Pressan - 02.07.1992, Qupperneq 35
FIMMTUDAGUR MttSSAM 2. JÚLÍ 1992
35
LÍFIO I t T I R VINNU
BARIR
• Þegar íslenskir drykkjusiðír berast í
tal er yfirleitt reifuð taumlaus drykkja
og hamslaus hegöan henni samfara.
Þetta er vitaskuld sú hlið, sem menn
helst taka eftir, en yfirleitt held ég að
drykkja sé litlu meiri eða verri en geng-
ur og gerist í hinum vestræna heimi.
Fyrir nokkrum árum, þegar ekkert
fékkst á börum eða í ríkinu nema
brennsi og sjenni, fór einhver skríll að
reka gífurlegan áróður fyrir því að (s-
lendingar færu að temja sér „rauðvíns-
menningu", eins og hún væri eftirsókn-
arvert takmark í sjálfri sér (alkóhólismi
og skorpulifur er hvergi algengari í Evr-
ópu en einmitt í rauðvínsmenningar-
ríkjunum). Og þegar baráttan um bjór-
inn stóö sem hæst þurfti maður að
hlusta á fráleitt sífur um að þjóöin
myndi breytast í „roligdanskere" við
það eitt að geta drukkið löglegan bjór.
Tók einhver eftir því aö þetta hefði
gengiö eftir? Mönnum hafa nefnilega
yfirsést þau augljósu sannindi aö
drykkju manna veröur ekki stjórnaö.
En þrátt fyrir það vil ég gera tillögu um
breytta drykkjusiði. Það er fyrir löngu
kominn tími á þaö aö venjulegt fólk
flykkist á bari að lokinni vinnu og fái sér
eins og einn ískaldan og glerharðan
Dry Martini áöur en það heldur heim á
leið í kvöldmatinn. Slíkt yrði börum
landins mikil lyftistöng, félagslíf fólks
utan vinnu og heimilis myndi aukast til
muna og vafalaust yrði þetta til þess
aö minnka streitu í þessu þjóðfélagi
hraöa og spennu.
nmvjtiitia
Þorvaldur
Þorsteinsson
Danska nektardansmærin Mette Larsen,
sem í sumar ætlar að túra með Skriðjöklum
um landið, háttaði sig fyrir gesti Sjallans á
Akureyri síðastliðið fimmtudagskvöld og
hljóp berrössuð um allan staðinn. Samkvæmt
því sem okkur er tjáð fór allt hið besta fram
og Mette, Skriðjöklarnir og gestirnir
skemmtu sér afar vel. En eyðum ekki dýr-
mætu myndaplássi í eitthvert meiningar-
laust kjaftæði.
PRESSAN/GT Akureyri
TRIP
A5E
ANUM
Ingibjörg Ásta
Gunnarsdóttir
mannfræðingur
Hvað ætlar þú að gera um
helgina, Ingibjörg?
„Eg œtla að eyða helginni
á Akureyri með fjölskyld-
unni. Aföstudaginn fer ég
sennilega í sund og sóla
| mig í góða veðrinu. A laug-
ardaginn œtla ég út að
j horða — ég er ekki húin að |
j ákveða hvaða veitingastað- I
j ur verður fyrir valinu—pg j
síðan œtla ég á hall. A
r sunnudaginn flýg ég aftur I
l suður og um kvöldið er ég j
jj að hugsa um að fara í híó í
1 og sjá Wayne’s World. “
myndlistarmaður (Ibbí talar)
„Þetta er skilaboða-
skjóðan hjá Ibbí og
Þorvaldi. Talaðu í hana
þegarþú hefur heyrt
píphljóðið og þú hefur
skilið eftir skilaboð til
okkar. TakkfyrirT
POPPIÐ
• Stálfélagiö. Við segjum það enn og
aftur; þeir eru að verða húshljómsveit
Grjótsins. Ekki þaö að þaö sé svo
slæmt í sjálfu sér. Hljómsveitin er
ágæt. í kvöld ætla þeir að stilla upp og
svoleiðis og djamma smá fyrirgesti og
reyndar með gestum líka. A föstu-
dags- og laugardagskvöldið verður
síðan full keyrsla á þeim strákum. Það
er líka gaman að skoöa bindasafnið
við barinn.
• Loöin rottaverðuráTveimurvinum
á föstudagskvöldið. Þessi ástsæla
gleðisveit. En. Á laugardaginn er sko
4. júlí og þá er þjóðhátíðardagur
Bandaríkjanna. Rottumenn færa sig
þá að sjálfsögöu nær USA og verða á
Suöumesjunum og spila í Þotunni. Sú
þota er samt ekkert á leiðinni til Amríku
í tilefni dagsins. Nei nei. Þetta er virðu-
legt veitingahús á Suðurnesjum.
• KK er nýkominn frá Mallorku hress
og endurnærður. Nú um helgina verð-
ur hann og bandið hans á Púlsinum en
það verður í siðasta sinn í bili sem
hann skemmtir á höfuðborgarsvæð-
inu. Karlinn er að leggja land undir fót
og ætlar að æða blúsandi um landið
ásamt sínu fríða föruneyti næstu vikur.
• Frjósemisblús. Rjómatertukarlinn
Sigurður Ólafsson á Hressó heldur
mikla teiti þann 4. júlí. Vinir Dóra ætla
að spila með munnhörpuleikaranum
Sigurði Sigurössyni og Hirti Howser,
Sjón ætlar aö flytja frjósemisdrápu og
Sveinbjörn Beinteinsson kveöur. Það
vill segja hann segir ekki bless heldur
fer hann meö rfmur eöa flytur þær.
Árshátíöartónlistin veröur í höndum
MÖK-tríósins en það skipa þeir Tóm-
as M. Tómasson, HilmarÖrn Hilmars-
son og Guðlaugur Óttarsson. Það
verður líka fluttur frjósemisgjörningur
en það ætla þær Katrín Ólafsdóttir og
Margrét Gústavsdóttir aö gjöra. Hilmar
Örn verður veislustjóri en hann er bisk-
up gnostísk- kaþólsku kirkjunnar yfir
íslandi. Einar ðrn Benediktsson verö-
ur heiðursgestur en hann mun því
miður verða fjarstaddur. Frjósemi, öl
og grillmatur. Ef það er ekki eitthvað til
að dunda sér við í góða veðrinu og
sumarfríinu þá má ég hundur heita.
FH Vlf* THY
Galleríið hans Knúts Bruun
við Tryggvagötuna er örugglega
eitt flottasta — ef ekki bara það
flottasta—-á landinu. Ógnarstórt
og mikið. Á laugardaginn klukk-
an fjögur opna þar samsýningu
þrír kunnir myndlistarmenn;
Grétar Reynisson, Jón Axel
Björnsson og Sigurður Örlygs-
son.
A sýningunni, sem stendur út
júlímánuð, sýnir hver þeirra
Sumir yngjast með árunum, en yngispiltur þessarar
viku hefur á hinn bóginn svo sannarlega látið á sjá.
Barnslegt sakleysið var reyndar farið að dvína þegar
Ásmundur Stefánsson Iét undan framagirninni í fyrsta
skipti með þeim sérkennilega hætti að bjóða sig fram í
stjórn Framtíðarinnar, málfundafélags Menntaskólans
í Reykjavík. Engan hefði þá órað fyrir hvað framtíðin
myndi raunverulega bera í skauti sér. Æskumaðurinn
jakkafataklæddi og bindisvafði breyttist í fremur ótót-
legan verkalýðsforingja með rytjulegt skegg, sem aldrei
myndi hnýta á sig bindi þó að líf lægi við.
nokkur stór og kröftug verk sem
ugglaust koma til með að njóta
sín vel á veggjum Listmunahúss-
ins.
I salnum á annarri hæðinni
verða lika til sýnis og sölu verk
eftir íslenska samtímalistamenn.
Ekki galið að kíkja þama inn á
röltinu í góða veðrinu.
Grétar, Siguröur og Jón Ax-
el. Alit stór nöfn í íslenska
myndlistarheiminum í dag.
• Frumskógaredda heitir sveit sem
við kölluðum víst Frumskógargreddu
um daginn, enda finnst okkur þaö
miklu betra nafn. En það veröur ekki á
allt kosið. Það er náttúrlega ekki nema
maðurinn á Grjótinu, sem sagði okkur
aö bandið yröi þar á sunnudaginn, hafi
bara verið svona hræðilega teprulegur
og ekki þorað að segja g-ið. Við von-
um það.
VEITINGAHÚS
• í einu elsta húsi Hafnarfjarðar er
veitingastaðurinn Fjörukráin. Og viö
ætlum ekkert að vera að draga þaö að
segja að maturinn á Fjörukránni er
hreint frábær. Og ekkert tiltakanlega
dýr heldur. Staðurinn er smekklegur
og vinalegur aö innan, út um allt eru
fallegir munir sem minna á sjósókn og
allt sem henni tengist og á veggjunum
hanga fínar myndir frá sjónum.
Stemmningin er öll frekar lágstemmd
og þjónustan alúðleg og þægileg. Og
eins og áöur segir er maturinn hreint
afbragð. Sjávarréttafantasía, til dæm-
is, kostar ekki nema rétt rúmlega
1,200-kall og er hreint stórgóð þannig
að veröið ætti ekki að skapa teljandi
vandræði fyrir fólk, stórsteikur eru nátt-
úrlega mun dýrari en maöur svitnaöi
samt ekkert við aö lesa veröið. Vínúr-
val er ágætt, að minnsta kosti gat sá er
þetta skrifar ekki séð annað en er þó
ekki mikill sérfræðingur í vínum. í
tengslum við Fjörukrána er rekið fyrir-
bæri sem heitir Fjörugarðurinn og
eftir míðnætti er stemmningin þar aftur
á móti alls ekkert lágstemmd. Það
sem þar fer fram er bara venjulegt ís-
lenskt fyllerí. En það finnst nú æði víða
og fylleríið á Fjörugarðinum er ekkert
verra en annarstaðar og því ágætt
sem slíkt fyrir þá sem svoleiðislagað
Reykingum í bíó
að þær verði að minnsta kosti
leyfðar í einum sal af þeim 25
sem eru í bíóunum
Gróðurhúsaáhrifum
þau auka hitann á íslandi og
gera þjóðina bjartsýnni
Fimm réttum tölum í iót-
tóinu
Hefur svipuð áhrif en ekki
eins víðtæk
Jarðarförum á Hard Rock
Það yrði viss tilbreyting frá
endalausum afmælissöngvum
Að kjaradómur útskýri
niðurstöður sínar
til dæmis með því að ganga
í hús og skýra þær út fyrir fólki
| augliti til auglitis
Danir og allt sem danskt er;
rauðkál, aulahúmör, Uffe Elle-
man, drykkjuvísur, Tuborg, An-
ton Berg og London Docks.
Fyrst slógu Danir í gegn með því
að framkvæma í verki það sem
enska hefur aðeins dreymt um.
Það er að segja „Up yours, Del-
ors“ og fella Maastricht-sam-
komulagið. Þetta var drauma-
staða fyrir þjóð; litli maðurinn
sem lætur ekki segja sér fyrir
verkum. Davíð gegn öllum Gol-
íötum þessa heims. Og síðan
kórónuðu þeir Davíðs/Golíats-
leikþáttinn með því að fella
kvikindið í Evrópukeppninni í
fótbolta. Fyrst Frakkland Delors.
Síðan Holland, þar sem evr-
ópska viðskipta-frjálslyndið á
sjálfsagt upptök sín. Og loks
sameinað Þýskaland og tilvon-
andi drottnara Evrópu. Eftir
þetta getur maður öðlast hlut-
deild í danska sigrinum með því
að sötra Gammeldansk, hlusta á
Kim Larsen og sletta pínulítið
dönsku. Og ekki er verra ef mað-
ur getur dregið einn danskan for-
föður fram í dagsljósið. Það gef-
ur fullt tilefni til að taka upp
smáhreim.
Fita. Kannski er ekkert jafn-
púkalegt og þessi hvíti vefur. Og
gildir einu hvar hann safnast fyr-
ir. Á maga, rassi eða læmm. Og
ekki er hann skárri á hnakkan-
um. Eða á því fólki sem tekst að
fitna á bakinu, kinnunum eða
puttunum. Ekkert er verra. Nema
ef vera skyldi megmn. Það er
aumasta ástand mannskepnunn-
ar. Aumara en alkinn sem ætlar
að hætta að drekka á morgun.
Aumara en fjárglæframaðurinn
sem slær enn einn víxil sem hann
getur aldrei borgað. Aumara en
stjómmálamaðurinn sem ætlar
að fylgja samvisku sinni en svík-
ur hana í hundraðasta sinn. Og
þó. Þeir sem hafa pmfað að vera
feitir segja það ágætt. Eini gall-
inn sé að þeir vilji vera grannir.
Ef þessi löngun væri ekki til
staðar væri það fínt. Að sömu
niðurstöðu hafa sífullir alkar, bí-
ræfnir fjárglæframenn og at-
vinnupólitíkusar komist. Ef þú
getur ekki sigrast á þér þá skaltu
sætta þig við þig.