Pressan - 05.03.1992, Síða 48
48
FIMMTUDAGUR PRBSSAN 5. MARS 1992
Pétur Björn Jónsson er
ncmandi í máladcild Mennta-
skólans í Reykjavík og jafn-
framt superior custos þess
ágæta skóla. Hann er tvítug-
ur sporðdreki og ekki á föstu.
Hvað er superior custos?
„Það er yfirmaður gæslumála
Menntaskólans."
Hvað borðarðu í morgun-
mat? „Komfleks."
Kanntu að elda? „Ég sýð
vatn afskaplega vel.“
Hvar myndirðu helst vilja
búa ef þú ættir þess ekki kost
að búa á íslandi? „Á miðri
Cobacabanaströndinni í Ríó.
Mér sýnist það vera einna sól-
ríkasti staðurinn, það er fúllkalt
héma.“
Hvernig stelpur eru mest
kynæsandi? „Dökkar yfirlit-
u
um.
Hefurðu lesið biblíuna?
, Já, ekki alla reyndar en svona §
hluta og hluta.“
Ertu trúaður? „Hóflega."
Gætirðu hugsað þér að
reykja hass? „Nei, það er
þokkaleg vitleysa.“
Hvaða rakspíra notarðu?
„Davidoff."
Hvað er þér verst við? „Að
tapa í fótbolta."
Ferðu einn í bíó? „Nei, ég
fer ekki einn í bíó.“
Syngurðu í baði? „Ekki ef
ég er einn.“
Hefurðu verið til vandræða
drukkinn? „Það fer eftir því
hvað þú kallar vandræði. Ég er
ákaflega skemmtilegur dmkk-
inn.“
Er ungt fólk meðvitað um ;
hættuna á eyðni? „Nei, mjög fj
takmarkað. Það halda allir að
þetta geti ekki komið fyrir þá.“ j;
Hugsarðu um og hefurðu
áhuga á stjórnmálum? „Já, É
annað væri óeðlilegt. Ég kaus j§
Davíð af því hann er Framm-
ari.“
Hvaða orð lýsir þér best?
„Þokkalegur."
Áttu þér eitthvert mottó í ■
lífinu? „Að verða ríkur.“
FRIPURINN
ÚTI HJÁ
MÍR>
Allt virðist með kyrrnm kjör-
um í þessu litla húsi í bakgarði
við Vatnsstíginn, en þó þykj-
umst við viss um að innandyra
sé ýmislegt á hverfanda hveli.
Þama hefur nefnilega um árabil
starfað félagsskapurinn Menn-
ingartengsl íslands og Ráð-
stjórnarríkjanna, öðru nafni
MÍR, en sú skammstöfun mun
víst þýða friður á rússnesku,
hvorki meira né minna. Og
þarna hafa Islendingar getað
fengið smjörþefinn af sovésk-
um kúltúr — lesið tímarit,
fengið lánaðar bækur og séð
afar listrænar kvikmyndir.
En nú eru Sovétríkin ekki
lengur til og allsendis óvíst að
MIR fái lifað þau. Stjóm fé-
lagsins hefur boðað til aðal-
fundar síðar í mánuðinum og
þar verður spurt spurningar
sem sjálfur Lenín orðaði ein-
hverju sinni sisvona: Hvað ber
að gera?
Á að leggja félagið niður? Á
það að tengjast Rússlandi í stað
Ráðstjórnarríkjanna? Eða þá
Samveldi sjálfstæðra ríkja eins
og það leggur sig?
En listrænu kvikmyndasýn-
ingarnar í litla húsinu standa
ennþá yfir og á sunnudaginn
verður þar sýndur annar hluti
myndarinnar Æska Maxíms
eftir þá Kozintsév og Trauberg.
Það er alveg óhætt að tékka á
því — og ekki skemmir fyrir að
aðgangur hefur yfirleitt verið
ókeypis.
Listrænar bíómyndir eru
ennþá sýndar í litla salnum
viö Vatnsstfg.
L í F I Ð E F T I R
V I N N U
Ingvar Jónsson, einn Dallas-aödáendanna frá Neskaupstaö.
Hann spilar ekki á þetta tæki sem hann heldur á.
DALLAS-
DRENCIR
„Það fara að verða komin tíu
ár frá því hljómsveitin var stofn-
uð en á þessum ámm hafa orðið
töluverðar mannabreytingar,"
segir Ingvar Jónsson, hljóm-
borðsleikari Sú Ellen frá Nes-
kaupstað.
Þeir Dallas-drengir að austan
eru á leið í bæinn og ætla að
spila á Gauk á Stöng á föstu-
dags- og laugardagskvöldið en
nú er talsvert um liðið frá þvf
Reykvíkingum gafst síðast tæki-
færi til að heyra og sjá Sú Ellen.
I sveitinni eru nú, auk Ing-
vars, Guðmundur R. Gíslason
söngvari, Steinar Gunnarsson
bassaleikari, Bjarni H. Krist-
jánsson gítarspilari og Jóhann
Geir Arnason trommari.
Sú Ellen sendi frá sér fjögurra
laga plötu árið 1987 en stór
plata kom síðan á markað 1990.
Nú hefur hljómsveitin sett stefn-
una á hljóðver og segir Ingvar
að öruggt sé að eitthvað komi út
með þeim í sumar.
VINIt>
SIGURÐUR
ÞÓRÐARSON
tannlæknir
„Mitt uppáhaldsvín er
Faustino fvrsti, sem er
spáinskt Rioja-vín. Það er
sama hvaða vín önnur ég
hefsmakkað, alltaf þykir
mér þetta vín hest. Miðað
við verð held ég að Faust-
ino fyrsti sé besta vín í
heimi. “ illjl
OÐRUVÍSI MYNDBÖND
Myndbandaleigur eru ágætis
fyrirbæri og í raun er ekkert
nema gott um þær að segja
flestar. Þar getur maður fengið
þær myndir sem maður hefur
misst af í bíó á síðustu mánuð-
um en langar samt dáh'tið til að
sjá. Á þeim eru amerískar
myndir í miklum meirihluta,
eins og reyndar í bíóunum, og
myndir frá öðrum heimshlutum
sjást varla nema þær hafi unnið í
það minnsta ein Óskarsverð-
laun. Eigendur leiganna sjá ekki
ástæðu til að bjóða okkur upp á
annað en Hollywood og kannski
ekki furða þar sem myndir frá
draumasmiðjunni eru óneitan-
lega vinsælastar.
Á þessu er þó að minnsta
kosti ein yndisleg undantekning.
Aðalvídeóleigan á Klappar-
stíg býður hreint ágætt úrval
mynda frá ýmsum afkimum
veraldarinnar; þýskar, franskar,
argentínskar, kínverskar, jap-
anskar, ítalskar, rússneskar og
hver veit hvað. Eigandinn legg-
ur metnað sinn í að sinna þeim
sem vilja sjá menningarlegar og
góðar kvikmyndir og segist eiga
stóran kúnnahóp sem kunni vel
að meta þessa viðleitni. Svo
verðum við að segja ffá því að á
Aðalvídeóleigunni er hægt að fá
þá dásamlegu cultmynd The att-
ack of the killing tomatoes. Hún
er að vísu amerísk, en það er
ólýsanleg upplifun að berja
hana augum.
'JtrCCtCfiWCC
DINNER
JOHANN
ASMUNDSSON
tónlistarmaður
PRESSAN bað Jóhann
að sjá um kvöldverðinn
þessa vikuna.
Jóhann mátti að sjálf-
sögðu bjóða hverjum sem
er og þetta eru gestir hans:
Jaco Pastorius
til að segja mér hvað
hann var að hugsa
Charles Lindbergh
til að hjálpa mér að kom-
ast yfirflughræðsluna
Natalie Cole
til að taka nokkra
„standarda" fyrir gesti
Bruce Sweden
á að tryggja gott sánd og
kenna mér það nýjasta í
upptökutækni
Marcus Miller
á að kenna mér nýjustu
„likkin“
Sigurður Gröndal
til að vera með grín og
segja nokkrar sögur
Frank Zappa
til að sjá um að veislan
verði sem fjölskrúðugust
Jakob Ó. Jónsson
til halds og trausts
Bill & Bob
eiga að veita veislunni
hátíðlegt yfirbragð og sjá
um að allt fari fallega fram
Hvemig stendur eiginlega á
því að Matthías Bjarnason á
að komast upp með það að
kássast upp á annarra manna
takka niðri í þingi? Er ekkert
réttlœti í þessu þjóðfélagi leng-
ur? Ekki komst ég upp með að
svindla á prófum í skólanum í
gamla daga. Eg var rekinn. Og
það sem meira er og miklu al-
varlegra; ekki kemst ég upp
með að teygja mig í annarra
manna glös á barnum. Aldeilis
ekki. Eg get meira að segja
sýnt ör því til sannindamerkis.
hæfileikaríkur náungi) er meö
þeim flottari sem hafa sést I ís-
lensku leikhúsi; bíldruslur og mót-
orhjól keyra um sviðið, en annars
gefur hún til kynna endalaust og
næsta vonlítið ferðalag, þurrk og
hita. Músík Kristjáns Kristjánsson-
ar er llka snjöll, einföld en hnitmið-
uð. Umgjörðin er semsagt í góöu
lagi, og þaö er leikritið líka sem
vonandi lyftir Leikfélaginu upp úr
þeirri lægð sem það hefur verið í
undanfariö. Borgarleikhús fim.,
fös. S sun. kl. 20.
KLASSÍKIN
• Búlgarskar vinkonur. Ilka
PLATAN
LUSH
SPOOK
Lush er hátt skrifuð á
óháöa listanum. Hljóm-
urlnn er dreyminn og
„hvíslandisöngradd-
irnar, kassagítararnir
og hljóögervlarnir.
Tekur nokkurn tfma aö
vinna sig iálit en er
góö „stemmnings“-
plata. Ekki þó ípartí!
Fær 7 af 10.
Benkova flautuleikari og Violeta
Smid eru báöar búlgarskar aö ætt
og uppruna, hámenntaðar í tónlist
frá heimalandinu og þeirri fögru
Prag. Báðar hafa þær veriö búsett-
ar á íslandi undanfarin ár og meöal
annars lagt stund á tónlistar-
kennslu. Þær llka og Violeta halda
tónleika I sal Nýja tónlistarskólans
og njóta þar aðstoðar Dúfu Einars-
dóttur söngkonu. Á efnisskrá eru
verk eftir Bach, Mozart, Benda
Briccaialdi og Karastjanov. Við álít-
um að sá síðasttaldi, að minnsta
kosti, hljóti að vera Búlgari. Fös. kl.
20.30
*Lög, Ijóð & arfur. Diddú, söng-
prímadonna Islands númer eitt, er
komin heim úr plötuupptökunni í
Litháen. Og hún lætur ekki deigan
sfga, því á laugardaginn efnir hún
til tónleika í bráðfallegri kirkju
þeirra Borgnesinga. Hún ætlar að
syngja íslensk lög og (tölsk lög og
aríur, þannig að í raun er þetta
ágætis tilefni til að bregða sér í bíl-
túr í Borgarfjörðinn. Anna Guðný
Guðmundsdóttir leikur á slag-
hörpu. Lau kl. 14.
MYNDLIST
•Jóhanna Kristfn Ingvadóttir.
Tilfinningaþrungnar, myrkar, dular-
fullar, efasemdafullar myndir, en
samt töfrandi og þokkafullar.
Myndir sem hafa sterkt svipmót
sem ekki er hægt að villast á, þótt
listakonan hafi ekki verið á háum
aldri þegar hún lést. Þaö er eigin-
lega harðbannað að missa af
þessari sýningu sem er Kjarvals-
stöðum til sóma.
-Claude Rutault Sumstaðar í Evr-
ópu er allt upp í ioft og fólk hefur
um nóg að hugsa, hvort sem þaö
svo skilar sér í ódauðlegri list.
Annars staöar, til dæmis í hinum
efnameiri Vestur-Evrópuríkjum, er
tilveran í raun svo dægileg að
listamenn ausa varla mikiö úr
brunnum lífsreynslu eða þjáningar.
Við þessu er til dæmis hægt að
bregðast með því að verða fjarska-
lega intellektúell maður formsins,
eins og til dæmis Frakkinn Claude
Rutault sem nú sýnir á Kjarvals-
stöðum. En svona blóm eiga líka
að fá að spretta á akri listarinnar,
og þeim á líka að gefa gaum.
ÓKEYPIS
•Söngur Það er ókeypis aö
syngja, að minnsta kosti svona oft-
astnær. Nú er í algleymingi Ár
söngsins svokallað og því tilvaliö
að syngja sem víðast, á heimilum,
vinnustööum og í samkomuhús-
um. Þeir sem vilja taka þátt í ögn
skipulagðari söng geta brugðiö sér
I íslensku óperuna við Ingólfsstræti
þar sem eru haldnar daglegar
söngstundir. Allir munu vera vel-
komnir að koma þangaö og syngja
í kór alþekkt lög úr söngbókum við
undirleik snjallra hljóðfæraleikara.
Sniðugt. Fim. S fös. kl. 17.
ÞUNGA GÁTAN
LÁRÉTT: 1 seglskip 6 viðarbúts 11 minnka
12 örugg 13 bardaga 15 kvamarstokkar 17 mergð 18 kjör 20 gijótskriða
21 hagnaðs 23 eðja 24 þjótir 25 gorts 27 grunaði 28 sífellt 29 gagnslaust
32 nöldra 36 naumt 37 sár 39 býfa 40 gubbi 41 blauður 43 bergmála 44 ögn
46 ólmast 48 hlunnindi 49 löglegt 50 hægindi 51 veiðast.
LÓÐRÉTT: 1 flát 2 hindrun 3 guð 4 vígahugur 5 blómi 6 túnamælir 7 kurt-
eis 8 stjóma 9 sáðlandið 10 meiddri 14 fæða 16 rykkomið 19 móhrauk
22 rósemd 24 nabbinn 26 hvíli 27 ótti 29 bansettur 30 lokka 31 stijálings
33 súgur 34 handsama 35 fjall 37 hljóðir 38 skip 41 tómu 42 sleit 43 gála 47
reið.