Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 58
DAGBÓK 58 LAUGARDAGUR 13. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Ice Louise fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Florinda kemur í dag. Mannamót Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraun- seli, Flatahrauni 3. Fé- lagsheimilið Hraunsel er opnið alla virka daga frá kl. 9–17. Gönguklúbbur Hana- nú. Morgunganga kl. 10 laugardagsmorgna frá Gjábakka. Krummakaffi kl. 9. Breiðfirðingafélagið. Félagsvist í Breiðfirð- ingabúð, Faxafeni 14 á morgun, sunnudag, kl. 14. Kaffiveitingar. Fjórði dagur í fjögurra daga keppni. Gigtarfélagið. Leik- fimi alla daga vik- unnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. GA-Samtök spilafíkla, Fundarskrá: Þriðjud.: Kl.18.15, Sel- tjarnarneskirkja, Sel- tjarnarnes. Miðvikud.: Kl. 18, Digranesvegur 12, Kópavogur og Eg- ilsstaðakirkja, Egils- stöðum. Fimmtud.: Kl. 20.30, Síðumúla 3–5, Reykjavík. Föstud.: Kl. 20, Víðistaðakirkja, Hafnarfjörður. Laug- ard: Kl.10.30, Kirkja Óháða safnaðarins, Reykjavík og Glerár- kirkja, Akureyri. Kl. 19.15 Seljavegur 2, Reykjavík. Neyðar- sími: 698 3888 Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir mánudaga kl. 20 að Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. Oa samtökin. Átrösk- un / Matarfíkn / Ofát. Fundir alla daga. Upp- lýsingar á www.oa.is og síma 878 1178. Ásatrúarfélagið, Grandagarði 8. Opið hús alla laugardaga frá kl. 14. Kattholt. Flóamark- aður í Kattholti, Stangarhyl 2, er opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14–17. Leið 10 og 110 ganga að Katt- holti. Fífan Dalsmára 5 í Kópavogi, tartan- brautir eru opnar al- mennu göngufólki og gönguhópum frá kl.10– 11.30 alla virka daga. Blóðbankabílinn. Ferðir blóðbankabíls- ins: sjá www.blod- bankinn.is. Dýrfirðingafélagið í Reykjavík heldur sinn árlega kaffidag á morgun, sunnudaginn 14. mars, í Bústaða- kirkju og hefst með guðsþjónustu kl. 14, prestur er sr. Pálmi Matthíasson. Að lok- inni messu hefst kaffi- sala í safnaðarheim- ilinu. Allir velunnarar félagsins og Dýra- fjarðar eru velkomnir og er félagsmönnum 75 ára og eldri sérstaklega boðið. Stjórn og kaffinefnd félagsins vonast til að sjá sem flesta á kaffi- deginum. Minningarkort Minningarkort Minn- ingarsjóðs hjónanna Sigríðar Jakobsdóttur og Jóns Jónssonar á Giljum í Mýrdal við Byggðasafnið í Skóg- um fást á eftirtöldum stöðum: Í Byggðasafn- inu hjá Þórði Tómas- syni, s. 487 8842, í Mýrdal hjá Eyþóri Ólafssyni, Skeiðflöt, s. 487 1299, í Reykjavík hjá Frímerkjahúsinu, Laufásvegi 2, s. 551 1814 og hjá Jóni Aðalsteini Jónssyni, Geitastekk 9, s. 557 4977. Minningarkort, Fé- lags eldri borgara Sel- fossi eru afgreidd á skrifstofunni Grænu- mörk 5 fimmtudaga kl. 13–15, sími 482 4477. Einnig hjá Guðmundi Geir í Grænumörk 5, s. 482 1134, og verslunni Írisi í Kjarnanaum, Austurvegi 3–5. Minningarkort Slysa- varnafélagsins Lands- bjargar fást á skrif- stofu félagsins í Skógarhlíð 14, Reykja- vík. Hægt er að hringja og panta minngarkort í s. 570 5900 á milli kl. 9 og 17 á virka daga eða á heimasíðu félagsins www.landsbjorg.is. Allur ágóði af sölu minningarkorta renn- ur til styrktar björg- unar- og slysavarna- starfi félagsins. Minningarkort Rauða kross Íslands eru seld í sölubúðum kvenna- deildar RRKÍ á sjúkrahúsum og á skrifstofu Reykjavík- urdeildar, Fákafeni 11, s. 568 8188. Minningarkort Vina- félags Sjúkrahúss Reykjavíkur eru af- greidd í s. 525 1000 gegn heimsendingu gíróseðils. Minningarkort Kven- félagsins Hringsins í Hafnarfirði. Minning- arsjóður í vörslu kven- félagsins Hringsins í Hafnarfirði. Minningarkortin fást nú í Lyfjum og heilsu, verslunarmiðstöðinni Firði í Hafnarfirði. Kortið kostar 500 kr. Í dag er laugardagur 13. mars, 73. dagur ársins 2004. Orð dags- ins: Því að ekki gaf Guð oss anda hugleysis, heldur anda máttar og kærleiks og stillingar. (2. Tím. 1, 7.)     Borgar Þór Einarssonsegir í grein á vef- ritinu Deiglunni að ný- legir kjarasamningar á almennum vinnumark- aði gefi ástæðu til bjart- sýni í efnahagsmálum hér á landi og að óhætt sé að segja að enn á ný hafi aðilar vinnumark- aðarins sýnt bæði ábyrgð og skynsemi við gerð samninga.     Það er því ljóst aðsamningurinn mun færa bæði þann ávinn- ing sem felst í hreinum launahækkunum sem og þann mikla ávinning – hinn raunverulega kaupmátt – sem gott og stöðugt efnahagsástand hefur í för með sér,“ segir Borgar Þór. „Gríðarleg kaupmátt- araukning launafólks á síðustu árum hefur stað- fest kosti þess að hafa kjarasamninga á skyn- samlegum nótum, þann- ig að þeir ógni ekki stöðugleika efnahags- lífsins.     Í vefriti fjármálaráðu-neytisins í dag kemur fram að óvíða er afkoma hins opinbera betri en hér á landi þegar skoð- aðar eru tölur frá OECD-ríkjunum og allt stefnir í að afkoma rík- issjóðs batni enn á allra næstu árum. Það eru því allar forsendur fyrir hendi, nú þegar kjara- samningar liggja fyrir, að hefjast handa við að lækka skatta á almenn- ing. Vissulega væri hægt að nota góða af- komu ríkissjóðs til að halda áfram að greiða niður skuldir og til ým- issa verka sem menn kunna að telja brýn. En fyrir liggur pólitísk ákvörðun um að láta skattgreiðendur njóta þess að nú árar vel.     Bæði fjármálaráð-herra og forsætis- ráðherra hafa lýst því yfir að skattalækkanir myndu verða lögfestar þegar kjarasamningar lægju fyrir og þeir væru innan skynsamlegra marka. Hins vegar kvað við nýjan tón hjá utan- ríkisráðherra, formanni Framsóknarflokksins, í kvöldfréttum Sjónvarps- ins nú í vikunni þar sem hann sagði að svo gæti farið að lögfesting skattalækkana yrði látin bíða til hausts. Ef marka má þessa yfirlýsingu verðandi for- sætisráðherra og for- manns Framsóknar- flokksins er ljóst að flokkurinn er að verða dragbítur á flest þau mál sem til framfara horfa í stjórnarsam- starfinu. Það getur ekki verið geðslegt fyrir sjálfstæðismenn til þess að hugsa, að þjóna sem burðarvirki í ríkisstjórn undir forsæti Framsóknarflokksins við slíkar kring- umstæður,“ segir Borg- ar Þór á Deiglunni. STAKSTEINAR Skattalækkanir strax Víkverji skrifar... Víkverji er gruflari, honum þykirgaman að grufla í öllu sem hann kemst í, hvort sem það er tónlist, bækur, tölvur eða garðyrkja. Hon- um mislíkar dálítið þegar blaðamenn þýða orðið „hacker“ sem tölvuþrjót, því „hacker“ er ósköp einfaldlega gruflari, grúskari eins og Víkverji, sem hefur gaman að því að fikta í tækjum og tólum. Tölvuþrjótar, þótt þeir séu oftast nokkurs konar grúsk- arar nota hæfileika sína til ills, til að valda öðrum skaða eða til að ræna aðra lifibrauði sínu. Í þessu samhengi vaknaði Vík- verji nýlega upp við vondan draum. Eru þá ekki allir sem deila tónlist á netinu tölvuþrjótar? Besti vinur Vík- verja hefur án efa gerst sekur um slíka hegðun, þrátt fyrir að vera al- mennt dagfarsprúður og góður drengur. Þó telur Víkverji sök vin- arins ekki eins mikla og sök verstu slúbbertanna, enda notar hann slík- an hugbúnað aðallega til að finna tónlist sem vekur áhuga hans og kaupir venjulega geisladiska lista- mannanna í kjölfarið, nema þeir séu þeim mun torfundnari. Þar höfum við það... Víkverji er búinn að réttlæta misgjörðir vinar- ins og getur nú haldið áfram að grúska og grufla og vinurinn að nappa stöku tónlist af Netinu. Þá er bara að fá sér öflugri tengingu ... Sem vinurinn og gerði. Hann trítlaði niður í netþjónustufyrirtækið sitt, sem er af smærri kantinum, þar sem hann er nú svo mikill smákapítalisti og smáborgari, og pantaði sér svo- nefnt ADSL samband. Fékk drengurinn umsvifa- og möglulaust í hendur kassa með svo- nefndum beini og ýmsu snúrufarg- ani. Hljóp hann glaður heim á leið og tengdi. Jújú, netið virkaði fínt, en hvað er þetta? Músíkstuldarforritið er með leiðindi. Vinurinn hringir í Víkverja, sem hringir umsvifalaust í netþjón- ustufyrirtækið smáa og biður um hjálp. Hann vill grufla sig inn í bein- inn og stilla hann svo vinurinn geti auðveldar ruplað tónlistinni. „Humm, humm“ heyr- ist í símtólinu. Ekki er tæknimaðurinn hrifinn. Hann ráðfærir sig við annan tæknimann og Víkverji heyrir setn- inguna: „DC plús plús? Heyrðu, hann á ekkert með að vera að nota svoleiðis hugbúnað, það er ólöglegt að deila mússík á inter- netinu.“ Fýkur þá í Víkverja. „Hans lögbrot eru hans einkamál,“ segir hann. „Þið eigið að tryggja honum fyrsta flokks netaðgang og ekkert múður!“ Víkverji sver að hann roðn- aði við þessa furðulegu röksemd. Aldrei hefði hann trúað slíkri firru upp á sig. En tæknimaðurinn tók þetta í mál og gaf Víkverja lykilorðið að beininum, þó með þeirri viðvörun að nú sigldu þeir vinirnir hjálpar- laust og allar breytingar væru á þeirra ábyrgð. Nema hvað? Enda elskar Víkverji grúskið sitt. Morgunblaðið/Árni Sæberg Gruflarar grúska og grufla, rétt eins og Víkverji. Bankar bjóða og bjóða, en hver fær hvað? SAMKVÆMT auglýsing- um sem bankar setja í blöð og tímarit, senda heim og fleira, bjóða þeir alls kyns þjónustu. Til dæmis lag- færingar á fjárhagnum, veðlán á eignum og fleira þess háttar, en það er nú ekki allt sem sýnist. Ég fór í KB banka og Íslands- banka um daginn og var að sækja um lagfæringu á mínum fjárhag með veð- lánum og fleira þess háttar og sótti um heildarviðskipti við þessa banka þar sem ég er með fyrirtæki og vinn einnig sem sjómaður. Ég byrjaði í KB banka. Þar sótti ég um allan þennan pakka. Ég tek það fram að fjárhagurinn hefur farið hallandi undanfarið en ekki svo að honum megi ekki bjarga með lántöku og fleiru þar sem ég hef nú verið í skilum með allt mitt. Eftir að hafa útskýrt mína hagi og hvernig fasteigna- lán ég þurfi, kemur upp úr krafsinu að þeim finnst lán- ið sem þeir bjóða til of langs tíma og að þær tvær fasteignir sem ég hef laust veð í nægi ekki til. Ég fór þá í Íslandsbanka með sama dæmið og þurfti að punga út 29.880 kr. til að láta tvo fasteignasala meta eignirnar og ekki nóg með það, því það stóð í báðum bönkunum að eignirnar væru ekki á höfuðborgar- svæðinu, heldur er önnur í Grindavík og hin á Akur- eyri. Þannig að veðsetning- arhlutfallið lækkaði, en í auglýsingum Íslandsbanka stendur hvar sem þú ert og ég geri ráð fyrir því að KB banki sé ekkert að nefna neitt annað. Mér finnst þetta heldur gróflega farið með fólk, þar sem auglýs- ingarnar eru bara lygi og maður þarf að kosta stórfé til að sækja um viðskipti til þeirra. Óskar Jakob Þórisson. Dýrahald Mysa er týnd HÚN Mysa litla fór að heiman 28. febr. sl. og hefur ekki sést síðan þrátt fyrir mikla leit í Hlíðahverfinu. Mysa er lítil, loðin og ljúf, svolítill kjáni, og mjög sárt saknað! Hún var með merkispjald sem gæti hafa dottið af henni. Þeir sem hafa séð Mysu, vinsaml. hafið samb. við Pálínu s: 867-2491 eða Svavar s: 864-2276. Gott væri ef þeir sem eiga bíl- skúra og geymslur gætu litið þar inn til að athuga hvort hún hafi lokast þar inni í vonda veðrinu. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 kvenvargur, 4 við- ureignar, 7 bál, 8 vitlaus, 9 meinsemi, 11 fram- kvæmt, 13 trylltar, 14 árnar, 15 sorg, 17 duft, 20 lemja, 21 að baki, 23 mjó málmstöng, 24 dreng, 25 fargar. LÓÐRÉTT 1 karlfugl, 2 sálir, 3 meiða, 4 fíffæri, 5 reiðar, 6 afkomendur, 10 stór, 12 frístund, 13 heiður, 15 farmur, 16 skrifar, 18 verk, 19 korns, 20 slöngu, 21 ávíta. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 kjánaskap, 8 eitur, 9 kyssa, 10 auk, 11 aumar, 13 innan, 15 snarl, 18 sakir, 21 ána, 22 gnauð, 23 kinda, 24 klæðnaður. Lóðrétt: 2 játum, 3 nárar, 4 sekki, 5 ausan, 6 nema, 7 fann, 12 aur, 14 nóa, 15 saga, 16 aðall, 17 láðið, 18 sakka, 19 kunnu, 20 róar. Krossgáta   Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.