með keppendum baksviðs
þar sem ýmislegt gerist. Strákarnir í
Skítamóral hafa hjálpað krökkunum
mikið að sögn Maríu. „Þeir hafa til
dæmis lánað okkur búninga og
reynst okkur mjög vel á ýmsan hátt.“
– Á þessi súkkulaðigæjaímynd,
sem Selfoss hefur, sér einhverja stoð
í raunveruleikanum?
„Kannski átti það við 97–98 þegar
Skítamórall voru sem frægastir en
þeir komu náttúrlega frá Selfossi, jú,
þá held ég að hafi verið mikið um
svona töffara hérna. En í dag er þetta
ekkert öðruvísi hér en annars stað-
ar,“ segir Margrét og hlær.
Þetta er stærsta og dýrasta upp-
setning sem nemendafélag skólans
hefur lagt í til þessa að sögn Mar-
grétar en alls koma um 60 manns að
sýningunni þar af 40 leikarar. Felix
Bergsson samdi verkið en leikstjóri
er María Reyndal. Margrét segir að
hópurinn sé þéttur og æfingar hafi
gengið vel. „Reyndar er allt á haus
hjá okkur núna, svona rétt fyrir
frumsýningu, en þetta verður mjög
gaman. Við erum líka með svo frá-
bæran leikstjóra.“
Glæstir tímar
Næstan ber að nefna Kvennaskól-
ann en nemendur frumsýndu verkið
Glæstir tímar í Loftkastalanum 10.
mars. Verkið er eftir Berg Þór Ing-
ólfsson sem einnig er leikstjóri en
það er byggt á spænsku kvikmynd-
inni Belle Epoque eftir Fernando
Trueba. Segir þar af Friðriki, ungum
Reykvíkingi, sem hefur verið hand-
tekinn fyrir að sletta málningu á ráð-
herra í mótmælaskyni. Hann flýr upp
í sveitir landsins og lendir þar á
heimili Magnúsar nokkurs sem á
fjórar gullfallegar systur.
„Þetta er æðisleg saga, falleg og
skemmtileg, og mér hefur alltaf þótt
hún henta vel sem leikrit. Hún er líka
mannmörg og aðalhlutverkin
skiptast á milli nokkurra leikara,“
segir Bergur og bætir við að Belle
Epoque sé ein af hans uppáhalds-
myndum. Hann segir vinnuna með
krökkunum hafa gengið mjög vel en
undirbúningur fyrir sýninguna hófst í
haust. „Ég er auðvitað með mjög
hæfileikaríka krakka, þetta hefur
gengið mjög ljúflega og einkennst af
þeirri léttu stemningu sem er í verk-
inu. Vonandi kemur sá léttleiki fram í
sýningunni.
Fyrir áhorfendur er sýningin von-
andi æfing í að njóta lífsins og láta
sér þykja vænt um hvert annað því
þrátt fyrir allt þá lifum við glæsta
tíma,“ segir Bergur.
Vilja fræga kærasta
Hörundsárir og hefnigjarnir fyrr-
verandi kærastar eru aðalpersón-
urnar í leikritinu Ýkt kominn yfir þig
sem Borgarholtsskóli sýnir núna en
líklega verður síðasta sýningin í dag,
laugardag.
Verkið er eftir ungan Breta, Mark
Ravenhill, en leikstjóri er Guðný
María Jónsdóttir. Segir þar af fjórum
14 ára stelpum sem ákveða allar að
hætta með kærustunum sínum til að
reyna að krækja sér í fræga kærasta.
Sýningin hefur gengið vel og að-
sókn verið góð, að sögn Eyþórs Inga-
sonar, formanns leikfélagsins Agons
og leikara í sýningunni. „Leikstjórinn
og við í leikhópnum völdum leikritið í
sameiningu en það er mjög skemmti-
legt og lýsir vel daglegu lífi ung-
linga.“
Hann segir að vinnan við sýn-
inguna sé búin að vera rosalega
skemmtileg og bætir við að hann geti
vel hugsað sér að halda áfram í leik-
listinni og verða jafnvel leikari.
Bannað að sjá myndina
Herranótt, leikfélag Mennta-
skólans í Reykjavík, frumsýndi leik-
ritið Lodd í Tjarnarbíói í gær og
verður það sýnt þar næstu tvær vik-
urnar. Verkið er byggt á kvikmynd-
inni The Imposters eftir Stanley
Tucci og fjallar um tvo atvinnulausa
leikara sem verða fyrir því óláni að
móðga heimsfræga leikkonu sem sig-
ar á þá lögreglunni. „Við ræddum
heillengi hvaða leikrit við ættum að
taka en duttum loks niður á þessa
skemmtilegu hugmynd þar sem við
sáum möguleika á hraðri og skond-
inni sýningu,“ segir Agnar Jón Eg-
ilsson leikstjóri.
Hann bendir á að leikritið sé þó
mjög ólíkt myndinni, hún hafi ein-
ungis verið notuð sem grunnur. „Við
bjuggum til leikstíl út frá spunavinnu
og breyttum söguþræðinum mikið.
Reyndar hafa ekkert margir krakk-
anna séð myndina því ég bannaði
þeim það.“ Hann segir æfingar hafa
gengið vonum framar. „Krakkarnir
eru mjög hæfileikaríkir og mikil orka
í þeim.“
Sólbrúnir
súkkulaðigæjar
frá Selfossi
Ljósmynd/Kristín Arna Sigurðard.
Selfyssingar gera grín að ímynd sinni í söng-
leiknum frumsamda, Hey þú.
Morgunblaðið/Eggert
Leikritið Lodd er verkefni Herranætur í MR í ár og er sýnt í Tjarnarbíói.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Suðrænn léttleiki ræður ríkjum í Glæstum tímum sem Fúría, leikfélag Kvennó, setur upp í Loftkastalanum.
Morgunblaðið/Eggert
Kærusturnar metnaðargjörnu vilja bara fræga kærasta í
leikriti Borgó sem heitir Ýkt kominn yfir þig.
bryndis@mbl.is
Fjölmargir framhaldsskólar setja upp leiksýningar um þessar mundir