Pressan - 05.03.1992, Síða 52
m Pizzur eins og þær eiga að vera
BORÐ APANTAN1R Laugavegi 126, s: 16566
í SÍMA 17759 - tekur þér opnum örmum
HLUSTUM ALLAN SÓLARHRINGINN SÍMI 6213731
Llþýðubandalagið er búið að
ráða sér nýjan framkvæmdastjóra
og er víst að sú ráðning kemur ýms-
um á óvart. Maður-
inn er Einar Kari
Haraldsson. fyrr-
um ritstjóri Þjóðvilj-
ans og Nordisk kon-
takt, en talið er að
hann hafi verið
kominn langleiðina
út úr flokknum, ef þá ekki alla leið.
'Einar hefur þó löngum verið mjög
hallur undir Ólaf Ragnar Gríms-
son formann, enda mun ráðningin
hafa vakið litla hrifningu hjá Svav-
ari Gestssyni, sem andmælti
henni í þingflokki og framkvæmda-
stjórn. Hans kandídat er sagður
hafa verið Árni Þór Sigurðsson,
sem nú er ritstjóri Helgarblaðsins.
Annars leysir Einar af hólmi Flosa
Eiríksson sagnfræðinema, sem var
ráðinn tímabundið i starfið fyrir síð-
ustu kosningar . ..
V.
erðkönnun sem gerð var af
Neytendasamtökunum í desember
og janúar sýnir svart á hvítu hve
miklu lægra vöru-
verð er í Bónusversl-
unum Jóhannesar
Jónssonar en ann-
ars staðar. í könn-
unninni, sem birtist í
nýútkomnu tölu-
blaði Neytandans, er
reiknað út meðalverð þeirra versl-
ana á landinu sem könnunin náði
til. Það er notað sem stuðull og þá er
meðalverðið yfir landið 100. Það
hlýtur að teljast nokkuð góð út-
koma fyrir Jóhannes að meðalverð-
ið hjá honum er einungis 68,0. Með-
alverðið í Hagkaup er talsvert miklu
hærra eða 80,7, en í Miklagarði
89,0 . . .
kjem kunnugt er var það ein af til-
lögum Markúsar Arnar Antons-
sonar borgarstjóra að takmarka af-
greiðslutíma pylsu-
vagnanna í miðbæn-
um til að stemma
stigu við óöldinni
þar. Einhverra hluta
vegna hefur lítið
orðið úr þessum
áformum og nú er
líklega endanlega búið að slökkva á
hugmyndinni, því borgarráð hefur
ÞJOFAVORN
Búnaðurinn skynjar hreyfingu. Hentar vel
heimili og í fyrirtæki. Tengist Ijósum eða bjöllum.
Kr. 5.500,-
Á.B. & Co. - S. 52834
Dalshrauni 1 -220 Hafnarfirði
fflDBŒDE
Skeifan 7-108 Reykiavfk
Sftni 91-673434 - Fax: 677638
samþykkt með fjórum atkvæðum
gegn einu að gefa afgreiðslutíma
söluvagna í miðbænum frjálsan.
Það er því Ijóst að Sverrir Frið-
þjófsson getur nú afgreitt pylsur
alla nóttina ofan í svanga vegfar-
endur...
. árinu 1990 greiddi Trygginga-
stofnun ríkisins 1.048 milljónir
króna fyrir sérfræðiþjónustu lækna.
Langstærsti kostnaðarliðurinn er
vegna rannsóknarlækna sem fengu
226 milljónir fyrir þjónustu sína.
Þetta eru læknar eins og Matthías
Kjeld sem ná að selja ríkinu þjón-
ustu rannsóknarstofa sinna. Þrátt
fyrir að mikið hafi verið reynt til að
koma þessum lið niður hækkaði
hann um 6% frá fyrra ári . . .
erðhrun hefur orðið á kvóta
að undanförnu. Menn þykja heppn-
ir ef þeir fá 150 krónur fyrir þorsk-
ígildistonnið. Það er ekki langt síðan
hvert tonn kostaði 180 til 200 krón-
ur. Þeir sem fjárfestu í kvótanum
þegar verðið var hvað hæst horfa
nú fram á verulegt tap . . .
If Jón Ingvarsson verður nýr
fulltrúi Eimskipafélagsins í stjórn
Flugleiða myndast athyglisverður
þráður á milli kolkrabbans og gam-
alla fjenda. Dóttir Jóns er nefnilega
gift syni Sigurðar Helgasonar
eldri, fvrrum forstjóra Flugleiða,
sem veit fátt verra en hina nýju hús-
bændur hjá Flugleiðum . . .
GRILLIÐ OPNAÐ
EFTIR GAGNGERAR
BREYTINGAR
Við bjóðum gesti okkar velkomna í nýtt Grill - nýjar
innréttingar, nýtt eldhús, nýr bar, nýr matseðill, nýr vínseðill
og lifandi tónlist í flutningi Carls Möller fimmtudags - til
sunnudagskvölds. Áfram leggjum við allan metnað í að
gestir okkar njóti bestu þjónustu og frábærrar matargerðarlistar.
Velkomin í nýtt Grill!
gerir þér
kvöldiö ógleymanlegt!