Morgunblaðið - 29.04.2004, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 29.04.2004, Blaðsíða 8
FORSETAHJÓNIN voru gestir í 2.000 manna veislu Kvikmyndastofn- unar Lincoln Center í New York á mánudagskvöld. Veislan var haldin til heiðurs breska leikaranum Michael Caine, en hann er fimmti Bretinn sem Kvikmyndastofnunin heiðrar fyrir ævistörf sín í þágu kvikmynda. Samkvæmt upplýsingum frá skrif- stofu forseta Íslands er vinskapur með fjölskyldu Caines og forseta- hjónunum og því var þeim boðið að vera viðstödd veisluna. Þar hélt for- seti Íslands, Ólafur Ragnar Gríms- son, ræðu en í frétt New York Times frá atburðinum er þess getið. Ólafur Ragnar var staddur í New York í tilefni af ársþingi Austur- vestur stofnunarinnar er hátíðin fór fram. Forsetinn í veislu til heiðurs Michael Caine Forsetahjónin Dorrit Moussaieff og Ólafur Ragnar Grímsson ræða við leik- arann Steve Martin í veislu Kvikmyndastofnunar Lincoln Center. FRÉTTIR 8 FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Það er ekkert lát á góðærinu hjá Orra frá Þúfu, bíðandi merarbossar svo langt sem augað eygir. Vísindadagur á Keldum Innsýn í öflugt vísindastarf Vísindadagur verðurhaldinn í bókasafn-inu á Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum á morgun og hefst hann klukkan 8.30 með ávarpi Þorgerðar Katrínar Gunn- arsdóttur menntamálaráð- herra. Síðan rekur hvert erindið annað. Morgun- blaðið ræddi af þessu tilefni við Stefaníu Þorgeirsdótt- ur, sérfræðing á Tilrauna- stöðinni á Keldum, sem hefur ásamt fleirum unnið að undirbúningi dagsins og fara svör hennar hér á eftir. Segðu okkur fyrst hver er forsaga þessa Vísinda- dags? „Það er ekki löng for- saga. Í stuttu máli var hald- inn Vísindadagur hér á Keldum í fyrsta skipti fyrir tveim- ur árum, nánar tiltekið 3. maí 2002. Þetta var eins dags ráðstefna hald- in í bókasafninu sem tókst svo ein- staklega vel að okkar mati að ákveðið var að halda slíkan dag annað hvert ár.“ Hvert er tilefni þessa og hver eru markmiðin? „Tilefnið er, að nauðsynlegt er að kynna niðurstöður þeirra rann- sókna- og fræðistarfa sem hér fara fram á vegum vísindamanna og samstarfsaðila, bæði innlendra og erlendra. Það má eiginlega flokka markmiðin í þrennt. Í fyrsta lagi er það starfsemin hér á Keldum, það er gott fyrir innra starfið að starfs- menn hér sjái hvað kollegar þeirra eru að gera. Hér eru um 60 starfs- menn á vegum Tilraunastöðvar- innar og 12 til viðbótar frá embætti yfirdýralæknis, sem hafa aðstöðu hér á Keldum og er mikið og gott samstarf á milli hópanna. Í öðru lagi er það hollt og gott út á við að kynna starfsemina fyrir öllu vís- indasamfélaginu. Og í þriðja lagi, síðast en ekki síst, er gott að geta kynnt fyrir almenningi það starf sem hér fer fram. Samkvæmt því, er Vísindadagurinn opinn öllum sem áhuga hafa á þeim málefnum sem kynnt verða og það kostar ekkert inn.“ Það er oft talað um „eins og hús- rúm leyfir“, hvað komast margir fyrir í bókasafninu á Keldum? „Við erum með ágætis rými og góðan fyrirlestrasal. Við getum tekið á móti þó nokkrum hópi gesta, með góðu móti tæplega hundrað manns.“ Var þetta vel sótt fyrir tveimur árum? „Já, ágætlega“ Hvað geturðu sagt okkur um dagskrána að þessu sinni? „Þetta er afar viðamikil dag- skrá. Það eru tuttugu erindi og tuttugu aðrar kynningar á verk- efnum á veggspjöldum. Alls koma 160 nöfn við sögu í þessum verk- efnum, reyndar er eitthvað um að sömu aðilar eigi aðild að fleiri en einu verkefni. Þetta eru aðallega sérfræðingar á Keldum, en það koma líka fleiri við sögu, til dæmis hafa undanfarin ár ver- ið margir háskólanem- ar að störfum á Keld- um, aðallega líffræði- og lífefnafræðinemar í rannsóknatengdu fram- haldsnámi. Að þessu sinni eru ellefu nemar tengdir er- indum eða veggspjöldum. Án þess að á neinn sé hallað má nefna þrjá yfirlitsfyrirlestra. Ást- ríður Pálsdóttir, sérfræðingur á Keldum, fjallar um riðu, príon sjúkdóma og smitandi prótein, Sig- ríður Björnsdóttir, dýralæknir á Hólum, fjallar um rannsóknir sín- ar á minjum um uppruna íslenska hestsins og meinsemdir sem hrjáðu landnámshestinn, byggt á rannsóknum á beinum þeirra. Og Ólafur S. Andrésson, nýráðinn prófessor við Háskóla Íslands, flytur síðan erindi um Keldur og nýjar aðferðir sameindalíffræðinn- ar.“ En þetta er mikill fjöldi erinda, hvað verður helst áberandi? „Það er rétt, þetta er afar fjöl- breytt ráðstefna og það kennir ým- issa grasa, enda eru rannsóknir á Keldum á margvíslegum sviðum dýrasjúkdóma og skyldra efna. Líklega má í dagskránni finna dæmi um flest það sem er í gangi hjá okkur, en það fer þó ekki hjá því að sumt er mun burðarmeira en annað. Til dæmis mun bera mikið á fiskum. Þarna verður m.a. að finna erindi um það nýjasta og ferskasta í rannsóknum á ónæm- iskerfi og sníkjudýrum fiska. Einnig verða erindi um rannsóknir á hæggengum smitsjúkdómum í spendýrum, sjúkdómum á borð við mæði-visnu og riðu svo dæmi séu tekin. Mæði-visna er ekki vanda- mál lengur, en hún er skyld HIV og því um mikilvægar rannsóknir að ræða. Riða er aftur á móti enn til ama til sveita. Greint verður m.a. frá nýjum aðferðum í grein- ingu veikinnar og baráttunni gegn henni. Þá verða fróðleg erindi um smit- sjúkdóma sem geta borist úr dýr- um í menn og má nefna sem dæmi kamfýlóbakter, en komið er inn á faraldur sem gaus hér upp um árið er farið var að selja ferska kjúk- linga. Tvö erindi og eitt veggspjald munu taka þetta fyrir og þar verð- ur framvindan og vís- indavinnan reifuð. Annað athyglisvert erindi sem nefna mætti er um fuglablóðögður sem hafa nú fundist víða um land, m.a. í tjörn- inni í Fjölskyldugarðinum og bað- lóninu í Landmannalaugum. Agð- an veldur svokölluðum sund- mannakláða. Þá eru erindi um ný sníkjudýr í hreindýrum og sauðfé og fleira mætti tína til, en menn geta fræðst um dagskrána á www.keldur.hi.is.“ Stefanía Þorgeirsdóttir  Stefanía Þorgeirsdóttir er fædd í Reykjavík 3. júní 1962. Stúdent frá MR 1982 og BSc í líf- fræði frá HÍ 1987. Lauk doktors- gráðu í frumulíf- og örverufræð- um frá Boston University árið 1995. Árið 1996 réðst hún sem sérfræðingur við Tilraunastöð- ina á Keldum og starfar þar enn. Maki er Karl Blöndal aðstoðar- ritstjóri á Morgunblaðinu og börn þeirra eru Þorgeir 8 ára og Margrét 4 ára. Allt frá fugla- blóðögðum til landnáms- hestsins SAMKVÆMT skoðanakönnun Fréttablaðsins, sem birt var í gær, er 61% þeirra sem tóku afstöðu and- vígt ríkisstjórninni en 39% eru henni fylgjandi. Í frétt blaðsins segir að stuðningur við ríkisstjórnina hafi farið minnkandi í þremur síðustu könnunum. Í ágúst á síðasta ári hafi hún notið stuðnings 58% lands- manna. Samfylkingin fær 35,3% atkvæða, vinstri-grænir 15,3% og Frjálslyndi flokkurinn 4,9% í könnuninni. Fylgi við Sjálfstæðisflokkinn minnkar á milli kannana um tæp 9% og nýtur hann stuðnings 31,6% svarenda. Framsóknarflokkurinn bætir við sig fylgi og fær 12,7% atkvæða. Skoðanakönnunin var fram- kvæmd sl. mánudagskvöld og voru 800 manns spurð, sem skiptust jafnt á milli kynja og hlutfallslega milli landshluta. Þegar spurt var um stuðning við ríkisstjórnina tóku 83,7% afstöðu, 12,9% voru óákveðin og 3,4% neituðu að svara. Hins vegar tóku 56,3% afstöðu þegar spurt var um stuðning við stjórnmálaflokk yrði gengið til kosninga nú. Minni stuðn- ingur við ríkisstjórn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.