Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 32
DAGLEGT LÍF
32 LAUGARDAGUR 13. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Kringlan 8-12, sími 568 6211 - Skóhöllin, Firði, sími 555 4420
Glerártorgi, Akureyri, sími 461 3322
2.990
St. 22-34
Hvítir
Blikkljós
3.990
St. 40-46
Svartir og hvítir
2.990
St. 22-34
Gráir
Blikkljós
4.990
St. 36-41
Rauðir og hvítir
3.990
St. 24-35
Bleikir/Bláir
4.990
St. 36-41
Hvítir með neon bleiku
Hvítir með neon grænu
3.990
St. 22-26
Bláir/Bleikir
3.990
St. 28-35
Bláir
SKÓR FYRIR ALLA
STÓRKOSTLEGT ÚRVAL
Þ
að sem er sérstakt við
þessa aðferð er að gert
er að silungnum og hann
beinhreinsaður í gegn-
um bakið, en ekki í gegn-
um kviðinn eins og algengast er. Svo
er þetta líka bara svo góður réttur að
þeir matargestir sem hafa fengið að
smakka silunginn hjá mér hafa yf-
irleitt endað á því að drekka soðið úr
álpokunum. Það er svo gott,“ segir
Einar D.G. Gunnlaugsson, tækni-
teiknari á Verkfræðistofu Guð-
mundar & Kristjáns hf.
Einar segist vera mikill matar- og
vínpælari enda segir hann að sér líði
hvergi betur en með svuntu við mat-
arstúss heima í eldhúsi og ekki spilli
það stemningunni að gutlast með
gott rauðvín í glasi sér til halds og
trausts. „Ég hef mjög gaman af því
að bjóða góðum gestum í mat enda
hefur matur og vín verið mikið
áhugamál hjá mér í gegnum tíðina.
Verkaskiptingin í eldhúsinu er
gjarnan þannig að ég sé um forrétti
og aðalrétti en eiginkonan Þóra Sig-
urðardóttir um sósur og eftirrétti.
Ég geri ekkert upp á milli fisk- og
kjötrétta. Það er alltaf jafn-
skemmtilegt að spila af fingrum
fram og þarf ég ekkert endilega að
styðjast við uppskriftir í matargerð-
inni.“
Fiskur á mann
Silungsuppskriftin, sem hér birt-
ist, varð til í huga Einars og spratt
upp við veiðar á kuðungableikju úr
Þingvallavatni. „Ég er nefnilega líka
með dálitla veiðidellu. Ég hef látið
laxveiðarnar alveg vera, en er svolít-
ið að stunda silungsveiði í næsta ná-
grenni höfuðborgarinnar. Það er
mjög skemmtilegt áhugamál. Hug-
mynd Einars að uppskriftinni vakn-
aði við veiðar á kuðungableikju úr
Þingvallavatni en hægt er að nota
hvaða smásilung sem er, hálft til eitt
pund á mann.“
Þegar Einar fregnaði af alþjóð-
legri uppskriftasamkeppni, árið
1998, kynnti hann sér málið og ákvað
að senda silungsuppskriftina sína inn
til þátttöku. „Færeyski mat-
reiðslumeistarinn Birgir Ennis, sem
verið hefur gestakokkur á Fjöru-
kránni, var einn af umboðsmönnum
keppninnar og auglýsti hann á
heimasíðunni sinni eftir spennandi
uppskriftum í keppnina. Þegar úrslit
voru gerð kunn, kom í ljós að Einar
hafði sigrað í sínum
flokki og þar með var
kuðungableikjan komin
á stall.“
Í kjölfar keppninnar
var hafist handa við að
búa til matreiðslubók
með verðlauna-
uppskriftunum á fjór-
um tungumálum,
þýsku, ensku, dönsku
og færeysku. Ennþá
hefur bókin þó ekki
litið dagsins ljós þar
sem erlenda útgáfu-
fyrirtækið, sem að
útgáfunni hugðist
standa, varð gjald-
þrota, eftir því sem
best er vitað.
Vínklúbbur í
vinnunni
Vínklúbbur með um
tuttugu félagsmönnum hefur verið
starfandi á vinnustað Einars,
VGK-verkfræðistofunni, frá árinu
1999. „Einn samstarfsmaður okkar,
Teitur Gunnarsson efnafræðingur,
er mikill víngúrú og heldur bæði
merka fyrirlestra og vínsmökk-
unarnámskeið fyrir okkur einu sinni
til tvisvar á ári. Svo fáum við okkur
eitthvert gott sparivín í restina til að
hreinsa bragðlaukana.“
Þegar Einar er spurður um uppá-
haldsvínið, þarf hann lítið að hugsa
sig um. „Mitt rauðvín er örugglega
President Selection frá Wolf Bass í
Ástralíu. Það heitir Black Label og
er ekki af ódýrasta tagi enda kostar
MATARKISTAN| Fylltur smásilungur í álumslagi
Kuðunga-
bleikjan vann
til verðlauna
Skreyttur mjöður: Alltaf þegar
Einar býður í þorramat eða síld-
arhlaðborð, frystir hann ákavíti í
ferköntuðum fernum ogskreytir
flöskurnar áður með lifandi blóm-
um, stilkum og greinum og öðru sem
honum finnst ganga hverju sinni.
Einari D.G. Gunnlaugssyni tækniteiknara líður
hvergi betur en með svuntu heima í eldhúsi og
rauðvínsglas í hendi. Hann kynnti Jóhönnu
Ingvarsdóttur skemmtilega silungsuppskrift sem
hann sjálfur bjó til og sendi inn í alþjóðlega
uppskriftasamkeppni. Silungurinn hans Einars
fékk auðvitað fyrstu verðlaun.
Lofar góðu: Dóttursonurinn Alex-
ander Örn Ingason er að verða lið-
tækur í eldhúsinu og fær stundum
að hjálpa afa sínum þegar mikið
liggur við.