Morgunblaðið - 23.03.2004, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.03.2004, Blaðsíða 9
HOLBERG-sjóðurinn, alþjóðlegur minningarsjóður sem ber heiti norsk/danska fræðimannsins Lud- vig Holberg, hefur auglýst eftir til- nefningum á Íslandi. Auglýst er eftir tilnefningum til tvenns konar verðlauna. Alþjóðlegu Holberg-minningarverðlaunin verða afhent einum eða fleiri fræði- mönnum sem hafa náð framúrskar- andi árangri á alþjóðagrundvelli, á sviði lista, hug- eða félagsvísinda, lögum eða guðfræði. Verðlaunin eru 4,5 milljónir norskra króna, um 45 milljónir íslenskra króna. Þá hefur einnig verið auglýst eft- ir tilnefningum til Nils Klim-verð- launanna, sem einnig eru veitt af Holberg-sjóðnum. Verðmæti þeirra er um 250 þúsund norskar krónur eða um 2,5 milljónir ísl króna. Verðlaunin heita eftir aðalpersón- unni í bók Holbergs „Ferðir Nils Klims neðanjarðar“. Þau verða veitt einum eða fleiri vísindamanni sem er yngri en 35 ára og hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir rannsóknir á þeim sviðum sem Holberg-sjóðurinn einbeitir sér að. Norsk stjórnvöld stofnuðu Hol- berg-sjóðinn, en fræðimaðurinn og leikritaskáldið Ludvig Holberg fæddist í Björgvin í Noregi árið 1684. Nöfn verðlaunahafanna verða tilkynnt 15. september næstkom- andi og frá og með 3. desember á þessu ári verða þau veitt árlega. Fræðimenn sem eru í forsvari fyrir deildir eða stofnanir á þeim sviðum sem sjóðurinn styrkir geta tilnefnt fræðimenn til verðlaunanna. Frek- ari upplýsingar má sjá á heimasíð- unni www.holberg.uib.no. Holberg-sjóður- inn auglýsir eftir tilnefningum FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MARS 2004 9 HÓPUR tvítyngdra barna, sem tala íslensku og ensku jöfnum höndum, hefur frá áramótum kynnt sér flugsöguna. Tilefnið er m.a. að 100 ár eru liðin frá því að Wright-bræður fóru í fyrstu flug- ferðina. Er þetta hluti af móðurmáls- kennslu sem börnin sækja í Al- þjóðahúsinu alla laugardaga. Wendy Richards fylgdi börn- unum síðasta laugardag á Reykja- víkurflugvöll þar sem þau fengu að skoða flugvélar og það sem að þeim snýr. Maður hennar Hörður Sverrisson, formaður Félags ís- lenskra einkaflugmanna, bauð sex þeirra í útsýnisflug yfir Reykja- vík. Wendy segir þetta hafa verið mjög gaman og þau hafi verið staðráðin í að gera eitthvað skemmtilegt í síðasta tímanum fyrir páskafrí. Námið tengist allt- af einhverju þema og frá áramót- um hafi það verið flug. Morgunblaðið/Árni Sæberg Tvítyngd börn í útsýnisflug ÝMISLEGT varð til þess að tefja rannsókn á máli manns sem í síðustu viku var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir ofbeldi gagnvart tveimur konum, en önnur var fyrrver- andi sambýliskona hans en hin fyrr- verandi unnusta. Eitt af því var að maðurinn var við nám erlendis og ekki náðist í hann mánuðum saman. Refsing mannsins var lækkuð vegna dráttar sem varð á rannsókn málsins. Málið var rannsakað hjá lögregl- unni í Reykjavík en ríkissaksóknari gaf út ákæru. Sigríður Jósefsdóttir, fulltrúi hjá ríkissaksóknaraembætt- inu, segir að ýmislegt hafi orðið til að tefja rannsókn málsins. Fyrir það fyrsta hafi maðurinn verið farinn úr landi þegar fyrri konan lagði fram ákæru gegn honum fyrir líkamsárás. Ekki hafi náðst til hans. Eftir að búið hafi verið að taka skýrslu af mann- inum hafi verið óskað eftir framhalds- rannsókn vegna kæru frá seinni kon- unni. Ekki hafi verið talið fært annað en að láta málin fylgjast að í gegnum dómskerfið. Sakborningar eigi rétt á því að dæmt sé í málum saman þegar ókláruð mál séu í kerfinu. Sigríður segir að í þessu máli hafi ekki verið um það að ræða að maðurinn hafi far- ið úr landi til að reyna að komast und- an refsingu þar sem kæra hafi verið lögð fram eftir að hann fór utan. Dráttur á rannsókn ofbeldismáls Hinn grunaði var erlendis www.thjodmenning.is Þri. 23/3: Marokkóskur pottréttur og kúskús og buff m. fersku salati, hrísgrjónum og meðlæti. Mið. 24/3: Grænmetislasagna og jarðeplasalat m. fersku salati, hrísgrjónum og meðlæti. Fim. 25/3: Koftas (litlar linsu- og hnetubollur) og karrý m. fersku salati, hrísgrjónum og meðlæti. Fös. 26/3: Brokkolí og valhnetu- pólenta og pestó m. fersku salati, hrísgrjónum og meðlæti. Helgin 27.-28/3: Indverskur matseðill. Matseðill www.graennkostur.is Bankastræti 14, sími 552 1555 Vertu fallega klædd í fötum frá okkur fyrir gott verð Vatteraðir jakkar Apaskinnsjakkar Léttar hettuúlpur Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00. Laugavegi 4, sími 551 4473 • www.lifstykkjabudin.is Póstsendum Sundbolir Ný sending Fyrir sólarlandaferðina kvartbuxur og bolir, str. 36-56 Eddufelli 2 Bæjarlind 6 s. 557 1730 s. 554 7030 Opið mán.—fös. frá kl. 10—18 lau. kl. 10—16 Kringlunni, sími 588 1680. Seltjarnarnesi, sími 561 1680. tískuverslun iðunn Stretch gallabuxur Vorvörur - ný sending 10% afsláttur af nýjum vörum til 27. mars Sendum lista út á land Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið mán. - fös. kl. 10 - 18, lau. kl. 10 - 14 Útsala - Lagersala Tilboðsslár kr 1000 eða 3000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.