Pressan - 09.04.1992, Síða 15
FIMMTUDAGUR PRESSAN 9. APRIL 1992
15
Þótt stéttarfélög landsins og heildarsamtök velti
árlega upphæð sem er á milli 2 og 2,5 milljarðar
króna og eigi eignir sem nálgast 10 milljarðana
loka mörg þeirra dyrum sínum þegar beðið er um
ársreikninga. Ýmislegt bendir til þess að tekjur
verkalýðsfélaga í gegnum félagsgjöld og önnur
launatengd gjöld hafi aukist um helming að raun-
virði á síðustu árum og á sama tíma hefur átt sér
stað umtalsverð eignaaukning, ekki síst í orlofs-
húsum.
Guömundur J. Guðmundsson, formaöur Dagsbrúnar. Aðalfundur er
framundan og félagið auglýsir að endurskoöaöir reikningar liggi
frammi á skrifstofu þess. En ekki fyrir hvern sem er. Eftir því sem
næst veröur komist eru eignir Dagsbrúnar um 300 milljónir króna.
BSRB Á ORLOFSHÚS SEM
METIN ERU Á 500 MILLJ-
ÓNIR
Hjá BSRB skiptast reikningar
í aðalsjóð og orlofsheimilasjóð.
Tekjur sjóðanna voru 1990 alls
87 milljónir að núvirði en gjöld
um 85 milljónir. Um 40 prósent
af 44 milljóna króna gjöldum
aðalsjóðs fóru í laun og launa-
tengd gjöld, um 22 prósent fóm í
útgáfu- og fræðslustarf, fundi og
ráðstefnur, erlent samstarf, risnu,
gjafir og ráðstefnur og um 14,5
prósent í húsnæðiskostnað og al-
mennan skrifstofukostnað. Af
40 milljóna króna gjöldum or-
lofsheimilasjóðs fóru nær 30
prósent í vexti og verðbætur og
20 prósent í viðhaldskostnað, en
16,5 prósent í laun og tengd
gjöld.
í BSRB eru um 15.500 félag-
ar og tekjur sambandsins því um
5.600 á mann. Eignir sambands-
ins námu hins vegar um 600
milljónum króna, sem gera um
38.700 krónur á mann. Þar af
liggja eignir upp á um 500 millj-
ónir í orlofshúsum og tengdum
byggingum.
Verkamannasambandið er
stærsta einstaka landssambandið
innan ASÍ. PRESSAN fékk tak-
markaðar upplýsingar um fjár-
hag sambandsins, en áætlaður
kostnaður við að reka samband-
ið í ár er 18,5 milljónir króna.
Þar af eiga 6,9 milljónir að fara í
laun og launatengd gjöld eða
37,3 prósent. Kostnaður vegna
sambandsstjómar og fram-
kvæmdastjómar er 2,6 milljónir
til viðbótar eða 14,1 prósent. Þá
em 2,7 milljónir ætlaðar til
rekstrar- og húsnæðiskostnaðar
skrifstofunnar eða 14,6 prósent.
Er þá búið að telja upp 66 pró-
sent eða tvo þriðju hluta rekstrar-
kosmaðarins. Eftir standa t.d. 1,4
milljónir í erlend samskipti, 1,2
milljónir í samningakostnað,
400 þúsundir í erindrekstur og
1,4 milljónir renna til deilda
sambandsins.
VR: VELTI333 MILLJÓN-
UMOG SKILAÐI70
MILLJÓNA HAGNAÐI
Af einstökum félögum innan
ASÍ er VR það öflugasta. Rekst-
urinn skiptist í þrjá sjóði; félags-
sjóð, orlofssjóð og sjúkrasjóð.
Árið 1991 jukust heildartekjur
sjóðanna þriggja úr 283 milljón-
um í 333 milljónir króna og
hreinn hagnaður varð svipaður
milli ára eða 71 milljón eða sem
nemur fimmtungi af tekjum.
Heildartekjur sjóða VR skipt-
ast þannig að 35,8 prósent vom
iðgjöld sjúkrasjóðs, 28,6 prósent
vom félagsgjöld, 8,7 prósent ið-
gjöld orlofssjóðs og 20,6 prósent
vom fjármagnstekjur. Þegar far-
in em fjögur ár aftur í tímann
kemur í ljós að félagsgjöld og ið-
gjöld sjóðanna hafa aukist að
raunvirði um 52 til 58 prósent,
sem aðeins að litlum hluta skýr-
ist af fjölgun félagsmanna.
Á hinn bóginn skiptust út-
gjöldin þannig að 17,4 prósent
vom vegna launa og launa-
tengdra gjalda, 25,7 prósent fóm
í útgáfu, fundahöld og ýmsan
rekstrarkostnað, 17,7 prósent
fóm í bætur og styrki, 7 prósent
mnnu til ASI, 7,4 prósent fóm í
rekstur orlofshúsa og 8,2 prósent
mnnu til hjúkrunarheimilisins
Eirar. Hjá VR störfuðu 22
manns árið 1990. Til saman-
burðar má nefna að 1990 störf-
uðu 20 manns hjá ASÍ, 16
manns hjá BSRB, en hjá VSÍ18
manns.
EIGNIR VR: ÚR HÁLFUM í
HEILAN MILLJARÐ Á 4
ÁRUM
Eignir félaga og samtaka
launafólks em að líkindum hátt í
10 milljarðar. Þar er ekki síst um
fasteignir að ræða, skrifstofuhús
og orlofsheimili, en einnig er
stórar upphæðir að finna í hluta-
bréfum, skuldabréfum og öðm.
Þannig em eignir BSRB nálægt
600 milljónum, Iðju liðlega 250
milljónir, ASÍ 185 milljónir,
Dagsbnínar 300 milljónir króna
og félög eins og Félag bókagerð-
armanna og Sókn em talin eiga
eignir upp á um 150 milljónir
hvort.
En VR er samt ríkasta verka-
lýðsfélag landsins. Félagið sjálft
á eignir upp á 214 milljónir, or-
lofssjóður þess 216 milljónir og
sjúkrasjóðurinn 482 milljónir,
samtals 912 milljónir. í VR vom
á síðasta ári alls 10.675 fúllgildir
félagar og félagar eldri en 70 ára.
912 milljóna króna eignir sam-
svara því að hver þessara félaga
eigi 85.430 krónur.
Til samanburðar má neíha að
eignir Vinnuveitendasambands
Islands, framkvæmdasjóðs þess
og vinnudeilusjóðs hljóða upp á
um 470 milljónir miðað við árs-
lok 1990.
Ekki einasta em eignir VR
miklar, þær hafa aukinheldur
aukist til muna á síðustu ámm.
Frá árslokum 1987 til ársloka
1991 jukust þannig eignir sjóð-
anna að raunvirði úr 457 millj-
ónum í 912 milljónir. Eignir juk-
ust þannig um nær hálfan millj-
arð á aðeins ljómm ámm eða um
tvöfölduðust. Af eignum liggja
227 milljónir í orlofshúsum eða
ljórðungur eigna, 112 milljónir í
öðmm fasteignum, 38 milljónir í
öðmm rekstrarfjármunum, 80
milljónir í hlutabréfum og heilar
418 milljónir flokkast sem
„handbært fé“.
ÓSKILJANLEG TREGÐA
VIÐ AÐ OPINBERA
REIKNINGA
Stéttarfélög og hagsmuna-
samtök yfirleitt em ekki skatt-
skyld, framtalsskyld eða háð op-
inberu eftirliti. Þeim er það um
leið í sjálfsvald sett hvort þau
veita fjölmiðlum upplýsingar
um rekstur sinn og eignir. Mörg
þeirra veita umbeðnar upplýs-
ingar, oft reyndar takmarkaðar.
en mörg þeirra loka á allar dyr.
Þegar PRESSAN bað um árs-
reikninga Dagsbrúnar, sem nú
em til sýnis vegna væntanlegs
aðalfundar, var svarið nei. Hjá
Sjómannafélagi Reykjavíkur var
blaðinu alfarið neitað um reikn-
inga, jafhvel þótt beðið væri um
eldri reikninga. Verkamanna-
sambandið samþykkti að veita
blaðinu takmarkaðar upplýsing-
ar; áætlanir um gjöld ársins
1992, en ekkert fékkst um tekjur
eða eigna- og skuldastöðu sam-
bandsins. BSRB veitti upplýs-
ingar, en ekki án ræðuhalda um
tilganginn með skrifum blaðs-
ins.
Viðbrögð ASÍ vom þó einna
furðulegust. Blaðinu var boðið
upp á ársreikninga 1984 til 1987,
en ef ætlunin væri að fá eitthvað
nýrra þyrfti blaðið að bíða þar til
eftir sambandsþing á hausti
komanda. „Við höfum ekki tek-
ið ákvörðun um að birta reikn-
ingana á opinberum vettvangi og
höfum skýrar reglur um það,“
sagði Lára V. Júlínsdóttir, lög-
fræðingur sambandsins. „Það
hvílir engin leynd yfir þessu og
reikningamir em afhentir á sam-
bandsstjómarfundum, þar sem
sitja um 70 manns. En okkur er
illa við að afhenda blaðamönn-
um þessar upplýsingar til að slíta
úr öllu samhengi."
Aðspurð hvort almennur fé-
lagsmaður í einhverju félaga
ASÍ, er starfaði á PRESSUNNI,
gæti fengið reikningana sagði
Lára:, Jlann yrði að koma hing-
að og við myndum leiða hann í
allan sannleikann. En ég geri
ekki ráð fyrir að við myndum af-
henda honum reikningana."
Friðrik Þór Guðmundsson
Ögmundur Jónasson, formaöur BSRB. Sjóðir sambandsins
velta „aðeins" 90 milljónum. Eignir þess nema hins vegar
um 600 milljónum króna eða nær 40.000 krónum á hvern fé-
lagsmann. Þar af liggja eignir upp á um 500 milljónir í orlofs-
húsum og tengdum byggingum.
SIGRÚN
Eðvaldsdóttir er mikið fyrir
fiðlur eins og allir vita. Nú er
hún búin að fá draumahljóð-
færið og bara eftir að finna
draumapeningana til að borga
með. Hún er reyndar að kom-
ast í málaflokk með Björk
GuÖmundsdóttur söngkonu,
en sá fiokkur sérhæfir sig í
smábamamáli. Málið verður
jseim eins og aukatjáning um
að þær séu ekki fullvaxta í list
sinni þannig að enn geti aðdá-
endur þeirra vænst frekari af-
reka. En talandi um bama-
stjömur þá er matvörubransinn
búinn að eignast eina en það er
JÓN
Ásgeir Jóhannesson, sonurJó-
hannesar í Bóntts. Jón Ásgeir
hefur skotist fram á ritvöllinn
og boðar að sjálfsögðu Bónus-
andann scm Miklagarðsmað-
urinn Björn inpmarsson virð-
ist vera búinn að tileinka sér. 1
ofanálag má kaupa Mikla-bón-
usandann hjá Bimi með krftar-
korti, scm verður að teljast
neytendavænt framtak. Annars
er það helst að frétta af mat-
vörumarkaðinum að þar hafa
menn tekið upp sína útgáfu af
dvergakasti. Fyrst henti Jó-
hannes út Miklagarðsdvergun-
um við njósnastörf og Bjöm
svaraði fyrir sig með því að
henda út Bónusdvergunum.
Einu dvergamir sem fá að vera
f friði eru Hagkaupsdvergam-
ir. En nú er vorið framundan
og því sjálfsagt að geta þcss að
einn vorboðinn er horfinn á
braut. Það cr
INGI
U. Magnússon, fyrrverandi
gatnamálastjóri. Nú fær maður
ekki að sjá hann gráta yfir
nagladekkjum og ónýtum göt-
um allan aprílmánuð. Inga Ú.
er nefnilega alveg sama um
nagladekkin í ár enda sestur í
helgan stcin og lætur eftir-
mann sinn, SigurÖ Skarphéö-
insson, um áhyggjurnar. Og
talandi um einkennileg gatna-
kerfi þá rekur nú Sleinn Lá-
russon harðan áróður fyrir því
að íslendingar aki um Eng-
land. Af hvcrju skilur enginn.
Ekki nóg með að Englending-
ar hafi götumar öfugar heldur
eru stýrin vitlausu megin. Far-
fugl vikunnar verður án efa
EIÐUR
Guðnason, sem vill með hálft
stjómkerfið til Ríó hvað sem
tautar og raular. Er ekki annað
hægt en dást að þrautseigju
Eiðs, sem berst um á hæl og
hnakka fyrir þessu helsta bar-
áttumáli á sviði umhverfis-
vemdar. Nú hefur þingflokkur
Alþýðubandalagsins blandað
sér í málið, en hann vill endi-
lega koma Hjörlcift Guttorms-
syni mcð Eiði.