Morgunblaðið - 29.04.2004, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 29.04.2004, Blaðsíða 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2004 27 UNGIR slagverksleikarar frá Dan- mörku, Hørsholm Percussion og Marimba Ensemble, halda tónleika í Norræna húsinu kl. 20 í kvöld, fimmtudagskvöld. Á efnisskránni verða m.a. verk eftir Milhaud, Bach og Chopin. Hópinn skipa 13 ungir slagverks- og marimbuleikarar á aldrinum 16– 24 ára undir leiðsögn Ole Pedersen sem stýrt hefur Hørsholm Percuss- ion og Marimba Ensemble síðustu 25 árin. Hópurinn heyrir undir Tónlistar- skóla Hørsholms. Á þessum tíma hefur Ole ferðast með hópnum víða um heim, m.a. til Bandaríkjanna, Kanada, Ástralíu, Japan og um Evrópu. Hópurinn heldur um 40–50 tón- leika á ári, tekur m.a. þátt í ár- legum útitónleikum í Berlín og Munchen. Ole Pedersen er fæddur 1938. Hann lék á slagverk með Sinfón- íuhljómsveitinni í Malmø 1964–1969 og hefur frá þeim tíma starfað við Det Kongelige Kapel. Ole hefur kennt við Det Fynske Musikkons- ervatorium frá 1980. Hópurinn fór í tónleikaferðalag til Japans 1993 og tók þar upp hljómdiskinn Live in Japan sem áhugasamir geta nálgast á bóka- safni Norræna hússins. Slagverk í Norræna húsinu Í SÝNINGARSAL Íslenskrar grafíkur í Hafnarhúsinu sýnir Hjördís Brynja Mörtu- dóttir á þriðja tug málverka, unnin með eggtempera. Þetta eru einfaldar myndir, hugljúfar og átakalitlar sem vísa til náttúr- unnar. Hjördís útskrifaðist úr Nýlistadeild Myndlista- og handíðaskólans árið 1989 og sótti svo framhaldsnám í Rudolf Steiner hogeskole í Svíþjóð sem byggir á andropósófíu (mannspeki) Rudolf Steiners. Það eru ekki margir starfandi myndlist- armenn á Íslandi sem vinna markvisst út frá kenningum Steiners, en þær höfðu víð- tæk áhrif á frumkvöðla abstraktlistarinnar fyrir tæpum 100 árum. Andropósófían er á sinn hátt ögrandi fyrir efnishyggju nú- tímans. Í verkum Hjördísar kemur hún m.a. fram í vinnuferlinu. Þ.e. að hún notar umhverfisvænt hráefni og vinnur allt frá grunni, smíðar eigin blindramma og malar litaduftið sjálf frekar en að fara út í búð og kaupa allt verksmiðjuframleitt og tilbúið til notkunar. Þessi grunnvinna er partur af listsköpuninni og leið listakonunnar til að tengjast efninu. Hvað útkomuna varðar þá truflaði það mig hve verkin eru bundin við snemm-módernismann, eins og algengt er hjá Steiner-menntuðum myndlistarmönn- um. Er þannig séð dottið úr takti við þróun myndlistar síðan í árdaga abstraktsins. Mér vitandi er Ráðhildur Ingadóttir eini íslenski myndlistarmaðurinn sem vinnur út frá kenningum Steiners í takti við annað í samtímalistum og er þeim samt trú. Ég sakna þessa í verkum Hjördísar en geri mér þó grein fyrir tilætlunarsemi í þeim orðum mínum þar sem kenningar Steiners miðast fyrst og fremst við innri þróun listamannsins til hins eilífa, en ekki í ein- hverjum samtíma. Sjálfrátt og skreytt Í Listasafni Reykjanesbæjar stendur yf- ir sýning á verkum Kristjáns Jónssonar. Kristján kom sterkur inn í íslenskan myndlistarheim um miðjan síðasta áratug, þá sérstaklega með eftirminnilegri sýningu í Sólon Íslandus árið 1996. Hann hefur haft hægt um sig síðan en sýnt reglulega, t.d. í Hafnarborg, Listasafni Borgarness, Stöðlakoti og nú í Listasafni Reykjanes- bæjar. Kristján fellur vel inn í hóp lista- mannanna sem þegar hafa sýnt í safninu, en sýningar þar hafa aðallega miðast við málverk með áherslum á liti og form frek- ar en hugmyndafræði eða frásögn. Krist- ján er málari sem virðist una sér við efnið eitt og kanna möguleika þess innan mynd- rammans. Hann byggir upp málverkið í lögum (overlapping), ber efnið á myndflöt- inn, skefur svo af eða þvær. Aðferðin er vel kunn en misjafnt er hvernig listamenn nýta sér hana. Kristján vinnur agað og áhættulaust og eru verkin sérlega „dek- oratíf“ þrátt fyrir sjálfráða aðferðina. Listamanninum er þetta sýnilega ljóst og ýtir undir „dekorasjónina“ með því að teikna skreytikennd flúr og hverfult letur á myndflötinn. Sumir titlar verkanna vísa einnig til skreytilistar. Með þessu móti skapar hann athyglisverða mótsögn við að- ferðina. Það er augljóst að Kristján hefur yndi af iðju sinni. Hann er flinkur í efn- istökum en er að sama skapi ofurseldur efninu og hvað sem hann vill svo segja út fyrir það er kæft í málningu. Feitlagnir ferðamenn í landslagi Í Grindavík hefur Saltfisk- setur Íslands tekið upp þá nýjung að bjóða upp á mynd- listarsýningar. Daði Guð- björnsson sýndi þar í fyrra og nú sýnir Soffía Sæmundsdótt- ir í setrinu 20 myndverk. Soffía hefur skapað sér nafn fyrir hálf-naíf málverk sem eiga sér m.a. ríka hefð í Bretlandi. Þessi tegund af málverki er af einhverjum sökum mjög vinsæl í hús hér á landi og hafa allnokkrir listamenn skapað sér ágætis markað á Fróni með þess háttar myndum. Karólína Lárusdóttir, sem dæmi, Gunnella, Hekla Björk Guð- mundsdóttir o.fl. Þess háttar myndir má finna í flestum listmunagalleríum landsins og satt að segja finnst mér þorri þeirra hrein skelfing. Soffía hefur það þó fram yfir marga þessara málara að vera mal- erísk og hefur metnað til að þróa sig í efnistökum. Það er helst landslagið sem hefur styrkst hjá listakonunni gegnum tíðina en feitlagnir ferðamenn sem gjarnan prýða myndir hennar, klæddir í ein- hvers konar þjóðbúning eða lúðrasveitarbúning, virðast alltaf hanga í sama farinu. Sýningin í Saltfisksetrinu er sú fyrsta sem listakonan heldur hérlendis eftir náms- ferð til Kaliforníu þar sem hún skipti um gír og gerði gríðarstórar kolteikningar, óhlutbundnar að mér skilst. Ég átti því von á róttækum breytingum í nýjum verkum listakonunnar. En svo er ekki. Reyndar eru nokkrar smámyndir á sýn- ingunni sem heita „Tími“ sem eru grófari eða hrárri en ég hef vanist frá listakon- unni og svo eru 3 landslagsmyndir sem nefnast „Brot“. Þar þykja mér forvitni- legir hlutir vera að gerast. En mér þykir ekki síður forvitnilegt að þessar myndir voru þær einu sem enn voru óseldar á sýningunni þegar ég leit þar við. Málverk, málverk MYNDLIST Sýningarsalur Íslenskrar grafíkur MÁLVERK HJÖRDÍS BRYNJA MÖRTUDÓTTIR Opið fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 14–18. Sýn- ingu lýkur 9. maí. Listasafn Reykjanesbæjar MÁLVERK KRISTJÁN JÓNSSON Opið alla daga frá kl. 13–17. Sýningu lýkur 2. maí. Saltfisksetur Íslands MÁLVERK SOFFÍA SÆMUNDSDÓTTIR Opið alla daga frá kl. 11–18. Sýningu lýkur 2. maí. Eitt af verkum Hjördísar Brynju Mörtudótt- ur í Sýningarsal Íslenskrar grafíkur. „Ornamentum II“ eftir Kristján Jónsson. Úr myndröðinni „Tími“ eftir Soffíu Sæmundsdóttur. Jón B.K. Ransu mbl.isFRÉTTIR Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Heimsferðir opna þér leiðina til Ítalíu á hreint ótrúlegum kjörum í sumar, en aldrei fyrr hefur verið jafn ódýrt að komast þangað eins og nú með beinu flugi Heimsferða til Bologna eða Trieste. Þú getur valið um flugsæti eingöngu, flug og bíl eða úrval góðra hótela á áfangastöðum Heimsferða. Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 23.995 Flugsæti á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, Forli, 24. júní. Netverð. Verð kr. 28.320 Flug og bíll í viku, á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, 24. júní, netverð. Bíltegund B. Ítalía frá kr. 23.995 í sumar með Heimsferðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.