Morgunblaðið - 29.04.2004, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 29.04.2004, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga FÉLAGSMENN í Verslunar- mannafélagi Hafnarfjarðar felldu nýgerðan kjarasamning við Félag íslenskra stórkaupmanna. Samn- ingurinn var naumlega samþykkt- ur í atkvæðagreiðslu meðal fé- lagsmanna í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur en þar kusu aðeins 12% félagsmanna eða 218. Já sögðu 51,37% en nei 48,63%. Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, segir þessa litlu þátttöku valda verulegum vonbrigðum, svo og hve mjótt var á munum í atkvæða- greiðslunni. Hann bendir einnig á að verslunarmenn í Hafnarfirði hafi fellt samninginn. „Við ætlum að taka upp viðræður við atvinnurekendur aftur í ljósi þessa til að fara yfir stöðuna,“ seg- ir hann. Leita skýringa á lítilli þátttöku Gunnar Páll segir að úrslitin í Reykjavík og lítil þátttaka verði hugsanlega túlkuð sem almenn óánægja með samninginn. „Eða þá að einhverjir hinna óánægðu hafi verið háværir og aðrir viljað láta þá njóta sín, ef svo má segja.“ Sú nýbreytni var við afgreiðslu samningsins að kosið var um hann á Netinu. Gunnar Páll segir að von- ir hafi staðið til þess að þátttaka myndi aukast með nýju fyrirkomu- lagi en því hafi verið öfugt farið. Atkvæðagreiðsla er hafin um kjarasamning VR og Samtaka at- vinnulífsins, sem undirritaður var 21. apríl sl. Kosið er rafrænt um samninginn á Netinu. Á kjörskrá eru tæplega 20 þúsund félagsmenn en langflestir félagsmenn VR starfa samkvæmt samningi VR og SA. Kjarasamningur VR við FÍS var naumlega samþykktur Verslunar- menn í Hafnar- firði felldu HVERGI skorti á lipurð og fínlegar hreyfingar þegar þessar ungu ballettmeyjar frá Klassíska listdansskólanum tóku spor sín á sviði Borgar- leikhússins í gærkvöld. Tilefni sýningarinnar var í raun tvöfalt, því sýningin var í senn vor- og afmælissýning í tilefni af tíu ára afmæli skólans, isveisluna, þar sem ólíkar furðuverur komu fram. Þar á meðal voru hressar póstkonur, mar- íuhænur og moldvörpur, letidýr, blómadísir og skóálfar auk Maríu kanínumóður, sem gætti barna sinna vel og lögðu allir sig fram eins og vera ber. sem Guðbjörg Skúladóttir skólastýra stofnaði árið 1994. Nemendur skólans á öllum aldri, frá fimm ára og upp úr, sýndu dans af ýmsum toga. Þannig sýndu yngstu nemendur listdansskólans meðal annars heimatilbúið dansverk skólans, Afmæl- Morgunblaðið/Eggert Fimar dansmeyjar leika listir sínar STJÓRNARLAUN hjá tíu af stærstu fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöll Íslands hafa hækk- að um 62% að meðaltali á tveimur árum. Mest hækkun hefur orðið á stjórnarlaunum hjá Bakkavör, þau hafa ríflega þrefaldast, farið úr 780 þúsundum á ári í 2.620 þúsund á ári. Stjórnarlaun hjá Straumi og Burðarási, sem áður var Eim- skipafélagið, hafa tvöfaldast og hækkunin hjá KB banka nemur 82%. Samanlögð stjórnarlaun allr- ar stjórnar félags eru hæst hjá KB banka, 24 milljónir króna á ári, og þar er krónutöluhækkunin á sam- anlögðum stjórnarlaunum jafn- framt mest, eða 13,4 milljónir á tveimur árum. Næsthæst stjórn- arlaun samanlagt greiðir Bakkavör 18,3 milljónir á ári, Íslandsbanki 11,6 og Síminn alls 11,2 milljónir. Meðalþóknun almenns stjórnar- manns á mánuði hefur þannig hækkað úr 54 þúsund krónum á mánuði í 72 þúsund krónur. Hæstu stjórnarlaun námu 150 þúsundum árið 2002 en hæstu launin nú nema 218 þúsund krón- um á mánuði. Stjórnarlaun hafa hækkað um 62% á tveimur árum  Snarhækkandi/C6 MIKLAR umræður fóru fram á Al- þingi í gær um skýrslu nefndar menntamálaráðherra um eignarhald á fjölmiðlum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra fylgdi skýrslunni úr hlaði á þingfundi sem hófst eftir hádegi og tóku síðan við umræður sem stóðu yfir í allan gærdag og fram á nótt og var ekki lokið þegar Morgunblaðið fór í prentun upp úr miðnætti. Menntamálaráðherra sagði við umræðurnar að samþjöppun á fjöl- miðlamarkaði hér á landi væri langt- um umfangsmeiri en nokkur dæmi væru um í öðru vestrænu lýðræðis- ríki. Sagði Þorgerður Katrín að eitt stærsta fyrirtækið í íslensku við- skiptalífi, sem ætti hagsmuna að gæta á fjölmörgum sviðum, hefði á stuttum tíma náð undir sig stærstum hluta af íslenska fjölmiðlamarkaðn- um. Nauðsynlegt væri að grípa til viðeigandi aðgerða á grundvelli skýrslunnar. Þingmenn sögðu skýrsluna vel unna og ítarlega en stjórnarand- stæðingar gagnrýndu aftur á móti fjölmiðlafrumvarp ríkisstjórnarinn- ar harðlega. Bryndís Hlöðversdóttir, þingmað- ur Samfylkingar, sagði að ríkis- stjórnin hefði fallið í þá undarlegu gryfju að semja upp úr skýrslunni ótrúlega illa unnið frumvarp sem stæðist engar kröfur um lagasetn- ingu. Árni Magnússon félagsmálaráð- herra sagði að fréttaumfjöllun síð- ustu daga væri sönnun þess að eign- arhald fjölmiðla gæti haft og hefði stundum úrslitaáhrif á það hvernig fjölmiðlar fjölluðu um umdeild mál. Magnús Þór Hafsteinsson, þing- maður Frjálslynda flokksins, taldi að dygðir á borð við jafnræði og sann- girni hefðu ekki ráðið ferðinni við samningu frumvarpsins. Kolbrún Halldórsdóttir, þingmað- ur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sagðist ekki skilja hvers vegna lægi svo á að afgreiða frum- varpið á vorþingi. Þrýstingur á af- greiðslu þess væri svo mikill að einna líkast væri sem himinn og jörð væru að farast. Langar umræður urðu á Alþingi í gær um skýrslu um eignarhald á fjölmiðlum Þingmenn deildu hart Morgunblaðið/Brynjar Gauti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra í ræðustól.  Samþjöppun/10 LÖGREGLAN í Reykjavík stöðvaði 51 ökumann fyrir of hraðan akstur á tímabilinu kl. 7 til 16 í gær með nýjum leysigeislaradar lögreglunn- ar. Að sögn varðstjóra lögreglunnar getur hugsast að góð veðrátta hafi orðið þess valdandi að ökumenn stigu ótæpilega á bensínið með þessum afleiðingum. 51 tekinn fyr- ir hraðakstur ♦♦♦ NÝ KENNSLUBÓK í íslensku fyrir byrjendur kemur á næstu dögum út í Finnlandi. Bók um svipað efni kom út árið 1979, en hefur nú verið uppseld árum saman. Hópur kunnáttufólks um íslenska tungu, bæði Íslendingar og Finnar, hefur í tvö ár unnið að gerð bókarinnar. Hún hefur að mestu verið unnin í sjálf- boðavinnu um kvöld og helgar en Finnsk-íslenski menning- arsjóðurinn fjármagnar hana að hluta. Bókin skiptist í tvo hluta, textabók og málfræðiæfingar. Fyrri hlutinn byggist á auðveld- um samræðum, en í seinni hlut- anum er fjallað um íslenskt þjóðfélag, sögu þess og efnahag. Pekka, ungur Finni, leggur upp í ferð til Íslands, og í tíu köflum fylgjumst við með ferðum hans um höfuðborgina og kynnum hans af íbúum hennar. Bókinni fylgir orðasafn, máltækjasafn og kynning á íslenskri hljóð- fræði. Hún er 194 blaðsíður. Íslenska handa Finnum  Ný kennslubók/26
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.