Morgunblaðið - 23.03.2004, Blaðsíða 46
ÍÞRÓTTIR
46 ÞRIÐJUDAGUR 23. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
KRISTJÁN Uni Óskarsson skíðamaður
varð á sunnudaginn í sjötta sæti í svigi á
norska meistaramótinu, fékk tímann
1.43,41 og 18,60 FIS-punkta fyrir árang-
urinn. Björgvin Björgvinsson varð í 10. sæti
í sama móti á tímanum 1.44,48 og fékk
24,59 FIS-punkta fyrir.
Kristinn Ingi Valsson varð í 14. sæti á
1.45,53 og fékk 30,48 punkta fyrir. Sindri
M. Pálsson fékk 46,67 punkta fyrir 1.48,42
sem dugði í 31. sætið en 80 keppendur luku
við báðar ferðirnar.
Guðrún Arinbjarnardóttir varð í 18. sæti
í kvennaflokki í sviginu, lauk keppni á
1.48,54 og fékk 38,98 FIS punkta fyrir það.
58 stúlkur luku báðum ferðunum.
Í stórsviginu á laugardaginn varð Björgvin í 9. sæti á 2.11,13 og
fékk 34,92 punkta fyrir. Kristján Uni varð í 13. sæti á 2.12,48 og fékk
44,05 punkta fyrir það.
Góður árangur
Kristjáns Una
Kristján Uni
HERMANN Albertsson, leikmaður úr-
valsdeildarliðs FH í knattspyrnu, fær úr
því skorið síðar í vikunni hvort krossband
í hné hafi gefið sig en Hermann meiddist
í leik með FH-ingum gegn ÍBV í deilda-
bikarnum á dögunum.
„Það bendir allt til þess að krossbandið
sé slitið. Ég var í myndatöku í dag og fæ
niðurstöðurnar þegar líður á vikuna. Að
sjálfsögðu held ég í vonina um að þetta sé
ekki svona alvarlegt en því miður er útlit-
ið ekki gott,“ sagði Hermann við Morg-
unblaðið í gær. Reynist krossbandið slitið
verður Hermann frá æfingum og keppni
næstu 7–8 mánuðina.
Hermann stóð sig vel með FH-liðinu á
síðustu leiktíð en hann lék 11 leiki Hafn-
arfjarðarliðsins í úrvalsdeildinni og skor-
aði 2 mörk.
Hermann úr
leik hjá FH?
FÓLK
VEIGAR Páll Gunnarsson, lands-
liðsmaður í knattspyrnu, lék sinn
fyrsta leik með Stabæk um nýliðna
helgi. Stabæk og Bodö/Glimt skildu
jöfn, 1:1, og lék Veigar Páll í fram-
línu Stabæk. Frammistaða hans
þykir lofa góðu en keppni í norsku
úrvalsdeildinni hefst 12. apríl.
STABÆK hefur ekki unnið einn
einasta leik á undirbúningstíma-
bilinu. Í 11 leikjum hefur liðið tapað
níu og gert tvö jafntefli.
BARCELONA jafnaði sinn besta
árangur í 20 ár þegar liðið vann sinn
níunda deildarsigur í röð á Spáni.
Börsungar lögðu Real Sociedad, 1:0,
og hélt brasilíski töframaðurinn Ro-
naldinho upp á 24 ára afmæli sitt
með stæl – skoraði sigurmarkið
beint úr aukaspyrnu á lokamínútu
leiksins en þetta var 12. mark hans á
leiktíðinni.
BARCELONA skaust með sigrin-
um upp í þriðja sæti deildarinnar
með 55 stig, Valencia sem burstaði
Real Mallorca hefur 60 og Real Mad-
rid sem steinlá fyrir Atletico Bilbao
er í toppsætinu með 61 stig.
RÓBERT Gunnarsson er áfram í
öðru sæti yfir markahæstu leikmenn
dönsku úrvalsdeildarinnar í hand-
knattleik. Róbert hefur skorað 177
mörk fyrir Århus GF sem hefur unn-
ið fimm leiki í röð en markahæstur
er Micke Næsby, félagi Gísla Krist-
jánssonar í liði Frederica, með 200
mörk. Í þriðja sæti er svo hálfís-
lenski Hans Óttar Lindberg í liði
Team Helsinge með 151 mark.
TVEIR leikmenn danska kvenna-
liðsins GOG voru fluttir á sjúkrahús í
Ungverjalandi á sunnudag þegar
liðið lék þar við Györ í undanúrslit-
um EHF-keppninnar í handknatt-
leik. Annar leikmaðurinn var alvar-
lega meiddur í öxl og hinn fékk
þungt högg í magann. GOG tapaði
leiknum, 29:23, og samtals í tveimur
viðureignum með fjögurra marka
mun, 55:51. „Ég hef aldrei séð annað
eins í kvennahandknattleik,“ sagði
Peter Bruun Jørgensen í viðtali við
DR eftir leikinn þegar hann var
spurður að því hvort ungverska liðið
hefði leikið grófan handknattleik.
KEVIN Keegan knattspyrnustjóri
Manchester City segir að Shaun
Wright-Phillips verðskuldi að fá
tækifæri með enska landsliðinu en
Keegan telur Phillips besta yngsta
leikmanninn á Englandi.
ROBERT Kovac, 29 ára, varnar-
maður Bayern München, meiddist á
ökkla á æfingu og verður hann frá
keppni í átta vikur. Otto Baric,
landsliðsþjálfari Króatíu, segir að
hann verði búinn að ná sér fyrir Evr-
ópukeppni landsliða, sem fer fram í
Portúgal í júní.
ROMAN Abramovich, eigandi
Chelsea, hefur mikinn áhuga á að fá
Rio Ferdinand til liðsins í sumar, til
að leika sem miðvörður við hliðina á
fyrirliðanum John Terry.
ÍTALSKIR stjórnmálamenn full-
yrtu í gær að slagsmál stuðn-
ingsmanna Rómarliðanna Lazio
og Roma, sem leiddu til þess að
leik þeirra í fyrrakvöld var hætt,
hefðu verið skipulögð í pólitísk-
um tilgangi.
Fyrirliðar liðanna, Francesco
Totti hjá Roma og Sinisa Mi-
hajlovic hjá Lazio, urðu sammála
um að óska eftir því að leiknum
yrði hætt þegar síðari hálfleikur
var nýhafinn. Stuðningsmaður
Roma hafði þá kallað til Tottis
og sagt honum að lögreglu-
bifreið hefði keyrt yfir barn
framan við Ólympíuleikvanginn
og það hefði látist. Síðar kom í
ljós að þær fregnir áttu ekki við
rök að styðjast, en í framhaldi af
því að þetta var tilkynnt í hátal-
arakerfi vallarins fór allt í bál og
brand á pöllunum. Í framhaldi af
því hringdi forseti deildakeppn-
innar, Adriano Galliani, frá Míl-
anó og fyrirskipaði að leiknum
skyldi hætt af öryggisástæðum.
Stuðingsmenn liðanna slógust
innbyrðis og við lögreglu í sex
klukkustundir og að lokum voru
13 þeirra handteknir. Í látunum
slösuðust 155 lögreglumenn og
21 stuðningsmaður.
Félagsmálaráðherra Ítalíu,
Roberto Maroni, sagði í gær að
sér virtist sem óeirðirnar hefðu
verið skipulagðar til að stilla
ríkisstjórn landsins upp við
vegg. Á laugardag hafði Silvio
Berlusconi, forsætisráðherra og
forseti AC Milan, sagt að bylting
myndi von bráðar brjótast út á
áhorfendapöllum knattspyrnu-
félaganna, ef ríkisstjórnin kæmi
þeim ekki til hjálpar. Sam-
anlagðar skuldir félaganna
nema nú um 44 milljörðum ís-
lenskra króna.
Voru slagsmálin í
Róm skipulögð?
VÍKINGAR, nýliðarnir í úrvals-
deild karla í knattspyrnu, fara í
æfingaferð á óhefðbundnar slóðir
um næstu helgi því förinni er
heitið til Tyrklands. Þar dvelja
þeir í eina viku í æfingabúðum í
borginni Antalya, sem er á Mið-
jarðarhafsströnd Tyrklands, litlu
austar en gríska ferðamanna-
eyjan Rhodos. Þeir mæta þar
rússnesku úrvalsdeildarliði og
tyrknesku liði úr neðri deildum,
en 2. flokkur félagsins er einnig
með í för og leikur tvo leiki gegn
liðum af svæðinu.
„Þetta er sannkölluð drauma-
ferð og ótrúlega ódýr því hún er
hagstæðari en það sem boðist
hefur hér heima. Við dveljum á
fimm stjörnu hóteli með frábæra
æfingaaðstöðu, en þarna hafa lið
á borð við Dortmund, Bochum,
PSV og AC Milan dvalið og æft á
undanförnum árum,“ sagði Að-
alsteinn Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri knattspyrnudeildar
Víkings, við Morgunblaðið í gær.
Um 50 manns verða með í för en
Víkingar halda utan á sunnudag-
inn kemur.
Víkingar í æfingabúðir til Tyrklands
AC Milan hefur verið á mikillisiglingu og ef að líkum lætur
verður á brattann að sækja fyrir
liðsmenn Deportivo. Milan-liðið er á
hraðri siglingu í átt að ítalska
meistaratitlinum, forysta liðsins á
Roma er níu stig en Evrópumeist-
ararnir hafa unnið tólf af síðustu 13
leikjum sínum. Spánverjarnar eru
engir aukvisar og tveir sigrar
þeirra gegn Juventus, silfurliði síð-
ustu Evrópukeppni, í 16-liða úrslit-
unum sýnir og sannar hveru öflugt
lið Deportivo er.
„Við erum greinilega að koma
upp á réttum tíma. Það er mikið
sjálfsöryggi í liðinu, leikmenn hafa
gaman af því sem þeir eru að gera
og nú þurfum við bara að halda
áfram á sömu braut og vera með
einbeitinguna í fullkomnu lagi,“
segir Carlo Ancelotti, þjálfari AC
Milan.
Þjálfari Deportivo, Javier Ir-
ureta, hvíldi þrjá lykilmenn sína í
sigurleik liðsins gegn Murcia um
helgina, Juan Carlos Valeron, Muro
Silva og Walter Pandiani, svo þeir
ættu að koma ferskir til leiks gegn
Evrópumeisturunum í kvöld.
Milan leikur án varnarmannsins
Alessandro Nesta sem er meiddur
og þrátt fyrir að Daninn Jan Dahl
Tomasson hafi skorað tvö mörk í
sigrinum á Parma um helgina verð-
ur hann á varamannabekknum því
Ancelotti hefur ákveðið að tefla Fil-
lipo Inzaghi og Andrei Shevchenko
fram í fremstu víglínu.
Deportivo, sem tekur þátt í
Meistaradeildinni fjórða árið í röð,
hefur aldrei tekist að komast í
gegnum 8-liða úrslitinen AC Milan
er eitt af sigursælustu liðum í Evr-
ópukeppninni en sex sinnum hefur
Mílanóliðið hampað Evrópumeist-
aratitlinum. Liðin voru í sama riðli í
Meistaradeildinni á síðustu leiktíð.
Milan hafði betur á Spáni, 4:0, en
dæmið snerist við á Ítalíu þar sem
Deportivo hafði betur, 2:1.
Meiðsli hjá Porto
Fróðlegt verður að fylgjast með
hvort Porto takist að fylgja eftir ár-
angri sínum gegn Manchester Unit-
ed en Portúgalirnir fá franska liðið
Lyon í heimsókn í kvöld.
Brasilíumaðurinn Juninho, leik-
maður Lyon, segir að lið Porto hafi
sýnt og sannað að þar sé afar
sterkt lið á ferð en engu að síður
telur hann möguleika Lyon góða á
að komast í undanúrslitin.
„Porto er með mjög gott lið og er
betra að mínu mati en lið á borð við
Inter, Barcelona og Bayern Münch-
en sem ég hef leikið gegn. Liðið er
mjög heilsteypt og samtaka í því
sem það gerir inni á vellinum. Leik-
menn liðsins hafa spilað lengi sam-
an og gjörþekkja því hver annan
svo við höfum búið okkur undir
mjög erfiðan leik,“ segir Juninho en
Lyon tyllti sér á topp frönsku 1.
deildarinnar um helgina með 1:0
sigri á Nantes en Lyon og Monaco
hafa bæði 60 stig.
Porto hefur enn ekki tapað leik í
portúgölsku deildinni en meiðsli
hafa sett nokkuð strik í reikninginn
hjá liðinu. Fyrirliðinn Jorge Costa
getur ekki spilað eftir að hafa togn-
að á læri í leiknum við Manchester
United á dögunum og þá er Ric-
ardo Costa handarbrotinn og getur
heldur ekki spilað. En helsti höf-
uðverkur þjálfarans, Jose Mour-
inho, er meiðsli framherjanna Derli
og Marco Ferreira.
Massimo Ambrosini, leikmaður AC Milan, skorar hér glæsilegt
mark með skalla í leik gegn Lazio á Ítalíu, þar sem Angelo Per-
uzzi, markvörður Lazio, átti ekki möguleika á að verja.
Stöðvar Deportivo
sigurgöngu AC Milan?
ÁTTA liða úrslitin í Meistardeild Evrópu í knattspyrnu hefjast í
kvöld. AC Milan, sem á Evrópumeistaratitilinn að verja, tekur á móti
spænska liðinu Deportivo La Coruna og í Portúgal fá Manchester
United-banarnir í Porto lið Lyon frá Frakklandi í heimsókn. Annað
kvöld mætast síðan Real Madrid og Mónakó og Lundúnaliðin
Chelsea og Arsenal.