Morgunblaðið - 29.04.2004, Síða 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
TÍKIN Kata er nýflutt til landsins
og kom hún alla leið frá Colorado í
Bandaríkjunum. Kata er sérstök að
því leyti að hún er svokallaður
„Pointing Labrador“ en Banda-
ríkjamenn hafa náð góðum árangri
við ræktun þeirra undanfarin ár.
Að sögn eiganda Kötu eru „Point-
ing Labrador“ eins í útliti og aðrir
af retriever-kyni nema að með
ákveðinni ræktun hefur tekist að
gera þá fjölhæfari veiðihunda.
Hundar af Retriever-kyni eru svo-
kallaðir sækjandi hundar en „point-
ing“-hundarnir taka líka stand á
fuglum, sem kallað er.
Eigandi Kötu segir hana fyrsta
„pointing labradorinn“ á Íslandi, en
hundarnir hafa reynst gagnlegir
við snjóflóðaleit og rústabjörgun í
Bandaríkjunum. Hann segist hafa
farið með Kötu í veiðiferðir nú í vor
og segir að hún sé öll að koma til og
vonast til þess að hún verið orðin
fyrirmyndar veiðihundur eftir æf-
ingar í sumar.
Morgunblaðið/Ingó
Kata er orðin fjöl-
hæfur veiðihundur
LITLU munaði að
mikilvæg gögn frá
kvikmyndafyrirtækinu
Saga Film glötuðust
þegar brotist var inn í
fyrirtækið aðfaranótt
föstudags og þaðan
stolið tölvu með loka-
klippi fyrsta þáttar
Saga Film um Kára-
hnjúkavirkjun. Lög-
reglumenn í Reykjavík
og starfsmaður Örygg-
ismiðstöðvar Íslands
höfðu hinsvegar snör
handtök við að upplýsa
málið sem leiddi til
þess að tölvan fannst
undir steini á Ártúns-
höfða.
Finnur Jóhannsson,
starfsmaður Saga
Film, fékk upphring-
ingu um innbrotið um
miðja nótt aðfaranótt
föstudags og dreif sig í
skyndi í vinnuna. Þá
var lögreglan mætt
auk starsmanna Ör-
yggismiðstöðvar Ís-
lands og kom þá í ljós
að tölvan var horfin. Lögreglan tók
fingraför á vettvangi og fékk einnig
upplýsingar frá glöggum starfs-
manni Öryggismiðstöðvar sem kom
á staðinn þremur mínútum eftir til-
kynningu um óboðna gesti. Hafði
hann tekið eftir grunsamlegum bíl
sem ekið hafði verið á brott
skömmu eftir innbrotið. Hann náði
niður númeri bílsins og tegund og
fann lögreglan hann stuttu síðar og
handtók tvo menn. Þeir höfðu þá
losað sig við tölvuna og falið hana
undir steini. Fannst hún á föstudag
og var henni komið í hendur Saga
Film.
„Ein tölva er kannski ekki aðal-
málið, en það var auðvitað innihald-
ið sem skipti miklu máli og því
hefði það verið mikill skaði fyrir
okkur hefði hún ekki fundist,“ sagði
Finnur. „Öryggismiðstöð Íslands og
lögreglan eiga því þakkir skildar
fyrir skjót og góð vinnubrögð.“
Rósa Stefánsdótir, starfsmaður Saga Film, með
tölvuna sem endurheimt var eftir innbrotið.
Innbrot í Saga Film upplýst með hraði
Tölvan fannst
undir steini
Morgunblaðið/Ásdís
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær fyrrum framkvæmda-
stjóra Lífeyrissjóðsins Framsýnar í
10 mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir umboðssvik og brot gegn lög-
um um skyldutryggingu lífeyrisrétt-
inda og starfsemi lífeyrissjóða, með
því að hafa misnotað aðstöðu sína
og stefnt fé sjóðsins í stórfellda
hættu.
Rúmlega 30 milljóna króna bóta-
kröfu lífeyrissjóðsins var hins vegar
vísað frá í ljósi þess að skaðabóta-
krafa sjóðsins væri ekki enn orðin
endanleg.
Ákærði var m.a. sakfelldur fyrir
að hafa farið út fyrir umboð sitt til
fjárfestinga fyrir hönd lífeyrissjóðs-
ins þegar hann keypti skuldabréf
fyrir hönd sjóðsins af syni sínum.
Keypti framkvæmdastjórinn fyrr-
verandi bréfin án samþykkis eða
vitundar stjórnar lífeyrissjóðsins.
Þá var ákærði einnig sakfelldur
fyrir að hafa fyrir hönd sjóðsins en
án vitundar eða samþykkis stjórn-
arinnar, skuldabréf, sem hann sjálf-
ur var útgefandi að. Einnig var
hann sakfelldur fyrir að hafa farið
út fyrir umboð sitt til fjárfestinga
fyrir hönd lífeyrissjóðsins þegar
hann veitti fyrir hönd sjóðsins
einkahlutafélagi, sem sonur hans
var í fyrirsvari fyrir, lán með veði í
fasteign sem var langt umfram
leyfileg viðmiðunarmörk.
Ákærði ekki sætt
refsingum fyrr
Í niðurstöðu dómsins segir að
ákærði sé nærri 71 árs og hafi ekki
sætt refsingum fyrr. Hins vegar
hafi honum verið falin rík ábyrgð
við fjárfestingar fyrir hönd lífeyr-
issjóðsins fyrir umtalsverðar fjár-
hæðir á grundvelli þess, að hann
hafði frá árinu 1970 aflað sér viða-
mikillar og haldgóðrar reynslu við
fjárfestingar. Brot hafi verið honum
sjálfum og þó aðallega syni hans til
hagsbóta.
Fram kemur jafnframt, að
ákærði leitaðist ekki við að leyna
brotum sínum með skipulögðum
hætti. Starfsmenn sjóðsins og innra
eftirlit, hafi átt færi á að afla upp-
lýsinga um allar fjárfestingar hans
en athygli veki að innra eftirlit líf-
eyrissjóðsins hafði farið yfir fjár-
festingar hans án afgerandi athuga-
semda.
Símon Sigvaldason héraðsdómari
dæmdi málið. Verjandi ákærða var
Sveinn Andri Sveinsson hrl. og
sækjandi Björn Þorvaldsson fulltrúi
ríkislögreglustjóra.
Fyrrverandi framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðsins Framsýnar
10 mánaða fangelsi fyrir
umboðssvik og fleiri brot
DAVÍÐ Þór Björgvinsson, pró-
fessor við Háskólann í Reykjavík,
var kjörinn dómari við Mannrétt-
indadómstól Evrópu frá og með
25. september á þingi Evrópu-
ráðsins í Strassborg í gær. Davíð
Þór tekur sæti Gauks Jörunds-
sonar dómara sem lætur þá af
störfum fyrir aldurs sakir.
Í tilkynningu utanríkisráðu-
neytisins kemur fram að dómarar
séu kosnir til sex ára í senn og að-
ildarríkin tilnefni þrjá frambjóð-
endur í hvert sæti. Af hálfu Ís-
lands voru auk
Davíðs Þórs
héraðsdómar-
arnir Sigríður
Ingvarsdóttir
og Sigurður
Tómas Magn-
ússon tilnefnd.
Laganefnd
þings Evrópu-
ráðsins lýsti
alla frambjóð-
endur Íslands hæfa til setu í dóm-
stólnum.
Davíð Þór
Björgvinsson
Davíð Þór verður dómari við
Mannréttindadómstól Evrópu
NÚ gefst notendum mbl.is kostur á
að panta fríar smáauglýsingar sem
birtast munu á smáauglýsingavef
mbl.is. Hver auglýsing birtist í sjö
daga en að þeim tíma loknum er aug-
lýsandanum sendur tölvupóstur þar
sem honum er boðið að framlengja
birtingu um aðra sjö daga eða þá að
bóka nýja auglýsingu. Auglýsing get-
ur innihaldið allt að 160 stafi og hægt
er að láta mynd fylgja sé þess óskað.
Þetta tilboð stendur til 1. júní. Hægt
er að panta auglýsingu með því að
smella á hnappa sem eru efst í hægra
horni á forsíðu mbl.is, á Viðskiptavef,
Íþróttavef og vefnum Fólkið.
Fríar smáaug-
lýsingar á mbl.is
HEILMIKIÐ ber enn í milli í við-
ræðum um kjarasamning grunn-
skólans, að sögn Finnboga Sigurðs-
sonar, formanns Félags
grunnskólakennara. Niðurstaða
samningafundar sem haldinn var í
húsnæði ríkissáttasemjara í gær er
að launanefnd sveitarfélaga mun á
miðvikudag í næstu viku leggja fram
tilboð. Finnbogi segir að á grund-
velli tilboðsins verði tekin ákvörðun
um framhaldið.
Samningar grunnskólakennara
runnu út hinn 31. mars og segir
Finnbogi aðspurður að ekki sé hægt
að segja hvort langt sé í að samn-
ingar muni nást. Ýmislegt geti gerst
á stuttum tíma ef menn finni ein-
hvern flöt til að ná saman. „Það væri
virkilega óskandi að það væri mögu-
legt að ná samningum [áður en skóla
lýkur í vor], en við erum að falla á
tíma með það,“ segir Finnbogi.
Hann segir að einkum séu það
umræður um vinnutíma og launalið-
inn sem skilji samningsaðila að og
segist ekki geta merkt að það hafi
verið komið til móts við kröfur kenn-
ara. Hann segir að ef til verkfalls
kæmi myndi það líklega hefjast um
næsta haust. „Miðað við daginn í dag
er kannski ekki mikil bjartsýni í
mínum huga, en maður veit aldrei
hvað gerist,“ segir Finnbogi.
Fundað hefur verið um kjara-
samning grunnskólans frá 2. febr-
úar. Finnbogi segir að fyrst hafi ver-
ið fundað vikulega en að undanförnu
hafi verið styttra á milli funda.
„Þetta tekur tíma og reynir á þol-
inmæði,“ segir hann.
Kjaraviðræður grunnskólakennara og launanefndar
Heilmikið ber enn í milli
Tilboð lagt fram
á miðvikudag