Pressan - 09.04.1992, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 9. APRÍL 1992
9
Ástþór Bjarni Sigurðsson hjá Frístund
GJALDÞROIA EN
REKUR FYRIRTÆKIfl
í NAFNIÓLÖGRAÐA
RARNA SINNA
Ástþór Bjarni Sigurðsson, verslunarmaður í Frístund, hefur verið úrskurðað-
ur gjaldþrota. Margt bendir til þess að gjaldþrotið verði stórt og íslands-
banki tapi verulegum upphæðum. Rétt fyrir gjaldþrotið þinglýsti Ástþór
leigusamningum vegna fyrirtækjanna og seldi eigur sínar börnum sínum,
sem eru 12 og 15 ára.
Astþór Bjarni Sigurðsson,
verslunarmaður í Frístund, hefur
verið úrskurðaður gjaldþrota en
hann heldur þó áfram fyrir-
tækjarekstri. Það gerir hann með
því að stofría nýtt fyrirtæki um
rekstur fyrirtækja sinna og selja
það síðan bömum sínum og eig-
inkonu.
Astþór hefur rekið verslunina
Frístund og nokkrar mynd-
bandaleigur í Keflavík og
Njarðvík. Til skamms tíma rak
hann einnig verslanir og verk-
stæði með sömu nöfnum í
Reykjavík en hefur nú selt þær.
Þrotabú hans og Frístundar
verður rekið samhliða enda ljóst
að persónulegur rekstur hans
hefrír blandast mjög inn í fyrir-
tækjareksturinn. Þá hefur komið
í ljós að bókhald var í molum.
Ekki er hægt að segja til um
hve stórt gjaldþrot hér er um að
ræða þar sem kröfulýsingar-
frestur er ekki útrunninn. Þá er
athyglisvert að skömmu áður en
til gjaldþrots kom, nánar tiltekið
í desemberlok, flutti Ástþór lög-
heintili sitt á Þangbakka 10 í
Reykjavík. Það er sama heimil-
isfang og hjá Helga M. Her-
mannssyni sem hefur rekið Frí-
stund verkstæði hf. ásamt Ást-
þóri.
Lögheimilisbreytingin átti sér
stað rétt áður en lögmaður ís-
landsbanka, sem fór fram á
gjaldþrotið, lagði inn gjaldþrota-
beiðni hjá fógetanum í Keflavík.
Þetta tafði málið aðeins þar sem
reka varð það fyrir skiptarétti í
Reykjavík. Ástþór var síðan úr-
skurðaður gjaldþrota 3. febrúar
og eftir því sem komist verður
næst em engar eignir til í búinu.
Sigurmar K. Albertsson hrl.
hefur verið skipaður bústjóri.
„Mér skilst það,“ sagði Sigur-
mar er PRESSAN spurði hann
hvort þama væri um gjaldþrot
upp á tugi milljóna að ræða.
Kröfulýsingarfrestur rennur út
þann 19. þessa mánaðar og
því á ugglaust talsvert af kröf-
um eftir að berast.
SELDI BORNUNUM EIG-
UR SÍNAR SKÖMMU FYR-
IR GJALDÞROTIÐ
Eignaleysi búsins stafar af því
að skömmu fyrir gjaldþrotið
seldi Ástþór allar eigur sínar
hlutafélagi sem hann stofnaði
ásamt eiginkonu sinni, Margréti
B. Haraldsdóttur. Um leið seg-
ist hann hafa lagt Frístund niður.
Hlutafélag þetta heitir ÁBS Frí-
stund hf. nú en hét í upphafi
ÁBS. Þá var meðal annars Olaf-
ur Sigurgeirsson hdl. varamaður
í stjóm, en hann hefur verið lög-
maður Ástþórs.
ÁBS var stofnað 20. septem-
ber síðastliðinn af jteim hjónum
og er skráð í Njarðvík. Hlutafé
var skráð 400.000 krónur. 30.
nóvember var hins vegar nafrí-
breyting samþykkt og hét fyrir-
tækið eftir það ÁBS Frístund.
Helmingshlutur Ástþórs í
ÁBS Frístund var ekki lengi í
eigu hans, því Ástþór seldi
hlutabréf sín í félaginu bömum
sínum, sem eru 12 og 15 ára.
Þau skipa nú stjóm félagsins
ásamt móður sinni samkvæmt
stjómarsamþykkt frá 11. janúar
síðastliðnum. Tilkynning unt
það barst til Hlutafélagaskrár
16. mars.
Ólíklegt er að stjórnarseta
barnanna standist samkvæmt
lögum þó að skrá megi þau fyrir
hlutafé. f 50. grein hlutafjárlaga
stendur: „Stjórnarmenn og
framkvæmdastjórar skulu vera
lögráða, fjár síns ráðandi..."
Hjá Hlutafélagaskrá fengust þær
upplýsingar að skrásetning
bamanna sem stjómenda yrði að
teljast yfirsjón.
Þá útbjó Ástþór leigusamn-
inga við ÁBS Frístund skömmu
fyrir gjaldþrotið um leigu á
rekstri eigna Frístundar. Voru
þessir leigusamningar til fímm
ára og þeim þinglýst á allar fast-
eignimar.
Eftir því sem komist verður
næst em flestir þessir samningar
riftanlegir, en það veltur hins
vegar á vilja kröfuhafa hvort
það verður gert. Þá ber að hafa í
huga að riftunarmál geta tekið
nokkur ár og kosta eflaust
nokkra peninga.
SKULDARISLANDS-
BANKA 80 MILLJÓNIR
Stærsti kröfuhafinn er ís-
landsbanki í Keflavík, en þar
hefur Ástþór lengi verið í við-
skiptum — einkum þó við
gamla Verslunarbankann — og
mun mikið af skuldunum eiga
uppmna sinn þar.
Samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR eru heildar-
skuldir Ástþórs og fyrirtækja
hans við bankann um 80 millj-
ónir króna. Asbjörn Jónsson
hdl., lögmaður Islandsbanka,
vildi þó ekki staðfesta þessa tölu
enda hefur bankinn ekki enn
gengið frá kröfulýsingu sinni.
Bankinn er þó þegar farinn að
leysa til sín eigur Astþórs.
„íslandsbanki hefur þegar
keypt eina fasteigna Ástþórs á
nauðungamppboði og er í samn-
ingaviðræðum við þrotabúið um
að leysa til sín hinar tvær fast-
eignimar," sagði Ásbjöm í sam-
tali við PRESSUNA. Fasteignin
sem bankinn hefur þegar leyst
til sín er íbúðarhúsnæði Ástþórs.
FJÖLDIFYRIRTÆKJA I
KRINGUM ÁSTÞÓR
Eins og áður sagði hefur íyr-
irtækjarekstur Ástþórs verið
nokkuð viðamikill á síðustu ár-
um. Hann rak Frístund í Kefla-
vík og Njarðvík, sem var einka-
fyrirtæki hans. Þá átti hann Frí-
stund rafeindafyrirtæki sf. ásamt
Þór Ostensen en það var stað-
sett í Síðumúla. Einnig átti Ást-
þór Frístund verkstæði hf. í
Skútuvogi 11, en bæði framan-
töld fyrirtæki voru skráð í
Reykjavík. íslandsbanki hefur
einnig farið fram á gjaldþrot Frí-
stundar rafeindafyrirtækis sf. og
Þórs persónulega.
Sömuleiðis átti Ástþór í Frí-
stund Kringlunni sem hann seldi
í ágúst 1991 HK hf„ sem er að
mestu í eigu Hermanns Auðuns-
sonar. Nafni þess hefur nú verið
breytt í Heimskringlan/Frístund-
Kringlan hf. Ekkert hefur komið
fram sem bendir til þess að við-
skiptin með verslunina í Kringl-
unni hafi verið óeðlileg.
Sá rekstur sem ÁBS Frístund
hefur nú með höndum er fyrst
og fremst í kringum mynd-
bandaleigumar. Þær em fjórar;
ein í Garði, tvær í Keflavík og
ein í Njarðvík.
Haraldur Jórísson og Sigurður Már
Jónsson
Ástþór Bjarni Sigurösson verslunarmaöur: Islandsbanki tap-
ar verulegum upphæöum á gjaldþroti hans.
Ein af mörgum aftökum
bankakerfisins
“Nei,“ sagði Astþór Bjarni
Sigurðsson, er PRESSAN
spurði hvort hann væri búinn
að stofna nýtt fyrirtæki um
rekstur Frístundar.
Stofnaðir þú ekki ÁBS Frí-
stund hf.?
„Nei ég er ekkert í því.“
Þú stofnaðir ABS ásamt
eiginkonu þinni.
„Að vísu stofnaði ég fé-
lagið en síðan seldi ég það
aftur.“
Er ekki rétt að þú hafir
selt börnum þínum hlutabréf
þín íÁBS?
„Jú.“
Þau eru skráð í stjórn ÁBS
en eru ekki nema 12 og 15
ára og því hvorki lög- né
fjárráða eins og stjórnarn-
menn skulu vera samkvœmt
hlutafjárlögum. Telur þú
þetta löglegt?
„Ég veit ekki annað.“
Telurðu ekki óeðlilega að
þessu staðið?
„Ég kannast ekki við það.“
Er rétt að gjaldþrot þitt
persónulega og Frístundar
nemi 80 milljónum?
„Nei, engan veginn. Það er
ekki komið í ljós hversu
miklar fjárhæðir þama er um
að ræða og ég get ekki svar-
að því einn tveir og þrír.“
Er þetta gjaldþrot upp á
einhverja tugi milljóna?
„Nei, það er af og frá.
Þetta gjaldþrot er bara ein af
mörgum aftökum sem
bankakerfið hefur fram-
kvæmt á undanfömum miss-
erum.“