Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 31
DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARS 2004 31 ÞETTA var nú frekar óheppilega orðað hjá henni greyinu, sagði mamma, jafnmiður sín og ég og vísaði til orða afgreiðslustúlkunnar um að ég gæti prófað að skoða föt í einni verslun sem seldi fatnað fyrir feitar konur. Já, svaraði ég og saug upp í nefið. Mig langaði að fara að grenja. Það sem eftir var dagsins laumaðist ég til að horfa á nánast allar konur á svæðinu og mæla þær út. Þarna gat ég ekki betur séð en að það væru fullt af konum mun feitari en ég og því fannst mér þetta enn alvarlegri orð frá ungu afgreiðslukonunni. Af þrjóskunni einni saman keypti ég síð- an gallabuxur sem ég reyndar fór ekki í fyrr en mörgum vikum seinna. Ég ákvað líka að fara ekki strax á vigtina aftur, ég yrði bara þunglynd. Reyndar er þunglyndi eftir barns- burð mjög algengt hjá konum. Mamma varð t.d. alltaf þunglynd eftir sínar þrjár barneignir og það erf- iðasta fyrir hana var að á þeim tíma var engin umræða um fæðing- arþunglyndi og hún skildi því ekkert í því hvers vegna henni leið svona illa. Hún hefur sagt mér að oft hafi hún farið að grenja út af engu og til að gera þetta allt saman verra, skildi pabbi náttúrulega ekki upp né niður í neinu. Sem betur fer er þetta breytt í dag og umræðan orðin opin. Í fyrstu skoðuninni þinni á heilsugæslunni var mér t.d. sagt að þegar ég kæmi með þig í 9 vikna skoðunina yrði ég látin taka próf sem ætti að meta andlega líðan mína. Mér fannst þetta ofboðs- lega sniðugt og sagði öllum vinkonum mínum frá þessu. Reyndar hlakkaði ég til að taka þetta próf, allt svona lagað er einmitt eitthvað sem ég hef áhuga á og finnst spennandi.  DAGBÓK MÓÐUR Próf sem metur andlega líðan Meira á mánudag. MILLJÓNIR Ítala hefja morguninn á því að skella í sig einum bolla af espressó-kaffi, hvort sem er heima eða á kaffihúsi á leið til vinnu. En á undanförnum árum hefur kaffið fengið á sig slæmt orð. Dr. Chiara Trombetti, næringarfræðingur í Bergamo á Norður- Ítalíu, er þó á öðru máli og segir best að gleyma þessum hryllingssögum af kaffi. Mark Duff hjá BBC í Mílanó hefur eftir henni á vef BBC að vísindaleg rök séu fyrir því að njóta espressó- bollans á morgnana og hafa ekki áhyggjur af áhrifum hans á heilsuna. Hún segir að kaffi sé gott fyrir okkur og því sterkara því betra. Ítalskt espressó-kaffi er því mun betra en þunnt kaffi eða skyndikaffi. Þrátt fyrir að dr. Trombetti finnist kaffi vont segir hún margvíslegar vísindalegar sannanir fyrir þessu. Í kaffi er tannín og andoxunarefni, sem eru góð fyrir hjarta og æðar, segir hún, og kaffi getur læknað höfuðverk, er gott fyrir lifrina og getur komið í veg fyrir skorpulifur og gall- steina. Þá segir hún koffínið geta minnkað líkur á asmaköstum og bætt blóðrás til hjartans. Kaffi er samt ekki fyrir alla. Of mikil kaffi- drykkja getur aukið taugaveiklun, valdið of hröð- um hjartslætti og handskjálfta. Óléttum konum, hjartasjúklingum og fólki með magasár er ráð- lagt að forðast kaffi. Og dr. Trambetti segir að enginn ætti að drekka meira en þrjá til fjóra bolla af kaffi á dag. Samt heldur hún því galvösk fram að mjólkurkaffi væri góð byrjun á löngum degi syfjaðra ítalskra skólabarna, næstu kynslóð kaffi- unnenda. En ætli mörgum foreldrum hrylli ekki við þeirri tilhugsun?  HEILSA Espressó- kaffi hollt í hóflegu magni Nýlega var greint frá því á vefmiðliThe Guardian, að kona nokkur,Myrna Blyth, fyrrum ritstjóri kvennatímarits, hafi gefið út bókina „Spin Sisters“, þar sem hún lætur fyrrum starfssystur sínar fá það óþvegið. Hún ásakar ritstýrur glans-kventímarita sem og sjónvarpskonur í fremstu víglínu um að- eyðileggja líf milljóna kvenna með stöðugum áróðri um að þær eigi að vera mjög grannar, fagrar og sækjast eftir frama um leið og þær eigi að sinna fjöl- skyldu. Hún segir þessa mafíu glamúrkvenna gefa fyrirmæli í gegnum tímarit og sjónvarp, um það hvernig konur skuli klæðast, hvað þær láti ofan í sig og hvernig þær eigi að hegða sér í svefnherberginu. Þannig sé alið á ótta og óör- yggi kvenkyns lesenda og áhorfenda. „Ég skrifaði þessa bók til að segja konum sannleik- ann um þann heim sem ég þekki vel af eigin raun. Um vald fjölmiðla, áhrif og blekkingu. Ég tók sjálf þátt í þessu.“ Ein ástæða þess að bók- in hefur vakið hörð við- brögð er sú staðreynd að Blyth sviptir hulunni af öllum þeim brögðum sem beitt er í tímaritum og sjónvarpi. „Nánast hver einasta mynd sem birtist af konu í glans-kventíma- ritum hefur til dæmis verið „löguð“. Fyrirsæturnar eru gerðar grennri og hærri með því að ýta á takka í tölvu og sama má segja um húð þeirra eða hvað sem þurfa þykir, svo þær líti út fyrir að vera full- komnar.“ Systur hennar í bransanum hafa að sjálfsögðu brugðist ókvæða við bókinni en aðrir telja Blyth hafa nokk- uð til síns máls. Einn þeirra er stjórn- andi fjölmiðlarannsókna í Rutg- ers-háskólanum. Hann segist dást að henni fyr- ir að „koma út úr skápnum“ og opinbera þessa hluti. Hann segir augljóst að þessi tíma- rit ali á rang- hugmyndum kvenna um hvernig hið full- komna heilbrigði, útlit og lífstíll eigi að vera, því það sé einmitt gert á þann hátt að skað- legt geti talist. „Þarna birtist þrá- hyggja um að bæta sjálfan sig endalaust. Það sem ég sé þegar ég fletti Vogue er svo sannarlega auglýsing og upphafning á lyst- arstoli.“  TÍSKA Mafía glamúrkvenna: Fyr- irmæli eru gefin í tímaritum og sjónvarpi, um hvernig konur skuli klæðast, hvað þær láti ofan í sig og hvernig þær eigi að hegða sér í svefnherberginu. Lystarstoli haldið við af konum í fjölmiðlum khk@mbl.is Kringlunni, sími 588 1680. iðunn tískuverslun Ný sending af vorvörum Plantaforce er notað í súpur, sósur, pottrétti og fleira. Plantaforce er upplagt til notkunar í stað súputeninga og annars krafts í súpur og sósur. Það er einfalt að laga ljúffengt jurtaseyði með því að hella heitu vatni í bolla með 1/2 tsk af Plantaforce. Plantaforce kryddjurtateningar koma í þremur bragðtegundum, basil-timían, steinselja og herbes provence. Plantaforce l í f r æ n n j u r t a k r a f t u r fiessar vörur eru a› sjálfsög›u lausar vi› MSG eins og allar vörur sem fást í Heilsuhúsinu. Plantaforce eru úr vottaðri lífrænni ræktun og merktar með þýska BIO gæðastimplinum því til staðfestingar. K R A F T A V E R K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.