Pressan - 02.07.1992, Side 44
4
FIMMTUDAGUR PRESSAN 2. JÚLÍ 1992
VESTURLAND
VERSLUN
Verslunin Bitinn
Reykholti
GISTING
Hótel EDDA
Laugar
Sími 93-41265
VERSLUN
Kaupfélag Borgfirbinga
Vöruhús Vesturlands
Borgarnesi
Sími 93-71200
VEITINGAR
Bændaskólinn
Hvanneyri
Sími 93-70000
GISTING
Bændaskólinn
Hvanneyri
Sími 93-70000
GISTING
Hótel Búðir
Borgarnes
Sími 93-56700
GISTING
Hótel Ósk
Vogabraut 4
Akranesi
Sími 93-12544
HVALFJÖRÐUR
— NÁTTÚRU-
FECURÐ í
BLAND VIÐ
MAGN-
ÞRUNCNA
SÖCiU
Oft heyrast ferðalangar kvarta undan
því hve langt sé fyrir Hvalfjörð og
margir horfa með tilhlökkun til þess
tíma þegar unnt verður að aka undir
fjörðinn um jarðgöng og stytta sér leið.
Menn gleyma því hins vegar oft að
náttúrafegurð er mikil í Hvalfirði. Þjóð-
vegurinn liggur víða í snarbröttum
skriðum og útsýni er mikilfenglegt á
mörgum stöðum við veginn. Fjallasýn
er fögur. Fyrir botni fjarðarins eru
Botnssúlur, Múlafjall og Hvalfell, en
utar Þyrill.
Hvalfjörður er um þrjátíu kílómetra
langur og víðast hvar fjórir til fimm
kílómetrar á breidd. Dýpstur er hann 84
metrar út af Kiðafelli í Kjós. Innst
klofnar Hvalfjörður í tvo voga, Brynju-
dalsvog og Botnsvog.
Fjölskrúðugt fuglalíf er í Hvalfirði
og þar er á nokkrum stöðum að finna
góðar kræklingaíjörar.
í þjóðsögu einni er frá því greint að
Hvalfjörður heiti eftir illhveli mann-
skæðu sem grandaði bátum og drekkti
mönnum á firðinum. Meðal fórnar-
lamba vora tveir synir prestsins í Saur-
bæ á Hvalfjarðarströnd. Prestur greip til
sinna ráða og leiddi hvalinn með göldr-
um inn tjörðinn, upp Botnsá og upp í
vatn sem upp fra því nefnist Hvalvatn.
Fellið íyrir ofan vatnið heitir og Hval-
fell. Hvalvatn er næstdýpsta stöðuvatn
landsins, 165 metra djúpt.
Miklar siglingar hafa verið um Hval-
fjörð frá öndverðu. Verslunarstaðir
voru nokkrir við fjörðinn fyrr á öldum
þar sem kaupskip ffá útlöndum renndu
í vör. Árið 1402 kom skip inn fjörðinn
og bar með sér vágest mikinn sem áður
en langt um leið hafði lagt þriðjung
landsmanna í gröfina. Þetta var svarti-
dauði, drepsóttin mikla, sem barst til
landsins með skipi Einars Herjólfsson-
ar.
í heimsstyijöldinni síðari var Hval-
fjörður skipalægi skipalestanna sem
fluttu heijum Rússa hergögn ffá Banda-
ríkjunum. Oft var tilkomumikið að sjá
að því er virtist endalausa röð flutn-
ingaskipa sigla út fjörðinn í fýlgd her-
skipa í einhverjar hættulegustu og
mannskæðustu siglingar sem sögur fara
af.
NOKKRAR CÖNdULEIÐIR í
HVALFIRÐI
Glymur
Fossinn Glymur er í Botnsá í Botns-
dal í Hvalfirði, en Botnsá rennur úr
Hvalvatni út í Botnsvog. Glymur er
hæsti foss Islands, 198 metrar. Neðan
fossins fellur áin í hrikalegu gljúfri nið-
ur undir dalbotn og eftir dalnum til
sjávar. Best er að leggja upp í göngu að
Glynt frá Stórabotni. Gengið er upp
Glymsbrekkurnar og að fossinum.
Hrikalegt er að horfa niður í gljúffið,
sem víða er miklu dýpra en hæð foss-
ins.
Hvalfeli
Hvalfell er móbergsstapi, 848
metra yfir sjávarmáli, með grágrýtis-
kolli, fyrir botni Botnsdafs. Hægt er
að komast að fjallinu annaðhvort
með því að vaða Botnsá fyrir ofan
Glym eða fara yfir ána á göngubrú
neðan túnsins á Stórabotni og upp
með ánni austanmegin með stefnu á
fjallið.
Botnssúlur
Botnssúlur í Botnsdal eru taldar
vera gamalt eldfjall og tindarnir rúst-
ir af gömlum gíg. Auðveldast er að
ganga á vestustu súluna, sem er 1086
metrar á hæð, níu metrum lægri en
sú hæsta. Lagt er upp frá Stórabotni
og farin sama leið og þegar gengið er
á Hvalfell, en stefnan síðan tekin á
Botnssúlur. Af Botnssúlum er mikið
og tignarlegt útsýni.
Þyrill
Þyrill í innanverðum Hvalfirði að
norðanverðu er þekktur fyrir sérsætt
útlit sitt. Fjallið er úr basalti, 388
metra hátt. í hlíðum Þyrils hefur
fundist mikið af sjaldgæfum geisla-
steinstegundum. Þar hefur fundist
kristalstegund svo fágæt, að hún hef-
ur ekki fundist nema í þremur lönd-
um heims. Nefnist hún epistilbit.
Þyrilsnafnið er að líkindum dregið af
svipti- eða þyrilbyljum sem oft verð-
ur vart undir fjallinu. Auðveldast er
að ganga upp brekkurnar ofan við
Botnsskála. Þar var áður fyrr fjölfar-
in leið sem nefndist Sfidarmannagöt-
ur. Þegar upp er komið á brúnina er
gengið vestur fjallið alveg fram á
hamrabeltið sem er fyrir ofan bæinn
Þyril.
SÉRA HALLGRÍMUR HVÍLIR í
SAURBÆJARKIRKJUGARÐl
Kirkjustaðurinn og prestsetrið Saur-
bær á Hvalfjarðarströnd er kunnastur
fyrir það, að þar þjónaði sálmaskáldið
Hallgrímur Pétursson 1651 til 1659.
Séra Hallgrímur dó úr holdsveiki á Fer-
stiklu 1674 og er legstaður hans í Saur-
bæjarkirkjugarði. I Saurbæ var kirkja
helguð Jóhannesi skírara í kaþólskum
sið. Kirkjan sem nú stendur í Saurbæ er
helguð minningu séra Hallgríms. Sig-
urður Guðmundsson teiknaði kirkjuna,
sem vígð var árið 1957. Altaristaflan er
eftir finnskan listamann, Lennart Seg-
erstrale, og gaf Hvalur hf. töfluna.
Myndskreytingar í gluggum eru eftir
Gerði Helgadóttur. Séra Hallgrímur
Pétursson er jafnan talinn mesta trúar-
skáld Islendinga. Þekktastur er hann
fyrir Passíusálmana sem gefnir hafa
verið út oftar en nokkur önnur bók á Is-
landi, að biblíunni undanskilinni. I
Passíusálmunum er píslarsaga Jesú
Krists rakin og lagt út af henni. Passíu-
sálmamir komu fýrst út árið 1666.
ÍRAR BYGÚÐU AKRANES
Irskir menn námu land á landnáms-
öld þar sem nú stendur kaupstaðurinn
Akranes og er talið að írsk byggð hafi
myndast þar í kjölfar landnámsmanna.
Nafnið er án efa dregið af kornrækt
sem stunduð hefur verið á nesinu. Ysti
tangi þess, þar sem kaupstaðurinn
stendur, nefndist til forna Skagi, en
hlaut síðar nafnið Skipaskagi.
Menn byrjuðu snemma að róa frá
Skipaskaga og á 17. öld voru þar marg-
ir tugir.verbúða, sem mynduðu vísi að
þorpi. Það má telja eitt fyrsta sjávar-
þorp á íslandi. Enn er Akranes á meðal
stærstu verstöðva landsins.
BYGÚÐASAFNIÐ í GÖRÐUM
Á byggðasafninu í Görðum á Akra-
nesi er að finna heildstætt safn muna
sem tilheyrðu búskaparháttum og at-
vinnutækni á Akranesi og í nágranna-
byggðum á liðinni tíð. Meðal deilda
safnsins má nefna sjóminja- og tækni-
deild, baðstofu, hlóðaeldhús, smiðju,
smíðastofu og skólastofú.
Sjálft safnahúsið er hin merkilegasta
bygging — fýrsta steinsteypuhús sinnar
tegundar á landinu, byggt úr steyptum
steinum árið 1876. Garðar vora kirkju-
staður og prestsetur frá öndverðri
kristni og koma víða við sögu í fomum
heimildum.
Fljótlega eftir að safnið var opnað ár-
ið 1959 kom í ljós að gamla húsið rúm-
aði ekki allar eigur þess. Því var raðist í
nýbyggingu og var fýrsti áfanginn tekin
í notkun fimm áram síðar.