Morgunblaðið - 14.03.2004, Blaðsíða 61
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. MARS 2004 61
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Ólafur Snorri Ottósson 435 0098 694 7372
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Björn Svanur Þórisson 452 4019/864 4820/662 0984
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík María Jane Duff 475 6662
Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 662 1373
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 846 8123
Grenivík Hörður Hermannsson 463 3222
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 895 0222
Hellissandur/Rif Aron Jóhannes Leví Kristjáns. 436 6925
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478
Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 894 5591
Hveragerði Erna Þórðardóttir 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416
Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 821 3475
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 820 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8378 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Jakop Antonsson 486 8983
Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173
Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2347 866 7958
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574
Reykholt Bisk. Oddur Bjarni Bjarnason 486 8900
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð v/Mýv. Margrét Hróarsdóttir 464 4464
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 862 2888
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Hanna Lísa Vilhelmsdóttir 472 1102 690 2415
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815
Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 456 4936
Tálknafjörður Rakel Guðbjörnsdóttir 456 2595 696 2663
Varmahlíð Ragnar Helgason 453 8134 867 9649
Vestmannaeyjar Sigurgeir Jónasson 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 698 7521
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 848 6475
Þingeyri Arnþór Ingi Hlynsson 456 8285
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
Í MARSMÁNUÐI senda Sjóvá-
Almennar leikskólum landsins
endurskinsvesti að gjöf. Vestin eru
ætluð börnunum sem fara reglu-
lega gangandi í stuttar sem langar
vettvangsferðir þar sem nauðsyn-
legt getur verið að fara yfir
umferðargötur.
Gjöfin er liður í forvarnarstarfi
Sjóvár-Almennra og með henni vill
félagið leggja sitt af mörkum til að
bæta öryggi barna í umferðinni.
Einar Guðmundsson, forvarnarfulltrúi Sjóvár-Almennra afhenti endurskinsvesti á leikskólanum Sólbakka.
Gefa endurskinsvesti á leikskóla
Landvernd heldur málstofu á
morgun, mánudaginn 15. mars, kl.
16.30–18 í Norræna húsinu. Á mál-
stofunni munu þau Siv Friðleifs-
dóttir umhverfisráðherra, Ari Teits-
son, fyrrverandi formaður Bænda-
samtakanna, og Sigurður Óli
Kolbeinsson, sviðsstjóri á lögfræði-
sviði Sambands íslenskra sveitarfé-
laga, fjalla um tillögu að náttúru-
verndaráætlun og með hvaða hætti
áætlunin snertir hagsmuni landeig-
enda og sveitarfélaga.
Fundarstjóri verður Ólöf Guðný
Valdimarsdóttir, formaður Land-
verndar. Ólöf mun einnig greina frá
viðhorfum stjórnar Landverndar til
málsins.
Á MORGUN
Námsstefna um karlaheilsu
Miðvikudaginn 17. mars stendur
Lionshreyfingin á Íslandi fyrir
námsstefnu um karlaheilsu í Nor-
ræna húsinu kl. 16.30. Þetta er í
þriðja skiptið sem slík námsstefna
er haldin í Reykjavík og verður
sem fyrr aðeins ætluð karl-
mönnum og er konum meinaður
aðgangur.
Fjórir læknar munu flytja erindi á
námsstefnunni, en þeir eru Guðjón
Haraldsson, sem fjallar um karla-
heilsu og breytingaskeið karla,
Bjarni Jónasson, sem fjallar um
lækningahúmor og veltir upp
spurningunni – hefur húmor
heilsubætandi áhrif á karla?, Eng-
ilbert Sigurðsson, sem fjallar um
viðkvæmt málefni – þunglyndi
karla og Aðalsteinn Guðmundsson,
sem fjallar um karlabrot. Er eitt-
hvað bogið við það?
Námskeið um áfallastreitu og
áfallaröskun Fimmtudaginn 18.
mars verður námskeiðið Áfalla-
streita – Áfallaröskun „Post
Traumatic Stress Disorder“ haldið
hjá Endurmenntun Háskóla Ís-
lands. Námskeiðið er einkum ætl-
að fólki sem vinnur við félags– eða
heilbrigðismál, lögfræðingum, lög-
reglu og dómurum. Á námskeiðinu
verður fjallað um einkenni áfalla-
streitu og hvaða skilyrði þarf til að
uppfylla greininguna áfallastreitu?
Leitast er við að miðla upplýs-
ingum um áfallastreitu; hvernig
hægt er að meta ástandið og
hvaða meðferð stendur til boða og
fleira.
Námskeiðinu er ætlað að gefa fólki
sem í störfum sínum getur þurft
að þekkja einkenni áfallastreitu
færi á því að öðlast meiri vissu og
þekkingu um áfallastreitu. Umsjón
með námskeiðinu hafa Ragna
Björg Guðbrandsdóttir, félags-
ráðgjafi í Barnahúsi, og Margrét
Arnljótsdóttir, sjálfstætt starfandi
sálfræðingur, en þar eru báðar í
áfallateymi Rauða krossins sem er
sérstaklega ætlað börnum.
Námskeið um Störf stjórnar-
manna lífeyrissjóða verður hald-
ið dagana 19. og 26. mars kl. 10–
16, í húsnæði Endurmenntunar,
Dunhaga 7. Umsjón með nám-
skeiðinu hefur Tryggvi Þór Her-
bertsson, forstöðumaður Hag-
fræðistofnunar Háskóla Íslands.
Fjallað verður um hæfisskilyrði
stjórnarmanna og hlutverk árs-
funda í starfsemi lífeyrissjóða.
Farið verður yfir skyldur sem
lagðar eru á stjórnir lífeyrissjóða
s.s. eftirlitshlutverk, mótun fjár-
festingarstefnu o.fl.
Fyrirlesarar ásamt Tryggva eru
Hafliði Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri sölu- og markaðs-
sviðs KB banka, Andri V. Sigurðs-
son héraðsdómslögmaður, Marinó
Örn Tryggvason eignastýring fag-
fjárfesta – sjóðsstjóri KB banka,
Birgir Örn Arnarson, forstöðu-
maður rannsóknar- og þróunar-
deildar hjá Áhættustýringu og út-
lánaeftirliti KB banka, Sóley
Björg Sigurðardóttir, deildarstjóri
reksturs lífeyrissjóða KB banka,
Knútur Þórhallsson, endurskoð-
andi hjá Deloitte & Touche, og
Bjarni Guðmundsson trygginga-
stærðfræðingur.
Nánari upplýsingar er að fá hjá
Endurmenntun.
Á NÆSTUNNI
ORATOR, félag laganema við Há-
skóla Íslands, og Lex ehf. lög-
mannsstofa gerðu nýlega með sér
samstarfssamning þess efnis að
Lex verður aðalstyrktaraðili fræða-
starfs Orators næstu tvö ár. Í
samningunum felst m.a. að aðilar
leitist við að hafa samstarf um
fræðastarf í gegnum málfundi,
fræðileg greinaskrif í Úlfljóti, tíma-
riti laganema, og annað tengt starf-
semi Orators og Lex.
Lögmenn hjá Lex hafa verið með
fræðilegar umfjallanir í Úlfljóti og
eiga sinn þátt í því ásamt Orator að
efla umræðu í þjóðfélaginu um lög-
fræðileg álitamál. LEX hefur frá
upphafi boðið laganemum tíma-
bundin störf hjá fyrirtækinu, og eru
nú allt árið um kring að jafnaði 1–2
laganemar að störfum hjá LEX.
Frá stofnun Lex ehf. hafa lögmenn
félagsins veitt almenningi, atvinnu-
fyrirtækjum og hinu opinbera lög-
fræðilega ráðgjöf og málflutnings-
aðstoð á hinum ýmsu sviðum lög-
fræðinnar, segir í fréttatilkynn-
ingu.
LEX, lög-
mannsstofa,
styrkir fræða-
starf Orators
NÝLEGA lauk á Hólmavík átta
vikna grunnnámskeiði fyrir sjúkra-
flutningamenn. Námskeiðið hefur
staðið yfir víða um land síðan um
miðjan janúar og var að þessu sinni
kennt gegnum fjarfundabúnað.
Hólmvíkingarnir þrír sem sóttu
námskeiðið hlýddu því á fyrirlestra
með sjúkraflutningamönnum víðs
vegar á landinu. Í prófum og verk-
legum æfingum voru Hólmvíking-
arnir með Hvammstangabúum og
Búðdælingum og fór sá hluti fram
til skiptis á þessum þremur stöðum.
Þeir sem þreyttu verklegt og bók-
legt lokapróf á Hólmavík voru alls
tíu; þrír frá Hólmavík, fjórir frá
Búðardal og þrír frá Hvamms-
tanga. Námskeiðið er fyrsti hlutinn
af því námi sem boðið er upp á hjá
Sjúkraflutningaskóla Íslands. Að
sögn kennaranna gafst þetta fyrir-
komulag námsins vel og gerði
mörgum kleift að stunda námið sem
ekki hefðu átt kost á því að fara að
heiman í þrjár vikur.
Á myndinni eru Jóhann Lárus
Gunnarsson Hólmavík (efst til
vinstri), Þorbjörn Jóelsson Búð-
ardal, Viðar Jóelsson Búðardal, Al-
freð Gestur Símonarson Hólmavík,
Ragnheiður Guðbrandsdóttir
Hólmavík. Neðri röð frá vinstri:
Karl Ingi Karlsson Búðardal, Unn-
steinn Árnason Búðardal, Ragnar
Stefánsson Hvammstanga, Kristján
Sigfússon kennari, Gísli Már Arnar-
son Hvammstanga, Þorsteinn
Ólafsson Hvammstanga, Guð-
mundur Guðjónsson kennari.
Morgunblaðið/Kristín Sigurrós
Luku grunnnámskeiði
Hólmavík. Morgunblaðið.
Listasafn Íslands
Sýningunum Löng og margþætt
saga – Flúxus frá Þýskalandi
1962–1994 og Flúxustengsl lýkur á
sunnudag. Sýningin varpar ljósi á
upphaf Flúxushreyfingarinnar og
þróun hennar fram til 1994.
Listasafnið verður lokað frá 15.
mars til 27. mars vegna sýninga-
skipta. Sýningin Íslensk myndlist
1900–1930 verður opnuð 27. mars.
Nýlistasafnið
Sýningu Daníels Þorkels Magn-
ússonar, Haraldar Jónssonar og
Hrafnkels Sigurðssonar lýkur á
sunnudag.
Opið miðvikudaga til sunnudaga
frá kl. 14–18.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg
Sýningum Kjartans Guðjóns-
sonar Í baksalnum og Bjarkar
Bjarkadóttur í Rauðu stofu lýkur á
sunnudag.
Fold er opið daglega kl. 10–18,
laugardaga kl. 11–17 og sunnu-
daga kl. 14–17.
Listasafn ASÍ, Freyjugötu 41
Sýningunni Gjöf Ragnars í
Smára lýkur á sunnudag. Sýnd eru
verk úr listaverkagjöf Ragnars
Jónssonar sem jafnframt var
stofngjöf Listasafns ASÍ. Ragnar
oft kenndur við Smára hefði orðið
100 ára hinn 7. febrúar 2004 og er
sýningin haldin til að minnast
þessara tímamóta.
Opið alla daga, nema mánudaga,
frá kl. 13–17. Aðgangur er ókeypis.
Listasafn Reykjavíkur –
Kjarvalsstaðir
Myndlistar- og ljóðasýningunni
Þögnin lýkur á sunnudag. Sýning-
in er í tengslum við barselónska
menningarhelgi sem var hér í febr-
úar. Verkin eru eftir Antonio Her-
vás Amuezca. Hann er meðal
kunnustu spænskra myndlistar-
manna seinni hluta 20. aldar.
Ókeypis aðgangur.
Sýningum lýkur