Morgunblaðið - 29.04.2004, Side 1
STOFNAÐ 1913 116. TBL. 92. ÁRG. FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Er greind
kynskipt?
Rannsókn á orðræðu um völd, virð-
ingu og leiðtogahæfni | Daglegt líf
Viðskipti og Ver í dag
Viðskipti | Fréttir Skjalastjórnun Dagbók Svipmynd:
Magnús Ragnarsson Innherji Úr Verinu | Fréttir Landið
og miðin Hvað er eftir af kvótanum? Bryggjuspjall
YFIR 30 manns eru í för með Joaquín Cortés,
sem kom til landsins í gær. Þessi heimsþekkti
dansari verður með sýningu ásamt tónlistarfólki
í Laugardalshöll í kvöld. „Ég ferðast mikið og
alls staðar eru áhorfendur og hjörtu mannanna
eins,“ segir Cortés m.a. í viðtali við Morgun-
blaðið og bætir við að ekki gildi kenning um að
hjörtu mannanna séu kaldari á sama hátt og
loftslagið þegar norðar í heiminn er komið. /55
Hjörtun alls
staðar eins
Joaquín Cortés hefur ferðast víða um heim með
flamenco-sýningar sínar.
♦♦♦
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
TVÖ af 87 sætum í stjórnum þeirra 15 félaga sem
mynda Úrvalsvísitölu Kauphallar Íslands eru
skipuð konum. Eru það 2,3% stjórnarsætanna og
hefur hlutfallið ekki verið lægra síðan árið 2000.
Sé litið til allra skráðra félaga í Kauphöll Íslands
er hlutfallið 3,4% en alls eru átta konur stjórn-
armenn af 234 stjórnarmönnum skráðra félaga.
Hjá leiðandi evrópskum fyrirtækjum er hlutfall
kvenna í stjórnum 5,8% en norskar konur eiga
hlutfallslega flest stjórnarsæti í þarlendum fyr-
irtækjum, 18,2%. /C1
Tvær konur af 87
stjórnarmönnum
Gagnrýni á Ísrael
ekki gyðingahatur
Berlín. AFP.
COLIN Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
sagði í gær á ráðstefnu um gyðingahatur að gagn-
rýni á Ísrael væri lögmæt, en „of langt væri gengið“
þegar hún væri notuð til að réttlæta hatur á gyð-
ingum. Ráðstefnan er haldin í Berlín á vegum Ör-
yggis- og samvinnustofnunar Evrópu og þýskra
stjórnvalda.
„Það er ekki til marks um hatur á gyðingum að
gagnrýna stefnu Ísraelsríkis, en það er of langt
gengið þegar nasistatákn, til dæmis, eru notuð til að
níða Ísrael eða ísraelska leiðtoga eða dregin upp
mynd af þeim sem kynþáttahöturum,“ sagði Powell.
Margir gyðingar og evrópskir fulltrúar á ráð-
stefnunni sögðu við setningu hennar að íslamskir
öfgamenn í Evrópu nýttu sér átökin í Mið-Aust-
urlöndum til að kynda undir hatri á gyðingum þótt
þeir í orði kveðnu væru að verja Palestínumenn.
LÖGREGLAN í Lúxemborg kom í gærmorg-
un í Kaupthing Bank SA í Lúxemborg og afl-
aði upplýsinga um viðskipti tengd Baugi
Group og fjárfestingarfélaginu Gaumi, sem á
stóran hlut í Baugi. Farið var fram á afhend-
ingu gagna samkvæmt dómsúrskurði frá sak-
sóknara í Lúxemborg. Þetta er gert sam-
kvæmt ósk efnahagsbrotadeildar ríkis-
lögreglustjóra sem hefur málefni félaganna
til rannsóknar.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins
fór lögreglan í Lúxemborg fyrst á heimili
bankastjórans fyrir opnun bankans og síðan
ásamt honum í Kaupthing Bank þar sem lagt
var hald á tiltekin gögn með vísan til rann-
sóknar lögreglu á málefnum fyrirtækjanna.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins
mun rannsóknin í Lúxemborg halda áfram
næstu daga. Þá hefur samkvæmt heimildum
blaðsins verið gerð húsleit á undanförnum
dögum á vegum embættis skattrannsóknar-
stjóra hjá öðrum aðilum á Íslandi, sem tengj-
ast rekstri fyrirtækjanna tveggja.
Sigurður Einarsson, stjórnarformaður KB
banka, sagði í samtali við Morgunblaðið að út
af fyrir sig væri ekki óalgengt að yfirvöld í
þeim löndum, þar sem bankinn starfaði, leit-
uðu upplýsinga um tiltekin viðskipti eða við-
skiptavini. „Bankinn verður að sjálfsögðu við
þeim beiðnum, eftir þeim reglum sem gilda á
hverjum stað fyrir sig,“ segir Sigurður. Hann
segir að lögreglumennirnir hafi haft dóms-
úrskurð eins og reglur í Lúxemborg geri ráð
fyrir, en bankaleynd er þar mikil.
Efnahagsbrotadeild gerði húsleit hjá Baugi
Group 28. ágúst 2002 vegna ásakana Jóns
Geralds Sullenberger um auðgunarbrot Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar, þáverandi stjórnar-
formanns, og Tryggva Jónssonar forstjóra.
Um hálfum mánuði síðar gerðu starfsmenn
efnahagsbrotadeildarinnar húsleit í höfuð-
stöðvum verslanakeðjunnar SMS í Færeyj-
um, sem Baugur Group var þá helmingshlut-
hafi í.
Í nóvember síðastliðnum gerðu fulltrúar
embættis skattrannsóknarstjóra ríkisins hús-
leit hjá Baugi Group og Gaumi, en þá kom
fram að húsleitin væri sprottin úr rannsókn
lögreglunnar. Var þess krafist að afhent yrði
fært bókhald og fylgiskjöl þess, svo og önnur
gögn er vörðuðu reksturinn á árunum 1998–
2002. Einnig voru önnur gögn tekin, s.s. bréf,
samningar, tilboð og verðútreikningar.
Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs
Group, sendi í gær frá sér fréttatilkynningu,
þar sem segir að lögregla hafi beðið um upp-
lýsingar varðandi reikninga í eigu Baugs
Group hf., fyrirtækja í eigu félagsins og
tengdra aðila. Um sé að ræða sömu rannsókn
og hófst í ágúst 2002. „Allir hlutaðeigandi
hafa staðfastlega neitað sakargiftum. Þessi
rannsókn hefur nú staðið yfir í tæp tvö ár án
þess að leitt hafi verið í ljós, að brot hafi verið
framin,“ segir í tilkynningu Hreins. „Baugur
Group hf. hefur veitt íslenskum yfirvöldum
allar þær upplýsingar og aðstoð, sem óskað
hefur verið eftir, og væntanlega er verið að
sannreyna þau gögn með þeirri lögreglu-
heimsókn ytra, sem fram fór í morgun.“
Hreinn segir að Baugur Group hf. vænti
þess „að látlausum árásum af þessu tagi fari
að linna, þannig að fyrirtækið fái starfsfrið.“
Lögreglan lagði hald á
gögn um Baug og Gaum
Lögreglan í Lúxemborg lagði hald á gögn um viðskipti tengd Baugi
Group og fjárfestingarfélaginu Gaumi í Kaupthing Bank í Lúxemborg
SUMARIÐ fór blíðum höndum um sunnanvert landið í gær og sáust
fölir kroppar víða spriklandi og skoppandi um eins og kálfar að
vori. Íbúar Hveragerðis heyrðu ekki til undantekninga, en þar hóp-
aðist unga kynslóðin í sund og buslaði að loknum skóladegi.
Morgunblaðið/RAX
Spriklað í sumri og sól
LÍKLEGT er að lögum um eign-
arhald fjölmiðla í Noregi frá 1998
verði breytt fyrir sumarhlé Stór-
þingsins með það í huga að tryggja
tjáningarfrelsi, samkeppni og fjöl-
breytni á markaðnum, eins og það
er orðað í skýrslu stjórnvalda frá
því í janúar.
Verða sett ný ákvæði þar sem
takmarkaður er réttur eins fyrir-
tækis til að ná samtímis ráðandi
stöðu í tveim eða fleiri geirum, t.d.
dagblaðaútgáfu og sjónvarps-
rekstri.
Þrjár stórar samsteypur eru öfl-
ugar á norska fjölmiðlamarkaðn-
um auk ríkisútvarpsins, NRK.
Verði tillögurnar, sem hafa verið til
umfjöllunar hjá hagsmunaaðilum,
að veruleika verður slakað á regl-
unum að því leyti að þakið á mark-
aðshlutdeild á ákveðnu sviði verður
hækkað úr 33% í 40%. Einnig verð-
ur dregið mjög úr takmörkunum á
kaupum stóru samsteypnanna á
litlum héraðsblöðum. Hins vegar
má fyrirtæki sem er með hámarks-
hlutdeild á einu sviði framvegis
ekki eiga meira en 20% í öðru.
Heimildarmenn segja að með
lögunum sé ekki síst verið að
hindra eina af stóru samsteypun-
um, Schibsted, í að ná yfirburða-
stöðu á norska markaðnum.
Takmarka markaðshlutdeild
Vilja breyta/15
♦♦♦