Morgunblaðið - 23.03.2004, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.03.2004, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 23. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ LÖGMANNAFÉLAG Íslands braut gegn bannákvæðum samkeppnis- laga um ólögmætt samráð og skal greiða 3,5 milljónir króna í stjórn- valdssekt samkvæmt ákvörðun sam- keppnisráðs í gær. Að mati ráðsins hvatti Lögmannafélagið til hækkun- ar og samræmingar á gjaldskrá lög- manna með því að láta semja kostn- aðargrunn fyrir lögmannsstofur og birta hann. Nefnd Lögmannafélagsins, sem var falið að gera kostnaðargrunn fyrir lögmenn, segir í skýrslu að miðað við gefnar forsendur þurfi tímagjald lögmanna að vera kr. 10.190 að lágmarki (kr. 12.686 með virðisaukaskatti). Algengt tímagjald lögmanna var kr. 7.500 í árslok 2001 en skýrslan kom út í nóvember 2002. Í greinagerð samkeppnisráðs seg- ir að þegar samtök í stöðu Lög- mannafélagsins, sem lögmenn eru skyldugir að vera aðilar að og fer með lögboðið agavald og fram- kvæmd siðareglna, senda fé- lagsmönnum ályktanir um að þeir hafi ekki hækkað verð sitt í sam- ræmi við verðlagsþróun og reikna út hvert verð þurfi að vera að lágmarki sé að mati ráðsins augljóst að slíkar ráðstafanir séu til þess fallnar að hækka verð. Í athugasemdum Lögmanna- félagsins er niðurstöðu Samkeppn- isstofnunar, sem fór með frumrann- sókn málsins, mótmælt sem rangri. Vísað er til markaðsaðstæðna, þeirra upplýsinga sem fólust í um- ræddum grunni og með tilliti til rétt- arreglna um lögmenn hafi félagið alls ekki ákveðið eða hvatt til sam- keppnishindrana. Því er jafnframt haldið fram að Samkeppnisstofnun hafi dregið rangar ályktanir af markmiðum með gerð grunnsins og meintum samkeppnislegum áhrifum hans. Braut samkeppnislög 1997 Á fundi samkeppnisráðs í gær var ákvörðun tekin í þessu máli og með- al annars vísað til krafna um þekk- ingu stjórnenda Lögmannafélagsins á samkeppnislögum og að félagið braut gegn samkeppnislögum árið 1997. Þátt í fundinum tóku Kirstín Þ. Flygenring, Atli Freyr Guð- mundsson, Björg Thorarensen, Kar- itas Pálsdóttir og Valtýr Sigurðsson. Samkeppnisráð sektar LMFÍ um 3,5 milljónir króna Lögmannafélagið braut samkeppnislög VEÐURSTOFA Íslands þarf að draga saman útgjöld um 20–30 milljónir króna á þessu ári. Magnús Jónsson veðurstofustjóri segir að ljóst sé að draga verði saman þjón- ustu stofnunarinnar og meðal ann- ars hefur verið ákveðið að leggja niður mannaða veðurathugunar- stöð á Hveravöllum. Magnús sagði í samtali við Morg- unblaðið að stofnuninni væri ætlað að spara 20–30 milljónir kr. í ár og það yrði ekki gert nema með ein- hverri skerðingu á þjónustu. Ekki væri alveg ákveðið á hvaða sviðum það yrði, en væntanlega myndi það dreifast á nokkur svið stofnunar- innar. Þannig kæmi veðurþjónust- an í Ríkisútvarpinu eitthvað til með að skerðast og ýmis vinna sem unn- in hefði verið á stofnuninni yrði dregin saman, en ekki væri hægt að fara nánar út í það að svo komnu máli. Ekki gerðar athugasemdir Magnús sagði einnig aðspurður að ákveðið hefði verið að leggja nið- ur veðurathugunarstöðina á Hvera- völlum og það myndi væntanlega gerast í lok júlí í sumar þegar ráðn- ingarsamningur starfsmannanna þar rynni út. „Þetta er einfaldlega ein af tillögum okkar sem við lögð- um fyrir okkar ráðuneyti og við það voru ekki gerðar athugasemdir,“ sagði Magnús. Hann sagði að nánast öllum á Veðurstofunni væri eftirsjá að þessari einu hálendisstöð landsins. Hins vegar væri ekki hægt að loka augunum fyrir því að hún kostaði um það bil 10 milljónir kr. á ári í rekstri, en til samanburðar kostaði mönnuð veðurathugunarstöð í byggð sem væri að gera jafnmarg- ar veðurathuganir á sólarhring ekki nema 2–2,5 milljónir kr. á ári og þeir ættu svolítið erfitt með að réttlæta þennan mun. Hann benti jafnframt á að ætl- unin væri að vera áfram með hefð- bundna sjálfvirka veðurathugunar- stöð á Hveravöllum, þ.e.a.s. mæla loftþrýsting, vind, raka og hita, eins og gert hefði verið. Auk þess væri ætlunin að setja þarna upp sjálfvirkan úrkomumæli svo hægt væri að fylgjast með úrkomu líka. Það sem félli hins vegar fyrst og fremst út væri að ekki yrði lengur um neinar skýjaathuganir að ræða og engar veðurathuganir, þ.e.a.s. upplýsingar um hvort það væri snjókoma, skafrenningur eða þoka til dæmis, því það væri mjög erfitt og raunar mjög dýrt að setja upp stöð sem mældi þetta. Síðast en ekki síst væri búið að gera þarna í 39 ár meiri snjódýptarmælingar en annars staðar hefði verið gert. „Auðvitað er eftirsjá að þessu öllu saman, en þarna verður nátt- úrlega bara að vega og meta hvaða hagsmuni við höfum annars vegar af því að reka stöðina áfram gegn því að spara einhverjar 10 milljónir króna annars staðar,“ sagði Magn- ús ennfremur. Veðurstofunni gert að spara 20–30 milljónir kr. í ár Stöðin á Hvera- völlum lögð niður Morgunblaðið/Árni Sæberg Formaður Ferðaklúbbsins 4x4 Mjög slæmt að loka stöðinni „ÞETTA er að sjálfsögðu mjög slæmt fyrir okkur. Þetta snertir marga,“ segir Kjartan Gunnsteinsson, formaður Ferðaklúbbsins 4x4, um væntanlega lokun veðurathugunarstöðvarinnar á Hvera- völlum. „Það er bæði gott að vita af fólki þarna innfrá og svo höfum við keypt eldsneyti af þeim. Vélsleðamenn eru einnig með viðgerð- argám þarna, sem við höfum fengið að fara í og þeir veðurathug- unarmenn sem þarna eru hafa séð um um þennan gám,“ segir hann. Kjartan segist hafa frétt fyrir nokkru að til stæði að leggja veð- urathugunarstöðina niður. Sagði hann að til stæði að ræða við olíu- félag sem er með eldsneytistank á Hveravöllum til að kanna hvort mögulegt er að halda tönkunum áfram á staðnum í einhverri mynd. SÝSLUMENNIRNIR á Hvolsvelli, Selfossi og Vík skrifuðu undir formlegan samstarfssamning í gær sem miðar að því að nýta mannafla og tækjabúnað lögreglunnar betur í umdæmunum. Með samkomulag- inu sem gildir næstu 6 mánuði á að minnka bakvaktir lögreglumanna og stunda sameiginlegt lögreglu- eftirlit umdæmanna. Samstarf af þessu tagi hefur verið fyrir hendi hjá umræddum sýslumönnum en ekki fyrr verið undirritað með formlegum hætti. Að sögn Ólafs Helga Kjartanssonar, sýslumanns á Selfossi, verður unnt að beita lög- reglumönnum milli umdæma eftir þörfum eins og verið hefur, en að ákvarðanataka þar að lútandi verði færð til lögregluvarðstjóra. Sýslumenn á Suðurlandi handsala samkomulag um samstarf sitt. Frá vinstri Sigurður Gunnarsson, Vestur-Skaftafellssýslu, Kjartan Þorkelsson í Rangárvallasýslu og Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður í Árnessýslu. Sýslumenn í samstarfi KARLMAÐUR og kona voru flutt á slysadeild eftir árekstur tveggja bifreiða í Ártúnsbrekku rétt fyrir klukkan sex í gærkvöld. Ökumaður sem keyrði í vesturátt missti stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hann hentist yfir á öfugan veg- arhelming. Engir farþegar voru í bílunum en fólki hlaut talsverða áverka á höndum og fótum og voru lögð inn á Landspítala – háskóla- sjúkrahús. Það er samt ekki í lífs- hættu. Klippa þurfti báða bílana í sund- ur til að ná fólkinu út. Voru sjö lög- reglutæki á vettvangi, tvær tækja- bifreiðar slökkviliðs og tveir sjúkrabílar. Báðir bílarnir voru fjarlægðir með krana. Miklar tafir urðu á umferð af þessum sökum. Morgunblaðið/Júlíus Bíllinn hentist yfir á öfugan vegarhelming HAFSTEINN Eiríksson afgreiðir eldsneyti á Hveravöllum. Hafsteinn og Kristín Björnsdóttir hafa starfað við veðurathugun á Hveravöllum fjögur ár í júlí nk. þegar samningur þeirra við Veðurstofuna rennur út. Þau segj- ast koma til með að sakna Hveravalla. „Okkur líst ekkert of vel á að það eigi að loka þessu. Við vorum búin að hugsa okkur að vera lengur ef það stæði til boða. Að minnsta kosti í eitt ár til viðbótar,“ segir Hafsteinn. Hann segir þau hafa fengið að vita um lokunina um síðustu mánaðamót og hún hafi komið þeim á óvart. Hafsteinn kveðst telja líklegt að í kjölfar lokunar veðurathugunarstöðvarinnar á Hveravöllum leggist eldsneytissalan af. Koma til með að sakna staðarins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.