Morgunblaðið - 23.03.2004, Qupperneq 48
ÍÞRÓTTIR
48 ÞRIÐJUDAGUR 23. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLENSKIR frjálsíþróttamenn nældu
sér í þrenn gullverðlaun og tvenn silf-
urverðlaun á Norðurlandameistaramóti
öldunga í frjálsíþróttum innanhúss, sem
fram fór í Drammen í Noregi um sl.
helgi.
Árný Heiðarsdóttir, Óðni, kom fyrst í
mark í 60 m hlaupi og 100 m hlaupi í
flokki 45–49 ára. Árný hljóp 60 m á 8,72
sek. og 100 m á 14,18 sek.
Trausti Sveinbjörnsson, FH, var fljót-
astur í mark í 60 m grindahlaupi í flokki
55–59 ára. Sigurtími Trausta í var 11,21
sek.
Árný hreppti annað sætið í langstökk
– stökk 4,79 m og hún varð einnig önn-
ur í þrístökki í sínum aldursflokki.
Trausti varð fimmti í 400 m hlaupi á
65,26 sek.
Þrjú gull í
Drammen
TVÖ ensk 1. deildarlið fóru þess á
leit við Wolves á dögunum að fá Jó-
hannes Karl Guðjónsson að láni út
leiktíðina en forráðamenn Úlfanna
neituðu að lána íslenska landsliðs-
manninn. Frestur til að hafa fé-
lagaskipti í ensku knattspyrnunni
rennur út á fimmtudaginn og að
sögn Jóhannesar þá eru engin teikn
á lofti að hann fái að spreyta sig
með öðru ensku liði á leiktíðinni.
„Því miður neitaði Wolves að
lána mig en eins og staða mín er
gagnvart liðinu þá hefði það verið
kjörið að klára tímabilið með öðru
hvoru af þeim liðum sem vildu fá
mig. Ég skil ekki af hverju þessu
var hafnað í ljósi þess að ég hef lítið
sem ekkert fengið að spila síðustu
vikurnar,“ sagði Jóhannes Karl við
Morgunblaðið í gær en hann vildi
ekki greina frá því hvaða félög sótt-
ust eftir honum.
Jóhannes segir að framtíð sín sé
nokkuð óljós. Hann er enn í eigu
Real Betis á Spáni, er samnings-
bundinn liðinu til ársins 2006 en fé-
lagið lánaði hann til Úlfanna í
haust. Jóhannes hefur aðeins leikið
níu leiki með aðalliði Wolves á leik-
tíðinni, fimm sinnum hefur hann
verið í byrjunarliði og fjórum sinn-
um hefur hann komið inná sem
varamaður.
„Ég þarf að fara að fá mín mál á
hreint og vonandi heyri ég frá for-
ráðamönnum liðsins mjög fljótlega.
Þjálfarinn hjá Wolves er búinn að
segja að hann vilji halda mér og
það kemur vel til greina hjá mér að
vera hérna áfram þó svo að liðið
falli. Okkur líkar mjög vel á Eng-
landi en það kemur líka til greina
að ég fari eitthvað annað,“ sagði
Jóhannes sem er í íslenska lands-
liðshópnum sem mætir Albönum í
næstu viku.
Úlfarnir vildu ekki
lána Jóhannes Karl
Jóhannes Karl
KÖRFUKNATTLEIKUR
Keflavík - Grindavík 116:105
Íþróttahúsið í Keflavík, úrslitakeppni
karla, annar leikur í undanúrslitum, Int-
ersportdeildin, mánudagur 22. mars 2004.
Gangur leiksins: 4:4, 19:17, 35:28, 40:33,
40:39, 50:47, 59:55, 63:64, 70:66, 81:79,
86:82, 90:86, 100:92, 107:105, 116:105.
Stig Keflavíkur: Derrick Allen 30, Nick
Bradford 24, Arnar Freyr Jónsson 18,
Magnús Þ. Gunnarsson 17, Fannar Ólafs-
son 17, Sverrir Þór Sverrisson 8, Jón Nor-
dal Hafsteinsson 2.
Fráköst: 18 í vörn - 19 í sókn.
Stig Grindavíkur: Jackie Rogers 24, Ant-
hony Q. Jones 22, Darrel Lewis 21, Helgi
Jónas Guðfinnsson 17, Páll Axel Vilbergs-
son 16, Guðmundur Bragason 5.
Fráköst: 16 í vörn - 14 í sókn.
Villur: Keflavík 23, Grindavík 16.
Dómarar: Aðalsteinn Hjartarson og Björg-
vin Rúnarsson.
Áhorfendur: Um 500.
NBA-deildin
Dallas - New Jersey ............................101:98
Minnesota - Denver ..............................98:77
Golden State - LA Clippers..................96:85
Miami - Washington............................101:81
Detroit - Cleveland................................96:76
Toronto - New Orleans .....................121:120
Seattle - Orlando ...................................84:67
Sacramento - Houston ........................100:95
LA Lakers - Milwaukee....................104:103
HANDKNATTLEIKUR
ÍBV - FH 26:33
Vestmannaeyjar, 1. deild kvenna, RE/
MAX-deildin, mánudagur 22. mars 2004.
Gangur leiksins: 0:1, 1:3, 1:7, 3:8, 4:10, 6:12,
6:16, 8:18, 9:20, 9:22, 12:23, 12:26, 14:27,
17:28, 19:29, 21:29, 22:31, 24:31, 26:33.
Mörk ÍBV: Nína K. Björnsdóttir 7/3, Þór-
steina Sigurbjörnsdóttir 5, Aníta Ýr Ey-
þórsdóttir 4, Guðbjörg Guðmannsdóttir 3,
Ester Óskarsdóttir 2, Edda Eggertsdóttir
2, Anja Nielsen 2, Birgit Engl 1.
Varin skot: Birna Þórsdóttir 5 (þar af 1 aft-
ur til mótherja). Julia Gunimorova 5.
Brottvísanir: 2 mínútur.
Mörk FH: Þórdís Brynjólfsdóttir 8/3, Dröfn
Sæmundsdóttir 6, Guðrún Hólmgeirsdóttir
6, Berglind Björgvinsdóttir 6, Bjarný Þor-
varðardóttir 3, Björk Ægisdóttir 2/1, Gunn-
ur Sveinsdóttir 1, Jóna Heimisdóttir 1.
Varin skot: Jolanta Slapiekene 19 (þar af 2
aftur til mótherja).
Brottvísanir: 4 mínútur.
Áhorfendur: 90.
Dómarar: Helgi Rafn Hallsson og Hilmar
Guðlaugsson.
1. deild karla
ÍBV - Breiðablik................................... 42:27
Mörk ÍBV: Davíð Óskarsson 8/2, Sigurður
Stefánsson 7, Robert Bognar 5, Erlingur
Richardsson 4, Zoltán Belánýi 4, Sindri
Haraldsson 3, Kári Kristjánsson 3, Michael
Lauritzen 3, Guðfinnur Kristmannsson 2,
Ríkharð Guðmundsson 1, Björgvin Rún-
arsson 1.
Mörk Breiðabliks: Ágúst Guðmundsson 6,
Gunnar Jónsson 5, Ólafur Snæbjörnsson 3,
Orri Hilmarsson 3, Kristinn Hallgrímsson
3, Björn Guðmundsson 1, Stefán Guð-
mundsson 1.
KNATTSPYRNA
England, úrvalsdeild:
Leeds - Manchester City ......................... 2:1
Stephen McPhail 23., Mark Viduka 76.
(víti) - Nicolas Anelka 44. - 36.998.
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
Deildabikarkeppni karla
Neðri deild D-riðill:
Boginn: Völsungur – Leiftur/Dalvík ........20
Í KVÖLD
TÆKNINEFND Alþjóðakörfu-
knattleikssambandsins, FIBA,
mun leggja fyrir aðalstjórnina
hugmyndir að breyttum leik-
reglum sem taka munu gildi í
haust eftir að Ólympíuleikunum
lýkur.
Hér að neðan má sjá helstu
breytingarnar sem lagðar eru til.
Heimilt verður að hafa alltaf 12
leikmenn á skýrslu óháð því
hversu marga leiki liðið leikur.
Heimilt verður að vera með
föst númer á búningunum frá 00
upp í 99 í keppnum innanlands og
er hverju ríki það í sjálfsvald sett
hvort það tekur upp slíkt núm-
erakerfi. Í alþjóðlegum leikjum
mun hins vegar ekkert breytast.
Bæði þjálfari og aðstoðarþjálf-
ari mega standa inni í þjálfarabox-
inu á meðan á leik stendur.
Aðeins verður eitt dómarakast í
hverjum leik, þ.e. í byrjun hans.
Annars ræður stefnuörin.
Í öllum leikjum skal heimaliðið
velja varamannabekk og eigin
körfu vinstra megin við ritaraborð-
ið. Áður mátti heimaliðið velja sér
varamannabekk.
Bæði lið fá að skipta um leik-
mann þegar leikbrot er framið.
Áður var það aðeins liðið sem átti
innkastið sem átti réttinn á að
skipta um leikmann.
Refsing fyrir tæknivillu á leik-
mannverður 2 vítaskot og boltinn í
stað eins skots áður.
8 sekúndna reglan breytist
þannig að þegar varnarlið slær
knöttinn út af á sóknarvelli sínum
þá endurnýjast 8 sekúndurnar
ekki hjá sóknarliðinu. Með því er
verið að verðlauna góðan varnar-
leik.
Þriggja sekúndna reglan breyt-
ist þannig að hún tekur ekki gildi
fyrr en sóknarliðið hefur komið
knettinum yfir miðlínu, á sinn
sóknarvöll.
Þegar fyrirliði fer af leikvelli er
það á ábyrgð þjálfara að láta dóm-
ara vita hver er fyrirliði á leikvelli.
Hálfhringurinn sem merktur er
með punktalínu við vítateig fellur
burt þar sem ekki eru lengur tekin
dómaraköst á þeim stað.
Reglubreytingar í
körfuknattleik?
Gerald Krasner, nýr stjórnarfor-maður Leeds, hefur lofað stuðn-
ingsmönnum félagsins að það verði
hægt og bítandi hafið til vegs og virð-
ingar á ný og hann geislaði af gleði
þegar flautað var til leiksloka í gær-
kvöld. Hann upplýsti fyrr um daginn
að ekki hefði mátt tæpara standa því
ef nýir eigendur hefðu ekki gripið inn
í á föstudag og tekið við félaginu hefði
það verið of seint. Sigurinn var ekki
verðskuldaður því City var betri að-
ilinn lengst af en hann kom Leeds upp
fyrir Wolves og í 19. sæti deildarinn-
ar, og nú er liðið aðeins tveimur stig-
um á eftir Portsmouth og Leicester,
og fimm stigum á eftir Manchester
City sem er áfram í mikilli fallhættu.
Stephen McPhail skoraði fyrst fyr-
ir Leeds, beint úr aukaspyrnu, en
boltinn fór framhjá öllum í vítateign-
um og í stöngina og inn. Það var í eina
skiptið sem Leeds ógnaði marki City í
fyrri hálfleik og Nicolas Anelka jafn-
aði verðskuldað, 1:1, mínútu fyrir hlé.
Mark Viduka skoraði sigurmarkið
úr vítaspyrnu korteri fyrir leikslok.
Dómurinn var umdeildur, Daniel van
Buyten var talinn hafa fellt Alan
Smith og fékk rauða spjaldið. Árni
Gautur Arason var varamarkvörður
hjá City sem fyrr. David James stóð í
markinu en ekki varð ljóst fyrr en á
síðustu stundu að hann gæti leikið
vegna meiðsla.
Tvöfaldur sigur-
dagur hjá Leeds
GÆRDAGURINN var stór hjá
enska knattspyrnufélaginu
Leeds. Fyrst var formlega til-
kynnt að nýir eigendur hefðu
tekið við stjórn þess og bjargað
því frá yfirvofandi gjaldþroti og
síðan náði Leeds að komast úr
botnsæti úrvalsdeildarinnar
með afar mikilvægum sigri á
Manchester City, 2:1, á Elland
Road.
Reuters
Nicolas Anelka skoraði mark Manchester City í gærkvöld og
hér er hann með Seth Johnson, leikmann Leeds, á hælunum.
Nýkrýndir deildarmeistarar ÍBV íhandknattleik kvenna spiluðu
sinn sjöunda leik á tíu dögum í gær-
kvöldi þegar FH kom
í heimsókn út í Eyjar.
FH vann mjög
öruggan sigur, 33:26.
Aðalsteinn Eyjólfs-
son, þjálfari ÍBV, notaði tækifærið og
gaf ungu stúlkunum tækifærið í leikn-
um og má segja að þær hafi verið
teknar í kennslustund í fyrri hálfleik
af gestunum. Fjórar stúlkur sem
vanalega leika sem hornamenn í liði
ÍBV byrjuðu inn á og tvær þeirra í
skyttuhlutverkum. FH stúlkur áttu
ekki í vandræðum með að stöðva
sóknarlotur ÍBV og röðuðu hreinlega
inn mörkum á Eyjaliðið og þegar
flautað var til leikhlés hafði FH skor-
að 22 mörk gegn 9 mörkum heima-
liðsins.
Það breyttist í síðari hálfleik, bæði
mættu Eyjastúlkur mun ákveðnari til
leiks en einnig leyfði Sigurður Gunn-
arsson, þjálfari FH, þá varamönnum
sínum að spreyta sig og úr varð leikur
ungu stúlknanna í liðunum. FH stúlk-
ur sigruðu þó örugglega með sjö
mörkum.
Þórdís Brynjólfsdóttir var at-
kvæðamest að vanda í liði FH með
átta mörk úr jafnmörgum tilraunum.
Guðrún Drífa Hólmgeirsdóttir var
einnig með toppnýtingu, sex mörk úr
sex skotum.
Nína K. Björnsdóttir var atkvæða-
mest hjá ÍBV – mest áberandi í sókn-
arleiknum, en nýting hennar var ekki
góð. Þórsteina Sigurbjörnsdóttir spil-
aði mestallan leikinn í hlutverki leik-
stjórnanda og átti ágætan leik.
Auðvelt
hjá FH
í Eyjum
Sigursveinn
Þórðarson
skrifar