Morgunblaðið - 14.03.2004, Blaðsíða 47
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. MARS 2004 47
útskýrt er mjög skilmerkilega á
heimasíðu LSR (www.lsr.is) og m.a.
Kennarasamband Íslands gerði að
sérstakri frétt á sinni heimasíðu
(www.ki.is). Þetta þýðir, að skuld-
bindingar sjóðsins eru beint tengdar
þeim launahækkunum sem verða hjá
starfsmönnum ríkis og sveitarfélaga.
Þessi tenging hefur samkvæmt upp-
lýsingum úr ársreikningi LRS og
LH, sem Haukur áritar sem fram-
kvæmdastjóri, aukið skuldbindingar
þessara tveggja sjóða um 139,6 millj-
arða króna frá árslokum 1997 til árs-
loka 2002.
Matið í samræmi við lagaskyldu
Það er erfitt að skilja ástæðu þess að
sett sé út á að þetta sé sett í sam-
hengi við heildarlaunaútgjöld ríkis og
sveitarfélaga. Markmiðið með því að
láta tryggingarstærðfræðinga meta
breytingar á áföllnum skuldbind-
ingum í lok hvers árs er einmitt að
geta fært aukninguna til gjalda í
rekstrarreikningi og skuldfæra hana
á efnahagsreikningi. Trygging-
arstærðfræðingar og endurskoð-
endur kalla þetta þá fjárhæð sem fyr-
irtækið eða samfélagið þarf að leggja
til hliðar til að mæta þeim fyr-
irheitum sem gefin voru á viðkom-
andi ári. Um þetta gilda einfaldlega
lög um ársreikninga fyrirtækja og
sveitarfélaga, auk þess sem lög um
ríkisreikning kveða á um þessa
skyldu. Því er fullkomlega eðlilegt og
nauðsynlegt að setja breytinguna
einnig í samhengi við heildar-
launaútgjöld viðkomandi aðila. Miðað
við stöðuna í árslok 2002 jafngildir
þetta því, að ef laun hækka um 1%,
aukast áfallnar skuldbindingar um
jafngildi 5% af heildarlauna-
greiðslum ríkissjóðs. 1% kostar því
6%. Það má líka skoða þetta með öðr-
um hætti, eins og gert er í töflu 1. Þar
gefur að líta heildarlaunagreiðslur til
þeirra starfsmanna ríkis og sveitar-
félaga, sem eiga réttindi í þessum
sjóðum. Þær voru ríflega 33 millj-
arðar króna árið 1997 og hafa vaxið í
81,3 milljarða króna árið 2002. Skuld-
bindingar LSR og LH hafa aukist
um 27,9 milljarða króna að meðaltali
á ári samkvæmt ársreikningum þess-
ara sjóða fyrir árin 1997–2002. Með-
allaunaútgjöld ríkis og sveitarfélaga
á þessu tímabili voru 63,3 milljarðar
króna. Hækkun áfallinnar lífeyr-
isskuldbindingar sem hlutfall af bein-
um launum var því 44,1% að með-
altali á ári, samanborið við 9,9%
meðalhækkun launa samkvæmt
launavísitölu Hagstofu Íslands fyrir
opinbera markaðinn. Athyglisvert er
að sjá, að aðlögunarsamningarnir
sem gerðir voru árið 1998 kostuðu
ríki og sveitarfélög 108% af heild-
arlaunum þeirra starfsmanna sem
samningarnir náðu til. Þetta jafn-
gildir að 1% hafi dregið með sér
nærri 4% vegna hækkunar á áfölln-
um skuldbindingum, þ.e. að 1% hafi
kostað 5% og hefur þessi kostnaður
augljóslega farið vaxandi á tíma-
bilinu.
Svona væri hægt að halda áfram
og rekja málið ítarlega, en rúmið
leyfir það því miður ekki. Kjarninn er
hins vegar þessi: Hvernig ætlar sam-
félagið að mæta þessum gríðarlegu
skuldbindingum? Haukur dregur
fram tvær leiðir – að greiða þetta eft-
ir því sem það fellur til eða hefja nú
þegar greiðslur til sjóðanna umfram
lögbundin iðgjöld – og fagnar að
stjórnvöld hafi valið seinni leiðina.
Eftir að búið er að ráðstafa öllum af-
rakstri einkavæðingar sl. 5 ára inn til
LSR og LH, samtals meira en 60
milljörðum króna, hefur skuldbind-
ing ríkisins aukist um 92 milljarða
króna umfram það. Þrátt fyrir að
fjármálaráðherrann státi sig af því að
hafa hafið þetta niðurgreiðsluferli,
aukast skuldbindingarnar mun hrað-
ar en hann hefur haft fjármuni til að
greiða niður. Ljóst er að ríki og sveit-
arfélög geta ekki haldið áfram að
selja allt steini léttara til að mæta
þessum skuldbindingum og því blasir
við að reikningurinn verður sendur
áfram til landsmanna í formi skatta-
breytinga eða niðurskurðar á út-
gjöldum.
Lokaorð
Að lokum þetta. Það hefur ekki farið
framhjá mér að forsvarsmenn lífeyr-
issjóða opinberra starfsmanna hafa
brugðist illa við þessari úttekt og um-
fjöllun um vanda þessara sjóða. Því
hefur jafnvel verið haldið fram að
þetta komi okkur ekkert við. Við því
er hins vegar aðeins eitt svar. Þjóðin
öll er í ábyrgð fyrir þessum skuld-
bindingum en aðeins 20% þeirra sem
eru á vinnumarkaði njóta þessara
réttinda. Þau eru í ofanálag langtum
betri en þau réttindi sem hin 80%
vinnumarkaðarins njóta. Því getur
það ekki komið neinum á óvart, að
þeir sem eiga að borga þessar skuld-
bindingar hljóta að hafa eitthvað um
málið að segja!
Höfundur er framkvæmdastjóri ASÍ.
Tafla 1. Heildarlaun og hækkun lífeyrisskuldbindinga
sjóðsfélaga opinberu lífeyrissjóðanna 1997-2002
Hækkun líf.skuldbind.
Bein laun Í mia.kr. % af beinum Launa-
í mia.kr. launum hækkun
1997 33,3
1998 44,5 36,0 108,2% 13,0%
1999 56,8 20,3 45,5% 8,8%
2000 61,1 35,2 62,0% 8,1%
2001 72,9 24,8 40,6% 9,6%
2002 81,3 23,3 32,0% 9,9%
Meðaltal 63,3 27,9 44,1% 9,9%
Heimild: Ársreikningar LSR og LH, Fjármálaeftirlitið og Hagstofa Íslands
Byggingarlóð, 3.171 fermetrar, staðsett á glæsi-
legri einkalóð í skógi vaxinni hlíð með útsýni út
á Miðjarðarhafið og stórkostlegt útsýni yfir
Cannes flóa, Lerins og Esterel eyjur. 10 mínútna
gangur frá La Napoule, 20 mínútur frá Cannes.
Sími 0044 1202 891 063.
Engin umboðsskrifstofa eða samstarfsaðilar.
Eignarlóð
Opið hús - Fálkahöfði 4 - 270 Mos.
Birkir Örn Kárason - símar 520 9302
og 659 2002
Netfang: birkir@remax.is
Fasteignasala: RE/MAX Suðurlandsbraut
Rúmgóð, snyrtileg og falleg 3ja herbergja
íbúð á besta stað í Mosfellsbæ. Stór
stofa og borðstofa, eldhús með eikarinn-
réttingu, rúmgóð herb. með góðum
skápum, þvottahús innan íbúðar,
baðherb. með sturtu og baðkari. Eikarp-
arket á allri íbúðinni. Bílskúr.
Góðar svalir - glæsilegt útsýni!
Birkir Örn, fasteignamiðlari RE/MAX,
tekur á móti gestum milli kl. 14 og 16
Heimilisfang: Fálkahöfði
Stærð eignar: 91 fm
Bílskúr: 27,6 fm
Byggingarár: 1997
Brunabótamat: 13,9 millj.
Áhvílandi: 8,1 millj.
Verð: 15,5 millj.
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Uppl. veitir Magnús Gunnarsson, s. 588 4477 eða 822 8242.
Öll eignin við Álftamýri 1-3 er til sölu/leigu, samtals ca 1.600 fm.
706 fm á tveimur hæðum, innréttað sem aðgerða- og læknastofur.
264 fm á annarri hæð, innréttað fyrir sjúkraþjálfun og skrifstofur.
602 fm verslun og lager innréttað sem apótek.
Eignin er í eigu Landafls
Mögulegt að kaupa eða leigja í smærri einingum
ÁLFTAMÝRI/TIL LEIGU/SÖLU
Mjög góð staðsetning. Mjög góð aðkoma.
Næg bílastæði. Hagstæð leiga.
www.hofdi.is
Runólfur Gunnlaugsson, viðskiptafræðingur, löggiltur fasteigna- og skipasali.
Suðurlandsbraut 20
Sími 533 6050
Bæjarhrauni 22
Sími 565 8000
Blikaás 15 - Hafnarfirði
Opið hús í dag milli kl. 14 og 17
Smáralind - 1. hæð
Opið 14-17 lau. og sun.
Sími 565 8000
Í dag býðst þér að skoða þessa glæsilegu 4ra-5 herb. íbúð með sér-
inngangi í litlu 2ja hæða fjölbýli í Áslandi í Hafnarfirði. Parket og flísar á
öllum gólfum. Þvottaherb. í íbúð. Rúmgóð herbergi og glæsilegar inn-
réttingar. Suðursvalir með útsýni til suðurs og austurs. Komdu og
skoðaðu þessa fallegu íbúð í dag. Verð 18,6 millj.
Stefán og Halldóra taka vel á móti þér.
Netfang: kjoreign@kjoreign.is
Heimasíða: www.kjoreign.is
Sími 533 4040 • Fax 533 4041
Opið í dag frá kl. 12.00-14.00
TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA
Ármúla 21 • Reykjavík
jöreign ehf
Dan V.S. Wiium hdl.,
lögg. fasteignasali
Erlendur Davíðsson,
lögg. fasteignasali
Hákon R. Jónsson,
sölumaður
Ólafur Guðmundsson
sölustjóri,
ELDRI BORGARAR
HÆÐARGARÐUR - „PENTHOUSE“ Falleg og björt 2ja herb. emda íbúð
á 5. hæð efstu í lyftuhúsi. Glæsilegt útsýni. Suðursvalir. Húsvörður. Mikil og góð sam-
eign. Þjónustumiðstöð. Ath.: Laus strax. Verð 15,0 millj. nr. 3860
3JA HERB.
VESTURBÆR - HJARÐARHAGI Falleg og björt 3ja herb. íbúð, um 82,0 fm,
á efstu hæð. Glæsilegt útsýni. Stórar suðursvalir. Parket á gólfi. Hús og sameign í mjög
góðu ástandi. Nýlegt gler. LAUS FLJÓTLEGA. Verð 12,9 millj.
4RA HERB.
LEIFSGATA Góð íbúð á efrI hæð í fjórbýlishúsi. Björt og vel skipulögð íbúð. Hús ný-
lega viðgert að utan. Parket og dúkar á gólfum. Nýleg rafmagnstafla. Stærð um 93 fm.
Verð 14,0 millj. nr. 3861
SELJAHVERFI Rúmgóð íbúð á efstu hæð. Laus strax. Ekkert áhvílandi. Fallegt út-
sýni. Íbúðin er í góðu ástandi. Húsið gott. Góð staðsetning. Flísalagt bað. Parket. Góðir
skápar. Verð 13,4 millj.
EINBÝLI
ÁSBÚÐ - GARÐABÆ Fallegt og vel
staðsett einnar hæðar einbýlishús, um 196,0
fm, með innbygðum tvöföldum 52 fm bílskúr.
Flísar og parket á gólfum. Falleg gróin lóð.
Laust fljótlega. nr 4076
SUMARBÚSTAÐIR
NORÐURNES Glæsilegur bústaður í Kjós. Timburhús, byggt 1982 á steyptum
grunni. Hann er um 40 fm að stærð, panelklæddur og parket á gólfum. Heitur pottur.
Húsið er álklætt og áttkanntað að lögun. Sérstakt hús á fallegum stað. Verð 6,9 millj. nr.
3837
Viggó Jörgensson, lögg. fasteignasali
S í › u m ú l i 8
S : 525 8800
Jón Víkingur
Hálfdánarson
GSM 892 1316
jonvikingur
@framtidin.is
Skipti eingöngu á stærri eign, á svæ›i 105 e›a 107.
Fjölskyldan, hjón me› tvö börn, vill áfram búa á +essu svæ›i og leitar
+ví eftir skiptum á stærri og d‡rari eign, ver›hugmynd 25 - 35 milljónir.
Fullum trúna›i heiti›.
Í bo›i er mjög gó› 111 fm. 3ja. herb.
efri sérhæ› á Ægisí›u. Mikil lofthæ›,
stórt eldhús og stofa, me› frábæru
úts‡ni út á Gróttu.
Vinsamlegast hafið samband.