Pressan - 05.03.1992, Blaðsíða 12
12
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5.MARS 1992
Hjá dómstóli í ávana- og
fíkniefnamálum liggur mál á
hendur tveimur mönnum sem
fluttu inn og seldu að mestum
hluta 60 kílógrömm af hassi.
Þetta er mesta magn í einu og
sama fíkniefnamálinu hér á
landi. Ríkissaksóknari gaf út
ákæm í málinu í júlí 1990. Þrátt
fyrir að rúmlega eitt og hálft ár
sé liðið frá því ákæran var gefin
út hefur hún ekki verið birt
mönnunum. Þetta þýðir að ekk-
ert hefur verið gert í málinu hjá
dómstólnum.
,Aitli það sé ekki vegna þess
að við höfum meira að gera en
við getum afkastað," sagði Ás-
geir Friðjónsson, dómari við
sakadóm í ávana- og fíkniefna-
málum, þegar PRESSAN spurði
hann hverju þetta sætti.
Það var á árinu 1988 að
mennirnir tveir, Hallgrímur
Másson og Siefán Einarsson
viðskiptafrœðingur, vom hand-
teknir.
Hallgrímur var handtekinn
ásamt sendibílstjóra þegar þeir
voru að koma málningarfötum
fyrir í bílskúr í Fossvogshverfi í
Reykjavík. I málningarfötunum
vom um 10 kílógrömm af hassi.
Við yfirheyrslur kom í ljós að
áður höfðu verið flutt inn um 50
kflógrömm af hassi með þessum
sama hætti.
Áður en til handtökunnar
kom hafði lögregla fengið vitn-
eskju um hvað fötumar höfðu
að geyma. Mennimir náðu ekki
sjálfir í fötumar í vömgeymslu
Eimskips í Hafnarfirði, heldur
sendu sendibflstjóra, sem vissi
ekkert um glæpinn.
Sendibflstjóranum var gert að
fara með fötumar að ákveðnu
húsi í Fossvogi. Þar beið Hall-
grímur hans. Lögregla vissi af
því að búið var að sækja fötum-
ar og sendibílnum var fylgt
eftir.
LEIFITJRSÓKN
LÖGREGLU
Þegar byrjað var að af-
ferma bflinn lét lögreglan,
undir stjórn Arnars Jens-
sonar, þáverandi yfirmanns
fíkniefnadeildarinnar, til skar-
ar skríða. Hallgrímur og
sendibílstjórinn voru hand-
teknir. Snemma kom í ljós að
bflstjórinn var saklaus af öllu og
honum því sleppt. Hallgrím-
ur játaði flest í mál-
inu og snem
ma
beindist
gmnur
að Stef-
Ásgeir Friðjónsson, dómari 1 sakadómi í ávana- og fíkniefnamálum. Hann segir að ástæða þess,
að ekkert hefur verið gert 1 stærsta fíkniefnamáli sögunnar hér á landi, sé sú, að svo mikið sé
að gera aö hann og aöstoöarfólk hans anni ekki því sem fyrir liggur. Hann hefur valiö að af-
greiða smærri málin en láta stærsta málið kyrrt liggja.
skurðaðir í gæslu-
varðhald og rann-
sókn málsins
keyrð áfram af
öllu afli. Áður en
langt um leið var
málið fullrannsak-
að og sent til ríkis-
saksóknara.
Ákæra var síðan
gefin út í júlí
1990, eins og fyrr
sagði, en þá hafði
málið verið um
eitt ár hjá ríkissak-
sóknara. Síðan,
eða í eitt og hálft
ár, hefur það sofið
svefninum langa,
þrátt fyrir að hér
sé um að ræða
stærsta fíkniefna-
mál hér á landi, að
minnsta kosti ef
mælt er eftir
magni.
Björn Halldórsson, yfirmaöur fíkniefna-
deildar. Eftir að hann tók viö starfinu hafa
orðið talsverðar mannabreytingar og sam-
bönd við fólk í undirheimunum þar með
tapast.
FJOGUR KILO TEKINI
LEIFSSTÖÐ
Nokkru eftir að rannsókn
lauk á „málningarfötumálinu",
eða í maí 1989, var kona, Bryn-
dís Valbjörnsdóttir, handtekin í
Leifsstöð. I fórum hennar fund-
ust fjögur kflógrömm af hassi.
Hún hafði tengst hinu málinu
talsvert. Hún er meðal annars
ákærð fyrir að hafa selt fyrir þá
Stefán og Hallgrím milli sjö og
átta kfló af hassi. Hún var ekki
ákærð samhliða þeim, heldur
nokkru síðar, og þá fyrir söluna
og að hafa flutt inn þau fjögur
kfló sem áður er getið um. Eins
og fyrr segir er búið að ákæra
Bryndísi, en henni hefur ekki
verið birt ákæran enn.
í núgildandi lögum er ekkert
sem segir hversu langan tíma
dómari hefur til að birta ákærur.
Með lagabreytingum sem taka
gildi 1. júlí í sumar verður dóm-
ari að birta ákæmr innan þriggja
vikna.