Pressan - 05.03.1992, Blaðsíða 8

Pressan - 05.03.1992, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR PRBSSAN 5. MARS 1992 » M. egar Wiesenthal-stofnunin í ísrael hringdi í Eðvald Hinriksson fyrir skömmu til að fá staðfest að hann væri enn á lífi á íslandi var það gert undir því yfirskini að til stæði að bjóða Eðvald á mót fyrrum lög- reglumanna í Eistlandi. Eðvald hef- ur sagst eiga boð til Eistlands í sum- ar, en ekki er vitað hvort þar er um að ræða sama boðið ... H inn umdeildi fundur grunn- skólanemenda á Lækjartorgi 13. febrúar hafði ýmsa eftirmála. Meðal annars tók fræðslustjóri Reykjavík- ur, Áslaug Brynjólfsdóttir, sig til og kannaði meðal skólastjóra á höf- uðborgarsvæðinu hvernig staðið var að fundarboðinu. Voru skóla- stjórarnir yfirheyrðir um það hve margir nemendur hefðu farið úr hverjum skóla og hver hefði veitt leyfi til fararinnar. Einnig kannaði Áslaug hvort kennarar hefðu hvatt nemendur til að fara. Áslaug gerði síðan grein fyrir athugunum sínum í skólamálaráði, en ekki þótti ástæða til frekari aðgerða ... ✓ Islenskar markaðsrannsóknir, fyr- irtæki Skúla Gunnsteinssonar handboltamanns og fleiri, hefur gert 1.200 manna skoðanakönnun fyr- ir aðstandendur Kolaportsins. Meðal þess sem fram kem- ur í niðurstöðunum er að sem samsvarar 62 prósenluij) þjóð- arinnar hefur heimsótt markaðinn minnst einu sinni, en hlutfallið er 75 prósent fyrir íbúa höfuðborgar- svæðisins. 4 prósent aðspurðra töldu sig hafa komið oftar en 23 sinnum í Kolaportið. Ef einhver skyldi halda að efnaminnsta fólkið fari frekar en ríka fólkið í Kolaportið má geta þess að könnunin sýndi engan marktækan mun á fjölda heimsókna eftir tekjum ... s k-rjávarútvegsráðherra, Þor- steinn Pálsson, skipaði sem kunn- ugt er nefnd til að móta framtíðar- skipulag í sjávarút- vegi. Tveir formenn eru fyrir nefndinni, Þröstur Ólafsson, aðstoðarmaður ut- anríkisráðherra, og Magnús Gunnars- son, framkvæmda- stjóri SÍF. Magnús getur vart talist hlutlaus þar sem hann er stjórnar- formaður eins stærsta sjávarútvegs- NÝR 06 STÆRRI FJÖLSKYLDURÍLL 2 LADA SÝNING ÍDAG BIFREHJAfí & LANDBUNAÐARVELAR HF. Ármúla 13108 Reykjavík Símar 681200&312 36 l/ið kynnum nýja útgáfu af Lada Samara (Lada Samara stallbak). Þessi bíll er 20 cm lengri en hin heföbundna Samara og rúmbetri. Bíllinn hentarþví vel fjölskyldufólki. Lada Samara stallbakur er fimm manna og með lokaðri farangursgeymslu (skotti). Komið og skoðið nýja Samara bílinn ásamt fjölbreyttu úrvali at öðrum Lada bíium. Ifið bjóðum upp á kaffi og með því og krakkar fá ís og gos. SÓL entínéss1 fyrirtækis á landinu, Haralds Böðv- arssonar á Akranesi. .. U ndanfarið hefur verktakafyrir- tækið Hagvirki-Klettur sótt það fast að fá verkframkvæmdir við Reykja- víkurhöfn. Það eru framkvæmdir við mið- og austurbakka sem stendur til að ráðast í, en þrátt fyr- ir ýtni Jóhanns Bergþórssonar og félaga hefur erindi þeirra ekki verið samþykkt. .. I-Jeikfélag Fjölbrautaskólans í Garðabæ frumsýnir á morgun, föstudag, söngleikinn ,,Gretti“ eftir Ólaf Hauk Símon- arson, Þórarin Eldjárn og Egil Ól- afsson. Fimmtán leikendur taka þátt í sýningunni auk fjög- urra manna hljóm- sveitar. Leikstjóri er Sigurþór A. Heimisson og söng- stjóri Sigurður Halldórsson. Sýnt er í Fjölbrautaskólanum . . . Horgarráð hefur samþykkt að styðja tvo tónlistarmenn til hljóm- leikaferðar til Bandaríkjanna. Þetta eru tónlistarmenn- irnir Hilmar Örn Hilmarsson, sem getið hefur sér frægðarorð vegna tónlistarinnar í Börnum náttúrunn- ar, og blúsarinn Halldór Bragason. Þeir félagar fá 150.000 krónur hvor í farareyri frá borginni ... ✓ I Suðurnesjafréttum er sagt frá því að fjármálaráðuneytið hafi ákveðið að ganga til samninga við íbúasam- tök Grænásblokkanna svokölluðu um kaup á húsunum. Blaðið kveðst hafa heimildir fyrir því að ekki hafi verið gengið að hæsta tilboði, sem hafi hljóðað upp á 68 milljónir króna og komið frá aðila í Kefla- vík ... ✓ I könnun Islenskra markaðsrann- sókna fyrir Kolaportið kom fram að tæplega 6 prósent aðspurðra hefðu leigt sölubás eða selt á markaðin- um. Þetta hlutfall virðist kannski ekki hátt, en ef miðað er við aldurs- hópinn 20 ára og eldri samsvarar þetta hlutfall því að á milli 10 til 11 þúsund manns á þessum aldri hafi selt í Kolaportinu . .. I

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.