Pressan - 05.03.1992, Page 18
18
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5.MARS 1992
Bolungarvík
ÆTTARVELDID SKILABI
SKELJUNGSUMBOBINU
Skipt hefur verið um um-
boðsmann Skeljungs á Bolung-
arvík.
Er þar með lokið áratugasam-
skiptum Skeljungs og fyrirtækis
Einars Guðfinnssonar hf. á Bol-
ungarvík. Það var reyndar að
frumkvæði Einars Jónatans-
sonar, framkvæmdastjóra EG,
sem samningnum var sagt upp.
Var það í tengslum við endur-
skipulagningu fyrirtækisins.
Tengslin á milli Skeljungs og
EG hafa reyndar alltaf verið
mikil, enda eru synir Einars
heitins Guðfinnssonar stórir
hluthafar í Skeljungi.
Reyndar fer umboðið ekki
langt frá ættarveldinu því nýr
umboðsmaður, Einar Guð-
nuuidsson, sem tók við um síð-
ustu áramót, er sonur Guð-
nmndar Einarssonar sem verið
hefur yfirverkstjóri íshúsfélags
Bolungarvíkur. Einar var sjálfúr
verkstjóri í frystihúsinu áður en
hann tók við umboðsmennsku.
Ljóst er að sala á Rfó tríó-
plötunni, sem gefin var út fyrir
jólin f þágu Landgræðslunnar,
hefurekki gengið sem skyldi.
Voru um 20.000 eintök af
plötunni framleidd en eftir því
sem næst verður komist seldust
ekki nema í mesta lagi 10.000
eintök.
Nákvæm tala um söluna ligg-
ur ekki fyrir ennþá, en Ijóst að
hún hefur ekki skilað hagnaði
sem skyldi í sjóði Landgræðsl-
unnar. Ætlunin er að reyna nýtt
söluátak í vor.
Samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR hefur gætt
nokkurrar óánægju meðal land-
græðslumanna með hve lítið af
söfnunarfénu skilar sér í raun til
landgræðslumála. Sveinn Run-
ólfsson landgræðslustjóri sagði
að í aðalatriðum væru land-
græðslumenn ánægðir með
framtakið, en játaðí að ákveðinn
ágreiningur hefði komið upp
við dreifingarfyrirtækið Steina
hf. um skil á sölufénu til Land-
græðslunnar.
Þá munu kostnaðariiðir við
framtakið hafa orðið hærri en
gcrt var ráð fyrir, svo sem
kostnaður við sjónvarpsþátt
sem gerður var til að hrinda
átakinu af stað. Einnig vofu
hljóðfæraleikurum greidd laun
og þá fá höfundar efnis, þeir
Gunnar Þórðarson og Jónas
Friðrik, STEF-gjöld. Þá hefur
verið rætt um að hljómsveitar-
meðlimir Ríó tri'ós fái greitt
tímakaup vegna upptöku, en
þeir afsöluðu sér ágóðahlut sín-
um að öðru leyti.
Hámarksálagning á farmflutningum skipafélaganna:
FELLD ÚR GILDI
Verðlagsráð hefur ákveðið að fella úr gildi ákvæði um hámarks-
álagningu á farmgjöldum skipafélaga frá og með 1. apríl næstkom-
andi. Þetta gerist á sama tíma og skipafélögunum hefur fækkað úr
þremur í tvö með kaupum Samskips á eignum Ríkisskips.
Að sögn Georgs Ólafssonar verðlagsstjóra hefur verið frjáls
verðlagning á stórfiutningum, en að forminu til hámarksverðlagning
á stykkjavörufiutningum um langt skeið.
.JVIargt hefur breyst með tilkomu gámanna og það er staðreynd
að gjöldin hafa lækkað hlutfallslega. Almenna stefnan hefur verið
að hverfa frá verðlagsákvæðum og nú höfum við ákveðið að snúa
okkur að samgöngugeiranum. Við höfum ástæðu til að ætla að það
megi ná betri árangri með fijálsri álagningu." í nýrri reglugerð eru
ákvæði um bann við hvers konar samráði skipafélaganna á milli.
um tilkynningaskyldu um alla samninga og samþykktir um sam-
keppnishömlur, um skýrar verðskrár. um eftirlit og upplýsinga-
skyldu Verðlagsstofnunar og um endurskoðun á þessum breyting-
um að ári liðnu í Ijósi reynslunnar. Georg var spurður hvort sam-
keppni skipafélaganna í farmfiutningum væri nægilega mikil til að
réttlæta breytingamar.
,J>ví er ekki að leyna að við höfum haft markaðsráðandi fyrirtæki
á þessum vettvangi, Eimskipafélagið. sem hefur haft yfir helnting
markaðarins og kannski vel rúmlega það. Þetta hefur verið fákeppn-
ismarkaður. En með þessu viljum við láta á það reyna hvort sam-
keppnin eykst, enda telja menn sig ekki hafa náð árangri með verð-
lagsákvæðum. Þá er þess að geta að þetta er bara fyrsta skrefið og
langt í frá tæmandi aðgerð,“ sagði Georg.
Fjárfestingarfélag íslands. Markaðshlutdeild VFFÍ er komin niður í 31 prósent, en fyrir fáeinum árum hafði þetta veröbréfafyr-
Irtæki yfirburðastöðu á markaðinum.
ÞRIGGJA MlllJARBA
usúmmjmiasSimíSiiimlííasmi
SAMBBATTUR HJA
fmmmmwmmmm/mímsmB
VEBBBRÉFASJÓBUNUM
Eignir Verðbréfamarkaðar Fjárfestingarfélagsins rýrnuðu um 1,4
mílljarða á síðasta ári og eignir Verðbréfamarkaðar Islandsbanka
um nær milljarð.
Verðbréfaeign verðbréfasjóða
landsins dróst saman um þrjá
milljarða að raungildi á síðasta
ári eða um 21 prósent.
Lækkunin var sýnu mest síð-
ustu fjóra mánuði ársins, þegar
verðbréfaeignin féll úr 13,5
milljörðum niðurí 11,1 milljarð.
Aðeins í desember minnkaði
verðbréfaeignin urn 800 millj-
ónir króna.
Forstöðumenn vcrðbréfafyrir-
tækjanna eru á einu máli um
ástæður samdráttarins; sjóðimir
gátu ekki- keppt við spariskír-
teini ríkissjóðs og húsbrélin auk
þess sem sparnaður dróst al-
mennt saman. Útstreymið varð
langmest hjá Verðbréfamarkaði
Fjárfestingarfélagsins. en eignir
hans drógust saman um nálægt
1.350 milljónum króna.
21 prósents samdráttur verð-
bréfasjóðanna á síðasta ári er
geysileg viðbrigði miðað við
þróunina síðustu árin. þegar
sjóðimir bólgnuðu út um helm-
ing á hverju ári; verðbréfaeign
þeirrajókst um 55 prósent 1988,
um önnur 55 prósent 1989 og
um 46 prósent 1990.
HELMINGUR SAMDRÁTT-
ARINS HJÁ FJÁRFEST-
INGARFÉLAGINU
Sjóðir allra verðbréfafyrir-
tækjanna fjögurra drógust mikið
saman síðustu fjóra niánuði árs-
ins. en þegar upp var staðið
hafði innbyrðis markaðshlut-
deild raskast talsvert. Nýjasta
verðbréfafyrirtækið. Landsbréf.
jók þannig markaðshlutdeild
sína og þar gætti samdráttarins
mjnnst. Eignir Landsbréfa juk-
ust um nærri 600 milljónir á ár-
jnu, sem er tvöföldun. og mark-
aðshlutdeildin jókst um leið úr
4,6 prósentum í 10.4 prósent.
Hin verðbréfafyrirtækin
máttu hins vegar sætta sig við
mikinn samdrátt. Eignir Verð-
bréfamarkaðar Fjárfestingarfé-
lagsins, sem lcngi hafði yfir-
burðastöðu á markaðinum,
drógust saman um nálægt 1.350
milljónum eða úr 4.9 milljörð-
um í um 3.6 milljarða og niark-
aðshlutdeildin minnkaði úr 37
prósentum í 31.1 prósent. Verð-
bréfamarkaður Islandsbanka
mátti einnig sætta sig við tals-
verðan samdrátt. Eignir VÍB
drógust saman um hátt í 900
milljónir eða úr tæplega 5 millj-
örðum í tæplega 4 milljarða.
Markaðshlutdeild VÍB
minnkaði um leið úr 36.4 pró-
sentum í 34.8 prósent.
Kaupþingi tókst að takmarka
samdrátt sinn við um 340 millj-
ónir króna. heildareignir lækk-
uðu úr 3 milljörðum niður í
rúmlega 2.6 milljarða og mark-
aðshlutdeildin hækkaði úr 22.7
prósentum í 23.7 prósent.
EKKI SAMKEPPNISFÆR
VEÐ SPARISKÍRTEININ
Talsntenn verðbréfafyrirtækj-
anna voru sammála um megin-
ástæðu samdráttarins: hún er
fyrst og fremst sú. að verðbréfa-
sjóðimir hafa ekki getað keppt
við ávöxtun húsbréfa en þó
einkum spariskírteina ríkissjóðs
auk þess sem spamaður dróst al-
mennt saman og útstreymi fór
vaxandi seinni hluta árs.
.Frá hausti 1990 dróst spam-
aður mikið saman og vextir
hækkuðu. Þannig höfðu vextir
spariskírteina og húsbréfa
hækkað unt 2 prósentustig þegar
þeir voru hæstir og þegar þeir
hækka lækkar gengi verðbréf-
anna. Á síðasta ári voru verð-
bréfasjóðimir að mæta þessum
breyttu aðstæðum og ávöxtunin
lækkaði. Frameftir ári voru
verðbréfin ekki samkeppnisfær
og fjárfestar færðu sig yfir í
önnur form. Nú er jafnvægi að
komast á að nýju og þegar stað-
an er metin í heild get ég ekki
sagt að við höfum átt við erfið-
leika að etja. Eg reikna með að
við komum út nálægt núllinu
eftir síðasta ár. eftir 28 milljóna
króna hagnað 1990.“ sagði Frið-
rik Jóhannsson. forstjóri Fjár-
festingarfélagsins.
„ENGIN UNDUR OG STÓR-
MERKI“
.Fyrst og fremst erum við að
tala um samdrátt í peningaleg-
um spamaði og innbyrðis vaxta-
breytingar sparnaðarforma."
sagði Þorsteinn Guðbrandsson
hjá Landsbréfum.
..Spariskírteini ríkissjóðs voru
með betri kjör. en nú er það að
breytast afmr. Ég reikna með að
verðbréfasjóðimir muni halda
ávöxtun sinni og jafnvel
hækka." ..Við eruni ekki að tala
um nein undur og stórmerki."
sagði Guðmundur Hauksson.
forstjóri Kaupþings. .JÉg lít svo
á að samdrátturinn sé ósköp
eðlilegur miðað við aðstæður og
óvenjulega samkeppni. En nú
fara vextir spariskírteina lækk-
andi og bankavextir sömuleiðis
og eignir sjóðanna fara hækk-
andi f verði.
Það er staðreynd að í fyrra
var spamaður nánast enginn og
er það í fyrsta skiptið sem slíkt
gerist frá 1982. Þrátt fyrir allt
skiluðum við hagnaði á síðasta
ári. þótt hann væri minni en við
höfðum vonast til. og ég er
bjartsýnn um að þetta ár verði
mun vænlegra. enda aðstæður
allar hagstæðari.“
Friðrik Þór Guðmundsson
-Elj Sj JJTJ SJZílDElIíZstÁSlJZJDJ-MJj'Ja\
I :j/JjLLj6jJ UjVJ -ÍÍTíÓiIA Á 'JETíULASI 'ri'JETtZ ÁTi3
I I Desemher 1990
VFFÍ VÍB Kaupþing Landsbréf