Morgunblaðið - 29.04.2004, Blaðsíða 12
FRÉTTIR
12 FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
KÍSILGÚR er unninn úr setlögum en ekki er vitað til þess að vinnsla úr votnámu fari fram ann-
ars staðar í heiminum en í Mývatni. Kísilgúrinn er myndaður af skeljum dauðra kísilþörunga sem
hafa hlaðist upp á 2000 árum og mynda nokkurra metra þykkt setlag á botni Mývatns. Skeljarnar
eru örsmáar, holar að innan og því gegndræpar og þykja henta vel til síunar á vökva sem og fylli-
efni í ýmiss konar iðnaði. Mestur hluti þess bjórs sem drukkinn er í Evrópu er síaður gegnum
kísilgúr áður en honum er tappað á flöskur. Gúrinn er einnig notaður til að sía sykurvökva, mat-
arolíu, flugvélabensín og blóð í blóðbönkum, svo fátt eitt sé nefnt. Sem slípiefni er gúr m.a. not-
aður í bílabón og tannkrem. Kísilduft sem rætt er um að framleiða í stað kísilgúrs er enn „fínni“
framleiðsla og verður það unnið úr innfluttu kvartsi.
Heimild: Vísindavefur Háskóla Íslands.
Kísilgúr notaður við síun bjórs
reynt væri að ganga frá öðrum atrið-
um samningsins.
Á félagsfundi FÍA í fyrrakvöld kom
fram stuðningur við samninganefnd
félagsins og sagði Halldór flugmenn
líklega ekki mjög fúsa til að fljúga á
frídögum þótt Icelandair leitaði eftir
því. Sagði hann flugmannahópinn hjá
fyrirtækinu of knappan um þessar
mundir þar sem of mörgum hefði ver-
ið sagt upp á liðnu hausti og ekki
væru enn komnir nógu margir til
vinnu á ný eftir endurráðningar. Við
slíkar aðstæður sagði hann ekki úti-
lokað að truflun gæti orðið á flugi.
Engar truflanir urðu á flugi Ice-
landair í gær samkvæmt upplýsing-
um frá félaginu.
Sáttasemjari hefur boðað næsta
fund á mánudaginn kemur.
ÝMIS hagræðingaratriði sem tengj-
ast kjarasamningi eru nú til skoðunar
hjá samninganefnd Félags ísl. at-
vinnuflugmanna, FÍA, og fulltrúa
Flugleiða. Halldór Þ. Sigurðsson, for-
maður FÍA, tjáði Morgunblaðinu í
gær að á samningafundi í fyrradag
hefði komið fram tilboð frá Icelandair
sem flugmönnum hefði ekki þótt að-
gengilegt. Formaður FÍA segir að
rætt hafi verið að samningurinn tæki
mið af kjarasamningum Flóabanda-
lagsins en síðan væru ýmis hagræð-
ingaratriði sem tengjast samningnum
til umræðu. Sagði hann deiluaðila
telja þessi atriði misjafnlega verðmæt
og um það snerust rökræðurnar nú.
Hann sagði að lagðar hefðu verið til
hliðar umræður um atriði eins og út-
haldstíma í leiguflugi erlendis meðan
Ýmis hagræðingar-
mál til skoðunar
Kjaraviðræður flugmanna og Icelandair
KÍSILIÐJAN við Mývatn tók til starfa síðla
árs 1967 en unnið hafði verið að uppsetningu
tækjabúnaðar og bygginga sumrin 1966 og
67 og var verksmiðjan gangsett um haustið.
Upphaflega var ráðgert að framleiðslan
næmi allt að 12 þúsund tonnum á ári en
reiknað með að hún yrði stækkuð og árs-
framleiðslan gæti numið allt að 24 þúsund
tonnum. Var fljótlega ráðist í að stækka
verksmiðjuna og var því lokið 1971. Hefur
framleiðsla Kísiliðjunnar síðan numið 20–30
þúsund tonnum á ári. Árið 2001 var raunar
slegið framleiðslumet þegar framleidd voru
30.434 tonn af kísilgúr og einnig var slegið
sölumet, því seld voru 29.298 tonn.
Þáttur Baldurs Líndal
Í bók Sveins Þórðarsonar, Auður úr iðrum
jarðar. Saga hitaveitna og jarðhitanýtingar á
Íslandi, segir frá því að fljótlega upp úr 1950
þegar rannsóknir hófust á því hvernig hag-
nýta mætti jarðgufu við Námafjall hafi ljóst
orðið að hugsanlega mætti nýta kísilgúr úr
Mývatni með aðstoð jarðgufu. Samkvæmt
áliti Baldurs Líndal verkfræðings, sem sagt
er frá í Andvara árið 1959, benti auk þess
flest til að kísilgúrverksmiðja gæti orðið hag-
kvæmt fyrirtæki.
Í bók Sveins segir að í upphafi hafi verið
reynt að fá Þjóðverja til samvinnu um að
nýta kísilgúrinn í vatninu en þeir hafi látið
sér fátt um finnast og svo fór að Hollend-
ingar sem áttu gamalgróið námafyrirtæki frá
Indónesíu, AIME, sýndu málinu áhuga og
reiddu fram drjúga fjárupphæð til undirbún-
ings verkefninu. Árið 1964 var undirbúnings-
félag stofnað, ríkið var stærsti eigandinn en
hollensku aðilarnir áttu fimmtungshlut í því.
Þegar í ljós kom að óvíst var hvort unnt yrði
að ná fótfestu á mörkuðum í Evrópu drógu
Hollendingar sig hins vegar úr undirbúnings-
félaginu. Vorið 1965 gaf bandaríska námafyr-
irtækið Johns Manville út yfirlýsingu þess
efnis að þeir vildu taka þátt í rekstri á kís-
ilgúrverksmiðjunni og jafnframt annast sölu
á framleiðslunni. Frekari rannsóknir sem
gerðar voru á vatninu og vinnslumöguleikum
þess staðfestu álit Baldurs Líndal og svo fór
að samningar við Johns Manville voru und-
irritaðir sumarið 1965 og skyldi ríkið eignast
51% hlut, Bandaríkjamenn tæpan helmings-
hlut og sveitarfélög norðanlands afganginn.
Síðar eignaðist Celite Corporation tæpan
helmingshut í fyrirtækinu á móti ríki og
sveitarfélögum á Norðurlandi þar til fyrir
fjórum árum að Allied EFA, fyrirtæki í eigu
Fjárfestingafélagsins Straums hf. og banda-
rískra áhættufjárfesta, keypti Kísiliðjuna af
ríkissjóði og Celite Corporation.
Þegar þar var komið við sögu var offram-
leiðsla á afurðunum og heimsmarkaðsverð á
kísilgúr fór lækkandi. Gerður var samningur
við fyrri söluaðila, World Minerals, sem
tryggði sölu afurðanna í fjögur ár en sá
samningur rennur út um næstu áramót. Í
honum er að finna ákvæði um að sölufyr-
irtækið geti framlengt samninginn í allt að
tvö ár en ljóst er hins vegar að af því verður
ekki.
Um 60 starfsmenn í upphafi
Fjörutíu og sex starfsmenn missa vinnuna
þegar Kísiliðjan hættir starfsemi um áramót.
Framan af rekstrinum voru fleiri starfsmenn
í fyrirtækinu eða allt upp undir 60 manns en
smám saman tók starfsmönnum að fækka
með aukinni tæknivæðingu. Þess má geta að
engar konur unnu í verksmiðjunni í byrjun
en þær starfa nú á rannsóknastofu og við
pökkun hráefnis.
Þegar nýir eigendur tóku við rekstri Kís-
iliðjunnar fyrir fjórum árum var hugmyndin
sú að reka þar kísilduftverksmiðju í stað kís-
ilgúrverksmiðju og nýta þá uppbyggingu sem
fyrir er í Kísiliðjunni til framleiðslunnar.
Hægar gekk þó en menn spáðu fyrir um að
fjármagna reksturinn en forsvarsmenn Kísil-
iðjunnar hafa sagst að til tíðinda geti dregið í
vor um fjámögnun nýju verksmiðjunnar og
að hún verði komin í gagnið 2006. Miða hug-
myndir að því að engin námuvinnsla verði í
vatninu lengur með nýrri verksmiðju og
verður kvarts til kísilduftframleiðslunnar
flutt til landsins frá Noregi.
Andstaða við vinnslu í Syðri-Flóa
Lengi hefur einmitt verið deilt um
námuvinnslu vatninu og hefur vinnsla Kís-
iliðjunnar verið bundin við Ytri-Flóa
Mývatns. Námaleyfi á svæðinu gildir raunar
til 2010 og einnig stóð yfir vinna við um-
hverfismat vegna stækkunar á námasvæði í
Ytri-Flóa þar eð ljóst var að efnið yrði á
þrotum ef sölusamningurinn hefði verið
framlengdur um tvö ár eins og að var stefnt.
Þegar forsvarsmenn fyrirtækisins sáu fram
á að fyrirtækið myndi hætta eftir dælingu í
sumar voru þær fyrirætlanir lagðar til hlið-
ar.
Þess má geta að umhverfismat vegna
vinnslu á kísilgúr í Syðri-Flóa liggur fyrir og
hefur legið fyrir um tveggja ára skeið en ekki
hefur verið sótt um námaleyfi. Lætur nærri
að kostnaður fyrirtækisins við gerð þessara
tveggja umhverfismata sé í kringum 60 millj-
ónir króna.
Á sama tíma hefur lengi gætt andstöðu
meðal margra gagnvart kísilgúrvinnslu í
Syðri-Flóa auk þess sem vinnsla þar hefði
þýtt umtalsverða fjárfestingu fyrir fyr-
irtækið, kaup á nýjum dælum og leiðslum og
jafnvel nýjum dælupramma. Aðstæður þar
eru aðrar en í Ytri-Flóanum, stærra haf og
meira dýpri.
En hver eru áhrif kísilgúrverksmiðjunnar
á lífríki Mývatns? Fyrir 30 árum voru sett
lög sem tryggja áttu verndun Mývatns og
Laxár og var í þeim ákvæði um stofnun nátt-
úrurannsóknastöðvar sem starfað hefur um
árabil og rannaskað lífríki Mývatns. Komið
hefur í ljós að miklar sveiflur hafa ávallt ver-
ið í lífríkinu við Mývatn. Þá hefur meðal ann-
ars verið á það bent að veiði í Mývatni hafi
dregist mjög saman samhliða rekstri Kísiliðj-
unnar. Fyrir 1970 var meðalveiði í vatninu
30-35 þúsund fiskar á ári og meðalþyngd 2 kg
en í dag eru veiddir í Mývatni tvö þúsund
fiskar og er meðalþyngd þeirra u.þ.b. 500
grömm.
Heimild
Auður úr iðrum jarðar. Saga hitaveitna og jarðhita-
nýtingar á Íslandi. Höf. Sveinn Þórðarson.
Gagnasafn Morgunblaðsins og viðtöl.
Tæplega 40 ára
sögu að ljúka
Dælingu á kísilgúr úr Mývatni verður hætt síðsumars og
verður starfsemi Kísiliðjunnar lögð niður í síðasta lagi
um næstu áramót. Lýkur þar með tæplega fjögurra ára-
tuga sögu verksmiðjunnar sem frá upphafi var umdeild.
kristjan@mbl.is
LÁTINN er á Stokkseyri á 79. ald-
ursári Jónas Svafár (Einarsson)
skáld. Jónas fæddist í Reykjavík árið
1925 og stundaði nám við Laugar-
vatnsskóla 1941–1942, fékkst við
verslunarstörf og sjómennsku en hóf
ritstörf 1948 og hefur gjarnan verið
talinn til atómskáldanna svokölluðu.
Fyrsta ljóðabók hans, Það blæðir úr
morgunsárinu, kom út árið 1952 og
Geislavirk tungl 1957 en Jónas
myndskreytti bækur sínar sjálfur.
Heildarsafn ljóða Jónasar með
teikningum, Klettabelti fjallkonunn-
ar, kom út árið 1968.
Andlát
JÓNAS
SVAFÁR
ist bifreiðin talsvert. Talið er að
konan, sem var ein í bifreiðinni,
hafi misst vald á henni í lausa-
möl. Ekki er talið að hún hafi
hlotið alvarleg meiðsl.
KONA var flutt með sjúkrabif-
reið á Heilbrigðisstofnun Austur-
lands í gær eftir bílveltu við
Skriðuvatn í Skriðdal. Slysið
varð um klukkan 14 og skemmd-
Bílvelta við Skriðuvatn