Morgunblaðið - 23.03.2004, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 23.03.2004, Blaðsíða 19
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MARS 2004 19 Innri-Njarðvík | Grunnskóli sem byrjað er að byggja í nýju íbúðar- hverfi í Innri-Njarðvík mun kosta liðlega 100 milljónum minna en Heiðarskóli sem er fyrirmynd að skólanum. Jarðvinna í grunni skól- ans hófst á laugardag eftir að tvö börn, væntanlegir nemendur skól- ans, tóku fyrstu skóflustungna. Lægra leigugjald Eignarhaldsfélagið Fasteign hf., sem Reykjanesbær er aðili að, bygg- ir skólann. Hönnunin er sú sama og á nýjasta skóla bæjarins, Heið- arskóla í Keflavík, en teikningar að- lagaðar hugmyndum um opinn skóla. Mikið er lagt upp úr ein- staklingsmiðuðu námi með opnu rými og samstarfi kennara um til- tekin heimasvæði. Arkitekt beggja skólanna er Bjarni Marteinsson hjá Arkitektastofu Suðurnesja. Í ávarpi Árna Sigfússonar bæj- arstjóra, sem jafnframt er formaður fræðsluráðs bæjarins, við athöfn sem efnt var til í tilefni af upphafi framkvæmda kom fram að veruleg- ur árangur hafi náðst í að lækka kostnað við byggingu nýja skólans, án þess að slakað væri á gæðakröf- um. Reykjanesbær mun reka skól- ann og greiðir Fasteign hf. leigu miðað við byggingarkostnað. Þó hef- ur verið samið um hámarksverð og þar með hámarksleigu, þótt bygg- ingarkostnaður verði meiri. Verði hins vegar útboð hagstæðari en þessi viðmiðun mun Reykjanesbær njóta þess. Fram kom hjá Árna að heildarbyggingarkostnaður 1. áfanga sé áætlaður 578 milljónir kr. Til samanburðar gat hann þess að uppreiknaður kostnaður vegna sama sambærilegs hluta Heiðarskóla væri á verðlagi í dag 648 milljónir kr. Áætlaður heildarsparnaður miðað við sambærilegan fullbyggðan skóla er því yfir 110 milljónir kr., að sögn bæjarstjóra. Gæti þetta sparað bæj- arsjóði um 6–7 milljónir í leigu á ári. Gert er ráð fyrir því að skólastarf hefjist í Innri-Njarðvík haustið 2005 og verða nemendur um 100 talsins fyrsta árið. Skólinn er í nýskipu- lögðu íbúðahverfi sem reiknað er með að byggist upp á næstu árum og að nemendum muni fjölga í 400 þeg- ar skólinn verður kominn í fulla notkun. Óákveðið með heiti skólans Ekki hefur verið ákveðið nafn á skólann. Óskað hefur verið eftir áliti bæjarbúa á nokkrum nöfnum sem komið hafa tillögur um. Gestum við athöfnina á laugardag var boðið að gæða sér á tertu sem skreytt var nokkrum hugsanlegra nafna. Byrjað að byggja grunnskóla í nýju hverfi í Innri-Njarðvík Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Sjö ára verktakar: Ellen Hilda Sigurðardóttir og Óðinn Hrafn Þrastarson, væntanlegir nemendur nýs skóla í Innri- Njarðvík, tóku fyrstu skóflustunguna að skólanum og nutu við það aðstoðar Árna Sigfússonar bæjarstjóra. Spara 100 milljónir kr. í byggingarkostnaði Keflavík | Gryfjan í Duushúsum var full af fólki á kvöldvöku sem Árni Johnsen efndi til í fyrrakvöld vegna sýningarloka Grjótsins úr Grundar- firði. Áætlað er upp undir 300 manns hafi verið á staðnum. Árni Johnsen lék og söng fyrir gesti og stjórnaði fjöldasöng. Nokkr- ir listamenn heiðruðu Árna með því að troða upp á samkomunni sem séra Hjálmar Jónsson nefndi „upprisuhá- tíð“ og virtist þá mæla fyrir munn margra. Farið var með vísur, lesin ljóð, sungið og leikið á harmóníku, svo nokkuð sé nefnt. „Þetta var góður endir á skemmti- legu verkefni,“ sagði Valgerður Guð- mundsdóttir, menningarfulltrúi Reykjanesbæjar, um kvöldvökuna. Hátt á fimmta þúsund manns skoð- aði sýninguna á þeim rúma mánuði sem hún var opin og er það meira en þekkst hefur á sýningum í Reykja- nesbæ. Kvöldvaka við sýningarlok Ljósmynd/Sigurjón R. Vikarsson Kvöldvaka: Gryfjan í Duushúsum var full af listaverkum og fólki. Danmörk er kjörið land fyrir fjölskyldu sem langar til að ferðast á eigin vegum í bílaleigubíl. Hlýleg náttúran, heillandi smábæir, skemmti garðar, Legoland, hallir og söfn, hæfilegar vegalengdir og glaðlyndir Danir: Allt þetta er eins og sniðið fyrir ógleymanlegt fjölskylduævin týri. 5000 Ferðapunktar upp í pakkaferð Handhöfum Vildarkorts VISA og Icelandair býðst að nota 5000 Ferðapunkta, jafnvirði 5.000 kr., sem greiðslu upp í pakkaferðir Icelandair, ef bókað er fyrir 1. apríl. Hafið samband við söluskrifstofur Icelandair eða við Fjarsölu Icelandair í síma 50 50 100 (svarað mánud.–föstud. kl. 8–18, laugard. kl. 9–17 og á sunnud. kl. 10–16). Flug og bíll út í heim Kaupmannahöfn Ferðatímabil: 2. - 9. júní og 25. ágúst - 1. september. Innifalið: Flug á áfangastað, bílaleigubíll í A flokki í 1 viku, flugvallarskattar og þjónustugjöld. * M. v. 2 fullorðna og 2 börn í bíl í 1 viku. ** M. v. 2 fullorðna í bíl í 1 viku. VR orlofsávísun Munið ferða- ávísunina Verð frá 19.900 kr. á mann* Verð frá 28.835 kr. á mann** Í SL EN SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 23 82 9 3/ 20 04 Í SL EN SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 23 82 9 3/ 20 04
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.