Morgunblaðið - 14.03.2004, Blaðsíða 56
56 SUNNUDAGUR 14. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Beini
RANNSÓKNIR Á TUNGUMÁLUM OG
SIÐUM DÝRA LEYFA OKKUR SEM
“GÁFAÐRI” ERU AÐ GAGNRÝNA
BETUR OKKAR EIGIN HEGÐUN
© LE LOMBARD
SEM SAGT, ÉG ER
FARINN ÚT!
VANDAMÁLIÐ MEÐ BEINA ER ÞAÐ
AÐ HANN ER ALLT OF
HEIMSPEKILEGUR ÞEGAR
HANN MÆTTI VERA HEIMILISLEGUR
MMMUUUUUU!! VOFF
VOFF!
KVAK
KVAK
KIRP!
MJÁ
BÍ BÍ
BÍ
BÍ BÍ
RRIBBID!
KVABB!
KRR!
BZZ MJÁ
GAGGALAGÚÚ!!
JÆJA, HVERNIG VAR
GÖNGUFERÐIN?
ÖÖ...
VOFF!
SKO!
EINMITT ÞAÐ
SEM ÉG ÓSKAÐI!
BESTI
HUNDUR Í
HEIMI!
KVAK
Risaeðlugrín
© DARGAUD
DÍNÓ! EKKI FARA ÞANGAÐ ... ÞAÐ ER ELD-
FJALL AÐ FARA AÐ GJÓSA ...
ERTU VISS?
JÁ, JÁ ... ÞAÐ FER
ÖRUGGLEGA AÐ GJÓSA Á
HVERRI STUNDU VARAÐU
ÞIG ...
ÉG ÆTLA AÐ KÍKJA
NEI, EKKI
GERA ÞAÐ!
ERTU
BRJÁLAÐUR?
KOMDU!!
ÓÓÓÓ! ... ER ÞETTA ELDFJALLIÐ ÞITT? ÞAÐ ER
KÓLNAÐ FYRIR AÐ MINNSTA KOSTI MÖRGUM
MILJÓNUM ÁRA BJÁNINN ÞINN!!
HVAÐ!
SJÁÐU, ÞETTA ER
STEINGERÐUR REYKUR!
KANNSKI EKKI
VITLAUS EN
EKKI SÉRLEGA
EFTIRTEKTAR-
SAMUR
ÞAÐ GETUR EKKI VERIÐ ÉG SÁ REYK UPP ÚR
ÞVÍ, ÉG ER EKKI SVO VITLAUS ...
Í SKJÓL!
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÞAÐ hefur margsinnis verið undir-
strikað í ræðu og riti hérlendis, að
mannslíf sé óbætanlegt. Þegar
rjúpnaskytta týnist uppi á fjöllum,
bruna rauðklæddar björgunarsveitir
af stað og menn leita hundruðum
saman á stóru svæði í vonskuveðrum
uns viðkomandi finnst. Ef hann
reynist heill á húfi er fögnuður
landsmanna falslaus og einlægur.
Minna er talað um kostnað því
mannslíf er óbætanlegt.
Já, við þekkjum þessar björgunar-
sveitir og starf þeirra til lands og
sjávar og gleðjumst innilega yfir
dugnaði þeirra þegar þeim tekst að
bjarga mönnum úr lífsháska, stund-
um við nánast vonlausar aðstæður.
Þyrlulið Landhelgisgæslunnar hefur
líka unnið mörg björgunarafrekin og
allt er þetta mikils virði og þakkar-
vert. En þegar stjórnmálamenn og
lýðforingjar þessa lands, forustu-
menn framkvæmdavaldsins og með-
limir löggjafarsamkundunnar, tala
um hvað mannslífið sé dýrmætt og
óbætanlegt, ættu þeir að líta sér nær
og skoða hvort þeir séu sjálfum sér
samkvæmir í orðum og verkum.
Heilbrigðiskerfi landsmanna er
nefnilega í hættu vegna skamm-
sýnna sjónarmiða ráðamanna og þar
er niðurskurðarhnífnum sveiflað í sí-
fellu – og yfir hverju? Yfir starfi
lækna og sérfræðinga, hjúkrunar-
fólks, sjúkraliða og almenns starfs-
fólks, yfir starfi þess ágæta fólks
sem myndar þær björgunarsveitir
þjóðarinnar sem bjarga árlega flest-
um mannslífum í þessu landi!
Hver einasti sjúklingur sem snýr
til lífsins aftur og gengur út af
sjúkrahúsi heill heilsu, byrjar að
skila sínu framlagi til þjóðfélagsins á
ný. Þar er skilað til lífs og starfa
óbætanlegum mannlegum verðmæt-
um. Þau verðmæti hafa verið end-
urheimt í gegnum álagsmikið starf
þess fólks sem vinnur í heilbrigðis-
kerfinu, í hvítklæddu björgunar-
sveitunum, sem eiga svo sannarlega
líka rétt á því að verða metnar að
verðleikum.
Af hverju er aldrei talað um öll
þau mannslíf sem heilbrigðiskerfið
bjargar frá dauða, þegar rekstrar-
kostnaður kerfisins er ræddur ? Því
ef mannslíf er óbætanlegt, ef ráða-
menn meina það sem þeir segja í
þeim efnum í ræðu og riti, er þá ekki
ljóst að þau fjölmörgu mannslíf sem
hvítu björgunarsveitirnar bjarga frá
dauða, eru fullkomin réttlæting þess
kostnaðar sem fylgir kerfinu? Er
mönnum ekki ljóst að íslenska heil-
brigðiskerfið er ein styrkasta stoðin
fyrir grundvöll góðs mannlífs í land-
inu okkar?
Það þarf að ríkja sátt um það kerfi
og þá heilbrigðu líknarhugsjón sem
þar verður að fá að ráða ferð. Þá
hugsjón má aldrei leiða á klafa efna-
legrar mismununar eins og þekkist
víða erlendis.
Ég hvet fólk til þess að virða og
meta áfram alla þá sem vinna fórn-
fúst starf í þágu alþjóðar við björg-
unarstörf, þar á meðal rauðklæddu
björgunarsveitirnar okkar. En
gleymum því ekki, að við eigum líka
hvítklæddar björgunarsveitir, björg-
unarsveitir sem skila til lífsins í land-
inu stærra framlagi á hverju ári en
nokkur annar. Það er kannski ekki
gert í kastljósi fjölmiðlanna, en er
engu að síður frábær vitnisburður
um fórnfýsi, hæfni, hugsjón og virð-
ingu fyrir lífinu. Mannslíf er óbæt-
anlegt og látum því ekki skammsýn
stjórnvöld komast upp með það að
vinna óbætanlegan skaða á heil-
brigðiskerfinu okkar.
RÚNAR KRISTJÁNSSON,
Bogabraut 21,
545 Skagaströnd.
Hvítklæddu björg-
unarsveitirnar
Frá Rúnari Kristjánssyni:
ALDEILIS undarlegar umræður
hafa farið fram á hinu háa alþingi Ís-
lendinga um breytingar á starfsum-
hverfi sérsveitar lögreglunnar og
væntanlega fjölgun sérsveitarmanna
á næstu árum. Eftir því sem ég best
veit er langstærsti hópur starfandi
lögreglumanna og -kvenna mjög
ánægður með þessa ákvörðun hv.
dómsmálaráðherra. Ekki síst vegna
þess að við þessa breytingu, sem
löngu er tímabær, fjölgar einnig í
lögregluliði Reykjavíkur, svo sem
fram hefur komið. Það liggur í hlut-
arins eðli, að verkefni sérsveitarinn-
ar geta ekki verið staðbundin. Henn-
ar getur því miður verið þörf hvar
sem er á landinu og því er auðvitað
eðlilegt að hún heyri undir embætti
ríkislögreglustjóra.
Ósköp þykir mér dapurt, sem
borgara þessa lands og lögreglu-
manni, að heyra þjóðkjörna alþing-
ismenn hafa í flimtingum öryggismál
þjóðarinnar og gera grín að lögreglu
og öðrum borgurum landsins í ræðu-
stóli alþingis. Ég hélt satt að segja að
þar sæti fólk með ábyrgð og því bæri
að koma fram sem slíkt. Mér finnst
að alþingismenn(konur) ættu á láta
öðrum grínurum landsins eftir að
fíflast með störf og öryggismál lög-
reglunnar.
Að lokum, til að fyrirbyggja hugs-
anlegan misskilning, skal þess getið
að ég er framsóknarmaður og þekki
ekki, því miður, hv. dómsmálaráð-
herra neitt, nema af hans góðu mál-
um, sem hann hefur sinnt lengi og
vel.
GUNNLEIFUR
KJARTANSSON,
fv. sjómaður.
Undarlegar um-
ræður á alþingi
Frá Gunnleifi Kjartanssyni: