Morgunblaðið - 23.03.2004, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 23.03.2004, Qupperneq 41
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MARS 2004 41 NÝLEGA fór fram afhending á að- alvinningi í leik sem Baðhúsið efndi til meðal árskorthafa sinna. Verðlaunin voru árs afnot af bíl ársins í Evrópu, Renault Megane II. Vinningshafi var Unnur María Bergsveinsdóttir og er 25 ára Reykvíkingur. Hefur hún verið árskorthafi hjá Baðhúsinu um nokkurra ára skeið, segir í frétta- tilkynningu. Á myndinni má sjá Heiðar Sveinsson sölustjóra B&L, afhenda Unni Maríu bílinn. Vann árs afnot af bíl Er í Sameinuðu arabísku furstadæmunum Í grein um Glæsihótel undir segl- um þöndum í Dubai í laugardags- blaðinu síðasta féll niður að Dubai er eitt af Sameinuðu arabísku fursta- dæmunum. Íbúar þar eru ekki Sádar þótt Sádi-Arabía sé næsti bær við á Arabíuskaganum. Röng dagsetning á tískusýningu Tískusýningin frá Pelli og purpura verður í sýningarsölum Hafnarborg laugardaginn 3. apríl kl. 16. Rangt var farið með dagsetninguna í frétt á laugardag. Sýningin er í tengslum við myndlistarsýninguna Birtingu sem stendur yfir í Hafnarborg. Rúmlega 1.800 fórust Í grein um Júlíönu, fyrrum Hol- landsdrottningu, í blaðinu í gær seg- ir ranglega að 17.000 manns hafi týnt lífi í flóðum í Hollandi árið 1953. Hið rétta er að 1.835 manns týndu lífi í flóðunum. Beðist er velvirðingar á þessu. LEIÐRÉTT Fjallað um skógrækt í Sælings- dal. Í kvöld kl. 20 verða skógrækt- arfélögin á höfuðborgarsvæðinu með „Opið hús“ í sal Ferðafélags Íslands í Mörkinni 6. Andri Snær Magnason skáld flytur pistil. Sig- urbjörn Einarsson jarðvegsfræð- ingur fjallar í máli og myndum um skógrækt sem hann hefur stundað í Sælingsdal, innst í Breiðarfjarð- ardölum. Erindið nefnist „Um skógrækt í Sælingsdal. Sjálfbær trjárækt í gömlu túni“. Fundurinn er í umsjón Skógrækt- arfélags Garðabæjar. Opnu húsin eru liður í fræðslusamstarfi skóg- ræktarfélaganna og KB banka. Aðalfundur CCU-samtakanna er í kvöld kl. 20 á Grand Hóteli, Sig- túni, Reykjavík. Að loknum aðal- fundi um kl. 20.45 hefst fyrirlestur um samskipti kynjanna með Hall- dóru Bjarnadóttur hjúkrunarfræð- ingi. CCU samtökin voru stofnuð árið 1995 og eru hagsmunasamtök sjúk- linga með sáraristilbólgu (Colitis Ulcerosa) og svæðisgarnabólgu (Crohn’s). Samtökin eru opin öllum sjúklingum, aðstandendum og öðr- um áhugasömum. Fundur um sjálfboðastarf á Ind- landi og Kenýa og Zambíu. Vinir Indlands, Vinir Afríku og Húm- anistahreyfingin standa fyrir kynn- ingarfundi á starfi sem unnið er í samvinnu við heimamenn í Tamil Nadu á Indlandi og Kenýa og Zam- bíu í Afríku. Kynningarfundurinn er í MÍR-salnum, Vatnsstíg 10, kl. 20 í kvöld. Í DAG Fyrirlestur hjá Kennaraháskóla Íslands. Haukur Arason, lektor við Kennaraháskóla Íslands, og Stefán Bergmann, dósent við Kennaraháskóla Íslands, halda op- inn fyrirlestur í Skriðu, Kenn- araháskólanum við Stakkahlíð, á morgun, miðvikudaginn 24. mars, kl. 16.15. Kynnt verður alþjóðleg samanburðarkönnun sem skoðar mikilvægi/gildi náttúrufræði- og tæknimenntunar frá sjónarhóli 15 ára unglinga. Íslendingar og Evrópumálin. Politica, félag stjórnmála- fræðinema, og Evrópusamtökin halda fund í Norræna húsinu á morugn, miðvikudaginn 24. mars, kl. 16–17.30. Yfirskrift fundarins er „Íslendingar og Evrópumálin – Hvað segja skoðanakannanir okk- ur?“ Frummælendur eru: Jón Steindór Valdimarsson frá Sam- tökum iðnaðarins, Gústaf Stein- grímsson, blaðamaður á Viðskipta- blaðinu, og Þóra Ásgeirsdóttir frá IMG-Gallup. MBA-nemendur við HÍ kynna þrjú raunverkefni. Á morgun, miðvikudaginn 24. mars, verður fundur á vegum Aðgerðarann- sóknafélagsins þar sem MBA- nemendur við Háskóla Íslands munu kynna þrjú raunverkefni. Fundurinn fer fram í húsi Endur- menntunar við Dunhaga kl. 16.15–17.45. Öll verkefnin fjalla um þjónustukerfi, eitt um banka- útibú, annað um útibú ÁTVR og hið þriðja um innritun farþega í flug. Sameiginlegt með verkefn- unum er að beitt er biðraðafræði og/eða hermun til að meta mönn- unarþarfir í þjónustu miðað við mismunandi álag á kerfin, þannig að þjónustustig í einhverjum skilningi sé ávallt það sama. Fyrirlesarar tóku allir þátt í val- námskeiði í MBA-náminu sem heitir Rekstrarstjórnun II og fjallar um notkun reiknilíkana í rekstri. Um gildi orðabóka í spænsku- námi. Jaume Climent flytur fyr- irlestur um gildi orðabóka í spænskunámi á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlend- um tungumálum. Fyrirlesturinn fer fram á morgun, miðvikudaginn 24. mars, kl. 15.15 í stofu 301 í Árnagarði. Fyrirlesturinn verður fluttur á spænsku. Kópavogsdeild Rauða krossins heldur fræðslukvöld með Guð- björgu Sveinsdóttur geðhjúkr- unarfræðingi á morgun, miðviku- dag 24. mars, kl. 20 í sjálfboðamiðstöðinni Hamraborg 11, 2. hæð. Guðbjörg tók þátt í að skipuleggja og meta þörf fyrir andlegan stuðning við fórnarlömb jarðskjálftanna í Íran. Guðbjörg segir frá reynslu sinni og upplifun í máli og myndum. Fjallað verður um framleiðni í fiskvinnslu á málstofu Hag- fræðistofnunar á morgun, mið- vikudaginn 24. mars, kl. 12.15 í Odda, stofu 101. Sveinn Agn- arsson, sérfræðingur hjá Hag- fræðistofnun, flytur erindi um framleiðni í fiskvinnslu. Í erindinu er fjallað um þróun framleiðni í fiskvinnslu á árunum 1973–2000, og einnig sagt frá at- hugunum sem gerðar hafa verið á framleiðnibreytingum hjá nokkr- um fyrirtækjum á árunum 1985– 1995. Á MORGUN Fyrirlestur í Norræna húsinu á vegum Mannréttindaskrifstofu Íslands, verður fimmtudaginn 25. mars kl. 16. Þar mun lettneskur þjóðréttarfræðingur, Ineta Ziem- ele prófessor, fjalla um upplausn fyrrum Sovétríkjanna og Júgó- slavíu frá sjónarhóli þjóðarétt- arins, hvernig skilin urðu milli hinna gömlu og nýju ríkja þar og hversu raunsæ sú skipan er sem tók við af hinni fyrri. Fyrirlest- urinn nefnist á ensku: State Cont- inuity or State Succession – Re- ality, Fiction or Politics: Dissolution of the former USSR and former FRY. Ineta Ziemele er Söderberg– prófessor í alþjóðarétti og mann- réttindum við lögfræðiháskólann í Riga (Riga Graduate School of Law) , en hann sinnir kennslu til meistaraprófs og doktorsgráðu í lögfræði auk þess að halda nám- skeið fyrir starfandi lögfræðinga. Hún er jafnframt gestaprófessor við Raoul Wallenberg-mannrétt- indastofnunina og lagadeild há- skólans í Lundi. Á NÆSTUNNI ♦♦♦ STJÓRN Landverndar gerir al- varlegar athugasemdir við nokkur atriði í frumvarpi um verndun Mývatns og Laxár. Landvernd hefur sent umhverf- isnefnd Alþingis athugasemdir sínar og telur m.a. að fella beri bráðabirgðaákvæði um heimild til hækkunar stíflu í Laxá út úr frumvaprinu. Samtökin gera fleiri athugasemdir, m.a. við ákvæði um að Umhverfisstofnun skuli þegar hefjast handa við undirbúning að friðlýsingu landsvæða sem ekki falla undir lögin. „Stjórn Land- verndar telur nauðsynlegt að ákvæði um þetta atriði séu skýr- ari. Í Skútustaðahreppi er fjöldi náttúruminja sem hafa afar hátt verndargildi vegna mikilvægis fyrir lífríki vatnsins og sem sér- stæðar jarðmyndanir og landslag. Hér má vísa til svæða sem falla undir verndarflokka I og II á nátt- úruverndarkorti fyrir Mývatns- sveit. Þar til friðlýsingu á þessum svæðum lýkur þarf að vera í gildi bráðabirgðaákvæði sem kveða á um að ekki megi veita fram- kvæmda- og byggingaleyfi á þess- um svæðum nema að heimild Um- hverfisstofnunar liggi fyrir,“ segir í tilkynningu frá Landvernd. Að mati samtakanna þarf m.a. að setja reglugerð um varnir gegn hverskonar mengun á vatnasviði Mývatns og Laxár samhliða gild- istöku laganna. ,,Rannsóknir á eðli og orsökum sveiflna í fæðu- keðju Mývatns sýna að stærð og stofn silunga og anda stjórnast af fæðuframboði. Fremur vægar truflanir á vistkerfinu geta orðið til þess að mýsveiflur magnist, en mýið er undirstöðufæða í vistkerfi Mývatns og Laxár. Í tengslum við jarðvarmavirkjanir og iðnaðar- starfsemi getur verið talsverð hætta á mengun vatns og það get- ur haft áhrif á vistkerfið. Því er nauðsynlegt að reglur um þetta liggi fyrir við gildistöku laganna.“ Landvernd Athugasemdir við frumvarp um vernd- un Laxár og Mývatns FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ Góðar fyrirmyndir Ráðstefna um málefni fatlaðra Föstudaginn 26. mars 2004, kl. 9.00-16.30 Hótel Nordica Ráðstefnan er opin öllum áhugasömum um málefni fatlaðra Á ráðstefnunni verður lögð áhersla á það sem vel hefur verið gert í þágu fatlaðra og kynntar þær framfarir sem átt hafa sér stað og þykja sérstaklega áhugaverðar. Fyrir hádegi verða verkefni sem hlutu styrk úr styrkjasjóði Evrópuárs fatlaðra kynnt en eftir hádegi verður fjallað um góðar fyrirmyndir í þjónustu við fatlaða útfrá fjórum meginþemum í tveimur sölum. Viðfangsefnin eru eftirfarandi: 1. Hæfing, endurhæfing, vinna, menntun. 2. Virkni, tækni, aðgengi, samfélag. 3. Fjölskylda, heimili. 4. Lífsstíll, heilbrigði, hollusta. Skráning á ráðstefnuna fer fram á vefsvæðinu www.arfatladra.is/skraning eða hjá félagsmálaráðuneytinu í síma 545 8100. Fundarstjóri: Elín Hirst, fréttastjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.