Morgunblaðið - 29.04.2004, Síða 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
NÁÐST hefur samkomulag um
lækkun verðs á ýmsum samheitalyfj-
um þannig að samheitalyfjamarkað-
urinn lækkar um 9%. Jón Kristjáns-
son heilbrigðisráðherra hefur í
kjölfarið ákveðið að fresta í þrjá
mánuði gildistöku reglugerðar og
viðmiðunarverðskrár lyfja með sam-
bærileg meðferðaráhrif sem átti að
taka gildi 1. maí. Á þessum þremur
mánuðum á að reyna að ná fram
samningum milli fulltrúa lyfjaheild-
sala, smásala og hérlendra lyfjafram-
leiðenda um almenna lækkun á lyfja-
verði.
Samheitalyfjamarkaðurinn
lækkar um 9%
Verðlækkanirnar sem lyfjaverðs-
nefnd, Pharmaco og Samtök verslun-
ar og þjónustu hafa náð samkomu-
lagi um, ná til ýmissa samheitalyfja
og taka gildi 1. maí. Páll Pétursson,
formaður lyfjaverðsnefndar, segir að
með samkomulaginu lækki samheita-
lyfjamarkaðurinn um 9%. Verð á
sumum lyfjum verði óbreytt en
magalyf lækki um 12%, blóðfitulækk-
andi lyf um 24% og geðlyf um 11%.
Alls hafi breytingin um 230 milljóna
króna lækkun í för með sér, hluti TR
sé þar 150 milljónir.
Á fjárlögum er gert ráð fyrir 450
milljóna króna lækkun á lyfjaútgjöld-
um Tryggingastofnunar ríkisins á
þessu ári. Í fréttatilkynningu frá
heilbrigðis- og tryggingarmálaráðu-
neyti segir að upptaka reglugerðar-
innar og viðmiðunarverðskrárinnar,
sem nú hefur verið frestað í þrjá
mánuði, hafi verið liður í aðgerð sem
ráðherra setti fram um síðustu mán-
aðamót til að mæta sparnaðarkröfum
fjárlaga, sem og samkomulag lyfja-
verðsnefndar við fulltrúa heildsala
lyfja um lækkun lyfjaverðs.
Í tilkynningunni segir að á síðustu
dögum hafi átt sér stað gagnlegar
viðræður við fulltrúa lyfjaheildsala,
smásala og hérlenda lyfjaframleið-
endur þar sem fram hafi komið ein-
dreginn vilji til að ná tilætluðum
sparnaði þessa árs með almennri
lækkun á lyfjaverði. Jafnframt hafi
þeir lýst yfir vilja til að fara rækilega
yfir hvaða leiðir séu fyrir hendi til að
ná niður þeim mun á lyfjakostnaði
sem greinlega hafi komið í ljós í
skýrslu Ríkisendurskoðunar um
lyfjamál, þar sem bent var á að lyfja-
kostnaður hérlendis hefði verið 4,4
milljörðum króna lægri en hann var
árið 2003, hefði lyfjakostnaður hér-
lendis verið hlutfallslega sá sami og í
Danmörku og Noregi. Þannig hefði
hann farið úr 14 milljörðum króna í
9,6 milljarða.
Lyfjalög endurskoðuð
Segir að ráðherra voni að þær við-
ræður sem nú standi yfir geri heil-
brigðisyfirvöldum kleift að mæta
sparnaðarkröfu fjárlaga og að þær
leiði til varanlegrar lækkunar lyfja-
verðs, sem komi sjúklingum, skatt-
greiðendum og ríkinu til góða. Einn-
ig hafi ráðherra lýst því yfir að í vor
yrði settur á laggirnar starfshópur
sem hafi það verkefni að endurskoða
lyfjalögin og hann muni óska eftir
samstarfi við þá hagsmunaaðila sem
að því máli koma.
Páll segir að verulegur árangur til
lækkunar lyfjaverðs hafi náðst síð-
ustu daga, með samkomulagi sem
náðist við innflytendur í byrjun apríl.
„Lækkun á lyfjaverði frá því sem
annars hefði orðið er á milli 8 og 9%,
þá er ég að tala um lyfseðilskyld lyf.
Þá lækkar lyfjapakki þjóðarinnar um
800–1.000 milljónir á ársgrundvelli,“
segir Páll.
Gildistöku reglugerðar og verðskrár lyfja með sambærileg áhrif frestað
Verð á sam-
heitalyfjum
mun lækka
Þýðir um 150 milljóna króna sparnað
hjá Tryggingastofnun ríkisins
Í viðræðum lyfjaheildsala, smásala og framleiðenda að undanförnu hefur
komið fram vilji til að leita leiða til almennrar lækkunar á lyfjaverði.
STJÓRN SÍBS og lyfjahópur Félags
íslenskra stórkaupmanna (FÍS)
hafa fagnað þeirri ákvörðun heil-
brigðisráðherra að fresta gildis-
töku reglugerðar og viðmiðunar-
verðskrár samanburðarlyfja.
Í tilkynningu frá stjórn SÍBS er
umræddum aðgerðum ríkisstjórn-
arinnar í lyfjamálum sem gert var
ráð fyrir að tækju gildi 1. maí nk.
harðlega mótmælt. Þar segir meðal
annars að SÍBS sé almennt með-
mælt aðhaldi í lyfjaverði og að leit-
að verði leiða til að lækka það. Hins
vegar hafi verið bent á að ofan-
greindar aðgerðir muni ekki skila
tilætluðum árangri. Samtökin
fagna nýframkomnum upplýs-
ingum um frestun gildistöku þess-
ara aðgerða. Þannig gefist tóm til
að ræða við og fá fram frekara álit
hagsmunaaðila á þessu mikilvæga
máli.
Í fréttatilkynningu frá lyfjahópi
FÍS er minnt á að það er forsenda
þess samkomulags um tilhögun við
verðákvarðanir á lyfjum sem lyfja-
heildsalar hafa náð við lyfjaverðs-
nefnd, að hætt verði við áform um
viðmiðunarverðskrá.
Þá segir í fréttatilkynningu FÍS
að viðræður við lyfjaverðsnefnd
hafi skilað árangri sem markar
tímamót í verðlagningu frumlyfja á
Íslandi. FÍS vonast til þess að það
samkomulag sem gert hafi verið
muni leiða til þess að verð á frum-
lyfjum hér á landi verði til fram-
búðar sambærilegt og í nágranna-
löndunum.
Frestuninni fagnað
EFLING Sameinuðu þjóðanna (SÞ)
var til umræðu á þingfundi Evrópu-
ráðsins í Strassborg í gær, miðviku-
dag. Sólveig Pétursdóttir, formaður
Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins
og talsmaður flokkahóps hægri-
manna, sagði í ræðu að alþjóðasam-
félaginu bæri að stefna að því að efla
stofnunina og skilvirkni hennar, ekki
síst í ljósi nýrra ógna sem væru
hnattrænar í eðli sínu.
Sólveig sagði að Íraksstríðið og að-
dragandi þess hefði vissulega reynt á
þanþol SÞ en slíkt hefði einnig gerst í
fortíðinni, t.a.m. á Balkanskaga, og
svæðisbundnar stofnanir líkt og Atl-
antshafsbandalagið hefðu orðið að
grípa inn í hættuástand til að afstýra
frekari hörmungum. Sólveig sagði að
allir hlytu að vera á þeirri skoðun að
það væri eflingu stofnunarinnar síst
til framdráttar að ásaka einstök ríki
fyrir að ekki hefði náðst samstaða
um tiltekin mál í öryggisráðinu. Um-
bætur til framtíðar væru lykilatriðið.
Sólveig sagði SÞ vera hinn rétta
vettvang fyrir mörg afar mikilvæg
málefni og með starfi sínu ynnu sam-
tökin að bættum hag hundruða millj-
óna manna þótt kastljósi fjölmiðla
væri beint annað. Baráttan gegn
mansali, alnæmi og fátækt væru fá
dæmi um þá mikilvægu málaflokka
sem SÞ beittu sér fyrir úrlausn á.
Minni ríki geta haft áhrif
Þá sagði Sólveig að öryggisráð SÞ
yrði að endurspegla aðildarríki
stofnunarinnar og jafnframt yrði að
gæta að skilvirkni hennar. Taldi hún
að aukinn fjöldi sæta í öryggisráðinu,
bæði fastafulltrúa og kjörinna, hefði
mikið gildi og að ný ríki sem hlytu
fast sæti í öryggisráðinu undirgeng-
ust sömu skyldur og nytu sömu rétt-
inda og þau sem fyrir eru.
„Minni ríki geta haft pólitísk áhrif
á alþjóðavettvangi og í flestum til-
fellum eru þau áhrif afar jákvæð. Í
mörgum tilfellum eru smærri ríki
betur til þess fallin að miðla málum
og Norðurlöndin eru gott dæmi um
það,“ sagði Sólveig í ræðu sinni.
Þá sagði hún að Íslendingar hefðu
tilkynnt um framboð sitt til setu í ör-
yggisráði SÞ fyrir árin 2009–2010 og
væri það rökrétt framhald á þeirri
stefnu íslenskra stjórnvalda að
stuðla að friði, öryggi, lýðræði og far-
sæld.
Ber að efla
Sameinuðu
þjóðirnar
KONUR í þróunarríkjunum
gegna lykilhlutverkum við að
ná settum markmiðum um
sjálfbæra þróun og hreinlæti
vatns, en konur sjá að verulegu
leyti um öflun vatns til heim-
ilishalds og hreinlæti í þróun-
arríkjunum. Því er grundvall-
aratriði að bæta menntun
kvenna, styrkja stöðu þeirra í
samfélaginu.
Þetta var meðal þess sem
fram kom í máli Sivjar Frið-
leifsdóttur umhverfisráðherra
við upphaf fundar nefndar SÞ
um sjálfbæra þróun sem hófst í
New York í gær og stendur
fram á föstudag. Þar er rætt
um framkvæmd samþykkta Jó-
hannesarborgarráðstefnunnar
árið 2002. Einkum er athygl-
inni beint að samþykktum er
snúa að verndun ferskvatns,
hreinlætismálum og byggða-
og þéttbýlismyndun. Siv lagði
auk þess áherslu á framkvæmd
alþjóðlegrar áætlunar um varn-
ir gegn mengun sjávar frá
landi, en með henni má bæði
draga úr mengun hafsins, auka
hreinlæti og vernda ferskvatn.
Brýnt væri einnig að huga að
meðferð sorps og frárennslis.
Í lykilhlut-
verki í sjálf-
bærri þróun
SJÁVARKJALLARINN, 101 Hótel
í Reykjavík og Hótel Búðir á Snæ-
fellsnesi eru það „heitasta“ á Íslandi,
ef marka má ferðatímaritið Condé
Nast Traveler. Tímaritið birtir ár-
lega lista (Hot list) yfir 100 bestu
nýju hótel í heimi að mati tímarits-
ins, 66 bestu nýju veitingastaðina og
30 bestu nýju barina. „Listinn er
birtur í maíhefti blaðsins, sem var að
koma út, og á Ísland þar fjóra full-
trúa. Það eru 101 Hótel í Reykjavík
og Hótel Búðir á Snæfellsnesi sem
talin eru í hópi 100 bestu nýju hótela
heimsins, Sjávarkjallarinn er á list-
anum sem einn af 66 bestu nýju veit-
ingastöðunum og barinn á 101 Hótel
sem einn af 30 bestu börunum,“ seg-
ir á vef Ferðamálaráðs Íslands.
Blaðamenn frá tímaritinu komu
hingað til lands á vegum skrifstofu
Ferðamálaráðs í New York í fyrra-
haust. Einar Gústavsson, forstöðu-
maður í New York, segir að þeim
hljóti að hafa líkað dvölin. Hann tel-
ur vel viðeigandi að íslenskir veit-
ingastaðir og hótel komist á listann,
enda sé Ísland spennandi í hugum
Bandaríkjamanna.
Talsverð umfjöllun er um hvern
stað sem á listann kemst og helstu
kostir tíundaðir og rökstutt hvað
gerir hann þess verðan.
Á vef Ferðamálaráðs kemur fram
að Condé Nast Traveler er frægt um
allan heim og talið virtasta ferða-
tímarit í Bandaríkjunum. Það kemur
út mánaðarlega og er lesið af um
fimm milljónum manna. Einar segir
það mikinn heiður að komast á
listann. Það sé jafnan „ríkulega not-
að í markaðssetningu hjá þeim sem
til þess vinna.“ Hann segir blaða-
menn tímaritsins heimsækja tugi
landa og þúsundir hótela ár hvert.
Það sé þannig með ólíkindum að litla
Ísland skuli fá svo mikla athygli.
Ísland í tísku hjá
Bandaríkjamönnum
INGIBJÖRG Pálmadóttir, eigandi
101 Hótel, er að vonum ánægð með
að hótelið hefur verið valið á lista
yfir 100 bestu nýju hótel í heimi af
bandaríska ferðatímaritinu.
„Ég er rosalega glöð í mínu
hjarta,“ sagði Ingibjörg þegar
Morgunblaðið bar þessar fréttir
undir hana í gær. „Þetta er mjög
góð auglýsing,“ sagði hún.
101 Hótel í Reykjavík komst
einnig nýverið á sambærilegan lista
yfir 50 „heitustu“ hótelin í dag í
evrópsku tímariti Condé Nast-
útgáfunnar, sem hefur m.a. verið
birtur í dagblaðinu Evening Stand-
ard í London.
Góð auglýsing