Morgunblaðið - 23.03.2004, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 23.03.2004, Blaðsíða 49
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MARS 2004 49 JOHN Carew, miðherji Roma á Ítalíu, er á ný kominn í lands- liðshóp Norðmanna í knattspyrnu, sem mætir Serbíu-Svartfjallalandi í Belgrad 31. mars. Hann var sett- ur út úr landsliði Norðmanna eftir að honum og John Arne Riise, leikmanni Liverpool, lenti saman í september sl. Það var Nils Johan Semb, fyrrverandi landsliðsþjálfari Noregs, sem ákvað að setja Carew út úr landsliðinu, en nú hefur eft- irmaður hans, Åge Hareide, valið miðherjann í 20 manna lands- liðshóp sinn, sem er þannig skip- aður: Markverðir: Erik Holtan (Odd Grenland) og Thomas Myhre (Sunderland). Varnarmenn: Claus Lundekvam (Southampton), Ståle Stensaas (Rosenborg), Christer Basma (Ros- enborg), Hassan El Fakiri (Móna- kó), Brede Hangeland (Viking), John Arne Riise (Liverpool) og Vidar Riseth (Rosenborg). Miðju- og sóknarmenn: Ardian Gashi (Vålerenga), Jan Gunnar Solli (Rosenborg), Martin Andre- sen (Blackburn), Harald Martin Brattbakk (Rosenborg), John Car- ew (Roma), Tore André Flo (Siena), Morten Gamst Pedersen (Tromsø), Thorstein Helstad (Austria Vín), Magne Hoset (Molde), Frode Johnsen (Rosen- borg) og Sigurd Rushfeldt (Austria Vín). John Carew aftur í landsliðshóp Noregs FÓLK  ALFREÐ Jóhannsson, sem lék í fremstu víglínu með Grindavík í úr- valsdeildinni í knattspyrnu síðasta sumar, hefur verið lánaður til 1. deildar liðs Njarðvíkur. Alfreð lék 15 leiki með Grindavík í úrvals- deildinni í fyrra og skoraði í þeim 3 mörk.  JÓN ÖRVAR Eiríksson og Þor- leifur Árnason, sem léku með KA í úrvalsdeildinni í knattspyrnu í fyrra, eru gengnir til liðs við 2. deildar lið Leifturs/Dalvíkur.  ÓLAFUR Sigurjónsson skoraði 4 mörk fyrir Tres de Mayo þegar lið hans og Hlyns Jóhannessonar markvarðar vann óvæntan útisigur á Granada, 25:24, í spænsku 2. deildinni í handknattleik um helgina. Þrátt fyrir sigurinn er Tres de Mayo langneðst, er með 10 stig og er sjö stigum frá því að komast úr fallsæti þegar sex umferðum er ólokið.  DAWID Banaczek, pólski knatt- spyrnumaðurinn sem Skagamenn vildu fá í sínar raðir fyrr í vetur, hefur samið við Vaduz frá Liech- tenstein. Hann mun leika með lið- inu í næstefstu deild í Sviss en þar er félagið í harðri baráttu um að komast í úrvalsdeildina.  JASON Kidd, leikstjórnandi NBA-liðsins Nes Jersey Nets, ætlar sér ekki að fara í aðgerð á hné fyrir úrslitakeppnina, en slík aðgerð yrði til þess að Kidd myndi ekki leika fleiri leiki með liðinu í vetur. Nets hefur leikið til úrslita um NBA- titilinn undanfarin tvö ár og í viðtali við New York Post segir Kidd að á meðan hann geti hreyft hnéð muni hann leika í úrslitakeppninni.  NORSKA knattspyrnufélagið Viking hefur fengið Mads Timm, 19 ára danskan sóknarmann, að láni frá Manchester United fram í júlí. Timm þykir bráðefnilegur og sagt er að hann eigi að leika við hlið fyrrum leikmanns United, Erik Nevland, í fremstu víglínu hjá Vik- ing. Það er því útlit fyrir harðari samkeppni fyrir Hannes Þ. Sig- urðsson, sem hefur átt sæti í byrj- unarliði Viking að undanförnu.  ABBY Wambach skoraði þrennu fyrir Bandaríkin sem sigruðu Nor- eg, 4:1, í úrslitaleiknum á alþjóðlega kvennaknattspyrnumótinu sem lauk í Portúgal um helgina. Hún lagði auk þess upp fjórða markið fyrir Lindsay Trapley en Hege Riise gerði mark Noregs. Frakkland, sem leikur með Íslandi í riðli í und- ankeppni EM, vann Ítalíu í víta- spyrnukeppni í leiknum um þriðja sætið, eftir 3:3 jafntefli.  WAYNE Rooney, hinn 18 ára miðherji Everton, sem fékk að sjá sitt tíunda gula spjald í leik gegn Leicester um helgina, fer í tveggja leikja bann. Hann mun missa af leik úti gegn Newcastle og heimaleik gegn Tottenham í byrjun apríl. ROB Douglas, markvörður Celtic og Thiago Motta, mið- vallarleikmaður Barcelona, voru úrskurðaðir í eins leiks bann hjá aganefnd Knatt- spyrnusambands Evrópu, UEFA, í gær. Þeir leika því ekki með liðum sínum er þau mætast í 16 liða úrslitum UEFA-keppninnar á Nou Camp. Þeim lenti saman í fyrri leik liðanna í Glasgow, sem Celtic vann, 1:0 – fengu báðir að sjá rauða spjaldið. Bobo Balde, varnarmaður Celtic, úrskurðaður í eins leiks bann fyrir þrjú gul spjöld og Javier Saviola, Barcelona, fékk eins leiks bann - var rekinn af leikvelli í Glasgow. Douglas og Motta í bann Leikurinn fór hratt af stað hjá báð-um liðum, Keflvíkingar leituðu mikið inn í teig að Derrick Allen sem skoraði 6 fyrstu stig þeirra. Grindvíking- ar reyndu mikið af gegnumbrotum sem skiluðu þeim mörg- um stigum í byrjun leiks. Það kom mjög á óvart að stærsti maður Kefla- víkur, Derrick Allen, átti að gæta Darrel Lewis, bakvarðar Grindvík- inga, og leysti það hlutverk með stakri prýði. Um tíma fékk Lewis engan frið og átti í erfiðleikum með að festa sig í sessi í sókn Grindavíkur. Mikill barningur var á milli leik- manna og kom það nokkrum sinnum upp á í þessum leik að dómarar þyrftu að stöðva leikinn sökum rifr- ildis eða pústra og var greinilegt að hvorugt liðið ætlaði að gefa neitt eft- ir. Arnar Freyr Jónsson spilaði mjög vel með Keflavík í fyrri hálfleik og var gaman að fylgjast með sóknartil- burðum hans. Hann sundurspilaði Grindavíkurvörnina og skoraði ann- aðhvort sjálfur eða gaf á samherja sína sem voru í opnum færum eftir að Arnar hafði dregið að sér varnar- menn. Á tímabili spiluðu Grindvík- ingar mjög slaka vörn og skoraði Derrick Allen að vild inni í teig heimamanna á tímabili. Þegar leið á fyrri hálfleikinn fóru Grindvíkingar að leita meira inn í teig Keflvíkinga og voru þar fremstir í flokki Jackie Rogers og Anthony Jones. Keflvíkingar tóku þá leikhlé og skiptu yfir í svæðisvörn, hún virtist henta Grindavík vel og skoraði meðal annars Helgi J. Guðfinnsson 5 þriggja stiga körfur í fyrri hálfleik. Staðan í leikhléi var 59:55, Keflavík í vil. Í seinni hálfleik var það sama upp á teningnum, mikill hraði og mikið skorað. Leikurinn var í járnum allan seinni hálfleikinn en heimamenn í Keflavík virtust alltaf vera skrefi á undan. Barningurinn hélt áfram og litlu munaði að syði upp úr milli Jackie Rogers og Jóns Hafsteinsson- ar. Við það virtust dómararnir missa tökinn á leiknum. Þegar um fjórar mínútur voru eftir skoruðu Keflvíkingar átta stig í röð og virtust vera að gera út um leikinn. Grindvíkingar tóku þá leikhlé, og skoruðu sjö stig í röð á innan við mín- útu. Keflvíkingar tóku þá leikhlé og fóru betur yfir sín mál. Keflavík skor- aði 12 stig á lokamínútunum, öll úr þriggja stiga skotum. Þrjú þeirra voru frá Magnúsi Gunnarssyni og eitt frá Nick Bradford og gerðu þau út um þennan leik, 116:105. „Það var alveg skelfilegt hvað Darrel Lewis fékk lítið dæmt með sér í öllum hans gegnumbrotum, það var með ólíkindum hvernig Keflvíkingar fengu að berja hann sundur og sam- an. En burtséð frá því þá töpuðum við þessum leik fyrst og fremst á vörn- inni. Við áttum góðan endasprett, skoruðum sjö stig í röð og minnkuð- um muninn í eitt stig en náðum ekki að fylgja því eftir. Þetta er bara önn- ur orrustan og það er mikið eftir af þessari keppni,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindavíkur, í leikslok. „Við vorum yfir nær allan leikinn en í restina bitu þeir frá sér með sjö stigum í röð og leikurinn var galop- inn. Þá sagði ég hingað og ekki lengra og gerði út um leikinn með þremur þriggja stiga körfum,“ sagði Magnús Gunnarsson, hetja Keflvíkinga. Morgunblaðið/Einar Falur Falur Harðarson, annar þjálfara Keflvíkinga, gefur Sverri Þór Sverrissyni góð ráð. Þeir höfðu bet- ur gegn Grindavík í gærkvöld og jöfnuðu metin í einvígi liðanna, 1:1. Magnús tryggði Keflavík sigurinn KEFLVÍKINGAR jöfnuðu metin gegn Grindvíkingum, 1:1, í undan- úrslitaeinvígi liðanna á Íslandsmóti karla í körfuknattleik í gær- kvöld með því að sigra þá, 116:105, á heimavelli sínum í Keflavík. Það var Magnús Þ. Gunnarsson sem tryggði heimamönnum sig- urinn því hann skoraði þrjár þriggja stiga körfur á lokakafla leiks- ins. Liðin mætast í þriðja sinn föstudagskvöldið, þá í Grindavík, en það lið sem sigrar þrisvar kemst í úrslitaleiki Íslandsmótsins gegn Snæfelli eða Njarðvík. Davíð Páll Viðarsson skrifar Morgunblaðið/Einar Falur Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindvíkinga, lætur sína menn hafa það óþvegið og Páll Axel Vilbergsson lítur undan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.