Morgunblaðið - 29.04.2004, Blaðsíða 29
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2004 29
Á TÍMUM öflugra fjarskipta og
samgangna hefur verið auðveldara
og auðveldara fyrir fólk að kynn-
ast öðrum menningarheimum en
sínum eigin. Maður þarf ekki ann-
að en að slá inn nafn-
ið Iceland á Altavista-
.com og heilt hlass af
upplýsingum rignir
yfir skjáinn og mynd-
ir af Íslandi hlaðast
inn á vafrarann fyr-
irvaralaust. Sam-
kvæmt Ferðamálaráði
Íslands í Norður-
Ameríku er Ísland í
tísku hjá Bandaríkja-
mönnum og líta þeir á
Ísland sem vænlegan
kost til að ferðast til.
Já „að ferðast til“ en
ekki „að flytjast til“ því sam-
kvæmt nýjasta frumvarpi dóms-
málaráðherra er mottóið „Já, já,
þið megið bara koma í einhvern
smátíma og eyða peningum, en
drullið ykkur síðan heim aftur.“
Þingmál nr. 749
Nýlegt frumvarp Björns Bjarna-
sonar, þingmál nr. 749 um breyt-
ingar á lögum um útlendinga,
bitnar, ef maður hugsar út í það,
einna helst á ástinni sem maður
hélt að væri án landamæra. Björn
er að reyna að girða ástina inni
með gaddavír. Segjum svo að ís-
lenskur ríkisborgari fari í nám til
Danmerkur. Þar verður hann ást-
fanginn af 20 ára stúlku með suð-
ur-afrískan ríkisborgararétt. Þau
ákveða það að ástin þeirra sé sú
eina sanna og þau ákveða að taka
næsta skref. Eignast börn og búa
saman. Ef hún síðan ákveður að
flytjast með honum til Íslands,
segjum 22 ára gömul. Þá hefst
skrípaleikurinn því það er ekki
leyfilegt. Þau verða að bíða í 2 ár
þar til hún verður 24 ára gömul til
að mega koma til langdvalar í
landinu. Þegar þau loksins komast
til landsins þá kvikna upp grun-
semdir hjá yfirvöldum „bíddu er
þetta ekki samsæri?“ Til að kom-
ast til botns í þessu er gripið til
þess ráðs að gera skyndiárásir á
heimili þeirra og þau látin sanna
fyrir yfirvöldum að þau séu í raun
og veru ástfangin. Hann verður
yfirheyrður um uppáhalds hár-
spreyið og tannkremið hennar og
hann náttúrulega veit ekki neitt
„ég bara hef ekki pælt í því hvaða
hársprey hún notar, satt best að
segja“. Hún náttúrulega hefur
ekki hugmynd um hvað uppá-
haldstölvuleikurinn hans heitir.
Það er frekar öruggt að ef farið
væri í skyndiárás inn á heimili hjá
fólki af íslenskum uppruna þá
hefði karlinn ekki hugmynd um
hvaða hársprey eða tannkrem
konan notar. Það er mjög líklegt
að hann hafi ekki hugmynd um
nafnið á sínu eigin tannkremi,
hann kallar það bara tannkrem.
Gullfoss, Geysir og
Justin Timberlake
Og skrípaleikurinn heldur áfram
þegar kemur að stóru stundinni að
tengdó og stóri bróðir kærust-
unnar ákveða að koma til landsins
í norðrinu og eiga góða sam-
verustund með stúlkunni og kær-
astanum hennar. Þau skoða saman
stolt Íslendinga, Gullfoss og Geysi
í öllu sínu veldi, og tengdason-
urinn og tengdamamman komast
að því þeim til mikillar furðu að
þau eru bæði miklir aðdáendur
Justin Timberlake. Á meðan þau
sitja á teppinu inni í stofu og
hlusta á útbrunna slagara kappans
og tala um sambandsslit hans við
Britney Spears, þá eru systkinin
inni í eldhúsi að rifja upp æsku-
minningar yfir bolla af kaffi og
sígó. Tvær vikur líða og það er
kominn tími á að mæðginin haldi
heim á leið. Tilhugsunin um að
þurfa að vera svona fjarri dótt-
urinni er móðurinni óbærileg og
þau ákveða að hún verði eftir en
bróðirinn snýr aftur heim. En þá
versnar ástandið, því samkvæmt
frumvarpi Björns Bjarnasonar
gengur það hreinlega ekki upp að
fólk ákveði að vera
lengur á Íslandi en
góðum túrista sæmir
og harkan hefst strax.
Tekið sýni af
tengdó
Skrípaleikurinn
breytist í háalvarleg
brot á mannréttindum
og persónuvernd ein-
staklingsins. Dag einn
er tengdamamman
tekin til yfirheyrslu
og látin sanna það að
hún sé virkilega móð-
ir dóttur sinnar. Það er tekið af
henni DNA-sýni til að sanna
skyldleika hennar við dótturina.
(Vá, það væri ljótt ef dóttirin hefði
verið ættleidd á sínum tíma.)
Jæja, komið hefur í ljós að hún sé
virkilega mamma stúlkunnar. Þá
(tekur plan B við?) taka við heim-
sóknir yfirvalda á heimili þeirra
án dómsúrskurðar og heimsókn-
irnar geta átt sér stað hvenær
sem er sólarhringsins. Þar sem
upphaflegur grunur liggur í að
þarna sé ekki um raunverulega
ást að ræða heldur „mála-
myndabúskapur“ þá leita yfirvöld
að sönnunargögnum um líf þeirra
í Danmörku eða jafnvel einhver
ástarbréf. Atburðarás: Lög-
reglumaður kemur með bleikt ilm-
andi bréf til yfirmanns síns
„herra, ég held að í þessu bréfi
dagsett 11 janúar 2002 sé ekki um
ást að ræða. Það hefur komist upp
um þau því þetta bréf er frá hon-
um til hennar og það er bleikt!“
segir hann og glottir. „Ég hef
fengið toppþjálfun í að leysa svona
mál,“ segir hann og blikkar til
grunaða parsins. Hið sanna í mál-
inu er að bréfið var skrifaði af Ís-
lendingnum í tilhugalífinu og þess
vegna ekki mikið um ástarjátn-
ingar heldur var stefnan tekin á
að komast á stefnumót. Það að
hann hafi sent henni bleikt og illa
lyktandi bréf útskýrir frekar
skrýtna kímnigáfu Íslendingsins.
Við munum alltaf eiga minn-
inguna um Kaupmannahöfn
Harmleikurinn hefst þegar
mamman fer heim aftur af ótta við
herafla Íslendinga og að verða
innlimuð inn í deCODE vegna
DNA-sýnisins. Parið reynir að búa
áfram eins og eðlilegt par og inn-
an um tíðar heimsóknir yfirvalda
reyna þau að ylja sér við fallegar
minningar um ástina sem blómstr-
aði í Danmörku. Reglubundnar
spurningar yfirvalda um hvort þau
elski hvort annað veldur því að
hvert einasta jáyrði kemur með
erfiðismunum. Smám saman fer já
að breytast í að kinka kolli og það
síðan breytist í að segja „eflaust“.
Að lokum eru þau bæði farin að
efast um ástina til hvors annars
aðallega út af því að minningin um
tíðar heimsóknir yfirvalda yf-
irgnæfir minningarnar um róm-
antíkina við Strikið í Kaupmanna-
höfn. Þá er voðinn vís og óvíst er
hvað verður úr þessu sambandi
sem annars hefði átt langa lífdaga.
Ýkt dæmisaga?
Þetta er bara lítil dæmisaga,
kannski dálítið ýkt en í takt við
þann skrípaleik sem Björn
Bjarnason er að setja á svið með
frumvarpi sínu. Skilaboðin eru
skýr; ef þú verður ástfanginn af
útlendingi þá ertu einfaldlega í
djúpum skít. Dómsmálaráðuneytið
ætti kannski að ráðast í auglýs-
ingaherferð þar sem slagorðið yrði
„Ef þú verður ekki ástfanginn af
Íslendingi munum við breyta lífi
þínu í helvíti á jörð“. Sjónvarps-
auglýsingin gæti verði þannig að
par sem eru bæði af íslenskum
uppruna ganga í gegnum rjóður
og kjarr þar sem blóm og lauf
strjúka barma þeirra þannig að
þvílíkur unaður leikur um og und-
ir þessu hljómar hið ástsæla lag
Íslendinga „Rökkurró.“ Síðan
kæmi dimman yfir og annað par af
blönduðum uppruna birtist. Lagið
„Du Hast“ glymur í hátt og það
heyrist í haferni úr fjarlægð. Par-
ið gengur í gegnum skóg af
gaddavír og holdið rifnar af því
því lengra sem það fer. Þau gráta
bæði. Slagorðið kæmi upp: „Vertu
ástfanginn af útlendingi, við mön-
um þig. Dómsmálaráðuneytið.“
Baneitrað frumvarp
Björns Bjarnasonar nr. 749
Hákon Skúlason skrifar
um afstöðu til útlendinga ’Parið gengur í gegnumskóg af gaddavír og
holdið rifnar af því því
lengra sem það fer.‘
Hákon Skúlason
Höfundur er varaformaður FUF-RN.
Laugavegi 63
(Vitastígsmegin)
sími 551 2040
Silkitré og silkiblóm
Kryddhlífðar-
pottar í eldhúsið
Fréttir á SMS
EINBÝLISHÚS TIL LEIGU
Í ÞINGHOLTUNUM
Lágmúla 9, 6. hæð • Sími 533 1122 • Fax 533 1121
Á besta stað í Þingholtum er til leigu einbýlishús ca 240 m² ásamt 20 m²
bílskúr. Í boði er leigusamningur til nokkurra ára.
Nánari upplýsingar á skrifstofu.