Morgunblaðið - 29.04.2004, Side 14
ERLENT
14 FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Á ANNAÐ hundrað vopnaðra músl-
íma féll í gær eftir harða bardaga við
öryggissveitir í Suður-Taílandi. Eru
þetta mestu átök, sem um getur í
suðurhluta landsins en þar eru músl-
ímar í meirihluta í nokkrum héruð-
um.
Í birtingu í gærmorgun réðust
múslímarnir, aðallega ungir menn
vopnaðir byssum og sveðjum, á 10
lögreglustöðvar í þremur héruðum,
Yala, Pattani og Songkhla, skammt
frá landamærunum við Malasíu.
Hafði lögreglunni borist njósn af því,
sem til stóð, og var því vel búin undir
átökin. Í þeim féllu 122 árásarmann-
anna, sex særðust og 17 voru hand-
teknir.
Thaksin Shinawatra, forsætisráð-
herra Taílands, sagði, að um hefði
verið að ræða glæpaflokka og til-
gangur árásanna að stela vopnum til
að selja. Aðrir neita því og segja, að
múslímskir aðskilnaðarsinnar hafi
verið að verki en oft hefur verið
ófriðlegt í fyrrnefndum héruðum þar
sem múslímar eru í meirihluta. Eru
þeir ekki nema 4% af taílensku þjóð-
inni, sem er almennt búddatrúar.
Blóðug lík
á götunum
Varnarmálaráðherra Taílands
sagði í gær, að fjölgað yrði í herliðinu
í suðurhluta landsins en bauðst jafn-
framt til að taka upp viðræður við
múslíma.
Mestu átökin urðu við helgustu
mosku múslíma í Pattani og var þar
ófagurt um að lítast í gær. Lágu
blóðidrifin lík á götunni og sýndi taí-
lenska sjónvarpið myndir af því er
þeim var kastað eins og skepnu-
skrokkum upp á bíl.
Blóðug átök
í S-Taílandi
AP
Taílenskir öryggissveitamenn standa yfir líkum tveggja manna, sem þátt tóku í árásunum. Hafði annar þeirra
sveðju að vopni eins og sjá má. Voru árásarmennirnir flestir ungir að árum og jafnvel unglingar.
Meira en 100 aðskilnaðarsinnar músl-
íma féllu í árás á lögreglustöðvar
Pattani. AFP.
MIKILLAR óánægju gætir meðal
Íraka með nýjan þjóðfána sem
íraska framkvæmdaráðið í Bagdad
hefur kynnt og á að vera tákn nýs og
lýðræðislegs Íraks.
Nýi fáninn var kynntur formlega í
gær en íraskir fjölmiðlar höfðu áður
birt myndir af honum.
Rifaat Shadershi, listamaður í
London, hannaði fánann. Hann er
bróðir Nassirs al-Shadershis sem á
sæti í íraska framkvæmdaráðinu.
Þeir sem gagnrýna fánann segja
að hann skírskoti ekki nægjanlega til
íraskrar menningar og arabíska
meirihlutans í landinu. Kúrdíski
minnihlutinn fái þar of mikið vægi og
fölblár litur hálfmána á fánanum geri
hann of líkan fána Ísraels.
Segja fánann líkjast
ísraelska fánanum
„Þetta er fáni nýs lands, ekki
10.000 ára menningar. Hann er
grunnfærnislegur og engu er líkara
en einhver nemandi hafi hannað
hann,“ sagði listmálarinn Qasim
Alsabti. „Blátt er ekki íraskur litur.
Ef við færum upp bláa rönd og setj-
um stjörnu í staðinn fyrir hálfmán-
ann verður þetta fáni Ísraels.“
Aðrir bentu á að það voru Banda-
ríkjamenn sem skipuðu menn í fram-
kvæmdaráðið og það nýtur lítils
stuðnings meðal Íraka. Þeir telja því
ekki eðlilegt að ráðið velji fána lands-
ins.
„Þar sem ráðið var ekki þjóðkjörið
er það peð Bandaríkjamanna. Það
hefur engan rétt til að velja fána nú
þegar landið er hernumið,“ sagði
sextugur prófessor sem vildi ekki
láta nafns síns getið. „Fáni er tákn
sjálfstæðrar þjóðar og þarf að skír-
skota til arfleifðar föðurlandsins. En
þessi fáni skírskotar ekki til íraskrar
menningar, arabískrar þjóðernis-
hyggju, eða þjóðareiningar.“
„Reyna að afmá arabískt
eðli landsins“
Litirnir í gamla fánanum – rauður,
hvítur, svartur og grænn – táknuðu
sam-arabíska þjóðernishyggju og
íslam. Mörgum Írökum gremst það
mjög að þessir litir skuli ekki vera á
nýja fánanum, nema hvíti liturinn
sem táknar frið.
„Litirnir í gamla fánanum táknuðu
íslam og byltinguna gegn Tyrkja-
veldi, minntu á stofnun lýðveldisins
og það að Írak tilheyrir arabaheim-
inum. Stjörnurnar þrjár minntu á
sameinaða Arabíska lýðveldið (sem
stofnað var með Sýrlandi og Egypta-
landi 1963 en var skammlíft],“ sagði
sagnfræðiprófessorinn Abdelrakhm-
an Badri, 52 ára sjíti.
„Þeir eru að reyna að afmá arab-
ískt eðli landsins, þótt við séum í
meirihluta, og einangra okkur frá
hinum arabalöndunum,“ sagði Adel
Makhmud, 45 ára fyrrverandi her-
foringi.
Í nýja fánanum er gul rönd sem
skírskotar til íraskra Kúrda og hefur
það vakið mikla óánægju meðal ann-
arra Íraka.
Mikil óánægja í Írak
með nýjan þjóðfána
Bagdad. AFP.
!" #"$
% # & % % '
)*+* *
'% + ,
-*
.* )
!"
./0 0
#
$
" % &
' ()*+,
" ")
% -
"
./ &- .*, **
01 1 2'03
2, $
())(
Táknum frá tíð Saddams Husseins kastað fyrir róða
’Þessi fáni skír-skotar ekki til ír-
askrar menningar,
arabískrar þjóðern-
ishyggju, eða þjóð-
areiningar.‘
Sagt að með
honum sé verið
að reyna að ein-
angra Írak frá
öðrum ríkjum í
arabaheiminum
HARÐIR bardagar blossuðu upp
milli bandarískra hermanna og upp-
reisnarmanna úr röðum súnníta í
írösku borginni Fallujah í gær eftir að
Bandaríkjamenn hófu loftárásir á
borgina. George W. Bush Banda-
ríkjaforseti sagði að hernámsliðið
myndi „grípa til allra nauðsynlegra
aðgerða“ til að kveða niður uppreisn-
ina í Fallujah.
Bandarískar herflugvélar skutu
flugskeytum á nokkrar byggingar og
bíla meintra uppreisnarmanna í loft-
árásunum eftir að bandarískir her-
menn urðu fyrir árás í borgarhluta
þar sem hernámsliðið hefur mætt
mestri mótspyrnu.
Beitt var vélbyssum í herþyrlum
sem flugu yfir borgina og bandarísk-
ar leyniskyttur skutu á uppreisnar-
menn.
Bandarískir embættismenn segja
að um 2.000 uppreisnarmenn séu í
Fallujah. Hernámsliðið hefur setið
um borgina í rúmar þrjár vikur en
Bandaríkjaher hefur hætt við að ráð-
ast inn í hana til að ná henni á sitt
vald.
Tony Blair
varði hernaðinn
Bandaríkjamenn héldu áfram að
þjálfa íraskar öryggissveitir sem eiga
að fara í eftirlitsferðir um götur Fall-
ujah ásamt bandarískum hermönn-
um. Eftirlitið átti að hefjast á þriðju-
dag en því var frestað, meðal annars
vegna afmælis Saddams Husseins,
fyrrverandi leiðtoga Íraks, sem varð
67 ára í gær.
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, varði hernaðinn í gær og sagði
að það hefði verið „fullkomlega rétt“
að gera loftárásirnar á Fallujah. „Ég
harma alltaf mannfall meðal
óbreyttra borgara en það er nauðsyn-
legt að binda enda á árásirnar og
Bandaríkjamenn eru að reyna að
gera það,“ sagði Blair á þinginu.
Loftárásir á
uppreisnar-
menn í Fallujah
*,1* &,
-% " , & ) % %) +&, **" ,2 & *
3 44 5
) , * &4
45
6
--
! ." &/ 7
8
-,
**"
"
Bagdad. AFP.
MUHAMMAD Gaddafi, leiðtogi
Líbýu, sagði í gær, að hann hefði
„einskis að iðrast“ en Líbýustjórn
var lengi sökuð um að styðja
hryðjuverkamenn.
„Við áttum í frelsisstríði og vor-
um sakaðir um að vera hryðju-
verkamenn. Það var gjaldið, sem
við urðum að greiða. Ef það var
hryðjuverk að berjast fyrir frelsi í
Afríku, þá erum við hreyknir af
því,“ sagði Gaddafi í viðtali við
Radio France Internationale.
Gaddafi sagði þetta á lokadegi
heimsóknar sinnar til Brussel en
segja má, að með henni hafi verið
bundinn endi á alþjóðlega einangr-
un landsins. Sem dæmi um það má
nefna, að Heimsmeistaramótið í
skák verður haldið í Líbýu í sumar
og líklegt er, að meðal þátttakenda
verði þrír ísraelskir skákmenn.
Iðrast einskis
París. AFP.