Morgunblaðið - 23.03.2004, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 23.03.2004, Blaðsíða 7
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MARS 2004 7 Smáralind Sími 545 1550 Glæsibæ Sími 545 1500 Kringlunni Sími 575 5100 www.utilif.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U TI 2 39 41 03 /2 00 4 High Peak Pocatello 60L Góður 60 l poki með stillanlegu baki, regnyfirbreiðslu, mörgum hólfum og festingum. 8.990 kr. Nanoq Santana 65 L 4.990 kr. Nanoq Nomad 55 L 7.990 kr. Jamis Ranger SX Frábært fjallahjól. 6061 álstell. SR M300 framdempari. Shimano Tourney TX30 afturskiptir. Til í rauðu og svörtu. 25.990 kr. Einnig til án dempara (stálstell) 19.990 kr. High Peak Frasier 3ja manna braggatjald með fortjaldi. Stöðugt í vindi. Límdir saumar Þyngd 5,9 kg. 11.990 kr. Nanoq Pamir 3ja manna 7.990 kr. Nanoq Pamir 4ra manna 9.990 kr. Buffalo Phoenix V-2 Vandaður poki úr bestu efnum. Þyngd 1.830 g. Mesta kuldaþol -13°C. 9.990 kr. Mountain Eagle 4.990 kr. Nanoq Compact plus 7.990 kr. ...tilboð Fermingar... Stokkseyri | Myndarlegur blöðru- selsbrimill gerði sig heimakominn í fjörunni á Eyrarbakka á sunnu- dag. Eitthvað amaði að flykkinu, sem lá og dæsti í fjörunni. Blöðru- selir eru afar sjaldséðir við Suður- land, en þeir sjást helst við norð- urströndina. Áraskipti eru að komum hans og er það sennilega í tengslum við ísalög. Nú hin seinni ár hefur hann verið sjaldséður. Einkum eru það ungselir sem sjást. Hvað þessi myndarlegi brim- ill hefur verið að villast, verður því látið ósvarað. Blöðruselir bera nafn sitt af blöðrunni, sem er ofan á trýninu og blása þeir hana út í tilhugalífi og til að ógna. Brimlarnir geta orðið 2,5–3 m langir og 400 kg að þyngd, en urturnar eru minni. Blöðruselur er íshafsselur, sem heldur sig oftast á og við hafís. Þeir safnast saman á rekíssvæðinu á Grænlandssundi, NV af Íslandi, á sumrin til að fara úr hárum. Blöðruselskópar hafa verið veiddir í miklum mæli og eru skinnin talin verðmætari en af öðrum selum. Norskir selfangarar veiddu blöðrusel mikið við Græn- land á síðari hluta 19. aldar. Brim- illinn getur verið hættulegur veiði- mönnum. Blöðruselur á Eyrarbakka Ljósmynd/Jóhann Óli Hilmarsson JAAP de Hoop Scheffer, fram- kvæmdastjóri Atlantshafsbandalags- ins, kemur til landsins á morgun, en hann mun eiga fund með Davíð Oddssyni for- sætisráðherra og Halldóri Ásgríms- syni utanríkisráð- herra á morgun og fimmtudag. Scheffer tók við framkvæmda- stjórastarfinu í byrjun árs þegar Robertson lávarð- ur lét af störfum. Þetta er í fyrsta skipti sem hann kemur til Íslands eft- ir að hann hóf störf hjá Nato. Scheffer var áður utanríkisráð- herra Hollands. Framkvæmda- stjóri Nato til Íslands Jaap de Hoop Scheffer REYKJALUNDI hefur borist kaup- tilboð í plastvinnsluhluta rekstrarins, og verður tekin til þess afstaða á næstu dögum hvort gengið verði til söluviðræðna. Stefán Arngrímsson, formaður stjórnar plastiðnaðar Reykjalundar, staðfestir að tilboð hafi borist, en segir að forsvarsmenn fyr- irtækisins hefðu síður en svo verið að leita eftir tilboðum að fyrra bragði. „Það sem er númer eitt, tvö og þrjú hjá okkur er að við ætlum ekkert að hrófla við starfsfólkinu. Það er bara verið að ræða einhverjar verðhug- myndir ennþá, en alveg á eftir að ræða þá skilmála sem eru varðandi það að starfsfólkið haldi allt áfram. Það er frumskilyrði af okkar hálfu og ef það gengur ekki upp þá gengur sal- an ekki upp,“ segir Stefán. Stefán vill ekkert segja um það hverjir hafi gert tilboðið, hvort líklegt sé að gengið verði til viðræðna um sölu eða ekki, né hversu mikið var boðið í reksturinn, en segir að málin muni skýrast á næstu dögum. Kauptilboð í hluta Reykja- lundar SLÖKKVILIÐ höfuðborgar- svæðisins fór í hvert útkallið á fætur öðru vegna sinuelda í Hafnarfirði í gær. Ekki var þó kveikt í nálægt mannabústöð- um en slökkviliðsmenn voru vart fyrr búnir að slökkva einn sinueldinn en þeir þurftu að takast á við þann næsta. Vakt- stjóri SHS brýnir fyrir foreldr- um barna og fólki sem tekur upp á því að kveikja í sinu að hætta slíkri lögleysu hið bráð- asta svo ekki hljótist af alvar- legt tjón. Mikið um sinubruna ♦♦♦ FJÓRIR piltar voru handteknir í Kópavogi að nóttu til um helgina eft- ir að í bifreið þeirra fundust 9 fyr- irtækjafánar sem stolið hafði verið af fánastöngum þar í bæ. Lögreglan stöðvaði bifreiðina vegna gruns um að þeir sem í henni voru hefðu verið að stela fánum fyr- irtækja utan við Smáralind. Viður- kenndu piltarnir þjófnaðinn og var þeim sleppt að yfirheyrslum loknum. Tilkynnt var um 11 umferðar- óhöpp í Kópavogi um helgina. Minni- háttar slys urðu á fólki í tveimur þeirra. Alls voru 13 ökumenn kærðir fyrir hraðakstur auk þess sem afskipti voru höfð af nokkrum öðrum vegna annarra umferðarlagabrota. Með bílinn fullan af fyr- irtækjafánum ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.