Morgunblaðið - 29.04.2004, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 29.04.2004, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2004 57 ÁLFABAKKI Sýnd kl. 6 og 8. Með ensku tali / Sýnd kl. 4. Með ísl tali AKUREYRI Kl. 6. Með ísl tali AKUREYRI kl. 6, 8 og 10. B.i.12 ára KRINGLAN Sýnd kl. 6. Með ísl tali Það vilja allir vera hún, en hún vil vera „frjáls“ eins og allir aðrir.Sprenghlægileg rómantísk gamanmynd um forsetadóttur í ævintýraleit! Stranglega bönnuð innan 16 ára. SV. MBL  VE. DV Fyrsta stórmynd sumarssins KRINGLAN Forsýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16 ára.  Tær snilld. Skonrokk. KEFLAVÍK Sýnd kl. 10. KRINGLAN Sýnd kl. 8 og 10. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 10.20. ÁLFABAKKI Kl. 6, 8 og 10.10. FORSÝNING KRINGLAN Sýnd kl. 8 og 10.10. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.45, 5.45, 8 og 10.10. Með L i ndsay Lohan úr Freaky Friday Frábær gamanmynd um Dramadrottninguna Lolu sem er tilbúin að gera ALLT til að hitta „idolið“ sitt! „Frábærar reiðsenur, slagsmálatrið i, geggjaðir búningar og vel útfærðar tæknibrellur“ Fréttablaðið rar i ur, latrið , j ðir i r og l tf rðar i r llur“ r tt l ðið ÁLFABAKKI Sýnd kl. 6 og 8.30. B.i.12 ára Viggo Mortenson í magnaðri ævintýramynd byggð á sannri sögu! Enginn trúir því að hann muni lifa af þetta villta og seiðandi ferðalag. FORSÝNING  Kvikmyndir.is F r u m s ý n d e f t i r 8 d a g a IVOR Novello-verðlaunin verða afhent í 49. skiptið í Lundúnum hinn 27. maí næstkomandi. Verð- launin veita samtök breskra tón- skálda og lagahöfunda og eru af- ar virt í „bransanum“. Í poppgeiranum bítast Will Young (úr bresku Stjörnuleitinni), Dido og Belle and Sebastian um besta lag ársins 2003. Dizzee Rascal, Amy Winehouse og Kylie Minogue munu hins veg- ar bítast í flokknum „besta sam- tímalagið“. Minogue, sem áður hefur unnið til verðlaunanna, er tilnefnd fyrir lagið „Slow“ en það er samið af henni sjálfri ásamt þeim Mr. Dan og Emilíönu okkar Torrini. Emilíana og Mr. Dan áttu einn- ig þátt í tveimur öðrum lögum á síðustu plötu Minouge, Body Language, þaðan sem „Slow“ kemur. Fleiri sem eru tilnefndir eru t.d. Coldplay, Sugababes og Robbie Williams. Samkvæmt www.emiliana.nu, einni af stærri aðdáendasíðum hennar (já, þær eru nokkrar!), vinnur Emilíana svo að nýrri plötu um þessar mundir en fyrsta og eina breiðskífa hennar til þessa fyrir erlendan markað, Love in the Time of Science, kom út árið 1999. Útgáfu má vænta í október og líklega verður farið í hljóm- leikaferðalag í nóvember. Emil- íana lék þá á hljómleikum í París í aprílbyrjun og kynnti þar ný lög, m.a. „Sunny Road“, „Bring Me Down“ og „HoneyMoon Child“. Morgunblaðið/Golli Emilíana Torrini er einn þrigga höfunda lagsins „Slow“ sem varð afar vin- sælt á síðasta ári í flutningi poppdrottningarinnar Kylie Minogue. Ivor Novello-verðlaunin verða afhent 27. maí Emilíana Torrini tilnefnd ásamt tveimur öðrum Séð tvöfalt (Shuang tong) Spennumynd  Taívan/Hong Kong 2002. Skífan. VHS (114 mín.) Bönnuð yngri en 16 ára. Leik- stjóri: Chen Guofu. Aðalleikarar: Tony Leung Ka Fai, David Morse, Rene Liu, Leon Dai, Kuei-Mei Yang. UNDARLEGIR atburðir eiga sér stað í Taípei, höfuðborg Taív- ans. Maður frýs í hel á sólríkum sumardegi og annar brennur til bana þótt annað sé óskemmt um- hverfis hann. Rannsókn leiðir í ljós að bæði fórn- arlömbin þjást af ókennilegri sveppasýkingu við heilann. Lög- regluforinginn Hauang Huo-Tu (Tony Leung Ka Fai), stendur ráðþrota gagnvart þessum ósköp- um. Hann grípur til neyðarúrræð- is, leitar hjálpar alríkislöggunnar Richters (David Morse), hjá bandaríska sendiráðinu. Richter er sérfræðingur í raðmorðingjum, en drápin tvö benda til þess að slíkur háskagripur sé á ferð. Spennandi og vel leikin mynd af aðalleikurunum tveimur sem halda hlutunum gangandi og eru algjör- ar andstæður í skapferli og útliti. Þeir minna þó engan veginn á klisjur eins og Jackie Chan og Chris Rock í Rush Hour-mynd- unum. Eru alvörugefnari, efnið drungalegra, sambland af spennu- mynd og hrollvekju, með fyndnum köflum sem einkum skapast af eðlilegum kringumstæðunum; þeir eiga í mestu vandræðum með að skilja hvor annan. Tvöföld sýn er spennumynd vel í meðallagi og talsvert frumleg í miðri raðmorðingjamyndasúpunni. Aðdragandi, umhverfi og fram- kvæmd morðanna eru með fersku og framandi sniði, blönduðu aust- urlenskri dulúð. Þó kemur á óvart að sjá Morse á þessum slóðum eft- ir stígandi velgengni, síðast í The Green Mile. Maður var farinn að vona að þessi fíni leikari væri sestur að í alvörumyndum við hæfi hans ótvíræða atgervis og leik- sigra. Sæbjörn Valdimarsson Myndir Raðmorð í austri www.thumalina.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.