Pressan - 05.03.1992, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. MARS 1992
Á L I T
KARL RAGNARS
Á að reka barnaverndarmál
sem dómsmál?
er forstjóri Bifreiðaskoðunar íslands, sem mörgum þykir hafa sýnt óeðlilega mikinn hagnað í skjóli einok-
unarstöðu sinnar. Bæði neytendur og aðilar vinnumarkaðarins hafa gagnrýnt allt of háa gjaldskrá fyrir-
tækisins. Verður þetta almenn þróun þeirra fyrirtækja sem einkaaðilar taka yfir af ríkinu?
ÓÞARFI AÐ LESA
,£r annars við hæfi að Icsa
svona lengi upp úr óbirtum
tímaritsgreinum og viðtölum?
Er nokkuð eftir handa lesand-
anum?“
Ólafur M. Jóhannesson, um lest-
ur Eiríks Jónssonar f útvarpi, Mbi.
4 mars.
Eiríkur Jónsson dagskrár-
gerðarmaður: „Þettavar
svo langt að ég greip rétt ofan
í þetta. Það var alveg nóg eft-
ir.“
ÁGENGIR SÖLUMENN
.Ágengni sölumanna í síma
er óþolandi. Fólk hefur hvorki
frið fyrir hringingum á kvöldin
né um helgar. Ef þessi sölu-
starfsemi í gegnum st'ma held-
ur áfram á almenningur ekki
annars kost en að hætta að
skrá símanúmer sín í símaskrá.
Fólk á rétt á því að fá frið á
heimilum sínum.“
Víkverji, Mbl. 3. mars.
Kristján Baldvinsson,
sölu- og markaðsstjóri hjá
LíFt og sögu: ,Ég hef nú allt-
af litið á þctta sem ákveðna
þjónustu. við höfum til dæmis
verið í mjög þröngum verk-
efnum og ég hef aldrei oröið
var við þcssa ágcngni og segi
einfaldlega nei takk ef eitthvað
er boðið sem vekur ekki áhuga
minn. En ég er að sjálfsögðu
ekki sáttur við „jólasveina-
sölumennsku“.“
AUGLÝSINGAATÓM-
BOMBA
„Auglýsingaheimuripn er
eins og kjamorkuvígbúnaðar-
kapphlaupið. Hann einkennist
af því sem kallað er ,,overkill“
— eins og atómvopnín gætú
margdrepið allt mannkynið ef
í það væri ráðist, þá heáir aug-
Bamavemdaryfirvöld hafa verið gagnrýnd íyrir að
hafa of mikið vald, þar sem rannsóknar- og úr-
skurðarvald er á sömu hendi
— Nú hefur fxrirtcekið sýnt
vemlegcm hagnað, hefur þeim
árangri ekki verið náð í krafti
einokunar?
, J>að má til sanns vegar færa,
en hins vegar er ákvæði f þeim
samningum sem gerðir voru um
að ráðherra þurfi að samþykkja
gjaldskrá fyrirtækisins og er þá
hugsað sem vemdarákvæði fyrir
almenning á móti þessari einok-
un. Það liggur fyrir að ráðherra
hefur samþykkt gjaldskrána sem
fyrinækið hefur farið eftir og
skilað hefur töluverðum hagn-
aði. Það er síðan áformað að
þessi mikli hagnaður fjari út
þegar uppbyggingu er lokið og
þá verði rekstrarhagnaður eðli-
legur. Nú em horfur á að þetta
gangi eftir eins og að var stefnt.
Því er hins vegar ekki að neita
að hagnaðurinn hefur verið
verulegur og hann hefur gen
fyrirtækinu kleift að byggjast
svona hratt upp. Fyrir árið 1990
var hann um áttatíu milljónir
króna og árið þar áður um þijá-
tíu og sjö milljónir. Það er ljóst
að á síðasta ári dró verulega úr
honurn."
— Nú kvarta bæði neytendur
og aðrirxfir liárri gjaldskrá.
, J>að skal á það bent að þegar
til var stofnað 1988 og menn
ætluðu sér að gera þetta svona
þá voru aðstæður í þjóðfélaginu
allt aðrar en nú er, en ég segi
fyrir mitt leyti að mér finnst það
ekkert skritið að við fáum þessa
gagnrýni núna á sama tíma og
þrengingar em miklar í þjóðfé-
laginu. Það varð af jjessu mikill
hagnaður og það er búið að
byggja þetta hratt upp; hvomgt
verður aftur tekið. En núna er
þetta allt að komast íjafnvægi."
— I hvað hefitr hagnaðurinn
farið?
,Fyrir utan að greiddur hefur
verið tíu prósenta arður af hluta-
fé hefur hver einasta króna farið
í uppbyggingu."
— Hafa fjáifestingar verið
miklar?
„Fastafjármunir, sem em þær
fasteignir sem stofnað hefur ver-
ið til, tæki og þess háttar hlutir,
em upp á 389 milljónir króna."
— Telur þú það fxrirkomulag
œskilegt, að þegar einkafram-
takið xfirtekur rikisrekstur sé
það ífonni einokunar?
,Fg bendi á að einokun tíðk-
ast og fyrirfinnst víða í þjóðfé-
laginu og það er í sjálfu sér eng-
in skyndilausn til á henni, enda
þjóðfélagið lítið og markaðir
smáir. Eg hins vegar mæli ekki
með einokun og er talsmaður
samkeppni. Ég tel að það eigi að
hafa samkeppni í þessum mál-
um sem öðrum, að svo miklu
leyti sem því verður við komið,
en bendi jafnframt á að allri
samkeppni verða að fylgja leik-
reglur og fyrirtæki sem standa í
svona þjónustu verða að upp-
fylla mjög ákveðnar og sterkar
gæðakröfur. Það má enginn
vera undanskilinn í þeim efnum
vegna þess að almenningur
verður að geta treyst þeirri þjón-
ustu sem það fær. Auk þess þarf
að gæta hlutleysis mjög vel.“
— Nú Itafa komið fram þœr
httgmxndir að setja skoðttn öktt-
tækja tít á bifreiðaverkstæðin.
Hven erþitt álit?
„Ég er eindregið mótfallinn
því. Ekki vegna þess að bif-
reiðaverkstæðin geti ekki skoð-
að, heldur vegna hlutleysiskröf-
unnar. Það á enginn, og má eng-
inn. vera dómari í eigin sök. Eg
er hins vegar ekki mótfallinn
þeirri hugmynd að aðrir aðilar
en Bifreiðaskoðun íslands fái að
skoða bíla, að því gefnu að þeir
uppfylli þessar reglur sem settar
eru, gæti hlutleysis og eigi engra
annarra hagsmuna að gæta."
— Hjá xkkttr Itefitr verið há
gjaldskrá, er ekki hætta á að
svipað fari fxrir öðrum ríkis-
reknttm fxrirtækjum sem seld
ent einkaaðilum?
„Jú. og þama ber ríkinu að
fara mjög varlega og það er ekki
hægt að neita því að einkavædd
einokun er í skjóli ríkisins. Jafh-
vel þótt ráðherrar hafi gjald-
skrána í hendi sér er alltaf
ákveðin hætta á að það \erði til-
hneiging hjá þessum fyrirtækj-
um til að bruðla með peninga,
til þess einmitt að halda uppi
gjaldskrá. Einnig geta afskipti
opinberra aðila valdið erfiðleik-
um og hagsmunir stjómast af
öðru en hagsmunum fyrirtækis-
ins.“
— Þena erþá fiókið mál?
.JMjög.“
lýsingaskothríðin smám sam-
an deyft öll viðbrögð við þeim
fyrirheitum sem í auglýsing-
um eru.“
Árni Bergmann í Helgarblaöinu
28. feb.
Gunnar Steinn Pálsson,
framkvæmdastjóri Hvíta
hússins: „Ég er sammála og
ósammála. Eftir því sem upp-
lýsingafiæði eykst í heiminum
fer minna og minna fyrir
hverjum skilaboðum og vopn-
in bíta ekki jafn vel og þau
gerðu. Ég upplifi hins vegar
hvorki auglýsingar né kynn-
jnngarstarf eða miðlun upplýs-
inga sem eitthvað sem komið
er „overkill" í. en máttur end-
urtekningarinnar blífur í aug-
lýsingum eins og svo niörgu
öðru.
Árni er ef til vill svolítið
pirraður. ég skil hann vel.“
KLÆMST VIÐ KENNAR-
ANN
„í dag þykir hallærislegt
meðal unglinga að stunda nám
sitt sæmilega. Slíkir krakkar
þykja leiðinlegir, ef ekki
skrýtnir eða vangefnir. „Töf-
farinn“ er ímyndin — sérstak-
lega ef hann er latur, hyskinn
og ósvífinn. Það er mjög
„töff“ að sofa í tímum hjá
kennurunum. helst á gólfinu.
Einnig er sniðugt að brúka
kjaft og snúa út úr, þegar mað-
ur er ólesinn, og hámarkið er
að hafa kjark til að klæmast,
helst við kennarann."
Oddur Bjömsson rithöfundur,
kjallari DV 4. mars.
Kjartan Örn Ólafsson, ár-
maður skólafélags MS:
„Ætli hann sé ekki bara
nokkrum árum of seinn. Það
er ekki meira satt í þessu núna
en oft áður. síður en svo. Þaö
er einmitt uppsveifla hjá
mörgu ungu fólki að standa
sig.“
SVELTANDI MJÓLKUR-
KÝR
..en þó skirrast bankamir
við að lækka vextina. Hrina
gjaldþrota hlýtur vitaskuld að
lenda harkalega á bönkunum
sjálfum. Skilja þeir ekki. að
með því að svelta mjólkur-
kýmar hægt og hægt til bana
munu þeir sjálfir á endanum
svelta?“
Leiöari Alþýðublaðsins, 25. feb.
Tryggvi Pálsson, banka-
stjóri Islandsbanka: „Bank-
arnir hafa skilning á því að
velferð viðskiptavinanna er
velferð bankanna um leið. Or-
saka alheimssamdráttar. og á
Islandi um leið. er ekki að leita
í háu vaxtastigi. Það eru
vandamál víðar en hjá okkur
og þau em rniklu fióknari en
svo. að þau sé aðeins að finna
í háum vöxtum í augnablik-
inu.“
KRISTÍN JÓNASDÓTTIR
HJÁ BARNAHEILL
*.r
„Samtökin Bamaheill lögðu til að ef foreldrar geta
ekki komið sér saman um forsjá bama þá eigi það
að vera dómsmál, ekki stjómsýslumál eins og það
• er í dag. Þetta er aftur á móti ekki það sama og
bamavemd. Gagnrýni okkar á bamavemdarráðin
hefur verið að þau em allt of mörg, oft vanhæf til að takast á við
vandamál sem upp koma og þá sérstaklega úti á landi. Það vantar oft
svona þriðja álit um þessi mál.“
SIGRÍÐUR INGVARSDÓTTIR
HÉRAÐSDÓMARI í KÓPAVOGI
„Það hefur bæði kosti og galla að reka málin fyrir
dómstólum. Kosturinn er sá að málsmeðferð yrði
vönduð. Hins vegar yrði mikil hætta á því að með-
ferðin tæki allt of langan tíma miðað Við haginn
sem er að því að fá skjóta úrlausn. Samkvæmt nýju
frumvaipi til laga um vemd bama og ungmenna er að jafnaði gert ráð
fyrir þvi' að það þurfi úrskurð dómara til að bamavemdaj-yfirvöld fari
inn á heimili ef foreldrar samþykkja það ekki fyrir sitt leyti. Það er
breyting fra gildandi lögum. Éf taka þarf bam með valdi þarf, sam-
kvæmt gildandi lögum, úrskurð fógeta á því. Samkvæmt stjómar-
skránni skera dómstólar úr um hvort bamavemdaryfirvöld hafi farið
út fyrir valdmörk sín. Samkvæmt þessu fjalla dómstólar að þessu leyti
um bamavemdarmál.“
*.r
ÓLAFUR ARNARSON
AÐSTOÐARMAÐUR
MENNTAMÁLARÁÐHERRA
„Vandamálið er að þetta eru svo nærgöngul mál.
Eins og kerfið er í dag er hugmyndin sú að vemda
þá sem hlut eiga að máli, að það þurfi ekki að vera
með þetta allt saman fyrir opnum tjöldum. í flest-
um tilfellum er hægt að bæta úr málum með viðtölum, en í einhvetj1-
um tilfellum þarf að grípa til aðgerða. Það hefur verið mat manna að
eðlilegasta leiðin úl að höndla svona mál þegar þau koma upp sé að
reyna að gera það af tillitssemi. Lögin eru um vemd bama og ung-
menna og það er í raun lykilatriði t' þessu máli, að böm og ungmenni
verði ekki fyrir meiri skaða en þegar er orðinn þegar grípa þarf inn í.“
r r
SVALA THORLACIUS
HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR
„Ég sé ekki að það breyú í raun svo miklu
sltk mál yrðu væntanlega rekin fyrir luktum dyrum.
Hins vegar tel ég það hneyksli hvemig fjölmiðlar
hafa ráðist að bamavemdaryfirvöldum að undan-
fömu sem geta ekki vegna þagnarskyldu tekið til
vama. Mín skoðun, sem er byggð á reynslu, er sú að ef bamavemdar-
yfirvöld taka bam af heimili þá sé slíkt alveg árciðanlega byggt á
brýnni nauðsyn. Ég tel reyndar að oft sé slíkt gert allt of seint og böm-
in séu orðin stórskemmd vegna heimilisaðstæðna.“
DAVÍÐ ÞÓR BJÖRGVINSSON
DÓSENT
| „Samkvæmt lögum um vemd bama og ungmenna
em bamavemdarmál af margvíslegum toga, sum
smávægileg, önnur stórvægileg sem snerta mikil-
l væga hagsmuni þeirra sem því tengjast. Sum
ákvæði laganna fela í sér allvíðtækar heimildir op-
inberra aðila til að skerða mikilvæg mannrétúndi. Þegar um þau ræðir
tel ég að leggja beri höfuðáherslu á vandaða málsmeðferð sem taki í
öllum meginatriðum mið af meðferð mála fyrir dómstólum. Sé það
tryggt skiptir ekki höfuðmáli hvort málin eru rekin fyrir dómstólum “
r r
Einokun
engin
lausn
og samkeppni
fylgja ákveðnar
leikreglur